Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Side 12
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JANÚAR 2001
P
ÓSTMÓDERNISMI síðustu ára-
tuga hefur leitt til veigamikilla
breytinga á hugmyndum og
hugsun fræðimanna. Fræðileg
umræða hefur á þessum tíma í
auknum mæli orðið þverfagleg
um leið og fræðimenn takast á
við takmarkanir vestrænnar
hugmyndafræði eins og hún hefur skilað sér í
gegnum aldirnar. Póstmódernisminn hefur
beint sjónum sínum að fjölbreytileika nútímans,
t.d. þeim andstæðum sem áður voru álitnar fel-
ast í list og dægurmenningu, að sjálfsímynd í
tengslum við afstæðishyggju og hugmyndum
um mannkynssöguna sem línulega hreyfingu er
óhjákvæmilega hafi framþróun í för með sér.
Þannig hefur hreyfingin ef til vill haft í för með
sér fjölbreytilegri sýn á lífið en vestræn hug-
myndafræði hefur áður meðtekið.
Angela Carter er einn athyglisverðasti höf-
undur seinni tíma í Evrópu þegar litið er til við-
horfs hennar til mannkynssögunnar og vest-
rænnar sögusýnar. Ekki einungis vegna þess að
skynjun hennar á sögunni og tímahugtakinu er í
andstöðu við hugmyndir um línulega hreyfingu
tímans, heldur einnig vegna þess að í bókum sín-
um skapar hún persónur og atvik sem eru í and-
stöðu við hefðbundnar hugmyndir um „eðlilega“
framvindu tímans og þróun frásagnarinnar.
Þannig tekst henni að knýja fram áhrif fram-
andleika þar sem kerfi nýjunga í textanum verð-
ur til þess að skapa óvænt áhrif sem eru grund-
völlur listrænna efnistaka hennar. Í samræmi
við það er útgáfa hennar af mannkynssögunni,
þ.e.a.s. hin listræna útgáfa skáldsagnahöfundar-
ins af raunveruleikanum, athyglisverður valkost-
ur við hlið þeirrar útgáfu sem sagnfræðingurinn
hefur fram að færa. Í anda póstmódernismans
gengur Carter mun lengra en forsendur sagn-
fræðinnar gefa tilefni til, eins og þær eru op-
inberlega viðurkenndar í formi þekkingar.
Eftirlíking raunveruleikans
glatar þýðingu sinni
Allt frá því að rússnesku formalistarnir hófu
að andmæla þeirri hefð sem byggðist á eftirlík-
ingu raunveruleikans, hafa ólík viðhorf verið
viðruð til þeirra aðferða er teljast mættu gildar
í bókmenntum. Formalistarnir fundu mikil-
vægar samsamanir í bókmenntum og málara-
list, málvísindum, kvikmyndafræðum, þjóð-
fræði og þjóðlagatónlist. Þeir stuðluðu þannig
að áhuga á breytingum varðandi form og hug-
myndafræði. Raunsæisstefnan og eftirlíkingar-
stefnan urðu samhliða því úreltar og mikilvægi
þess að „færa sönnur“ á hlutina í skáldskap
glataði þýðingu sinni.
Aukinn áhugi á rithöfundum á borð við Gogol
og E. T. A. Hoffmann, sem drógu inn í verk sín
ákveðna þætti fantasíu sem átti rætur að rekja
til þjóðfræði, varð mikilvægur þáttur í að af-
byggja hina opinberu útgáfu af sögu mannkyns
eins og hún hafði verið sett fram í anda raunsæ-
is. Michael Bakhtin, sem með kenningum sínum
um karnivalið og hina margrödduðu skáldsögu,
markaði sér sérstöðu frá formalistunum og kom
þar að auki fram á sjónarsviðið með hugmyndir
sem hafa haft djúpstæð áhrif á hugmyndaheim
vestrænna bókmennta. Með því að rekja áhrif
karnivalsins frá nútímanum aftur til fornaldar
sundraði hann þýðingu hugtaksins „framþróun-
ar“ innan bókmenntahefðarinnar. Í stað þess að
nema bókmenntahefðina sem línulega þróun úr
einu í annað, sér hann karnivalið sem eitthvað
sem á sér hvarvetna stað í ólíku menningarlegu
samhengi. Þannig býður Bakhtin upp á sögu-
sýn sem er meira eins og ferðalag í allar áttir á
takmarkalausum fleti en óendanleg línuhreyf-
ing úr fortíð til framtíðar.
Þessi breyting á sjónarhorni kemur ekki
fram fyrr en á seinni hluta tuttugustu aldar í
evrópskum bókmenntum. Bakhtin var t.d. ekki
enduruppgötvaður í eigin heimalandi fyrr en á
sjöunda áratugnum og enn síðar í Vestur-Evr-
ópu. Þar af leiðandi hafa meira að segja tíma-
mótahöfundar á borð við Frakkana Jean-Paul
Sartre, Nathalie Sarraute og Alain Robbe-
Grillet álitið sig vera að vinna í rökréttu fram-
haldi af raunsæisstefnunni. Þau reyndu að losa
sig undan oki einnar tegundar raunsæis með
því að þróa nýja tegund sem tilheyrði þeim
sjálfum. Enda virtist sú stofnun sem felst í for-
tíðinni virka eins og Þrándur í götu sjálfrar til-
vistarinnar í augum Sartre. Einstaklingar á
borð við Roquentin, ævisöguritarann í skáld-
sögunni Nausea, bera þunga mannkynssögunn-
ar á herðum sér og þrátt fyrir tregðu Roquent-
ins við að miðla fortíðinni – og vanþóknun
Sartre á sammannlegum veruleika – er samt
sem áður eitthvað í sögum hans sem allir eiga
sameiginlegt, einhvers konar formleysa eða
einmanaleiki.
Þótt verk þessara frönsku höfunda hafi verið
skilgreind sem hin „nýju skáldverk“ (nouveau
roman) til að marka upphaf nýs tímabils þjóna
þau samt sem áður eins og punktur í línulegri
þróun bókmenntanna. Þar af leiðandi er ekki
hægt að skoða þessi verk utan þess samhengis
sem leiðir af samkeppni og samanburði innan
vestrænnar bókmenntahefðar. Það er ekki fyrr
en rithöfundar á borð við Kólumbíumanninn
Gabriel Garcia Marquez koma fram á sjónar-
sviðið og segja sögu mannkyns frá sjónarhóli
annarrar menningar, að ólíkir bókmenntalegir
þættir eru teknir til greina sem innlegg sem
hefur verið til samhliða ríkjandi menningu á
Vesturlöndum eða jafnvel skarað ólík menn-
ingarleg mörk.
Skilgreiningar á tímanum
í tengslum við söguna
Sú hugmynd er liggur að baki sýn Mikhails
Bakhtin er hann sér heiminn fyrir sér sem víð-
áttumikinn flöt í stað línu, er útfærð af enn
meiri glöggskyggni af rússneska heimspek-
ingnum P. D. Ouspensky, en hann vakti mikla
athygli fyrir verk sín upp úr 1920. Kenningar
hans útskýra vel takmörk hinnar vestrænu
hugmyndar um mannkynssöguna sem línulegt
þróunarferli sem einungis getur stefnt í eina
átt. Þannig álítum við sögu okkar ætíð vera
hluta fortíðarinnar fremur en hluta af líðandi
stundu og tengjum þess vegna söguna ósjálf-
rátt tímahugtakinu. Ouspensky bendir á að „öll
hreyfing eða fjarvera hreyfingar er óhjákvæmi-
lega tengd hugmyndinni um tímann“. Og af
þessum ástæðum, af því að við höfum tengt
mannkynssöguna tímanum til að byrja með,
upplifum við söguna eins og línulega þróun,
með upphafi og hugsanlegum endi - í öllu falli
sem hreyfingu fram á við. Af þeim sökum finnst
Ouspensky nauðsynlegt að byrja á að skilgreina
tímann til þess að vera í stakk búinn að kanna
mannkynssöguna.
Að sögn Ouspensky lítur heimspekingurinn
Immanuel Kant á „tímann á sama hátt og hann
lítur á rýmið: sem hlutlægt form móttækileika
eða næmleika okkar“, en „. . . við búum tímann
til sjálf, sem þátt í hæfileika okkar til að nema
ytri veruleika. Raunveruleikinn er samfelldur
og stöðugur, en til þess að geta numið hann
verðum við að búta hann niður í aðskiljanleg
augnablik; [...] sem við getum einungis skynjað
eitt og eitt í senn“. Sú dæmigerða skynjun á
heiminum sem hér er lýst er mjög takmark-
andi. Hún varpar ljósi á það hvernig hugmynd-
in um tímann er ætíð tengd hugmyndinni um
orsakasamhengi. Með því að trúa því að fortíðin
sé ekki til (nema sem minning) og að framtíðin
eigi enn eftir að renna upp, takmörkum við upp-
lifun okkar við líðandi augnablik sem er svo
stutt að það er naumast hægt að skynja það.
Ouspensky er því sammála Kant um tak-
markanir skynjunar okkar á veruleikanum.
Hann sér rangfærslu í okkar viðteknu viðhorf-
um til tímans eins og glögglega má lesa úr eft-
irfarandi lýsingu hans á sambandi okkar við
raunveruleikann: „Við hreyfumst í eina átt á
opnum fleti. Þessa átt álítum við eilífa og óend-
anlega. En allar þær línur sem liggja samhliða í
sömu átt og allar þær línur sem skera hana, álít-
um við ekki eilífar og óendanlegar. Við ímynd-
um okkur að þær séu ekki til um leið og við höf-
um farið framhjá þeim, auk þess sem þær línur
sem eru fyrir framan okkur hafa ekki enn tekið
á sig mynd raunveruleikans. Ef við gefum okk-
ur að við séum á einhvers konar hnetti og hreyf-
umst eftir miðbaug eða einhverjum öðrum sam-
síða breiddarbaug myndi þessi heimsmynd
gefa til kynna að aðeins væri til einn lengd-
arbaugur; þeir sem eru fyrir aftan okkur eru
horfnir og þeir sem eru fyrir framan okkur hafa
ekki enn birst.“ Samkvæmt kenningum þeirra
Kant og Ouspensky um tímann og veruleikann
má því skynja fortíðina, nútíðina og framtíðina
á þann máta að þær séu allar til í einu.
Sú hugmynd er einmitt bergmáluð í verkum
margra nútímahöfunda. Í grein sem hann
nefndi „A New Refutation of Time“ (eða; „Ný
afsönnun tímans“) frá árinu 1944, sá Jorge Luis
Borges fyrir það sem þá átti enn eftir að koma í
ljós: „Ég afneita,“ sagði hann, „með rökum hug-
sjónastefnu þeirri ótrúlegu atburðaröð tímans
sem hugsjónastefnan leyfir. Hume afneitaði til-
vist algilds rýmis, þar sem allir hlutir eiga sinn
stað; ég afneita tilvist eins tíma, þar sem allir
hlutir eru tengdir eins og perlur á streng. Af-
neitun á því að hlutir geti verið til samhliða er
ekki síður óbilgjörn en afneitun á þeirri hug-
mynd að hlutir geti einungis verið til í runu.“
Hugmyndir Bakhtin og samsvarandi grund-
vallarkenningar Ouspensky virðast eiga sér-
staklega vel við um skáldsögu Angelu Carter,
„Nætur í fjölleikahúsi“, bæði hvað varðar karni-
valíska þætti skálkasögunnar, notkun Carter á
tímahugtakinu og túlkun hennar á mannkyns-
sögunni. Á sama máta og Marquez neitar hún að
láta staðsetja sig innan hinnar „opinberu“ sögu.
Samt sem áður er hvorugt þeirra að reyna að
verða til þess að eitthvað sé „uppgötvað“, mark-
mið þeirra er fremur að færa þeirra eigin „hina
hlið“ sögunnar úr dimmunni baksviðs, þar sem
hún hefur alltaf verið til, fram í sviðsljósið. Þau
reyna að ljá þeim rödd sem ekki heyrist í að öllu
jöfnu og afhjúpa á þann hátt tilviljanakennt af-
stæði ríkjandi menningar.
LOFTFIMLEIKAR Á MÖRKUM
SKÁLDSKAPAR OG VERULEIKA
Heimsmynd manna í austri var mjög ólík þeirri sem þróaðist á Vesturlöndum eins og sést glögg-
lega á þessari mynd af hjóli lífsins frá Tíbet. Veran sem heldur utan um hjólið þjónar þó líku hlut-
verki og faðir Tími, því hún gleypir alla tilveruna.
Skáldverk breska rithöfundarins Angelu Carter hafa
verið fræðimönnum mjög hugleikin vegna þess að í
þeim má iðulega finna alla helstu þætti póstmódern-
ismans. Í þessari fyrri grein af tveimur fjallar FRÍÐA
BJÖRK INGVARSDÓTTIR um hugmyndafræðilegt
samhengi frægustu skáldsögu hennar, „Nátta í fjöl-
leikahúsi“, en hin vængjaða aðalsöguhetja þeirrar
bókar er boðberi breyttra tíma – nýrrar tegundar
frjálsra kvenna sem fær köllun sína á slaginu tólf á
aldamótum nítjándu og tuttugustu aldar. Víst er að
þær róttæku hugmyndir sem sköpun hennar byggist á
eiga fullt erindi til okkar sem nú siglum hraðbyri inn í
tuttugustu og fyrstu öldina.