Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. JÚNÍ 2001
M
EÐ sýningunni sem
opnar í öllum sölum
Hafnarhússins í kvöld
hefur Errósafnið,
sem vaxið hefur jafnt
og þétt frá því að
listamaðurinn ánafn-
aði Reykjavíkurborg
rúmlega 2000 verka sinna árið 1989, fengið
varanlegan sess í safninu. Eftir að opn-
unarsýningunni lýkur í janúar á næsta ári
verður hluti af safninu til sýnis að staðaldri
í a.m.k. einum sal Hafnarhússins og hefur
Listasafn Reykjavíkur jafnframt til umráða
sérútbúnar geymslur þar sem safnið verður
varðveitt. Fjölbreytilegar sýningar, auk
kynningar- og fræðslustarfsemi, verða jafn-
framt starfræktar allan ársins hring.
Opnun Errósafnsins og það aðgengi al-
mennings að verkunum sem því fylgir mark-
ar tímamót í uppbyggingu Listasafns
Reykjavíkur sem nú er starfrækt á þremur
stöðum, á Kjarvalsstöðum, í Ásmundarsafni
við Sigtún og í Hafnarhúsinu, auk umsjónar
með útlistaverkum í eigu borgarinnar.
Hvert safn hýsir eitt hinna stóru sérsafna
Listasafns Reykjavíkur, Kjarvalssafnið sem
telur rúmlega 5000 verk, Ásmundarsafnið
sem telur um 2800 verk og Errósafnið sem
fundinn hefur verið staður í Hafnarhúsinu
sem tók til starfa á síðasta ári. Þá jókst
rými Listasafns Reykjavíkur til sýningar-
halds fyrir myndlist samtímans til muna
með opnun Hafnarhússins.
Viðburður í listalífinu
Segja má að saga Errósafnsins á Íslandi
hafi byrjað í september árið 1989 þegar
Reykjavíkurborg þáði rausnarlega lista-
verkagjöf frá Erró. Davíð Oddsson, þáver-
andi borgarstjóri, tilkynnti um gjöfina við
opnun stórrar sýningar á samtímaverkum
eftir Erró á Kjarvalsstöðum en Ólafur B.
Kvaran veitti listasafninu þá forstöðu. Í
ræðu sinni sagðist Davíð hafa vitnað til þess
að Erró hefði í hyggju að gefa Reykjavík-
urborg nokkuð af myndum eftir sig, en
rausnarskapur listamannsins hafi gersam-
lega komið sér í opna skjöldu og yrði gjöfin,
þótt verðmæt væri, aldrei fyllilega metin til
fjár. Um var að ræða safn 2270 verka frá
öllum skeiðum ævi listamannsins, málverk,
vatnslitamyndir, þekjulitamyndir, grafík-
myndir, teikningar og samklippur, auk þess
sem borgin fékk til varðveislu ýmis gögn úr
fórum Errós sem varpa ljósi á feril list-
mannsins og líf hans, s.s. skissubækur, dag-
bækur, bréfasafn, ljósmyndir, veggspjöld,
greinar og bækur. Engin skilyrði fylgdu
gjöfinni af hálfu listamannsins og gaf Erró
jafnframt fyrirheit um að fleiri verk bættust
í safnið í framtíðinni.
Þessi viðburður í listalífi þjóðarinnar gat
af sér talsverðar umræður í þjóðfélaginu.
ERRÓSAFNIÐ FÆR
FASTAN SAMASTAÐ
Formleg opnun Errósafnsins í Hafnarhúsinu í kvöld er
mikill áfangi í sögu Listasafns Reykjavíkur en rúmlega
12 ár eru liðin frá því að listamaðurinn gaf Reykjavík-
urborg veglegt safn verka sinna. HEIÐA JÓHANNS-
DÓTTIR kynnti sér söguna á bak við safnið.
„Sjóræningjar Polanskis“ (99x79) eftir Erró frá árinu 1988.Morgunblaðið/Kristinn
Errósafnið hefur fengið aðstöðu í Hafnarhúsinu sem var opnað á menningarborgarárinu.