Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Blaðsíða 7
Erró, 1990: „Tölvunum kennt“ (109x71). LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. JÚNÍ 2001 7 Aðsókn á sýningu Errós á Kjarvalsstöðum var með eindæmum góð og má segja að gjöfin hafi hleypt lífi í myndlistarumræðuna í landinu sem margir töldu einkennast af nokkurri ládeyðu. Fullkomið listaverkasafn, frá svo eftirsóttum og þekktum listamanni á alþjóðavísu, varð jafnframt mörgum list- áhugamönnum tilefni til umræðna um ófull- nægjandi tengsl íslensks myndlistarlífs við erlenda strauma og vona um að slík tengsl mættu styrkjast í kjölfar þessa viðburðar. Errósafn á Korpúlfsstöðum? Borgaryfirvöld stóðu nú frammi fyrir því verkefni að finna safni Errós tilhlýðilegan stað sem tryggði örugga varðveislu og veitti almenningi aðgang að þeim. Borgaryfirvöld létu ekki á sér standa með ákvörðun og til- kynnti Davíð Oddsson, þegar hann veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd borgarinnar, að safn Errós yrði gert að kjarnanum í fyr- irhugaðri listamiðstöð að Korpúlfsstöðum, fyrrum stórbýli Thors Jensens sem borgin hafði eignast árið 1942 og var í nokkurri niðurníðslu. Var hugmyndin sú að auk þess að vera Errósafn yrði listamiðstöðin vett- vangur fyrir fjölbreytta menningarstarf- semi, svo sem höggmyndalist, ritlist og tón- list. Átti uppbygging listamiðstöðvarinnar að verða langtímaverkefni og næsta stór- verkefni borgarinnar í menningarmálum á eftir Viðeyjarstofu og Borgarleikhúsinu. Sérstök nefnd var skipuð til að meta og undirbúa framkvæmdir en eftir úttekt á ástandi hússins kom í ljós að afar kostn- aðarsamt yrði að gera upp húsið. Áætlaður kostnaður við endurbyggingu var talinn mundu nema 1400 milljónum króna og var áformum um endurbyggingu Korpúlfsstaða því frestað, ekki síst í ljósi efnahagslegrar lægðar í samfélaginu að sögn borgaryfir- valda. Meðan á umræðunni um Korpúlfs- staði stóð, létu ófáir í sér heyra og var ekki aðeins rætt um kostnað heldur einnig stað- setningu, auk þess sem margir minntu á vægi þess að hlúa að listinni. Stefnan tekin á Hafnarhús Þegar R-listinn, undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, náði kjöri í borgar- stjórnarkosningum árið 1994 kom það í hans hlut að skapa Listasafni Reykjavíkur að- stöðu sem hýst gæti Errósafnið. Kom þá fram sú hugmynd að leita samkomulags við Reykjavíkurhöfn um að Listasafn Reykja- víkur og Errósafn fengi aðstöðu í Hafn- arhúsinu við Tryggvagötu. Eftir að komist var að niðurstöðu um það verkefni var boð- að til samkeppni um útfærslu listasafnsins á tveimur hæðum í hluta Hafnarhússins. Til- laga Studio Granda sem Margrét Harð- ardóttir og Steve Christer arkitektar stóðu að varð fyrir valinu og skömmu síðar hófust framkvæmdir. Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu var síðan opnað í apríl á síð- asta ári, eins og mörgum er eflaust í fersku minni. Sýningar á verkum Erró Á opnunarsýningunni í Hafnarhúsinu um helgina verða til sýnis í kringum 200 verk úr Errósafninu og er leitast við að gefa yf- irlit yfir feril listamannsins. Er þar aðeins um brot af safninu að ræða en það hefur vaxið jafnt og þétt frá árinu 1989 og telur nú alls 3039 skráð listaverk. Hefur safnið keypt 27 verk til viðbótar en sjálfur hefur Erró bætt um 550 verkum í safnið og árið 1992 var safninu ánafnað 192 verkum frá æsku- og námsárum listamannsins úr dán- arbúi Guðmundu S. Kristinsdóttur móður- systur Erró. Skjala- og gagnasafnið hefur einnig stækkað óðfluga enda hefur Erró verið ötull við að senda safninu aukið efni. Frá árinu 1991 hefur verið unnið að því á vegum safnsins að skrá þessi gögn og vinna úr þeim fræðilega. Í framtíðinni verða reglulega settar upp nýjar sýningar og seg- ir Eiríkur Þorláksson forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur möguleikana á því að sýna sífellt nýjar hliðar á listamanninum Erró vera óþrjótandi. Frá árinu 1999 hefur Errósýning á vegum Jeu de Paume-lista- safnsins í París verið á ferð um Evrópu og eru nokkur lykilverk á þeirri sýningu úr safni Listasafns Reykjavíkur. Að sögn Ei- ríks væri hægur leikur að setja upp aðra jafnveglega yfirlitssýningu og opnuð er nú. Þær sýningar sem settar verða upp í nán- ustu framtíð verða margar hverjar unnar út frá ákveðnum þemum, völdum t.d. eftir tímabilum, vinnuaðferðum eða hugmynda- fræði. Auk þess verður miðlað nýju og gömlu fræði- og heimildarefni um lista- manninn. Þannig verður sýningin um helgina einungis upphafið að því aðgengi sem gestir Listasafns Reykjavíkur munu hafa að Errósafninu sem beðið hefur þess að fá fastan samastað í rúman áratug. Í fyrstu hugðist borgin byggja upp veglega listamiðstöð á Korpúlfsstöðum, þar sem Errósafnið yrði kjarninn. heida@mbl.is EIRÍKUR Þorláksson, forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur, segir formlega opnun Errósafns í Hafn- arhúsinu hafa mikla þýðingu fyr- ir listasafnið og listalífið á Íslandi almennt. „Í mínum huga er starfsemi viðamikils Erró- safns í Reykjavík ekki síst mikilvæg vegna þess að um er að ræða fyrsta safn íslensks lista- manns í eigu ís- lenskra aðila sem á sér sterkt al- þjóðlegt sam- hengi. Því fylgja mikilvæg tengsl við þær hræringar sem eiga sér stað í listum á alþjóðavettvangi. Það má nú kannski sjá dæmi um þessi tengsl nú þegar, þar sem mörg af okkar verkum eru nú í láni á alþjóðlegri sýningu sem er sett upp á vegum Jeu de Paume-listasafnsins í París og er núna í Helsinki, en á eftir að fara þaðan til fleiri staða og enda í Barcelona. Verk úr Errósafni Listasafns Reykavíkur eru meðal lykilverka á þeirri sýningu.“ Eiríkur bendir jafnframt á að ætla megi að í framtíðinni verði list Errós ómissandi hluti af umfjöllun um þróun frásagnarmálverksins og popplistarinnar í heiminum og þá má vænta þess að leitað verði hingað til rann- sókna á verkum Errós og heimilda um hann. „Það kann að opna okkur ýmsar dyr varð- andi samskipti við söfn í öðrum löndum, með gagnkvæm samskipti í huga,“ bendir Eiríkur á. „Fyrir Listasafn Reykjavíkur er þetta því ómetanlegt, því það gerir hvort tveggja í senn, að setja safnið í alþjóðlegt samhengi og að styrkja þann grundvöll sem safnið hefur nú þegar á grundvelli íslenskrar myndlistar. Þessi styrkur safnins liggur ekki síst í sér- söfnum Kjarvals og Ásmundar Sveinssonar. Og nú bætist þetta alþjóðlega samhengi við og á eflaust eftir að reynast okkur mikill fengur í samstarfi við söfn og í tengslum við listalíf bæði erlendis og hér heima.“ Eiríkur segir að í því samhengi megi benda á að safn- ið hafi nú þegar skipulagt sýningar á verkum Erró vítt og breitt um landið. Haldnar hafi verið sýningar á Ólafsvík, á Vopnafirði og á Akureyri, auk þess sem listasafnið hafi staðið fyrir sýningum í nágrannalöndunum, s.s. í Nuuk á Grænlandi, í Færeyjum, í Skandinav- íu og suður um alla Evrópu, ýmist með bein- um eða óbeinum hætti. „Þetta er okkur hvatning til að halda uppi fjölbreyttri starf- semi á vegum safnsins áfram í framtíðinni og reyna að gera alltaf betur,“ segir Eiríkur að lokum. „KANN AÐ OPNA OKKUR ÝMSAR DYR“ Eiríkur Þorláksson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.