Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Side 20
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JANÚAR 2001
T
ÓNLISTARFÉLAGIÐ í Vín,
Gesellschaft der Musikfreunde
des Österreichischen Kaiser-
staates, sem var stofnað árið
1812 byrjaði á að starfrækja
söngskóla 1817 og bætti við
kennslu á hljóðfæri 4 árum síð-
ar. Árið 1822 voru skólarnir
sameinaðir.
Þessi skóli flutti ýmis verk m.a. frumfluttu
nemendur hans 9. Sinfóníu Beethovens hinn
7. maí árið 1824, með tveim keisaralegum
hljómsveitunum, önnur þeirra var óperu-
hljómsveitin.
Árið 1825 keypti tónlistarfélagið stórhýsi
af F. Kolowrat greifa í Tuchlauben 558, í ná-
grenni við Graben sem er nánast í miðjum
kjarna Vínar og nefndi það Rauðu ugluna.
Þá þegar hófust nauðsynlegar breytingar á
innviðum hússins til að hægt yrði að opna
þar tónlistarsal vorið 1831.
Nú vænkaðist hagur margra tónsnillinga
til að komast á svið og njóta þeirrar við-
urkenningar að fá tónverk sín uppfærð, oft á
tíðum frumsmíðar, lyfti það ekki síst orðstír
hússins.
Tónlistarfélagið var og er sjálfseignar-
stofnun. Þeir sem komu fram á sviði hússins
á upphafsárunum, voru ekki allir atvinnu-
tónlistarmenn, heldur einstaklingar sem
voru að þreifa fyrir sér um viðbrögð áheyr-
anda og dómsúrskurð tónlistargyðjunnar.
Þeir voru nefndir „Dilettanten“ eða leik-
menn, sem hafði alls ekki alltaf jákvæða
merkingu. En almenningur gat gengið að því
sem vísu, að þeir sem þarna kæmu á svið
flyttu tónlist í háum gæðaflokki og það
tryggði ávallt góða aðsókn.
Þar var t.d. píanótríó Franz Schuberts
frumflutt árið 1828, sama ár og hann lést.
Á árinu 1851 breytti Tónlistarfélagið
starfsreglum sínum og heimilaði engum
nema háttskrifuðum atvinnutónlistarmönn-
um upp á sviðið og er svo enn.
Breytt í leikhús
Þessum sal var breytt í leikhús árið 1871,
en þá hafði tónlistarfélagið komið sér upp
veglegra húsi.
Við Bösendorferstrasse 12, nú Karlsplatz
6, byggði Tómlistarfélagið sitt draumahús og
það er Musikverein. Það var opnað með
pomp og prakt að viðstöddum, meðal ann-
arra sjálfum keisaranum Franz Joseph I,
hinn 6. janúar 1870.
Arkitektinn og húsameisarinn sem byggði
það í renissanstíl var danskur, Theophil
Hansen.
Hann settist að í Vín 1840 og bjó þar til
æviloka árið 1891. Í borginni eru fjölmargar
merkis- og glæsibyggingar sem hann teikn-
aði, mætti nefna þinghúsið, sem var opnað
1883, útlínur þess minna á grísk hof, enda
bjó Hansen í Grikklandi í 8 ár áður en hann
kom til Vínar.
Vín og Austurríki sýndu þessum mikil-
virka listamanni mikla virðingu, m.a. með
því að sæma hann orðum og titlum, hann var
gerður heiðursborgari Vínar og reistur
minnisvarði um hann innan dyra þinghúss-
ins.
Fimmtánda sama mánaðar var haldinn
þar fyrsti glæsidansleikurinn og í kjölfarið
fylgdu margir. Þótti mörgum það mikill
vegsauki að hafa tekið þátt í slíkum fagnaði.
Aðeins fimm dögum eftir fyrsta dansleik-
inn í þessu glæsilega húsi kom upp eldur í
stóra salnum, sem olli talsverðum skemmd-
um. Kapp var lagt á gera við skemmdirnar á
sem skemmstum tíma, því auk tónleikaflutn-
ings var salurinn notaður fyrir stórdansleiki
austurríska aðalsins, íburðarmiklar lista-
mannasamkomur og síðast en ekki síst voru
þar haldnir virðulegir eftirsóttir grímu-
dansleikir á kjötkveðjuhátíðum. Hélt svo
fram þar til snemma á síðustu öld en þá
lögðust þessir dansleikir af, en sú undan-
tekning gerð, að starfsmönnum Vínar Phil-
harmoníuhljómsveitarinnar er leyft að halda
dansleik þar einu sinni á ári, í janúar.
Þessi fagri salur, sem tekur 1746 manns í
sæti og 300 í stæði, er einhver þekktast tón-
listarsalur í heimi, ekki aðeins vegna feg-
urðar og hve öllu er þar haganlega fyrir
komið, þá er talið að hann hafi einna bestan
hljómburð allra sala sem byggðir hafa verið
til hljómleikahalds fyrr og síðar. Við getum
svo velt því fyrir okkur hvort byggingar-
meistarar þeirra tíma réðu yfir þekkingu,
sem nú er gleymd til að svo vel mætti verða
eða var það tilviljun? Loftmyndirnar í saln-
um skemmdust nokkuð í heimsstyrjöldinni
síðari en með alúð færustu sérfræðinga
tókst að lagfæra þær svo ekki sér nokkra
misfellu á.
Hin mesta viðurkenning
Mörg tónskáld hafa orðið þess heiðurs að-
njótandi að fá verk sín flutt í fyrsta sinn í
Musikverein, enda er slíkt hin mesta við-
urkenning. Sinfóníur Antons Brückner nr. 3;
4; 6; 7 og 8 voru frumfluttar í Musikverein á
árunum 1877 til 1899, og stjórnaði Hans
Richter þeim flestum.
Hinn 2. janúar 1871 var frumfluttur
Píanókonsert í D-moll eftir Johannes
Brahms og lék hann sjálfur á píanóið. Vínar
Philharmonian frumflutti svo 2. desember
1883 þriðju sinfóníu hans undir stjórn Hans
Richters.
Þess er vert að geta að nú nýlega hlotn-
aðist tónskáldinu og Íslandsvininum Helmut
Neumann sá heiður að tónverk sem hann
samdi í tilefni 1.000 ára afmælis kristni á Ís-
landi var tekið þar til flutnings nú í janúar-
mánuði. Í verkinu sungu þrír íslenskir ein-
söngvarar, þau Rannveig Fríða Bragadóttir
messósópran, Hjörtur Hreinsson tenór, Sig-
urður Skagfjörð bassi, ásamt Claudiu Guarin
sópran frá Kolumbíu. Verkinu var mjög vel
tekið og höfundur hylltur með áköfu lófataki
að flutningi loknum.
Í nóvember 1937 hélt Karlakór Reykjavík-
ur tónleika í þessu húsi, undir stjórn Sig-
urðar Þórðarsonar, en einsöngvari var Stef-
án Íslandi. Að tónleikunum loknum voru þeir
báðir sæmdir heiðursmerki tónlistarfélags-
ins í Vínarborg.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tónleika í
Musikverein, Stóra salnum 19. maí 1981,
henni stjórnaði þá Páll Pampichler Pálsson.
Lék hún verkið Snúningur eftir austurríska
tónskáldið Werner Schulze, Flautukonsert
eftir Jean Francais þar sem Manuela Wiesl-
er lék einleik. Að lokum lék hljómsveitin sin-
fóníu nr. 3 óp.78 eftir Camille Saint-Saëns.
Auk loftmyndanna í stóra salnum, sem áð-
ur er getið, er hann prýddur fjölda lista-
verka og ber þar að nefna styttur af konum
meðfram veggjum og lágmyndir eftir mynd-
höggvarann Melmitzky, en málverkin í loft-
inu eru eftir hinn kunna myndlistarmann
August Eisenmeyer. Eftir hann eru vegg-
myndir í fjölmörgum opinberum byggingum
í Vín og einnig 2 altaristöflur í Schotten-
kirche sem byggð var af írskum munkum ár-
ið 1155, en af misskilningi kennd við Skota.
Hann málaði einnig forkunnarfagrar 2 stór-
ar myndir í fordyri grísk-kaþólsku kirkj-
unnar við Fleischmarkt í 1. hverfi.
Minni salur Musikverein, sem tekur 400
manns í sæti, ber nafn tónskáldsins Brahms
og kallast Brahmssalur.
Nú eru hafnar framkvæmdir við hlið húss-
ins og viðbótarbyggingu neðanjarðar. Þar
verður nýr salur undir toginu sem er á milli
Musikvereinbyggingarinnar og Künstler-
haus. Það hús var tekið í notkun árið 1861.
Í þessum „kjallara“ verður nýr salur með
hreyfanlegu sviði, ætlaður til hljómleikaæf-
inga, fundahalda, kvikmyndasýninga og að
sjálfsögðu tónleikahalds, sem verður fyrst
og fremst ætlað fyrir yngri kynslóðina.
Í þessari neðanjarðarhvelfingu er einnig
áætlað að koma haganlega fyrir hljóðfæra-
safni Musikverein, en það er í dag dreift út
um allt Austurríki.
Gert er ráð fyrir að þessum bygginga-
framkvæmdum verði að fullu lokið í lok árs-
ins 2003.
Kosta drjúgan
skilding
Sem nærri má geta kosta þessar fram-
kvæmdir drjúgan skilding, en amerískur
auðjöfur að nafni Alberto Vilar birtist eins
og frelsandi engill og hefur lagt fram 80
milljónir austurrískra shillinga til verksins.
Framlag sitt segir hann þakklætisvott fyrir
ljúfar stundir í faðmi tónlistargyðjunnar í
Vínarborg á sl. 40 árum.
Þessi nýi 400 sæta salur í kjallara Mus-
ikverein mun að sjálfsögðu bera nafn hans.
Alberto Vilar er ástríðufullur óperuunn-
andi og hefur á undanförnum árum lagt fram
drjúga fjármuni til framkvæmda í evrópsk-
um óperuhúsum. Er talið að samanlögð upp-
hæð þessara styrkveitinga nemi 2,8 millj-
örðum shillinga.
Auk þess að segja frá þessu musteri æðri
tónlistar í Vínarborg langaði mig jafnframt
til að reyna að kveða niður þann misskilning
sem er ríkjandi heima á Íslandi, að Nýárs-
tónleikunum í Vín sé sjónvarpað frá Vín-
aróperunni. Í henni eru eins og vera ber
fluttar leiknar óperur en aldrei í Musik-
verein, sem er byggt til tónleikahalds ein-
göngu, og fróðir menn segja að þetta tvennt
fari aldrei saman í einu og sama húsinu?
HÚS TÓNLISTARFÉLAGSINS
Í VÍN – MUSIKVEREIN
Í sal, sem ýmist er nefndur
stóri eða gyllti salurinn,
eru Vínarnýárstónleik-
arnir heimskunnu haldnir,
en þeim er sjónvarpað
til tuga landa um hver
áramót. Til þeirra er feikn
mikið vandað og þeim
alltaf stjórnað af heimsins
fremstu hljómsveitar-
stjórum. HARALDUR
JÓHANNSSON skrifar
um salinn sem er í húsi
Tónlistarfélagsins í Vín,
Musikverein.
Í Gyllta salnum eru Vínarnýárstónleikarnir haldnir.
Hús Tónlistarfélagsins í Vín.