Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.2001, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. MARS 2001 3
Þ
ótt ekki sé langt liðið á þetta
ár, hafa heyrst ýmsar raddir
um að ekki hafi verið haldið
eins skynsamlega á fé al-
mennings af hálfu rík-
isvaldsins á síðastliðnu ári
og æskilegt hefði verið. Það
er nefnilega sannleikur að
það er fé úr vasa mínum og þínum sem
ausið hefur verið út af svo miklu örlæti
en stundum til vafasamra nota. Okkur
finnst svo gaman að breiða úr okkur
frammi fyrir útlendingum og sýna þeim
fram á hversu miklir menn við séum,
hversu áhrifaríkir forfeður okkar hafi
verið í heimssögunni og hversu vænlegt
sé að efna til sem mestra menningar- og
viðskiptasambanda við okkur. Og þó vita
flestir útlendingar ekki að við erum til.
En það lagast nú bráðum eitthvað, að
minnsta kosti í Mósambík, þegar við er-
um búin að koma upp sendiráðinu þar.
Í sambandi við þessa umræðu flaug
mér í hug greinarkorn eftir bandaríska
hagfræðinginn Milton Friedman, sem
skrifaði fastan dálk í Newsweek um
tíma. Efni þess var í stuttu máli þetta:
Menn eyða því fé sem þeir komast yfir
til umráða, hvort sem sú eyðsla er nauð-
synleg eða ekki. Hann tók til dæmis tvö
ríki í Bandaríkjunum. Í öðru ríkinu
hefðu stjórnendur miklu meira fé til
framkvæmda en stjórnendur hins rík-
isins. En hvorir tveggja framkvæmdu í
stórum dráttum hið sama. Þeir sem
minna fé fengu til umráða, fóru bara bet-
ur með það en hinir. Því væri þjóðráð að
skammta stjórnendum ríkja það fé sem
þeir fengju til umráða og fyrir það ættu
þeir að framkvæma það sem nauðsynlegt
væri. Þeir ættu ekki að fá að ganga í
vasa almennings og skammta sér pen-
ingana sjálfir því þeir mundu eyða öllu
sem þeir kæmust yfir ef þeir fengju að
ráða. Þetta hefur mér þráfaldlega dottið
í hug síðan, þegar bruðl og heimskuleg
eyðsla ríkisins hefur gengið fram af mér,
eins og öðrum. Þegar kostnaður við
framkvæmdir, eins og byggingar, fer svo
hundruðum milljóna skiptir fram úr
áætlun. Og það þótt rafmagnið eða kló-
settin gleymist! Þegar eytt er hundr-
uðum milljóna í kynningarhátíðir erlend-
is, sem ekki þjóna neinum teljandi
tilgangi, því allflestum útlendingum er
akkúrat sama hvort við erum til eða ekki
og þá langar ekki neitt til að fræðast um
okkur. Duglegir athafna- og hugvits-
menn koma sínum erindum á framfæri
þótt þeim séu ekki opnaðar
fjárhirslur ríkisins, þ.e. Þjóðarinnar.
Og þótt við látum smíða bát fyrir 80
milljónir og siglum honum til Ameríku,
er og verður yfirgnæfandi meirihluta
þarlendra gersamlega ókunnugt um það
afrek en við sitjum uppi með fokdýran
bát sem enginn veit hvað við eigum að
gera við. Og svo vorum það hvorki við né
Spánverjar sem fundu Ameríku. Hún
hafði verið fundin fyrir langa löngu og
afkomendur þeirra landnema bjuggu þar
út um allar jarðir. Og framferði nýju
„landnemanna“, t.d. í Suður-Ameríku,
var ekki slíkt að niðjar þeirra geti verið
stoltir af því.
Ég held að ráðlegt væri fyrir okkur að
fækka blaðurskjóðunum á Alþingi um
helming og koma á laggirnar harðvítugri
yfirstjórn fjármála sem skammtaði fjár-
haldsmönnum framtíðarinnar fé til rekst-
urs og framkvæmda. Að gerðar verði
raunhæfar fjárhagsáætlanir og staðið við
þær. Ekki hlustað á neitt væl um að
„þetta hafi nú orðið miklu dýrara í fram-
kvæmd en gert hafi verið ráð fyrir“. Eitt
sinn þegar Mussolini heitinn var að láta
reisa veglega byggingasamstæðu í Róm,
þóttist hann sjá fram á að verkinu yrði
ekki lokið á tilsettum tíma. Hann til-
kynnti þá verktökum og verkamönnum
að ef ekki yrði staðið við allt sem lofað
hefði verið á réttum tíma, léti hann að
framkvæmd lokinni taka tíu starfsmenn
af handahófi og skjóta þá. Og verkið var
tilbúið eins og samið hafði verið um í
upphafi því að menn vissu að sá maður
lét ekki sitja við orðin tóm. Ég tek það
samt fram að ég er ekki að mæla með að
þessari aðferð verði beitt hér.
Það eru þó ekki forustumenn ríkisins
einir sem fara illa með fé. Dæmin eru
svo mörg og æpandi að engum getur dul-
ist hversu sjúkt þjóðfélagið er orðið. Ef
það er rétt að við njótum einhverra
hæstu þjóðartekna á mann sem fundnar
verði, ættum við að geta lifað meira
sældarlífi en annað fólk hefur tök á. En
það virðist nú vera eitthvað annað. Allir
kveina og kvarta út af of lágum tekjum
og þó höfum við ekki og höfum aldrei
haft efni á almennilegri (eða almennilega
skipulagðri) heilbrigðisþjónustu og
menntun ungs fólks hefur verið í ólestri,
aðallega af því að víð höfum ekki tímt að
borga hæfum kennurum það góð laun að
þeir staðfestist í sinni stétt en tínt sam-
an í þeirra stað svonefnda „leiðbein-
endur“ og afleiðingarnar leyna sér ekki
ef þekking og færni okkar unglinga er
borin saman við það sem gengur og ger-
ist erlendis.
Einhver skrifaði eitt sinn um Þjóð-
verja að vandinn við þá væri að þeir
fengjust ekki til að eyða peningum. Þeim
væri fyrir mestu að leggja þá fyrir og
vitanlega helst þar sem þeir fengju
hæsta vexti af þeim. Þessu er öfugt farið
með okkur. Okkur finnst ekkert eins
púkalegt og eiga peninga og við tölum
jafnvel í lítilsvirðingartón um þá sem
vilja eiga peninga í banka. Við getum
sagt um kunningja okkar að hann sé
eyðslukló og kunni ekkert með peninga
að fara og hann er hreykinn af því, en ef
við dróttum því að honum að hann sé
sparsamur og nurli saman peningum,
megum við þakka fyrir ef hann gefur
okkur ekki einn á snúðinn. Við viljum
skulda, taka lán til hvers sem okkur
dettur í hug, hvort sem nokkrar líkur
eru til að við getum endurgreitt það lán
eða ekki. Og okkur er alveg sama hvort
vextirnir af því eru háir eða lágir. Það
gæti alltaf skollið á verðbólga einu sinni
enn og í verðbólgu verða skuldir að
engu. Svo mikið vitum við um fjármálin
á okkar blessaða landi.
Það er því ekki von að vel fari þegar
fólk með svona hugsunarhátt lendir í því
að sinna um peninga, sjálfs sín eða ann-
arra. Við skulum biðja hamingjuna að
hlífa opinberum sjóðum við því að þannig
persónuleikar komist í þá og okkur frá
því að horfa upp á hvernig sumt fólk,
sem hefur komist í peninga með réttu
eða röngu, fer með þá og lætur sig engu
skipta þótt mikill hluti jarðarbúa svelti
heilu hungri eða tærist upp af sjúkdóm-
um. Fer ekki að verða full þörf á að sá
komi aftur sem eitt sinn gekk inn í helgi-
dóminn, rak út prangarana, velti um
borðum víxlaranna og sakaði þá um að
hafa gert hús sitt að ræningjabæli? En
það er nú kannske bara gamalt og úrelt
siðgæði.
UM MEÐFERÐ
ALMANNAFJÁR
RABB
T O R F I Ó L A F S S O N
TÓMAS GUÐMUNDSSON
VIÐ VATNSMÝRINA
Ástfanginn blær í grænum garði svæfir
grösin, sem hljóðlát biðu sólarlagsins.
En niðri í mýri litla lóan æfir
lögin sín undir konsert morgundagsins.
Og úti fyrir hvíla höf og grandar,
og hljóðar öldur smáum bárum rugga.
Sem barn í djúpum blundi jörðin andar,
og borgin sefur rótt við opna glugga.
– –
Og þögnin, þögnin hvíslar hálfum orðum –
Hugurinn minnist söngs, sem löngu er dáinn.
Ó, sál mín, sál mín! Svona komu forðum
Sumurin öll, sem horfin eru í bláinn –
Ó blóm, sem deyið! Björtu vökunætur,
sem bráðum hverfið inn í vetrarskuggann!
Hvers er að bíða? Hægt ég rís á fætur,
og hljóður dreg ég tjöldin fyrir gluggann.
Tómas Guðmundsson (1901–1983) er stundum sagður fyrstur til þess að yrkja
af aðdáun og áhuga um Reykjavíkurlíf. Kristján Karlsson fullyrðir „að enginn
listamaður [hafi] átt jafnríkan þátt í að móta hugmyndir landsmanna um
Reykjavík sem nútímaborg með stórborgarlífi langt umfram stærð sína né vekja
skyn þeirra á fegurð hennar“.FORSÍÐUMYNDIN
Flugtak í Vatnsmýrinni. Ljósmyndari: Árni Sæberg.
Einföld afþreying
heitir fyrsta grein af fjórum eftir Björn Þór
Vilhjálmsson um forboðnar ímyndir hvíta
tjaldsins. Í greinunum verður fjallað um
óttann við vond áhrif kvikmynda á almúg-
ann þar sem „djarfar“ myndir þóttu sérlega
varhugaverðar.
Cézanne og
samtíminn
nefnist grein Kristins E. Hrafnssonar um
áhrif Paul Cézanne á listamenn samtímans,
bæði innlenda og erlenda, en verk eftir
hann má nú sjá á sýningunni Náttúrusýnir í
Listasafni Íslands.
Líf í borg: Einkavegir
er titillinn á grein Þrastar Helgasonar þar
sem lesið er í hversdagslíf borgarbúa. Labb
og búseta í borginni myndar texta þar sem
höfundur finnur andóf gegn vondu skipu-
lagi Reykjavíkurborgar.
Heimskautslöndin
unaðslegu
heitir sýning sem opnuð verður í Listasafni
Íslands – Hafnarhúsinu í dag. Þar er veitt
innsýn í líf, störf og hugarheim Vilhjálms
Stefánssonar landkönnuðar. Jónas Gunnar
Allansson mannfræðingur fræðir lesendur
um nokkra af þeim þáttum sem leitast er
við að draga fram á sýningunni.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
1 0 . T Ö L U B L A Ð - 7 6 . Á R G A N G U R
EFNI