Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.2001, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.2001, Blaðsíða 14
Á SÝNINGUNNI er að finna 207 verðlaunamyndir úr alþjóðlegri samkeppni fréttaljósmyndara sem World Press Photo stend- ur fyrir. Sýningunni er skipt í níu flokka, þar sem veitt eru verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar í hverjum flokki, auk þess sem veitt eru sérstök verðlaun sem valin eru af dómnefnd skipaðri börnum. Úr öllum myndunum er valin fréttaljósmynd ársins, sem í ár kom í hlut bandaríska ljósmyndarans Lara Jo Regan, en mynd hennar sýnir fátæka inn- flytjendafjölskyldu í hrörlegum húsakynnum. „Þótt þriðji heimurinn komi ósjálfrátt upp í huga áhorfandans, er reyndin sú að verðlauna- ljósmyndin er tekin í Texas, ríkasta ríki Bandaríkjanna, sem nýlega gat af sér 43. for- seta öflugasta ríkis heims eftir umdeildar kosningar,“ segir m.a. í umsögn Roberts Pledge, formanns dómnefndar keppninnar. Í úrvali verðlaunamyndanna má greina nokkur sterk þemu, sem ná m.a. lýsa aðstæðum inn- flytjenda og flóttamanna, fólks um allan heim sem leggur allt í sölurnar í von um betra líf í farsælu landi. Þetta þema kjarnast í verð- launamyndinni en er einnig að finna í myndum frá Spáni og Suður-Afríku. „Verðlaunamyndin vísar til eins helsta mannúðarmáls sem við munum standa frammi fyrir á tuttugustu og fyrstu öldinni, vanda sem er fylgisfiskur stríða og ófriðar, náttúrahamfara og efnahagslegra hörmunga á þeirri tuttugustu,“ segir Pledge. Óhefðbundnar ímyndir Hversdagsleikinn og líf „venjulegs“ fólks eru einnig áberandi myndefni á sýningunni, en þar er tekið ákveðið skref í átt frá hinni hefðbundnu ímynd „fréttaljósmyndarinnar“. Að mati dóm- nefndar má greina tilhneigingu meðal ljós- myndara til að marka sér sérstöðu innan þess sístreymis ímynda sem fjölmiðlaheimur nú- tímans einkennist af í sífellt auknum mæli. „Verðlaunaljósmyndirnar endurspegla mis- munandi stíla og efnistök. Sjónarhornið er oft persónulegt og bregður út af stöðluðum aðferð- um. Þar koma saman litir og svarthvítt, filma, hið stafræna og ólík form sem spanna vítt fag- urfræðilegt litróf, sem nær allt frá hinu hefð- bundna til hins framsækna,“ segir Robert Pledge um myndir sýningarinnar. World Press Photo samtökin eiga sér upp- runa í Hollandi og hafa starfað frá árinu 1955. Samkeppnin er sú stærsta og þekktasta í heim- inum og vex sífellt fiskur um hrygg. Undanfarin ár hafa samtökin lagt æ meiri áherslu á fræðslu og menntun, en árlega heldur World Press Photo ljósmyndanámskeið, þar sem lögð er áhersla á að styðja hæfileikaríka ljósmyndara um allan heim, ekki síst í löndum utan Vest- urlanda. Í LEIT AÐ BETRI HEIMI Í vikunni var ljósmyndasýningin World Press Photo opnuð í Kringlunni. Þar gefur að líta verðlaunaverk fréttaljósmyndara, stakar ljósmyndir og ljósmynda- raðir, sem gefa innsýn í tilveru fólks um allan heim. © Paul Lowe/Magnum Photos Ljósmynd Bretans Paul Lowe vann til 2. verðlauna í flokki fólks í fréttum. Við leit í fjöldagröfum í Bosníu eru föt fórnarlambanna lögð til sýnis, ef ske kynni að ættingjar bæru kennsl á þau. © Bill Frakes og David Callow/Sports Illustrated Þessi ljósmynd hlaut 1. verðlaun í flokki íþrótta. Hún sýnir sigursprett íþróttakonunnar Marion Jones í 100 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Sydney. © Amit Shabi/Reuters Ljósmyndarinn Amit Shabi frá Ísrael hlaut 2. verðlaun í flokki almennra frétta. Myndin sýnir deil- ur ísraelsks landamæravarðar og Palestínumanns í Jerúsalem. © Zijah Gafic Ljósmyndaröð Zijah Gafic, frá Bosníu-Herzegóvínu, vann 2. verðlaun í flokki portrettmynda. Röðin sýnir aldraða íbúa í afskekktu þorpi í Bosníu. © T.J. Lemon/Sunday Independent Newspaper Suður-Afríkubúinn T.J. Lemon vann til 1. verðlauna í flokki listrænna mynda fyrir ljósmyndaröð sína. Þessir námaverkamenn í Suður-Afríku hafa það að reglu að klæða sig upp á laugardags- kvöldum til að dansa og syngja hver fyrir annan. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 5. MAÍ 2001

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.