Vísir


Vísir - 10.11.1981, Qupperneq 20

Vísir - 10.11.1981, Qupperneq 20
20 Þriðjudagur 10. nóvember 1981 vísm ídag-íkvölci Forvitnileg dag- skrá í Fjalaketti Um þessar mundir er sýnd i Fjalakettinum 3. vetrardag- skráin, sem hann byöur upp á, og er hún að þessu sinni helguö þremur kvikmyndagerðar- mönnum: Bræðrunum Jónasi og Adolfas Mekans og Rainer Werner Fassbinder. Fassbinder ætti að vera óþarft að kynna, enda hafa myndir hans oft sinnis verið sýndar hér á landi, á kvik- myndahtiðum og svo auðvitaö d mánudagssyningum i Háskóla- biói. Þær tvær myndir, sem nú eru sýndar eftir hann eru „Ki'n- versk rúlletta” (frá árinu 1977) og „Afkvæmi Satans” (1976). Baðar þessar myndir þykja bera merki vissra þáttaskila á litrikum ferli Fassbinders, og ná þau þáttaskil bæði til form- legra einkenna mynda hans, sem og efniviöar. Og ekki sakar að getaþess, aö báðar myndirn- ar þykja með afbrigöum góöar, en hafa þrátt fyrir það orðið til- efni mikilla umræðna. Jónas og Adolfas Mekas eru frá Litháen.þar sem Jónas átti meðal annars þátt i Utgáfu neðanjarðartimarits meðan landið var hernumiö af Þjóö- verjum.Hann var og mikilsvirt ljóðskáld. Þeir fluttu til Banda rikjanna og komust þá i kynni við kvikmyndamiöilinn, sem tók hugi þeirra. Myndin þeirra flokkast undir það sem nefa má ,Jramsæknar myndir”, þar sem leitað er fanga utan hefðbundinnar kvik- myndageröar til aðtjá hugsanir Fjalakötturinn býöur nú upp á tvær myndir Fassbinders og hef- ur hvorug þeirra verið sýnd hér á landi áður. og erindi til áhorfenda. Þeir bræöur eiga þrjár myndir að þessu sinni á dagskrd Fjala- kattarins, en þær eru: Hallelujah the Hills” (1963), „The Bring” (1964, verðlaun sama ár á kvikmyndahátiöinni i Venice), og „Companeras and Companeros” (1970). ,,The Bring”, er sú mynda þeirra bræðra, sem best er þekkt, en það er ein fárra kvik- myndaðra sviðsuppsetninga, sem þykir i engu hafa glatað listrænni spennu sinni við að vera fest á filmu. The Bring var leikrit,sem sett var upp hjá viö- frægu tilraunaleikhúsi i New York, The Living Theatre, og þótti uppsetningin mjög nýstár- leg. Ekki erað efa,að fengur er aö þvi að fá nú tækifæri til að sjá myndir þessar á dagskrá Fjala- kattarins.Dagskráinfrá og með deginum i dag að telja, til sunnudagsins, þá er dagskránni lýkur er eftirfarandi: Þriðjudagur: kl. 17.00 Kínversk nilletta kl. 19.30 Afkvæmi Satans kl. 22.00 Companeras and companeros Miðvikudagur: kl. 19.30 The Brijg kl. 22.00 Hallelujah the Hills Fimmtudagur kl. 19.30 Kínversk rdlletta kl. 22.00 Afkvæmi Satans Laugardagur kl. 17.00 Hallelujah the Hills kl. 19.30 Companeras and com paneros kl. 22.00 The Brig Sunnudagur: kl. 17.00 Afkvæmi Satans 19.30 Ki'nversk rúlletta 22.00 Hallelujah the Hills Sýningar fara fram i'Tjarnar- bíói, og geta þeir, sem vilja, keypt aðgöngumiða klukkutfma fyrir sýningu. -jsj Málverk og klippimyndir í safnahúsínu á Akranesi Árni L. Jónsson, sem notar listamannsnafnið Zator, hefur opnað málverkasýningu I Bókhlöðunni á Akranesi. Sýningin er opin á opn- unartimum bókasafnsins, en milli kl. 13-17 um helgar. A sýningunni eru oliumálverk og klippimyndir, og stendur hún til 24. nóvember næstkomandi. Meðfylgjandi mynd birtist i VIsi fyrir rúmu ári, og sýnir Zator I henni álit sitt á skattamálunum, sem þá voru mjög I brennidepii. f------------------------------ ! útvarp I Þriðjudagur [ 10. nóvembef I 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- | kynningar. j 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- j fregnir. Tilkynn ingar. j Þriðjudagssyrpa — Páli | Þorsteinsson og Þorgeir • Astvaldsson. 15.10 ..örninn cr sestur” cftir I ,Jack Higgins. Ölafur Ólafsson þýddi. Jómna H. J Jónsdóttir les (22). 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. I 16.00 Fréttir. Dagskráin. 16.15 I Veðurfregnir. I 16.20 Útvarpssaga barnanna: ,,Niður um strompinn” eftir I Armann Kr. Einarsson. j Höfundur les (8). j 17.00 Siödegistónleikar. a. j Fiíiusónata nr.3ÍF-dúr eft- ir Georg Friedrich Handel, Milan Bauer leikur á fiðlu og Michal Karin á píanó. b. „Karnival i Vin” op. 26eftir Robert Schumann, Svjat- oslav Richterleikurá pianó. c. Þættir úr óperunni „Don | Giovanni” eftir Mozart, ýmsir liátamenn leika og syngja. 18.00 Tónleikar. Tilkynninar. 1 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. I 19.36 A vettvangi. Stjórnandi j þáttarins: Sigmar B. Hauksson. Samstarfs- maður: Arnþrúður Karls- dóttír. 20.00 Lag og Ijóð. Þáttur um vfsnatónlist i umsjá Gfsla Helgasonar og ólafar Sverrisdóttur. I 20.40 ótlendingur v hjá vinaþjóð. Harpa Jósefsdótt- I ir Amfn segir frá, siðari j hiuti. j 21.00 Blokkflaututrió Michala Petri leikur tónlist eftir | Corelli, Holmboe, Vivaldi og Gossex. (Hljóðritun frá tón- listarhátiðinni i Björgvin i vor). 21.30 Utvarpssagan „Marina” cftir sera Jón Thorarensen. Hjörtur Pálsson les (10). 22.00 Andrews-systur syngja nokkur lög. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá kvöldsins. Orö kvöldsins. 22.35 Fólkiö á sléttunni. Umsjónarmaðurinn, Friðrik Guðni Þorleifsson kennari, talar viö Oddgeir Guöjónsson hreppsstjóra í Tungu i Fljótshllö og Markús Runólfsson kennara á Hvolsvelli. 23.00 Kammertónlist. Leifur Þórarinsson velur og kynnir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp ÞriðjMdagur 10. nóvember 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og vcður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Robbi og Kobbi Tékk- neskur teiknimyndaflokkur fyrir börn. 20.40 Rætt viðhöfund „Víking- anna" Magnús Bjarnfreðs- son ræðir viö Magnús Magnússon um gerö þáttanna og breytt viðhorf til vikinga og vikinga- timans. 21.15 Vikingarnir Fjórði 1 þáttur. Hálfdán kom hér Leiösögumaður okkar Magnús Magnússon fetar i fótspor sænskra vikinga, sem fóru f austurviking. Leiðþeirra lá um fljót Rúss- lands og alia leið til Mikla- garös. Þýðandi: Gúðni Kol- beinsson. Þuiir: Guð- mundur Ingí Kristjánsson og Guöni fíolbeinsson. 22.05 Hart á móti hörðu Banda rfskur sakamála- myndaflokkur. Fimmti þáttur. Þýöandi: Bogi Arnar F'innbogason. 22.35 Fréttaspegill Umsjón: Helgi E. Helgason. 23.05 Dagskrárlok I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I J útvaro kl. 20.00: í tilefni 5 ára afmæis Vísnavina I kvöld kl. 20 er i útvarpinu ann- ar þáttur Gisla Helgasonar og Ólafar Sverrisdóttur, „Lag og ljóð”. „Þetta er eiginlega svona nokkurs konar afmælisþáttur i tilefni 5 ára afmælis Visnavina.” sagði Gisli, „og I þvi tilefni verður viðtal við Hanne Juul, sem er stödd hér á landi um þessar mundir, en hún og Hjalti Jón Sveinsson gengust fyrir þvi fyrir 5 árum að félagið „Visnavinir” yrði stofnað. Þá verður einnig rætt við Hjalta Jón, og leikin verða lög með þvi fólki.sem hefur starfað með Visnavinum frá upp- hafi. Má þar nefna Aðalstein Ás- berg Sigurðsson, Jóhannes Hilmisson og Wilmu Young, að ógleymdum þeim Hanne Juul og Hjalta Jóni Sveinssyni”. Þáttur- inn „Lag og ljóð” er 40 minútna langur. —AKM Gisli Helgason, annar umsjónar- maður þáttarins „Lag og ljóð”. I kvöld kl. 20.35 er teiknimyndasagan Robbi og Kobbi á dagskrá sjónvarpsins. „Robbi og Kobbi” er tékkneskur teiknimyndaflokkur og I kvöld verður sýndur fyrsti þátturinn af sjö.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.