Vísir - 07.10.1981, Blaðsíða 1
Sjö ára stúlka beið
bana í Keflavík:
varað leik
undir vagni
Hörmulegt slys varð i Keflavik
i gærkvöldi. Sjö ára gömul stúlka
varð undir dráttarvagni og beið
bana.
Slysið varð á Birkiteig i
Keflavík um klukkan 19:40. Litla
stiílkan var að leika sér undir
stdrum dráttarvagni, sem not-
aður er til að flytja ýtur og önnur
þungavinnutæki. Bilstjórinn fór
inn i bilinn i þessum svifum og ók
af stað, en hann hafði ekki orðið
var við stúlkuna og vissi ekki af
slysinu.
Krakkar voru að leika sér i
nágrenninu og gerðu aðvart um
stúlkuna. HUn var flutt i sjúkra-
húsið i Keflavik og þaðan a
Borgarspitalann i Reykjavik, þar
sem hún lést i gærkvöldi.
—ATA
Fjórir
plltar
bðrðu
á einum
Fjdrir sautján til átján ára
gamlir strákar réðust á fimmtán
ára gamlan pilt í Arbæjarhverf-
inu í gærkvöldi.
Pilturinn hafði verið að
skemmta sér i félagsmiðstöðinni
Árseli i Árbæjarhverfi og var á
leið heim til sin á reiðhjóli, en
hann býr i Breiðholti.
Fjórir strákar, sem voru á
Volkswagen bifreið, stoppuðu
piltinn og kröfðust þess, að hann
gæfi þeim barmmerki, sem hann
bar. Þegar pilturinn neitaði þvi,
börðu fjórmenningarnir hann
hvað eftir annað i andlitið og fóru
siðan.
Pilturinn meiddist ekki mikið
en er skrámaður i andliti. Fjór-
menningarnir hafa ekki fundist.
—ATA
ep bíll í
binum vísi?
- sjá bls. 14
Ríkisstiórnln hefur ekki tekiö afstððu til beiðni Flugleiöa:
Frumvarp lagt fyrlr
Alpingl um stuðning
„Afstaðan til Flugleiða hf. er i
skoðun ennþá. Við höfum fengið
flestar uppiýsingar frá félaginu,
sem óskað var eftir, og ég held
fund með fulltrúum þess nú á
eftir. Þeir hafa fengið vilyrði um
ákveðinn stuðning, en endanleg
afstaða i þviefni liggur ekki fyrir.
Það verður lagt fram sérstakt
lagafrumvarp um þetta mál i
byrjun Alþingis, en þa tel ég œski-
legt, að jafnframt liggi fyrir
stefna i skipulagi flugmálanna,
sem nú er mjög i deiglunni”,
sagði Steingrimur Hermannsson,
samgönguráðherra, i morgun.
„Það sem Flugleiðamenn vita,
er að ég tel rétt að félagið fái að
minnsta kosti styrk, sem nema
myndi töpuðum tekjum rikisins,
ef það yrði að hætta Norður-
Atlantshafsfluginu”, sagði Stein-
grimur.
Samkvæmt fyrri fréttum er
þetta metið um 1.8 milljónir
dollara.
„Hins vegar hefur fjármála-
ráðherra talið sig tilbúinn til þess
að fallast á sambærilegan
stuðning og Flugleiðir eiga að fá
frá Luxemborg.”
Sú upphæð er talin vera nálægt
1.2 milljónum doilara.
„Einnig teljum við eðlilegt, að
fargjöld á innanlandsleiðum
verði leiðrétt svo að þau standi
undir þeim þætti”, sagöi Stein-
grimur ennfremur.
„En ég legg áherslu á, að reynt
verði að koma á samstöðu um
steínuna i ílugmálunum og vona,
að viðræður milli fluglélaganna
nú leiði til þess, þannig að steínan
liggi fyrir um leið og ákvarðanir i
Flugleiða m álunum verða
teknar.”
HERB
rramKvæmair vio eystri hluta gangstigsins, sem leggja á undir Reykjanesbraut á móts viö Fáksheimilið eru nú hafnar. Er áætlað að það taki
um mánaðartfma að ljúka verkinu og verður þá komin samfelld göngubraut ofan jarðar og neðan, meöfram allri Miklubraut og beygjunni
niður hjá hesthúsum Fáks, yfir Reykjanesbrautina og upp i Breiðholt. Nokkrar tafir urðu á umferð I morgun vegna framkvæmdanna cn baö
verður leyst með lagningu malbikaðs framhjáhlaups upp á eyjuna sem anna á umferðarþunganum meðan á verkinu stendur. JB/myndEÞS
„Eiga yiip-
menn ekki
að stjópna”?
Kosníngar lll varaformanns Slálfslæðlsllokkslns:
Verða Friðrík og
Matthías í kjöri?
Miklar bollaleggingar eru uppi
manna á meðal hver eða hverjir
verði i kjöri til varaformanns
Sjálfstæðisflokksins á landsfundi
flokksins. Hafa einkum þrfr menn
verið nefndir, Friðrik Sophusson,
Matthias Bjarnason og Þorsteinn
Pálsson. Nú er hins vegar ljóst,
að Þorsteinn gefur ekki kost á
sér.
Þegar Visir ræddi við Þorstein I
morgun, neitaði hann þvi ákveðiö
að framboð af sinni hálfu væri i
deiglunni. Slikt kæmi ekki til
greina. Visi tókst að ná tali af
Friðrik Sophussyni, þar sem hann
var staddur i Vestmannaeyjum
og spurði hvort hann gæfi kost á
sér sem varaformaður.
„Það er ekki endanlega
ákveðið”, svaraði Friðrik, en
bætti þvi við að þess væri ekki
langt að biöa að ákvörðun lægi
fyrir. Ekki tókst að ná tali af
Matthiasi Bjarnasyni I morgun og
mun hann vera utanbæjar. Eftir
þvi sem Visir kemst næst verður
fundur i þingflokki Sjálfstæöis-
flokksins á föstudag og þá er
ætlunin að ræöa kjör varafor-
manns. Eftir þann fund veröur þá
ljóst, hvort Friðrik og Matthias
munu báðir gefa kost á sér i em-
bættið eða bara annar þeirra.
—SG
„Þetta er bara þessi venjulega
óánægja meö mannaráöningar og
annaö i þeim dúr. Spurningin er
að minu mati fyrst og fremst,
hvort yfirmenn eigi á annað borö
að fá að stjórna eöa að upp verði
tekin einhver Samstöðu-fyrir-
mynd hér innan veggja”, sagði
Hörður Frimannsson yfirverk-
fræðingur sjónvarpsins um þá
deilu sem þar er komin upp og
Visir sagði frá i gær.
„Þaö er engin óánægja hjá mér
og nær aö þeir sem eru aö kvarta
láti sinar skoðanir i ljós. Ég er
ekkert spenntur fyrir að ræða
þetta”, sagði Höröur.
—JB