Pressan - 30.03.1989, Blaðsíða 2

Pressan - 30.03.1989, Blaðsíða 2
2 83?.r c'Sfi' 0£ 'iur<6butmmi'5i Fimmtudagur 30. mars 1989 Hans „Alexander" framkvaemdastjóri fyrir utan iðnaðarleikhús Frú Emilíu í Skeifunni 3c. Ingimundarson og Bryndís Petra Bragadóttir. Ekki er ennþá búið að ákveða frumsýningu, en að sögn Hans Alexanders verður hún um eða upp úr 20. apríl. En atvinnuleikhús er ekki eina verkefni Frú Emilíu. Fyrir skömmu fóru af stað leiklistarnámskeið sem hafa hlotið góðar undirtektir: „Eitt leiklistarnámskeið er í gangi núna og annað fer af stað um helgina. Með þessum námskeiðum erum við fyrst og fremst að stíla upp á eldri hóp frekar en unglinga. Við miðurn við að lágmarksaldurinn sé 18 ár. Ástæðan fyrir þessu er sú að ungl- ingar fá nú þegar heilmikla leiklist- arkennslu, bæði í skólum og annars staðar. Guðjón Pedersen og Árni Pétur kenna báðir og kennslan byggist mikið til upp á spuna, þá líkamlegum frekar en með texta. Hvert námskeið er 20—30 tímar og kennsla fer fram á kvöldin og um helgar. Húsfyllir var á fyrsta nám- skeiðinu og þegar fullbókað á það næsta. Þessi mikli áhugi sýnir greinilega hversu mikil þörf er á svona námskeiðum. Ekki svo lítil hamskipti hógværs pakkhúss sem hóf tilveru sína sem musteri líkamans en vaknar nú til lífsins sem nýjasta hof leiklistar- gyðjunnar í Reykjavík. Frú Emilía festir rætur — OG SKEIFAN EIGNAST LEIKHÚS Það er gömul sorgarsaga í ís- lensku leikhúslífi hversu minni leik- húsunum gengur illa að finna var- anlegan samastað fyrir starfsemi sína. Skemmst er að minnast hrakn- ingasögu Alþýðuleikhússins, sem hefur staðið í áralangri leit að hús- næði. Sjálfstæðu leikhúsin svoköll- uðu hafa því neyðst til að flakka úr hverjum kjallaranum eða háaloft- inu á fætur öðru til að svara kalli Thalíu. Leikhús Frú Emilíu hefur mátt sætta sig við þennan húsnæðisdans í hvert skipti sent verk þess hafa ver- ið sýnd. Fyrsta verkið, Mercedes, var sýnt í Hlaðvarpanum haustið 1986 og uppsetningin á Kontra- bassa Patricks Sússkind olli marg- földum húsfylli í Iitlu bakhúsi við Laugaveginn. Núna vonast að- standendur Emilíu til að hrakning- um þeirra sé endanlega lokið, því samastaðurinn er fundinn; í fyrr- verandi Iíkamsræktarstöð í Skeif- unni. Að sögn nýráðins framkvæmda- stjóra Frú Emilíu, Hans „Alexand- er“, var aðdragandinn að búferla- flutningunum fremur einfaldur: „Frú Emilía sótti um styrk hjá menntamálaráðuneytinu til að setja upp leiksýningu. Sá styrkur fékkst, en til að hægt væri að nota hann þurfti náttúrulega húsnæði undir sýninguna. Við höfðum árangurs- laust verið að leita að húsnæði síð- an fyrir áramót, þegar þetta hús- næði bauðst í blaðaauglýsingu.“ Húsnæðið sem fannst eftir þessa miklu leit er iðnaðarhús í Skeifunni 3c, rétt við Grensásveg, þar sem líkamsræktarstöðin World Class var áður til húsa. Ekki vantar pláss- ið, þvi vöruhúsið í heild sinni telur eina 250 fermetra. Eiginlega má segja að þetta sé bæði furðuleg og óvenjulega staðsett vistarvera undir atvinnuleikhús. Er Frú Emilía ánægð með heimilið? „Já, það býð- ur upp á mikla möguleika. Við höf- um kost á að hafa 80—100 áhorf- endur, sem er mjög ákjósanleg stærð fyrir svona Ieikhús. Við höf- um svo alla aðstöðu; búningsklefa, sturtur, skrifstofu og raunar allt sem leikhús þarfnast. Svo er líka mjög lítið ónæði frá umhverfinu, minna t.d. en í Iðnó.“ Fyrsta leiksýning Frú Emilíu verður svo leikgerð Hafliða Arn- grímssonar byggð á einni frægustu sögu Franz Kafka, Hamskiptunum. Verkið segir frá ósköp venjulegri skrifstofublók sem vaknar morgun einn við þá óþægilegu staðreynd að velkomin 1. „Maður fær nú bara ofbirtu í augun af öllu þessu tilstandi!" hugsar hann liklega þessi Ijós- hærði hnokki, sem fæddist 22. mars síðastliðinn. Hann er sonur þeirra Kolbrúnar Jónsdóttur og Þorvalds Haukssonar og var 17 merkur og 52 sm langur þegar hann kom í heiminn. Fyrir eiga þau Koibrún og Þorvaldur þrjár stelpur, en sú elsta er að verða tvítug. i heiminn urðardóttur og Sigurðar Péturs- sonar. Styrmir fæddist 26. mars og vó þá 15,5 merkur og var 51 sm langur. Þetta er þriðja barnið sem þau hjónin eignast, en fyrir eiga þau telpu og annan dreng sem eiga örugglega eftir að stjana svo- litið við litla bróður þegar heim kemur. hann hefur breyst í risavaxna bjöllu. Leikstjóri er Guðjón Peder- sen, sem er jafnframt ein helsta driffjöðrin á bak við Frú Emilíu. Meðal leikara í verkinu eru þau Árni Pétur Guðjónsson, Ellert Nánari upplýsingar um Frú Emilíu er að finna í s: 67 83 60. Eins og sjá má var dansað upp um alla veggi i Firðinum eftir að hljómsveitin Bendix var vakin af tuttugu ára svefni. Týnda kynslóðin flutt til Hafnarfjjarðar Nýlega eignuöust Hafn-; firðingar sinn fyrsta skemmtistað í háa herrans tíð, þegar Fjörðurinn var opnaður þar sem Hafnar- fjarðarbíó var áður til húsa. Svo virðist sem eigendur Fjarðarins hafi sett stefn- una á eldri deildina í skemmtistaðahópnum, þar sem flestir gestir virðast vera á aldrinum þrítugu og upp úr. Til að bjóða upp á stemmningu við hæfi var gripið til ráðs sem hefur reynst vel með hinasvoköll- uðu týndu kynslóð, þ.e. að endurvekja gömlu íslensku poppgoðin. Laugardagskvöldið 18. mars síðastliðinn steig fram í sviðsljósið, í fyrsta skipti í hartnær tuttugu ár, hljómsveitin Bendix með Björgvin Halldórsson í far- arbroddi. Fyrir þá sem ekki muna eftir sveitinni starf- aði hún seint á sjöunda ára- tugnum og tryllti ófá kven- mannshjörtun með spil- verki sínu. Ekki var annað að sjá en þeim tækist ágætlega að vekja upp sömu kenndir hjá gestum Fjarðarins þetta kvöld, því mikið fjölmenni dansaði fram á rauða nótt við undir- leik Bjögga, Magga Kjart- ans og félaga.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.