Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2001, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. MAÍ 2001 13
NÚTÍMALIST hefur selst vel
hjá uppboðshúsum New York-
borgar undanfarið og var á
dögunum greitt metverð fyrir
verk samtímalistamanna hjá
uppboðshúsi Christie’s. Það
voru verk listamannanna Bruce
Nauman og Maurizio Cattelan,
listamann sem fáir höfðu heyrt
minnst á fyrir tveimur árum,
sem hvað mesta athygli vöktu.
Verk Neumans „Henry Moore
Bound to Fail (baksvipur)“ frá
1967, sem sýnir vaxmynd af
baki listamannsins bundið með
snæri, seldist fyrir 9,9 milljónir
dollara eða einar 990 milljónir
króna, sem er metverð fyrir
verk Neumans. Verkið er af
mörgum sérfræðingum talið
eiga öruggan sess í lista-
sögubókum framtíðarinnar.
Verk Cattelans vakti þá ekki
minni athygli, en um var að
ræða verkið „The Ninth Hour“,
innsetningu af herbergi sem
geymir raunsæja vaxmynd af
Jóhannesi Páli páfa II, íklædd-
um hvítum kyrtli, og hefur páfi
verið felldur til jarðar af loft-
steini sem fallið hefur í gegn-
um þakglugga. Innsetningin,
sem ekki hefur áður verið sýnd
í Bandaríkjunum, seldist fyrir
tæpar 90 milljónir, og hafa
ýmsir gagnrýnendur þakkað
það góðri markaðsstarfsemi af
hálfu Christie’s.
Ekki seldust þó öll verk jafn
háu verði og urðu ýmsir yngri
listamenn að sætta sig við að
ekki virðist sama eftirspurn
eftir verkum þeirra og áður.
„Það er ekki sama eftirvænting
tengd verkum yngri lista-
manna,“ sagði Lucy Mitchell-
Innes, einn af listaverkasölum
borgarinnar. „Það á sér-
staklega við um þá listamenn
sem hafa gert fleiri en eina út-
gáfu af verkum sínum. Fólk
hefur áttað sig á að það er
óþarfi að greiða háar fjárhæðir
fyrir verk þeirra, þegar allt
eins er líklegt að annað eins
skjóti upp kollinum.“
Menning tengd
viðskiptalífinu
MENNING og sköpunargleði
eru gáfuleg fjárfesting að mati
danska þjóðþingsins, að því er
dagblaðið Berlingske Tidende
greindi frá á dögunum. En
danska ríkisstjórnin hefur nú
fastsett sér að samstarf við iðn-
að og viðskiptalíf megi ekki
vera á kostnað menningar og
núverandi styrkjakerfis. Menn-
ingin eigi þess í stað að styrkja
dönsku þjóðina á alþjóðavett-
vangi með því að veita tengsl
við atvinnulífið. „Danmörk á að
sækja fram á við með sköp-
unargleði og framleiðslu, með
sál og sögu. Og því náum við
með samvinnu menningar-, at-
vinnu- og viðskiptalífs,“ sagði
Ole Sohn, atvinnumálaráðherra
Dana við þingheim fyrir stuttu.
En velta danska kvikmynda-,
tónlistar-, og listaiðnaðarins
hefur aukist ört frá upphafi ní-
unda áratugarins og nemur nú
rúmum 760 milljörðum, sem að
mati þingsins hefur í för með
sér að menningin telst til
þeirra þátta sem sýna nú hvað
mesta vaxtamöguleika fyrir
danskan efnahag.
ERLENDAR
BÆKUR
Metverð fyrir
verk Neumans
Verk Cattelans.
AP
S
ÝNING á nýjum málverkum
Braga Ásgeirssonar verður
opnuð í sýningarsal Sævars
Karls Ólasonar kl. 14 í dag og
önnur á mánudag í Listhús-
inu Fold. Í báðum tilvikum er
um að ræða boðssýningar, en
Bragi verður stjötugur á
mánudag og tekur sérstaklega á móti gest-
um á afmælisdaginn í Listhúsinu Fold milli
kl. 17 og 20. Á sýningunni hjá Sævari verð-
ur rúmur tugur málverka, flest af stærri
gerðinni, en um og yfir þrjátíu í baksal og
rauða innskotinu í Fold. Allt eru þetta nýjar
myndir, í olíu á masonit og nær allar unnar
eftir að Bragi hætti kennslu við Myndlista-
og handíðaskóla Íslands 1996, flestar á síð-
ustu tveim til þrem árum og hafa aldrei ver-
ið sýndar opinberlega áður.
Áhrifin segist listamaðurinn yfirleitt
sækja til umhverfisins og er þá nærtækt
útsýnið úr gluggum vinnustofu hans frá
toppi háhýsis við Austurbrún. Þar sér vítt
yfir einkum til Viðeyjar og fjallgarðsins,
enda bera myndir hans nöfn eins og Sumar
með Sundum, Móska með Sundum Apríl
með Sundum. „Er þá í senn vísað til árstíða
og veðrabrigða, með hughrifin í sjálfu sér
sem leiðistef og skjalfestingu sjónrænna lif-
ana.“
Bragi Ásgeirsson hefur verið mikilvirkur
á sýningavettvangi frá fyrstu sýningu hans í
Listamannaskálanum gamla við Kirkju-
stræti vorið 1955, kennari við MHÍ á tíma-
bili er spannar 40 ár, listrýnir Morgunblaðs-
ins og höfundur hundruða greina um listir
heima og erlendis í bráðum 36 ár. Hann var
í sýninganefnd FÍM í 5 ár 1969–74, yfirsýn-
ingarstjóri samnorrænu sýningarinnar á
Kjarvalsstöðum 1972, sem var fyrsta stór-
sýningin í öllu húsinu. Meðlimur í al-
þjóðlegri nefnd í sambandi við Eystrasalts-
tvíæringinn í Rostock frá 1967–81 og
sérstakur heiðursgestur síðasta árið. Verk
hans eru í eigu flestra safna á Íslandi og
margra opinberra stofnana og hafa að auki
dreifst víða erlendis.
„Það má alveg fullyrða að ég hafi gengið í
endurnýjun lífdaga eftir að ég hætti
kennslu,“ segir listamaðurinn. „Ég hef ekki
getað einbeitt mér eins vel að málverkinu í
heil 40 ár og vex stöðugt ásmegin. Hugðist
annars hætta alfarið kennslu 1977, enda
gekk mér þá allt í haginn í listinni, en fyrir
ófyrirsjéða atburðarás tókst það ekki í það
sinnið og kannski má segja að ég sé að bæta
mér það upp núna. Mér finnst ég vera í
miðju verki og hef ótal margt á prjónunum.
Ég var engan veginn tilbúin með sýningar
núna, hugsaði ekkert um þá hlið málsins.
Markaðssetning eigin verka er ekki mín hlið
og fyrri sýningar hélt ég flestar til að ná
endum saman í fjármálum, sem tókst yf-
irleitt prýðilega. Satt að segja hugðist ég
dvelja erlendis á þessum tímamótum og þá
helst í Róm, en þangað hef ég einhvern veg-
inn sterkar taugar um þessar mundir, hef
ekki komið til Rómar og Flórens síðan ég
dvaldi þar í 10 mánuði á árunum 1953–54 og
þykir tilhugsunin óbærileg. München er
næst á óskalistanum, en helst vildi ég flakka
um Evrópu og heiminn í eitt ár og drekka í
mig andrúm staðanna. Bretta svo upp erm-
arnar á ný. En það er fjarlæg óskhyggja því
málverkið togar í mig í síauknum mæli, lík-
ast vímuefni, og ég vona að mér endist full-
ur starfsþróttur að minnsta kosti tíu ár í
viðbót.
En þegar þau Elínbjört og Tryggvi í Fold
buðu mér að sýna og hafa móttöku um leið,
stóðst ég ekki freistinguna og um svipað
leyti bauð Sævar Karl mér að sýna í húsa-
kynnum sínum og óforvarandis á líkum
tíma. Þá þótti mér tilvalið að kynna á mér
ólíkar hliðar í tveim ólíkum sölum svona til
samanburðar, en vitaskuld er sami undir-
tónninn í öllum myndunum.
Þótt ég hafni engan veginn blómvöndum
eru penslar og léreft, svo og annað í þá átt-
ina jafn gjaldgengt, sný ég mér meira að
léttara efnum í framtíðinni...“
Tvær afmælissýningar
Braga Ásgeirssonar
Morgunblaðið/Jim Smart
Móska með Sundum. Olía á masonít, 2001.
Apríl með Sundum. Olía á masonít, 2001.