Vísir - 10.11.1981, Síða 15
Þriðjudagur 10. nóvember 1981
vtsm
til að
íðarinnar
þeirra verka fellur aö sauma alla
búninga, annast viðgeröir og
breytingar, auk þvotta. Búninga-
geymslan er ekki langt undan og
þar saman komin kynstrin öll af
fatnaöi og fylgihlutum frá upp-
hafsárum leikhússins.
„Hér eru geymdar allar þær
flikur, sem mögulegt er að
notaðar veröi aftur I Þjóðleikhús-
inu, auk þess sem viö lánum hin-
um ýmsu leikfélögum úti á landi
þaö sem hægt er. Þaö getur veriö
ýmsum vandkvæöum bundið aö
finna hér þaö sem vantar, þvi aö
þrengslin eru óskapleg og hver
fermetri nýttur til hins ýtrasta.
Alls eru búningageymslurnar á
fjórum mismunandi stööum inn-
an húss og utan”, sagöi Sig-
mundur örn.
Aöstaöa til geymslu leikmuna I
Þjóöleikhúsinu er ekki mikil,
enda eru slikir munir hýstir úti
um allan bæ.
Eitt slikt afdrep fundum við þó
og þar eru vistaðir þeir munir,
sem oftast eru notaöir og einnig
þaö, sem tilheyrir þeim sýning-
um, sem i gangi eru hverju sinni.
Leikmyndateiknarar hafa aö-
stööu uppi á háalofti, þar sem
einnig er málarasalur en smiöa-
verkstæðiö er aftur i kjailaran-
um. A milli hæöa er aö visu lyfta,
en svo þröng, aö stærri leik-
myndir þarf allar aö búta niöur
og einungis hægt að setja þær
saman á sviöinu sjálfu. Engar að-
gengilegar dyr liggja frá götunni i
smlöaverkstæðiö og töldu starfs-
menn þar þaö einna bagalegast.
Verkstæðið er neöanjaröar, það
er grafiö út frá byggingunni og út
i bilastæðið á bak viö. Ganga þarf
upp nokkrar tröppur meö öll aö-
föng til þess, og dyrnar svo
þröngar, aö stærri hluti þarf aö
taka sundur og saga niöur utan
dyra áöur en þeir komast inn.
ita töluvert á sjá
mestu lokiö næstu sex árin og
húsiö vigt 20. aprfl 1950. Haföi
j þaö þá staðiö sem sagt autt og
' litiö notaö i tuttugu ár.
Húsið sjálft er þvi oröiö
fimmtiu ára gamalt og fariö aö
láta töluvert á sjá. Miklar
sprungur eru farnar aö koma
fram I múrhúöun og allt viðhald
hefur verið i algjöru lágmarki
vegna peningaskorts.
„Viö geröum úttekt á húsinu
fyrir þremur árum og settum þá
upp i forgangsröð þau verkefni,
sem brýnust voru talin. Var þar
bæöi taliö fram viöhald og svo
breytingar i samræmi viö
breyttar byggingarkröfur i dag.
Tildæmis er mjög aðkallandi aö
koma upp viðunandi aöstöðu
fyrir fatlaöa, bæöi leikhúsgesti
og starfsfólk. Einnig eru ýmis
hagræöingaratriöi.sem viö telj-
um nauðsynlegt aö fá fram, svo
sem sameiningu á inngöngudyr-
um hússins og fleira. Þaö vant-
ar hreinlega að gerö sé fullnað-
arúttekt á húsinu og lagfært
þaö, sem þarf. Þetta veröur
ekki dregið öllu lengur”, sagði
Gisli Halldórsson, húsameistari
rikisins. —JN
Texti
Jóhanna
Birgisdóttir
Myndir
Gunnar V.
Andrésson
A efri hæöum hússins er eini
æfingasalurinn,sem hannaður var
sem slikur. Ekki þykir hann
hentugur aö mati leikaranna, en
er þó nýttur til hins ýtrasta. Þar
æfa leikarar fram til klukkan tvö
á daginn, þegar Islenski dans-
flokkurinn fær aö nota salinn
fram til klukkan sex. Og þá tekur
viö Listdansskólinn. Margir
dansaranna hafa kvartaö mikiö
yfir gólfinu i salnum, þvi aö þó
tréborö séu á þvi, er haröur
steinninn skammt undan og
þreytandi mjög aö æfa þar til
lengdar.
Aörar æfingar fara fram I
Kristalssalnum, á Litla sviöinu og
svo mæöir að sjálfsögöu mest á
aðalsviöi leikhússins, þvi aö þaö
er eini staöurinn, sem hægt er aö
koma leikmyndum og leikmunum
fyrir á.svo aö vel sé.
„Þaö liggur lika viö aö slegist
sé um aö komast að á stóra
sviöinu”, sagöi Sigmundur Orn.
Stundum erfitt um
andardráttinn
A leið okkar um Þjóöleikhúsiö
er sjálfsagt margt, sem útundan
varö.en i lokin litum viö inn i
föröunardeildina, sem hefur eitt
herbergi til umráða. Þar mun oft
fjörugt á köflum, þegar veriö er
aö undirbúa f jölmennar sýningar.
„Já, hér safnast oft saman
margmenni mikið og biöraöir eru
langt fram á gang”, sögöu starfs-
stúlkur, föröunarstúlkurnar. „Þá
þarf ef til vill aö afgreiöa tugi
manna á tveimur klukkustund-
um, bæöi meö föröun og hárkoll-
ur, þvl að viö sjáum um allt, sem
viökemur hárkollum karlmann-
anna”.
„En öllu verra er þó, þegar
taka þarf allar kollur einu sinni i
viku og hreinsa. Til þess eru not-
uð mjög sterk efni og loftræsting-
in er ákaflega takmörkuö hér.
Þaö vill þvi stundum veröa erfitt
um andardráttinn hér inni”.
Af spjalli okkar viö starfsfólk
leikhússins virtist ljóst, að afar
mörgu er ábótavant i aöstööu
þess.
„Minnst af þessu kemur fyrir
almenningssjónir, þar sem hér
eru á ferðinni baksviðsvanda-
mál”, sagöi Sigmundur örn. „En
þetta hlýtur aö sjálfsögðu að
segja til sin i öllu skipulagi á
starfssemi. Þegar hagræöingin er
litil sem engin og ekkert sinnt um
bætta starfsaöstööu. hlýtur
kostnaðurinn einnig aö aukast.
Og menn veröa einnig aö hafa I
huga.aö kröfur til leikhússtarfs-
semi hafa breyst mikið á þessum
rúmlega þrjátiu árum, sem Þjóö-
leikhúsiö hefur starfaö. En þvi
miöur er þvi ekki fylgt eftir i fjár-
veitingum til hússins. 1 lögum um
starfssemi hússins hefur einnig
veriö bætt inn ýmsum þáttum, án
þess aö nokkru meira sé veitt til
þess”.
„Þjóðleikhús er nú einu sinni
ein af höfuömenningarstofnunum
landsins, leikhús þjóðarinnar,
sameign allra landsmanna. Þaö
skýtur þvi nokkuð skökku viö .aö
haldiö sé svo fast um pyngjuna
sem raun ber vitni og starfssem-
inni settir afarkostir, sem af-
leiðing af þvi”, sagöi Sigmundur
örn.
Og viö látum þetta vera lokaorö
hans um leiö og viö þökkum leiö-
sögnina. Vonandi er einhver dá-
litlu fróöari.aö minnsta kosti ætti
aö vera ljóst,að jafnan eru fleiri
en ein hliö á hverju máli.en slikt
vill oft gleymast,þegar gagnrýn-
inni er óvægiö skellt fram. _jb
Bókasafn Þjóöleikhússins er löngu oröiö ofhlaöiö og búið aö fullnýta þar hvern fermetra.
Málarasaiur og leikmyndadeild eru uppi á háalofti...
...en trésmlöaverkstæöiöikjallaranum oglyftan millihæöa alltof litil. A innfelldu myndinni má sjá einu
dyrnar, sem hægt er aö nota til aöfanga frá götunni inn á niöurgrafið verkstæöiö.
Hér erum viö stundum þrjú og fjögur aö vinna sagöi
Guömundur Finnsson, hijóöstjóri.
Hér er stundum þröngt á þingi, sögöu föröunar-
meistararnir, sem þurfa iöulega aö afgreiða tugi
manna á skömmum tima í þessu litia herbergi.