Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.2002, Side 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. SEPTEMBER 2002
SAMRUNI VIÐ HVERGIÐ: Áður en gosið í Kröflu leiddi til þess að vatnið varð of heitt
til að sitja í því, var Grjótagjá innra rými í tvöföldum skilningi: greypt inn í skorpu jarð-
arinnar svo maður þarf að fara inn í gjána í gegnum op í klettunum, og svo þaðan ofan í
frið og ró hlýs uppsprettuvatnsins, sem nú er mjög heitt. Í hellinum magnar skjólið frá
vindinum kyrrðina; endurómunin þéttir og eflir hljóð. Dagsljósið sem síast inn í hellinn
tvístrast um blautt grjótið, slær birtu á gufumettað loftið og lýsir rýmið á hverflyndan og
síbreytilegan máta. Og kemur manni í náin tengsl við veðrið. Í þessari kyrru umgjörð úr
grjóti gefur stilla vatnsins og fullkominn tærleiki heimi sem er fullkomlega sýnilegur
færi. Stað sem býr yfir heilindum og skyggni er tvöfaldast í þeim spegli er laugin mynd-
ar.
Grjótrýmið er af því umfangi að ekkert er langt í burtu og utan seilingar og ekk-
ert of nálægt og utan seilingar – það greiðir fyrir órofnu flæði á milli manns sjálfs og alls
þess sem er umhverfis. Ég minnist dagrenningar árið 1975 – fyrstu kynna minna af
Grjótagjá. Þar sem ég sat í vatninu fann ég hvernig ég byggðist upp, hvíldist hægt og
hresstist, varð hluti af þessari kyrrð, varð hluti af þessum stað.
Þetta er fimmtándi hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir
ljósmynd, 1991, fyrir hönnun og texta, 2002, Roni Horn. Fríða Björk Ingvarsdóttir þýddi.