Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2001, Síða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. MAÍ 2001
Á
BORÐANUM stóð skrifað
„Glæpalaust lýðræði!“
Tvær konur á áhorfenda-
pöllum neðri deildar kan-
adíska þingsins breiddu úr
honum yfir höfðum þing-
manna meðan á þingfundi
stóð. Konurnar grýttu leik-
fangaböngsum í þingmennina í gríð og erg,
þangað til öryggisvörðum tókst að grípa þær.
Lögregla var strax kölluð á vettvang og hand-
tók hún konurnar. Þetta athæfi kvennanna
tveggja var aðeins ein af mörgum mótmælaað-
gerðum sem efnt var til um allt landið vegna
handtöku Jaggi Singh, vel þekkts andófsmanns.
Singh hafði verið haldið í fangelsi, án þess að
hægt væri að fá hann lausan gegn tryggingu,
meðan á fundi leiðtoga Ameríkuríkja um frí-
verslunarsvæði stóð í Quebec-borg í síðastliðn-
um aprílmánuði. Singh var einn af 463 mönnum
sem handteknir voru fyrir að gagnrýna þá
leynd sem hvíldi yfir áætlunum um að tengja öll
ríki Norður- og Suður-Ameríku, nema Kúbu, í
eitt fríverslunarsvæði. Eftir 17 daga varðhald
var Singh hleypt út gegn tryggingu, með því
skilyrði að hann stæði ekki fyrir mótmælaað-
gerðum og bæri ekki á sér gjallarhorn. Ekki er
laust við að manni finnist kaldhæðnislegt að
setja yfirlýstum stjórnleysingja, sem hefur
hvað eftir annað lýst því yfir að hann sé ekki
leiðtogi neinnar hreyfingar, slíka skilmála.
Af hverju leikfangabangsar? Lögreglan hafði
ákært Singh fyrir að hafa undir höndum hættu-
legt vopn, stóra valslöngvu úr tré, sem dómari
úrskurðaði reyndar síðar að væri leikhúsmun-
ur. Hópur sem kallar sig Miðaldasamtökin, til
að hæðast að hinni rammgerðu víggirðingu sem
sett hafði verið upp kringum fundarstaðinn í ör-
yggisskyni, hafði notað valslöngvuna til að
kasta leikfangaböngsum í einkennisklædda
óeirðalögreglumenn er stóðu í röðum fyrir inn-
an girðinguna sem umlykur leiðtogafundinn.
Það skal tekið fram að Singh er ekki félagi í
þessum hópi. Mörgum vikum áður en fundurinn
hófst var víggirðingin, sem gerð er úr steypu og
járnhlekkjum, orðin að illræmdu tákni fyrir þá
ákvörðun stjórnvalda að meina mannréttinda-
samtökum, verkalýðsfélögum og umhverfis-
verndarhópum aðgang að viðræðunum um
þessa víðtæku áætlun um fríverslunarsvæði.
Andstæðingar fríverslunarsvæðis Ameríku-
ríkja höfðu krafist þess að fá aðgang að fund-
arstaðnum sjálfum, og sumir höfðu ferðast til
Quebec-borgar í því augnamiði að brjóta niður
girðinguna, en þá athöfn töldu þeir táknræna
fyrir baráttuna fyrir lýðræðislegu frelsi.
Sjónarvottar herma að Singh hafi verið að
reyna að róa fólk og beina því burtu frá girðing-
unni þegar ofbeldið hófst fyrsta kvöld fundar-
ins. Þrír lögreglumenn, sem voru dulbúnir sem
andófsmenn, stukku á hann, sneru hann niður,
spörkuðu í hann og börðu þrisvar með kylfum
sínum áður en þeir fleygðu honum inn í sendibíl
sem stóð þar hjá.
Singh hefur áður lent í „geðþóttahandtöku“. Í
Vancouver árið 1997, nokkrum dögum fyrir
fund Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrra-
hafsríkja (APEC), var hann sleginn niður úti á
götu, handjárnaður og handtekinn fyrir að ráð-
ast á lögreglumann. Hann hafði víst nokkrum
vikum áður talað of hátt í gjallarhorn og skaðað
með því heyrn lögreglumannsins. Þessar fárán-
legu ákærur voru síðar felldar niður, en lög-
reglan hafði með þeim náð markmiði sínu: Hún
hafði komið í veg fyrir að Singh héldi ræðu á
mótmælafundi gegn viðræðunum, en hann er
mjög áhrifamikill ræðumaður. Singh var hand-
tekinn aftur í Montréal, á meðan á mótmælum
gegn fundi fjármálaráðherra 20 stærstu iðn-
ríkja heims og þróunarlanda um efnahagsmál
(G-20 summit) stóð, og ákærurnar, sem síðar
var fallið frá, voru einnig ýktar. Lögreglan virð-
ist ákveðin í að gera Singh að leiðtoga, og maður
getur ekki annað en velt því fyrir sér hvort
dökkt litarhaft og asískt eftirnafn (Singh fædd-
ist í Kanada) geri hann berskjaldaðri fyrir
áreitni.
Eins og Naomi Klein, höfundur hinnar vin-
sælu bókar No Logo: Taking Aim at the Brand
Bullies, sagði um valslöngvuna, þá var það ekki
bara brandarinn sem lögreglan skildi ekki,
heldur virðist hún ekki gera sér grein fyrir eðli
þeirra pólitísku mótmæla sem hinn póstmód-
erníski nútími hefur tekið upp. Það var engin
ein manneskja, eða hópur, sem gat aflýst mót-
mælunum, vegna þess að þeir tugir þúsunda
sem komu til að mótmæla samningaviðræðum
um fríverslunarsvæði Ameríkuríkja eru hluti af
hreyfingu sem hefur hvorki leiðtoga né miðstöð,
ekki einu sinni ákveðið nafn. Singh stjórnaði
ekki neinu; hann var hluti af einhverju.
Ofbeldi og nýja árþúsundið
Ég er ekki ein af þeim sem veltir fyrir sér tíð-
arandanum. Mér fannst árþúsundaskiptin ekki
neitt mál, og best að leiða þau hjá sér. Ég ætti
þó að nefna að á gamlárskvöld 1999 fögnuðu
vinir mínir og ég nýja árþúsundinu undir eftir-
liti lögregluþyrlu. Kastljós frá þyrlunni lýsti
upp staðinn þar sem við nutum hitans frá litlum
varðeldi. Þetta var ekki í Los Angeles, eins og
ætla mætti, heldur í dauflegum (sumir myndu
segja leiðinlegum) bæ, þar sem glæpatíðni er
mjög lág, London, Ontaríó. Þegar þetta gerðist
hafði þessi illræmda þyrla truflað svefnfrið bæj-
arbúa í marga mánuði. Hvernig heimi heldur
lögreglan í London, Ontaríó, að við búum í ef
hún telur að hún þurfi þyrlu til eftirlitsstarfa?
Til allrar hamingju voru nógu margir af þeim
sem kvörtuðu yfir hávaða, og kostnaðinum sem
hlaust af því að lýsa upp grillveislur í bakgörð-
um bæjarbúa eins og þeir væru íþróttaleikvang-
ar, mikilsmetnir borgarar, svo að lögreglan sá
sér ekki annað fært en að skila hinu nýja leik-
fangi sínu aftur til seljandans, og lýðræðið hrós-
aði sigri yfir viðskiptum.
Vandamálin sem við stöndum frammi fyrir
nú á dögum urðu ekki til við árþúsundaskiptin.
Þau eru hin sömu og siðmenntuð þjóðfélög hafa
verið að fást við í nærri tvær aldir: Hvernig get-
um við náð því markmiði að allir í heiminum búi
við sanngjörn lífskjör og njóti friðsæls lífs, en
ekki aðeins fáir útvaldir? Hvaða framtíðarsýn
verður ofaná? Svarið virðist komið undir því
hvað við gerum núna.
Ég ákvað að skrifa um leiðtogafundinn í
Quebec-borg vegna þess að ég held að hann
veki mikilvægar spurningar um hvaða hlutverk
fjölmiðlar hafa með höndum og hvaða hlutverki
þeir ættu að gegna í lýðræðissamfélögum. Á
tímum þegar stór fjölþjóðafyrirtæki ráða í vax-
andi mæli yfir samskiptatækninni, og ákvarð-
anir sem hafa áhrif á líf okkar eru teknar í fjar-
lægum fundarherbergjum, verður enn brýnna
að stjórnmálamenn sinni skyldum sínum gagn-
vart almenningi og geri opinskátt hvernig risa-
fyrirtækin starfa.
Ofbeldið, og umfjöllun fjölmiðla um það,
varpar ljósi á þetta mál. Mánuðina á undan leið-
togafundinum fjölluðu kanadískir fjölmiðlar af-
ar sjaldan um innihald þeirrar gagnrýni sem
stéttarfélög, trúarhópar, sérfræðingaráð, um-
hverfisverndarsinnar, þingmenn í stjórnarand-
stöðu og fleiri settu fram á samningaviðræð-
urnar um fríverslunarsvæði í Suður- og
Norður-Ameríku. Þess í stað beindu þeir sjón-
um sínum að hugsanlegum óeirðum, eins og
þær væru það sem málið snerist um. Um það bil
fimmtíu þúsund manns tóku þátt í mótmælun-
um, en fjölmiðlar lýstu einungis árekstrum milli
lögreglu og þeirra tæplega 100 manna sem
tókst að fella girðinguna um koll og reyndu að
ryðjast í gegnum raðir lögreglumanna. Mjög
auðvelt reyndist að stöðva þá og var það sam-
stundis gert.
Fjölmiðlar og lögreglan virðast eiga það sam-
eiginlegt að hrífast af ofbeldi, rétt eins og sá litli
hópur öfgamanna sem brýtur rúður og ræðst á
lögreglumenn til að koma kapítalismanum á
kné. Vinur minn lýsti síðastnefnda hópnum sem
hvítum amerískum karlmönnum er væru svo
ógnvekjandi að aðrir mótmælendur forðuðust
þá. Þeir voru meðlimir í „Svarta flokknum“,
öfgafullum armi stjórnleysingja, sem fyrst varð
vart við í mótmælunum í Seattle í Bandaríkj-
unum. Vera þeirra í Quebec-borg var umdeild,
og flestir hópar og einstaklingar sem komu
þangað til að taka þátt í mótmælum gáfu greini-
lega í skyn að þeir væru andsnúnir ofbeldis-
fullum aðferðum við að láta pólitíska skoðun
sína í ljós. Þegar „Svarti flokkurinn“ braut
glugga bauluðu aðrir mótmælendur á þá og
margir reyndu að koma í veg fyrir skemmd-
arverkin. Fjölmiðlar létu hjá líða að greina frá
þeirri ábyrgð sem mikill meirihluti mótmæl-
enda sýndi og samkenndinni sem menn fundu
fyrir.
Yfirgengileg viðbrögð lögreglu við mót-
mælum gegn viðskiptafundunum í Seattle,
Washington, Davos og Prag hafa orðið vinsælt
umræðuefni á alþjóðavettvangi, sem er þó ekki
hægt að merkja af hinum helstu fjölmiðlum. En
viðskiptafundir eru ekki hið eina sem um er
deilt. Fyrsta maí síðastliðinn, í London (Eng-
landi), rak lögreglan um 6000 friðsama mót-
mælendur inn á Oxford Circus, hélt þeim þar
innilokuðum ásamt ferðamönnum og gangandi
vegfarendum í sjö klukkustundir án nokkurs til-
efnis, og án þess að fólkið hefði aðgang að mat,
vatni eða salernum. Á öllum þessum stöðum
fylgja aðferðir lögreglu ákveðnu munstri: Neita
öllum sem líta út fyrir að ætla sér að taka þátt í
mótmælaaðgerðum um inngöngu í landið;
byggja upp ótta í hugum fólks fyrirfram til að
letja það til þátttöku; nota ákveðnar aðferðir til
að skapa óeiningu meðal hinna ólíku hópa sem
þátt taka í mótmælunum.
Kanadískir fjölmiðlar hafa ekki andmælt
þeirri staðhæfingu Jean Chretiens forsætisráð-
herra að lögreglan hafi einungis verið að halda
uppi lögum og reglu. Þeir láta hjá líða að segja
frá fjölda atvika þar sem menn voru handteknir
án tilefnis, urðu fyrir líkamsárásum og skerð-
ingu á lýðræðislegu tjáningarfrelsi. Óháðir fjöl-
miðlar, stjórnarandstaðan og mörg frjáls
félagasamtök halda því statt og stöðugt fram að
lögreglan sé að skapa andrúmsloft ofbeldis og
ótta, með því að bregðast við öfgamönnum með
táragasi, gúmmíkúlum og kylfum.
Hættan sem steðjar að lýðræðinu felst í
virkri stigmögnun átakanna, sem fjölmiðlar,
lögreglan og öfgamenn taka fullan þátt í. Engu
að síður hafa fjölmiðlarnir og lögreglan mesta
valdið. Þeir hafa einnig vald til að velja að líta
ekki á lýðræðisleg mótmæli og félagslegar að-
gerðir sem glæpi.
Mál Singhs er mest áberandi, en þúsundir
manna urðu fyrir óþægindum vegna ofstækis-
fullra öryggisráðstafana, þegar ský úr táragasi
umluktu borgina. Á þeim þremur dögum sem
fundurinn stóð skaut lögreglan 1700 hylkjum af
táragasi, og þegar þau voru á þrotum pantaði
hún með hraði nýjar birgðir frá bandarísku fyr-
irtæki. Fjölskyldur í úthverfum borgarinnar
neyddust til að halda börnum og gæludýrum
innandyra, og fylla upp í allar rifur í dyrum og
gluggum til að halda gasinu utanhúss. Asma-
sjúklingar fylltu bráðadeildir sjúkrahúsa og
margir þjást ennþá af ofnæmissjúkdómum og
húðkvillum vegna táragassins. Þegar fundinum
var lokið þurfti að eyða eitrinu úr fjölda bygg-
inga.
Stundum skaut lögreglan táragassprengjum
hundruð metra aftur fyrir framlínu þeirra sem
þátt tóku í mótmælunum, þar sem fólk hafði
safnast saman friðsamlega eða var einfaldlega
að reyna að forðast vandræði. Stundum beindu
þeir hinum brennheitu hylkjum að brjóstum
fólks, sem þá brenndist og marðist, auk þess
sem leið yfir það. Þeir sem komu fórnarlömb-
unum til aðstoðar urðu einnig fyrir árásum. Ein
frásögn er af manni sem býr í nágrenni við víg-
girðinguna og fékk gashylki í augað þegar hann
gekk út um útidyr sínar. Annar, sem fékk
gúmmíkúlu sem er í laginu eins og korktappi úr
kampavínsflösku, í hálsinn, þurfti að gangast
undir neyðaraðgerð á barka og óvíst er hvort
hann getur talað eftir þetta. Þingmaður einn
fékk högg aftan á annan fótlegginn þegar hann
leiddi friðsamlegan hóp mótmælenda í burtu frá
átakasvæðinu. Annar fékk skot í brjóstið. Einn
andófsmaður var handtekinn fyrir að taka ekki
af sér trefil sem huldi andlit hans. Kona sem
vann í bráðabirgðaeldhúsi, sem dreifði mat til
mótmælenda, greindi frá því að lögreglan hefði
brotist inn í eldhúsið, hrint sér niður á gólf,
handjárnað sig og handtekið. Hún var 21
klukkustund í varðhaldi, í einmenningsklefa
ásamt þremur öðrum. Lögreglan beitti gasi á
bækistöð óháðra fjölmiðla og mölvaði glugga-
rúður þar. Fréttamenn sögðu að fréttamanna-
passar þeirra hefðu ekki haft neitt að segja.
Lögreglan handtók ljósmyndara. Frést hefur
að lögreglumenn hafi dulbúið sig sem andófs-
menn, með prjónahúfur á höfðinu og hálsklúta
fyrir andlitinu.
Táragasi var beint að fólkinu, jafnvel þótt fáir
væru nálægt afgirta svæðinu. Fimmtugur karl-
maður hefur greint frá því að þegar hann, og
nokkrir fleiri, voru á leið í bifreiðar sínar til þess
að yfirgefa svæðið hefði lögreglan gert áhlaup á
þá og notað við það táragas. Hann hljóp að ná-
lægu almenningssalerni, þar sem hann rakst á
80 ára gamla konu í göngugrind, sem var að
reyna að þvo táragasið af líkama sínum. Nem-
andi í York-háskóla, sem er frá Bangladesh og
hefur lent í ofbeldisaðgerðum lögreglu þar gegn
stúdentum, sagði að hann hefði aldrei séð neitt
jafnskelfilegt og þegar kanadíska lögreglan
réðst á alla sem voru innan skotfæris. Flestar
handtökurnar áttu sér stað mörgum klukku-
stundum eftir stóru mótmælagönguna á laug-
ardeginum, þegar fólk slappaði af í nokkurri
fjarlægð frá hinu svokallaða „rauða svæði“
kringum öryggisgirðinguna.
Margir hinna 463ja andstæðinga fríverslun-
arsvæðisins sem voru handteknir sögðu frá bar-
smíðum lögreglu, og konur greindu frá líkams-
leit sem fór fram undir umsjón karlmanna. Allir
sem fluttir voru í fangelsið voru afklæddir og
köldu vatni sprautað á þá úr slöngu til að fjar-
lægja táragas, en síðan voru menn skildir eftir
klukkutímum saman í troðfullum fangaklefum.
Sumir kvörtuðu yfir að hafa verið neitað um lög-
T ÍÐARANDI Í ALDARBYRJUN
LÝÐRÆÐIÐ LYKT-
AR AF TÁRAGASI
ÞESSA DAGANA
E F T I R
A N N E B RY D O N