Pressan - 30.03.1989, Qupperneq 25
25
Fimmtudagur 30. mars 1989
oqoi- ?icm nr. ninPbntmrniH
tc
spqin
vikuna 30. mars—6. apríl.
(21. mars — 20. aprí!)
Hrós sem þú færö á næstunni er svo
sannarlega veróskuldað. Lifið hefur
gengið þér í hag og þú hefur vel efni á að
slaka á. Notaðu næstu daga til að slappa
af með vinum eða samverkamönnum.
Eftir helgi máttu svo eiga von á að þurfa
aðvinnatöluvert til að náendum saman.
(21. apríl — 20. mai)
Timinn sem fer í hönd er kjörinn til að
hitta nýtt fólk. Hafðu samt eldri vini með
í ráðum ef þú ferð ut á lífið um helgina.
Haltu fast um budduna því að það gæti
orðið kostnaðarsamt að skemmta sér
meó nýfengnum félaga. Láttu það líka
eiga sig að skipuleggja næstu daga allt-
of mikið, því aðstæöur verða örugglega
allt aðrar en þú reiknar með.
4»
r\ (21. maí — 21. júni)
Notaðu nú tímann til að hugleiða
hvernig þér hefur farnast á þessum
fyrsta ársfjórðungi. Reyndu að leggja
einhver drög að næstu mánuðum frekar
en veltaþérof mikið upp úr því sem þetur
hefði mátt fara. Það er miklu betra að
hreykjasér af því sem vel hefur farið I lífi
þínu síðustu mánuði.
(22. júni — 22. jiiii)
Svo gæti farið að óvæntir peningar
féllu í þinn hlut á næstunni, hugsanlega
fyrir vel unna vinnu síðustu misseri.
Þetta á eftir að lyfta þér langt upp og þú
munt sjálifið I svolítið breyttu Ijósi. Þinir
nánustu verða sérstaklega alúðlegir um
helgina og það gæti hjálpað þér við að
bæta gömul sárindi sem hafa legið í loft-
inu.
(23. jtilí — 22. ágúsl)
Ekki láta.á þér standa ef einhver óskar
eftir hjálþ þinni með vandasamt verkefni.
Vertu örlátur á bæði tima þinn og þen-
inga. Ef einhver vinur eða starfsfélagi
gerir vel má ekki vanta hrós af þinni
hálfu. Þú mátt samt ekki reikna með að fá
of mikiö þakklæti fyrir hjálpina.
(23. ágúsl — 23. sepl.)
Ástalifiðverðurfrekarlitlaust i þessari
viku. Ef þú ert einstæður má búast við
þvi að manneskjasem þú hefurlengi haft
augastað á slái hendi á móti vinarhótum
þinum. Ef þú ert í sambandi gæti farió
svo að timabundið hlé yrði varanlegur
skilnaður. Farðu að öllu sem tengist
þessum málum með sérstakri gát á
næstunni.
5%
(24. sepl. — 23. okl.)
Hafðu þaðhugfast að álit fólksáþérer
jafnmikilvægt núna og það sem þú I raun
gerir fyrir það. Sýndu aö þú getir hlustað
á málstað beggja aðila ef þú lendir i ein-
hverjum deilum. Þú mátt alls ekki látast
vera of þrjóskur eða ósveigjanlegur.
Málamiðlun er lykiloröið á næstu dög-
um.
flfL-
(24. okt. — 22. nóv.)
Listrænir hæfileikar hafa legið i dvala
hjá þér alltof lengi. Gerðu þér grein fyrir
aö með því að rækta þessa hæfileika
muntu öðlast sálarró og aukið sjálfs-
traust. Einvera gæti verið besta leiðin til
að ná fram þessum eiginleikum í sjálfum
þér.
(23. nóv. — 21. des.)
Þú átt eftir að blómstra á vinnustað á
næstunni vegna óvænts velvilja frá yfir-
mönnum þinum. Fyrirstaða sem staðið
hefur i vegi fyrir frama þínum mun
skyndilega hverfa. Núna er baraað duga
eða dregast; griptu tækifærið sem þér
býðst strax og þá mun allt ganga þér i
hag.
(22. des. — 20. janúar)
Nú er rétti timinn til að koma fjármál-
unum i lag. Freistaðu þess að innheimta
gamlar skuldir og borgaðu þeim sem
hafa lánað þér nýlega. Passaðu þig samt
á því að ganga ekki of langt í innheimtu-
aðgerðum, þvi vinátta verður aldrei met-
in til fjár.
(21. janúar — 19. febrúar)
Of mikil afskiþti af vandamálum vina
þinna gætu komið sér illa, ef þú sýnir.
ekki nærgætni. Góð ráð eru ekki á hverju
strái og þú skalt varast að gefa vinum ráð
ef þú ert ekki viss i þinni sök. Ef þú gerir
það gæti farið svo aö þér yrði kennt um
ef illa fer.
(20. febrúar — 20. mars)
Núna er rétti tíminn til að vara sig á
andstæðingum. Ófyrirséö vandamál
munu koma upp I tengslum við afbrýði-
semi eóa samkeþpni I vinnu. Ekki taka
óþarfa áhættu, íhaldssemi I öllum
ákvörðunum hæfir ástandinu betur i alla
staói. Haföu hugfast að ekki er allt sem
sýnist þegar ástalifið er annars vegar.
i frqmhjáhlaupi
Sigurður Benónýsson — Brósi
hárgreiöslumeistari
Hálfmánakökur sem lokað
hefur veriö með puttum
pirra mig mest
— Hvaða persóna hefur
haft mest áhrif á þig?
„Móðir mín.“
— Hvenær varðstu hrædd-
astur á ævinni?
„Það var þegarég vartíu ára,
aleinn úti í kirkjugarði seint
um kvöld. Ég hugsa ég eigi
aldrei eftirað upplifaaðraeins
hræðslu! Sennilega hafa nú
draugasögur sem mér voru
sagðarátt stóran hlut í þessari
hræðslu."
— Hvenær varöstu glað-
astur á ævinni?
„Þegar Viktor fæddist."
— Hvers gætirðu síst verið
án?
„Handanna."
— Hvað finnst þér krydda
tilveruna mest?
„Fólkið sem ég elska.“
— Hvað fer mest i taugarn-
ar á þér?
„Hálfmánakökur sem lokað
hefurverið með puttunum en
ekki með gaffli! Þaö er ekkert
sem ferjafnmikið i taugarnará
mér!“
— Hvað finnst þér leiðin-
legast að gera?
„Þvo upp.“
— Hver er pínlegasta staöa
sem þú hefur lent í?
„Ég man nú ekki í svipinn
eftirneinni sérstakri. Ermaður
ekki alltaf að lenda í pínlegri
aðstöðu?“
— Hver er uppáhaldsút-
varpsmanneskjan þin?
„Jónas Jónasson.“
— Hvað vildirðu helst
starfa að undanskildu því sem
þú ert að gera núna?
„Vera hótelstjóri á stóru hót-
eli á Jamaica. Mér þætti ekki
verra ef nægur tími gæfist á
hverjum degi til að sitja við
glugga og horfa út...“
LÍFSLÍNAN (2);
Þetta er fremur raunsæ kona og
að mörgu leyti hagsýn. Hún hefur
ákveðna hæfileika til að vinna á
ýmsum mannúðarsviðum og að
félagsstörfum, t.d. við að leiðbeina
öðrum. Þegar hún er rúmlega þrítug
(32 til 34 ára) verða heilmiklar um-
breytingar í lífi þessarar persónu.
Næstu árin verða líka tímabil breyt-
inga I fjölskyldumálum hennar og
jafnvel tilfinningamálum. Hjá henni
er að hefjast tími, sem helgaður
verður heimilinu og fjölskyldunni.
VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM
LÓFA?
Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af
hægri hendi (örvhentir Ijósriti þá
vinstri!) og skrifaðu eitthvert lykil-
orð aftan á blöðin, ásamt upþlýsing-
um um kyn og fæðingardag. Utan-
áskriftin er PRESSAN — lófalestur,
Ármúla 36, 108 Reykjavík.
AMY
ENGILBERTS
í þessari viku:
BRÉFAKLEMMA
(kona, fædd 17.7. ’66)
lófalestur
TILFINNINGALÍNAN (1):
Aðöllum líkindum hafaveriðtölu-
verðir erfiðleikar í kringum þessa
konu þegar hún fæddist og/eða á
fyrstu æviárum hennar. (Þ.e.a.s. erf-
iðar fjölskylduaðstæður.) Konan
hefur komist áfram eftir tvitugt
vegna eigin dugnaðar, enda er hún
mjög metnaðargjörn og vill ná
langt. Hún hefur þörf fyrir að vera
óháð og sjálfstæð.