Vísir - 07.10.1981, Blaðsíða 3

Vísir - 07.10.1981, Blaðsíða 3
3 Miðvikudagur 7. október 1981 Bankamenn una illa langdregnum samningavlðræðum „sieinir nraððyri út í vandræði” - seglr Vllhelm Litið hefur þokað i samninga- viðræðum bankamanna og bank- anna að undanförnu þrátt fyrir stöðugar viðræður deiluaðila und- anfarna mánuði. „Þvi er ekki að leyna að við höfum ekki fengið ennþá viöræð- ur um það sem skiptir mestu máli i kröfugerðinni, sem við lögðum fram, það er hækkun grunn- launa”, sagði Vilhelm G. Krist- insson hjá Sambandi islenskra bankamanna i viðtali við Visi. „Ef fram heldur sem horfir stefn- ir þetta harðbyri út i vandræði”. Sagði Vilhelm að fundir yrðu haldnir i öllum starfsmannafé- lögum bankamanna i vikunni. G. Kristlnsson Þar yröi staðan rædd og leitað eftir áliti fólks á henni. „Ég held að fólk uni þessu ákaf- lega illa. Við fengum til dæmis i gær undirskriftarlista frá um eitt þúsund félagsmönnum, þar sem óskað er eindregið eftir þvi, að samningaumleitanir verði ekki látnar dragast á langinn og itrek- að að nýr samningur verði látinn gilda frá þeim tima sem siðasti samningur rann út”, sagði Vil- helm. Visir rékk þær upplýsingar hjá embætti rikissáttasemjara i morgun, að ekki hefði verið á- kveðið hvenær samninganefnd- irnar yrðu boðaðar til fundar þar. — JSS Fiskverðsboltinn hjá ríkisstjórninni: Engir funflir hjá yfirnelnú Verölagsráös Yfirnefnd Verðlagsráös fisk- iðnaðarins hefur ekki komið sam- an siðan fyrir helgi og ekki hefur verið boðað til fundar hjá nefnd- inni. „Við biðum eftir þvi að sjá hvort rikisstjórnin ætlar að gera ráðstafanir, enda eru engar for- sendur fyrir fiskverðsákvörðun við óbreyttar aðstæður”, sagði Kristján Ragnarsson formaður Ltú, einn yfirnefndarmanna, í samtali við VIsii. Nýtt fiskverð átti að taka gildi 1. október, en fulltrúar kaupenda og seljenda i yfirnefnd eru sam- mála um aö fiskverðshækkun sé ógerleg, þótt hún sé jafnframt ó- umflýjanleg, nema að til komi op- inberar aðgerðir til stuðnings út- gerð og fiskiðnaði. I viðtölum við fulltrúa i yfir- nefnd Verðlagsráðs hafa þeir reiknað með að afstaða rikis- stjórnarinnar verði kunngerð ekki siðar en fyrir Sovétrikjaferð sjávarútvegsráðherra sem hefst eftir viku. HERB Alþýðubandaiagið: Senflip kveðju tii Solidarnosc Miostjórn Alþýðubandalagsins samþykkti á fundi sinum um helgina kveðju til stuðnings baráttu Soli- darnosc. KveðjanerstiluðtilLech Wal- esa og er svohljóðandi: „Miðstjórnarfundur Alþýðu- bandalagsins sendir þér; félögum þinum og samtökum ykkar kveðj- ur og óskir um árangur i baráttu ykkar fyrir sjálfsforræði pólskrar alþýðu, fyrir úrbótum varðandi daglegar nauðsynjar, fyrir upp- byggingu lifvænlegs efnahags- kerfis, fyrir lýðræði og mannrétt- indum i Póllandi. Ykkar sigrar styrkja alþýðuhreyfingar i öllum löndum.” —KS vísm Opið aila daga allan daginn Sparimarkaðurinn Austurveri v/Háaleitisbraut Neðra bílastæði (sunnan hússins). allt til sláturgerðar nýtt og ófryst slátur afgreitt beint úr kæ/i l . 1 VERDfl FIIMM AR MEO 2JA KÍLÚMETRA VEG! Hýi Mánárskrlðuvegurinn m siglufiarðar ekkl nolhæfur fyrr en næsia haust „Fjárveitingar hafa ekki dugað til þess að hraða verkinu meira, viðhöfum unnið fyrir allt sem lagt hefur verið i þetta, og þótt ekki vanti uema 100 metra til þess að ryðja I gegu að uorð- an, kostar það mikið fé og að öðru leytier þetta ekkiannað eu rudd slóð ennþá. Framkvæmd- irnar siðustu tvö ár hafa kostað um 200 þúsund krónur og það þarf annaðeins til þess að Ijúka þeim”, sagði Páll Þorsteinsson fulltrúi hjá Vegagerð rikisius á Sauðárkróki um nýja Mánár- skriðuveginn tii Siglu fjarðar. Páll sagði að þessi nýi vegur um Skriðurnar væri um tveir kílómetrar, hann væri um 100 metrum neðar en sá gamli, sem raunar er ekki m jög gamall, og um 70 metrum ofan við sjávar- mál. Nýi vegurinn verður að talið er mun snjóléttari en sá gamliog auk þess verður miklu auðveldara að losna við ruðning,þar sem sá nýi er skor- inn inn i Skriðurnar og snar- bratt fram af. „Þarna hefur verið unnið i miklum bratta með ýtum og ýmist í lausum skriðum eða bergi, sem orðið hefur að sprengja”, sagði Páll, „en að frátöldum þessum 100 metrum nyrst í Skriðunum er þetta orðin ýtuslóð. Ég tel hins vegar að alveg hafi verið vonlaust að ætla að nota veginn með þvi einu að opna þessa 100 metra, þótt Sigl- firðingar vildu fá vetrarveg þarna um i vetur. Það hefði þurft nokkra tugi þúsunda i við- bótarfé, sem við höfum ekki fyrr en næsta sumar.” Undanfarið hefur hrunið tals- vert á nýja veginn, en Páll taldi að við þvf hefði verið búist á meðan jarðvegurinn væri aö þjappast eftir raskiö. Nú er unnið að lagfæringum á 800 metra vegarkafla sunnan við Mánárskriður, sem hefur þá undarlegu náttúru að siga fram á hverju ári og jafnvel renna burt á 100 metra spotta, þegar verst lætur. „Það eru uppi kenningar um að þarna sé skriða á klöpp, sem hreyfist fram vegna vatnsaga frá stöðu- vatni.semerá stalli þarna fyrir ofan”, sagði Páll Þorsteinsson, „og að minnsta kosti er sam- band á milli þessa fyrirbæris og vætutíðar.” HERB SæJlðeisi' k\/f ) Id- HOTEL A A11 \yA\A LOFTLEIÐIR Sælkeri mánaóarins Hilmar B. Jónsson Hinn landsþekkti sælkeri, veitingastjóri og rit- stjóri Gestqjafans hefur látið tilleiðast að vera gestgjafi okkar á fyrsta sælkerakvöldi vetrarins, fimmtudagskvöldið 8. október 1981. Hilmar hefur valið sérkennilegan matseðil í Mk <* . samráði við matreiðslumenn hótelsins. Á seðl- ----■"----------— inum eru eftirfarandi réttir: Rækjufars í hlaupi, innbökuð hamborgara- kótiletta í rúgbrauðsdeigi með rauðvínssósu, fylltar pönnukökur með ávaxtakremi. Matur framreiddur frá kl. 19 stundvíslega. Borðapantanir í síma 22321, frá kl. 14-17. Pantið tímanlega. Síðast var troðfullt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.