Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JANÚAR 2001 11 kubbaturn og endar í tveimur matarprjónum sem stinga á hitamistrið. En borgarlandslagið er ekki síður þekkt fyrir breytileika sinn, því eins og áður sagði er Hong Kong bæði ósýnileg og horfin: ósýnileg að því leyti sem gegnsæi glerkljúfanna gerir þá óraun- verulega, eins konar hillingar sem endurspeglast í endalausu speglagleri glugganna og skapa til- finningu fyrir speglasal þarsem ekkert fyrir- finnst annað en spéspeglanir annarra spegla: horfin að því leyti sem þetta er borg umbreytinga og umbrota. Byggingar eru rifnar og nýjar rísa í staðinn og á sinni skömmu ævi (miðað við aldur borga) hefur borgin gengið í gegnum svo róttæk- ar breytingar að hún er gersamlega óþekkjanleg á myndum frá fyrri hluta síðustu aldar og ég geri ráð fyrir að myndir sem birtast af henni í dag lýsi borg sem verður horfin að bragði. Þannig er borgin á stöðugri hreyfingu, ekki að- eins hvað varðar landslag, heldur einnig milli ‚eig- enda‘, landa, heimshluta, valdakerfa og efnahags- kerfa. Menningarfræðingurinn Ackbar Abbas skrifaði ákaflega skemmtilega grein um Hong- Kong þar sem hann lýsir einmitt þessari hreyf- ingu borgarinnar og síbreytingum hennar. Hann ræðir hugmyndir um friðun borga og verndun menningarverðmæta og bendir á að fyrir Hong Kong getur það verið nokkuð flókið mál að ætla að standa fyrir hvers kyns vernd á borgarlands- laginu: hvað er þá nákvæmlega verið að vernda? Borgin er byggð upp sem nýlenda og því er það nýlendusagan sem er saga Hong Kong og er saga nýlenduveldisins eitthvað sem Hong Kong-búar vilja endilega minnast? Í borginni eru ekki nema örfá hús sem standa eftir nýlendutímann, það er kannski táknrænt að það helsta sem minnir á ný- lendutímann er ferjan, Star Ferry, sem siglir á fárra mínútna fresti milli Hong Kong-eyjar og Kowloon-skaga: Hong Kong er ekki bara breyti- leg borg, hún er líka tvöföld og stendur báðum megin sunds og yfir þetta sund skýst hundgömul nýlenduferjan, agnarsmá og sjúskuð miðað við glæstu glampandi skýjakjúfana sem einhvern veginn samt halda yfir henni hlífiskildi eða slá um hana skjaldborg. Nýlenduarfurinn er því bók- staflega á hreyfingu og í ferjunni sitja allir jafnir, Kínverjar, verðbréfauppar og vér túristar. Stöðugar andstæður í borgarlandslaginu sem auka á hreyfinguna. Upp að spegilgljáandi skýja- kljúfum halla sér flagnaðir íbúðakljúfar, rykugir og kaótískir fyrir það að fyrir neðan hvern glugga er ólíkur loftkælingakassi og á bambusprikum hangir þvottur til þerris, allt fá lökum til nær- buxna. Í miðborg Hong Kong, dýrasta lóðasvæð- inu, eru saman komnar nokkrar verslunarmið- stöðvar sem sérhæfa sig í merkjafatnaði. Á svæði sem spannar líklega um það bil tuttugu Kringlur og Smára, vínarbrauð og fífla, var ekkert að finna nema merkjabúðir: Calvin Klein, Chanel, Helmut Lang, Donna Karan. Og milli þessara himnaríkja ríka fólksins smeygja sér þröngar og snarbrattar götur – Hong Kong er byggð að hluta utan í fjall – og þar blómstraði hvílíkt líflegt markaðslíf. Í Hong Kong fékk ég staðfestingu á því sem ég reyndar alltaf vissi: borgin er ekki líflaus fasti heldur er hún á stöðugri hreyfingu, hún stækkar og minnk- ar, brotnar niður og byggist upp aftur. (Þessi grein er unnin upp úr fyrirlestri um Reykjavíkur- borg sem ég hélt í vor. Um sumarið brast á Suðurlands- skjálfti.) lóðrétt borg. R SIGLA YFIR LÖND Höfundur er bókmenntafræðingur. „Hong Kong er fræg fyrir arkitektúr og skýjakljúf- arnir eru hver öðrum brjál- æðislegri, einn er með gluggum eins og kýr- augu, annar með glugga eins og sjón- vörp, einn búngar út á ótrúlegustu stöðum og einn mjókkar upp eins og hálfhruninn kubba- turn ...“ „... því ég er borgarbarn með steinsteypuhjarta og ofnæmi fyrir frjósemi náttúrunnar.“organna ...“ „Með minn rómantíska farangur.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.