Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. JÚNÍ 2001 15 B ÓKMENNTALÍFIÐ er svo nátengt íslensku þjóðinni að aldrei hefur komið til mála að gefa íslenskum höfundum frelsi til að láta eins og þeim listir. Opinber íhlutun í fjár- mál höfunda á síðustu tveim- ur áratugum eða svo hefur enn hert aðhaldið um að íslenskir rithöfund- ar reynist til þess hæfir að veita kynslóð sinni samfylgd í leit hennar að lífshamingju. Og fá- ist til að gera það. Af þessu leiðir að íslenskar bókmenntir eru samtíðarspegill líklega frem- ur en bókmenntir flestra annarra þjóða sem kunna á hinn bóginn að lúta akademískum þörfum eða sérvisku rithöfunda sjálfra frem- ur en öðru. Að flytja að heiman Leit þjóðarinnar allrar að efnalegu sjálf- stæði á 20. öldinni setur mjög svip á bók- menntirnar á sama tímabili. Allt frá sam- fylgd þeirra við flokkaskipun og stéttabaráttu alþýðunnar á þriðja áratugn- um og áfram, til höfnunar eftirstríðsárakyn- slóðanna á hverskonar andlegri handleiðslu og þar með á slíkri leiðsögn skáldanna. Síð- ustu áratugi aldarinnar einkenndi bók- menntirnar eftirgjöf við þessa kröfu um af- skiptaleysi, þar með formhyggja og ígrundunarlitlar stílfærslur eins og Sigurðar Pálssonar. Megas er persónugervingur þessara um- breytinga í bókmenntalífi þjóðarinnar, frá því að höfundarnir kváðust á við frömuði verkalýðsbaráttunnar til þess er þjóðin sner- ist gegn menningarvitunum í viðleitni sinni að koma sér upp borgaralegum lifnaðarhátt- um þótt væru á kostnað fyrri tíða hugsjóna- mennsku til vinstri eða hægri. Kynslóð sem ekki vill rithöfunda eignast einnig sína mál- flutningsmenn á þeim vettvangi; höfunda með neikvæðu formerki, spegla fyrir grót- eskt sálarlíf. Á þessu sviði hefur Megasi tek- ist að þrífast og þróa list sem kemst næst því sem erlendis hefur verið kallað „dekadens“ í listum og einkennt hefur umskiptaskeið með öðru, t.d. breskra og franskra bókmennta áratugina fyrir aldamótin 1900. List Megas- ar er þó svo rammíslensk sem nokkur list getur verið. Eins og íslensk skaphöfn frá fornu fari felur hún í sér höfnun á efnisþátt- um sínum, list hans haltrar um ljóð, sögu, hljóðfæraleik og söng án þess almennilega að koma fyrir sig fæti nokkurs staðar en nær þó úr bágindunum útkomu á borð við Guðmund- ar dúllara, Ingimundar fiðlu, Æra-Tobba og annarra rammíslenskra listamanna á hið ósegjanlega í þjóðarsálinni. Við sem vorum samtíma Megasi í menntaskóla kennum í list hans geðveikislegrar heimtufrekju kennar- anna í MR afturgenginnar; um að nemendum skólans bæri að tileinka sér steindautt mál- far þeirra og kennslubókanna. Andi meistara Megasar blæs lífi í þessar klisjur íslenskrar bændamenningar sem fyrir löngu er komin af fótum fram. Og jafnvel setningagerð 19. aldar rómantíkur Ingvars þýskukennara! Erlendir róttæklingar kröfðust raunsæis af höfundum og kölluðu módernísk stílbrögð í skáldskap borgaralega úrkynjun. Umræð- an hérlendis náði ekki slíku hugmyndalegu flugi en varð fremur að deilu um kæki bændamenningar sem stýrt hafði bókmennt- unum og neitaði að sleppa þótt sjálf væri hún á góðri leið með að hefja nýtt líf á suðvest- urhorni landsins. Tímabilið frá því um miðja öldina og fram á áttunda áratuginn, tímabil módernismans, er vissulega við hæfi að kenna við dekadens þótt ekki sé á þeim for- sendum sem róttæklingarnir gáfu sér þegar þeir hugðust frelsa heiminn frá hremming- um sjálfselskunnar. Á þessu tímabili var samband skáldskapar og lesenda neikvætt fyrir réttlætingu sem skáldskapurinn sjálfur fól í sér. Á þessum þriðja fjórðungi aldarinn- ar óx upp kynslóð óbókhneigðs fólks í land- inu. Fólks sem var í óvissu um félagslegt hlutverk sitt, þótti klisjur fortíðarinnar um menningarmál óviðfelldnar í ljósi breyttra tíma en hafði fátt til málanna að leggja. Höf- unda sína gerði hún að píslarvottum málstað- ar sem engan hljómgrunn fann meðal hennar eða annarsstaðar. Íslenski módernisminn var einskonar blindauga slíks vitnis um áraun sem aldrei varð. Hugmyndapælingar í bókmenntum á þriðja aldarfjórðungnum náðu ekki lengra en vitna um geðveikislegt ósamræmi í sálarlífi höfundanna milli rökvits þeirra og tilfinn- inga. Flestir þeirra dóu í andanum áður en þeir vöknuðu til vits síns sem rithöfundar, hurfu af sjónarsviðinu og inn á hinn breiða vettvang atvinnusögunnar. Megas dó líklega líka, en gekk þá aftur í krafti þeirrar kyngi sem síðan hefur gert hann að einum helsta listamanni þjóðarinnar á öldinni. Myrkrið sem eftir varð Nú þegar hið borgaralega þjóðfélag hefur sniðið sér eigin stakk og hverjum manni er áskilinn réttur til að vera hann sjálfur, óháð öðru en landslögum, er auðvelt að skilja að ljóð þeirra módernista, Jóns Óskars og Sig- fúsar Daðasonar og allra hinna uppreisnar- skáldanna vitna um þróun til borgaralegra lifnaðarhátta sem setja sjálfið í öndvegi. Þótt íslensku módernistarnir stæðu með þeim pólitískt róttæku var það sviplíking fremur en annað. Raunsæishefðin var svo sterk að viðurkenning módernistanna gat ekki farið fram með öðrum hætti en í tómarúmi. Þörfin fyrir miðlun fróðleiks og upplýsinga með bókmenntum, þessi réttlæting þeirra, hefur farið minnkandi með aukinni fyrirferð skólanáms og fjölmiðla. Að sama skapi hefur svigrúm aukist fyrir sjálfsleit. Vísindarit, sem miðla þekkingu ópersónulega, úthýstu mælskulist úr orðræðum um menningarmál og mælska varð um tíma listgrein án heim- ilisfangs en fékk svo inni í ljóðagerð sam- tímaskáldanna. Þannig hefur sjálfsleit og mælska orðið að höfuðeinkennum nútíma- ljóða án þess að geta fyllilega sammælst um það með vitrænum hætti. Öllu fremur að þessar mótstæður skipi ljóðagerðinni hárs- breidd frá orðafari geðklofasjúklinga. Nú- tímaskáldin lágu því vel við höggi raunsæis- sinna sem fjölluðu um hnignun í því sambandi og jafnvel úrkynjun. Orðið hnignun um bókmenntir sem annað vísar til þess að einhverju fari aftur. Sé ekki gætt fullrar umhirðu um fyrirmynd við sköp- un ritverks vitnar það um afturför með hlið- sjón af þessari fyrirmynd. En skáldverk hæf- ir einnig að meta á eigin forsendum. Í því sambandi kann að vera við hæfi að ræða um framfarir. Bókmenntaverk getur því í senn reynst gott og slæmt eftir því hvernig á það er litið – eins og önnur mannanna verk. Reynist skáldverk í uppreisn gegn fyrir- mynd sinni og jafnframt bera sjálfstætt svip- mót kann að vera ástæða til að tala um hnign- un í því sambandi sé gerð skáldverksins og framsetning efnis þess með ákveðnum hætti. Megas er helstur fulltrúi íslenskra rithöf- unda fyrir slíka listsköpun. Fyrirrennarar skáldsins kváðust á við verkalýðsforingja með skeleggum hætti og enginn lét sér detta annað í hug en vænta mannlegra viðbraga við skáldskapnum. Megas glímir á hinn bóg- inn við ofurefli sem birtist honum í síbreyti- legri mynd, og þá alltaf með því sniði að ekki verður kveðið niður með ljóðlínum hans, rök- viti eða tilfinningum heldur sprengja þessir kraftar af sér mannlegar þarfir hans sem samtímamanna hans og endursenda í fang skáldsins eins og forynja úr öðrum heimi. En einmitt með einstæði þess vanmáttuga sem hvorki á sér form né festu reynist Megas málsvari umkomuleysingjans, hinn gildi af- hjúpandi afstyrmisháttar í garð lítilmagna í hvaða mynd sem er. Jafnt meðal kennaraliðs MR frammi fyrir hinum bljúga nemanda sem umskiptinganna í hlandportum borgarinnar. Að finna púkum ný heimkynni Kynslóð fraus inni með hugsjónir úr þjóð- arfortíðinni sem hafði verið bannað í uppeld- inu að sýna af sér aðrar kenndir en jákvæðar hversu lognar sem þær væru. Afleiðingin varð sambandsleysi milli almennings af þess- ari kynslóð og þeirra listamanna sem reynd- ust búa yfir mestri sköpunargáfu. Vandinn var ærinn og flestum óbærilegur til lengdar. Megas hefur hlýtt rökum listsköpunar sinn- ar til þrautar, búið til samtalsform milli kyn- slóðar sinnar og sjálfs sín með verkum sínum innan þeirra marka sem þjóðin setur lista- mönnum, að þeir vaki yfir andlegri velferð hennar. Vandinn er að skilja að sjálfslygar margra manna á löngu tímabili geti orðið að púkum sem mikinn listamann þarf til að fjötra á öðr- um stað, við annað ástand, en í sálarlífi þessa fólks og afkomenda þess. Fáist ekki maður til verksins endar það með allsherjardeyfð eða, sem skárra er, allt fer til helvítis illvirkja, of- beldis, allsherjarófriðar. Það er því enn full ástæða til að veita Meg- asi athygli, manni sem afhjúpar hræsni sam- tíðar sinnar með sérstæðri list sinni. MEGAS E F T I R Þ O R S T E I N A N T O N S S O N „Vandinn er að skilja að sjálfslygar margra manna á löngu tímabili geti orðið að púkum sem mikinn listamann þarf til að fjötra á öðrum stað, við annað ástand, en í sálarlífi þessa fólks og afkomenda þess. Fáist ekki maður til verksins endar það með allsherj- ardeyfð eða, sem skárra er, allt fer til helvítis ill- virkja, ofbeldis, allsherj- arófriðar.“ Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Megas Höfundur er rithöfundur. MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar. Til 31.8. Árnastofnun, Árnagarði: Handrita- sýning opin 11-16 mánudaga-laugar- daga. Til 25.8. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Blóðug vígaferli og götulíf víkinganna í York. Til 1. okt. Fella- og Hólakirkja: Samræmd heildarmynd. Til 8.7. Galleri@hlemmur.is: Unnar Örn Auðarson. Til 15.7. Gallerí Reykjavík: Olga Pálsdóttir. Til 30.6. Gallerí Sævars Karls: Victor Guð- mundur Cilia. Til 12.7. Bragi Ásgeirs- son. Til 26.6. Gerðuberg: Ljósmyndasýning grunn- skólanema. Til 17.8. Hafnarborg: Werner Möll og Andr- eas Green. Til 2.7. Hallgrímskirkja: Valgarður Gunnars- son. Til 31.8. Handverk og hönnun, Aðalstræti 12: Djásn og dýrðleg sjöl. Til 8.7. Hulduhólar, Mosfellsbæ: Steinunn Marteinsdóttir. Til 24.6. Íslensk grafík: Stella Sigurgeirsdótt- ir. Til 15.7. Listasafn Akureyrar: Akureyri í myndlist. Til 29.7. Listasafn ASÍ: List frá liðinni öld. Til 12.8. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14-17. Höggmyndagarðurinn er alltaf opinn. Listasafn Íslands: Andspænis nátt- úrunni. Til 2.9. Listasafn Reykjavíkur - Ásmundar- safn: Svipir lands og sagna. Til 10.2. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús: Errósafnið. Til 6.1. Listasafn Reykjavíkur - Kjarvals- staðir: Flogið yfir Heklu. Miðrými: Gretar Reynisson. Til 19.8. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hefð og nýsköpun. Til 30.9. Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi: Philippe Ricart. Til 1.7. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Margrét Magnúsdóttir. Til 23.6. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Grófar- húsi: Franski ljósmyndarinn Henri Cartier-Bresson. Til 29.7. Man Skólavörðustíg 14: Torfi Jóns- son.Til 11.7. Mokkakaffi: Karen Kerstein. Til 14.7. Norræna húsið: Norrænir hlutir. Til 6.8. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagna- myndir Ásgríms. Til 1.9. Sjóminjasafn Íslands, Vesturgötu 8, Hafnarf.: Ásgeir Guðbjartsson. Til 22.7. Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og Þorgerður Sigurðardóttir staðarlista- menn.Til 31. des. Slunkaríki, Ísafirði: Hjörtur Mar- teinsson.Til 1.7. Stöðlakot: Kristín Schmidhauser Jónsdóttir. Til 24.6. Þjóðmenningarhúsið:Landafundir og ragnarök. Upplýsingamiðstöð mynd- listar: www.umm.is, undir Fréttir. TÓNLIST Sunnudagur Ýmir, Skógarhlíð: Íslensk kammer- tónlist á Jónsmessu. Flytjendur eru Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Sig- rún Eðvaldsdóttir, fiðla, Sigurður Ingvi Snorrason, klarinetta. Kl. 16. Þriðjudagur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Signý Sæmundsdóttir sópran og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanó. Kl. 20:30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Með fulla vasa af grjóti, mið. 27. júní. Syngjandi í rign- ingunni, lau. 23., sun. 24., fim. 28., fös. 29. júní. Borgarleikhúsið: Með vífið í lúkun- um, lau. 23., fim. 28., fös. 29. júní. Iðnó: Rúm fyrir einn, fim. 28. júni. Feðgar á ferð, sun. 24. júní. Upplýsingar um listviðburði sem ósk- að er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á mið- vikudögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.