Pressan - 30.03.1989, Qupperneq 28
A
^l^in eftirsóttasta staða innan
SÍS er laus. Þorsteinn Sveinsson,
kaupfélagsstjóri KHB, Kaupfélags
Héraðsbúa á Egilsstöðum, hefur
sagt starfi sínu lausu. Þorsteinn
gegnir mörgum trúnaðarstöðum
innan Sambandsins, er í stjórn og
hefur verið í stjórn Samvinnutrygg-
inga. Sá kaupfélagsstjóri sem næst
er talinn standa embættinu er Gísli
Jónatansson, kaupfélagsstjóri á Fá-
skrúðsfirði. í gegnum gífurlega erf-
iðleika í sjávarútvegi hefur honum
tekist að reka umfangsmikið fyrir-
tæki á því sviði, án umtalsverðrar
skuldasöfnunar. Slíkt þykir ganga
kraftaverki næst á þessum síðustu
og verstu...
b
ústjórar í þrotabúum Avöxt-
unar sf. og og annarra fyrirtækja
þeirra Armanns Reynissonar og
Péturs Björnssonar, sem urðu
gjaldþrota á síðasta ári, hafa kom-
ist að ýmsu óvénjulegu og jafnvel
refsiverðu í samskiptum þessara
fyrirtækja og skiptum við verð-
bréfasjóði Ávöxtunar sf. Við frétt-
um af bónda nokkrum sem átti
mikil viðskipti við Kjötmiðstöðina
í Garðabæ. Fékk hann eingöngu
greiðslur með þeim hætti að Kjöt-
miðstöðin lét hann fá nótur fyrir
afurðirnar og vísaði honum með
þær til Ármanns í Ávöxtun, sem
borgaði fyrir nóturnar með Ávöxt-
unarbréfum. Situr bóndinn nú uppi
með tvær og hálfa milljón í bréfum
og á ekki fremur en aðrir kröfuhaf-
ar von á að fá neitt greitt upp í kröf-
urnar fyrr en eftir tvö ár...
ALLRA
LANDS-
MANNA!
Lux fyrir aðeins kr.
14.670*
o
^^kki hefur Holiday-Inn hótel-
inu verið lokað, þó svo eigandinn
hafi verið lýstur gjaldþrota. Bú-
stjóri þrotabúsins hefur ákveðið að
hótelið skuli starfrækt f núverandi
mynd til 1. maí. Starfsfólkið hefur
því trygga atvinnu út næsta mánuð,
en vonast er til að fyrir þann tíma
takist að selja hótelið, án þess að til
uppboðs komi...
A
ins og fram hefur komið var
öllum starfsmönnum Bylgjunnar
sagt upp störfum fyrir skemmstu,
en nú er farið að semja við menn
um endurráðningu. Stjörnumenn
höfðu líka fengið uppsagnarbréf,
en þegar síðast fréttist var ekki farið
að ræða ráðningarmál við þá. Þor-
geir Ástvaldsson og Páll Þorsteins-
son eru enn við stjórnvölinn, hvor á
sinni stöð, og gegnir Jón Ólafsson
stöðu framkvæmdastjóra á meðan
leitað er að manni í það starf.
Heyrst hefur að framtíðaráformin
séu í grófum dráttum þau að dag-
skrá Stjörnunnar höfði til táninga,
en Bylgjan miði lagaval við þá, sem
komnir eru yfir tvítugt. Hins vegar
er sameiginlegur morgunþáttur á
teikniborðinu, sem stæði frá klukk-
an sjö til tíu, og ef af verður munu
þeir félagarnir Þorgeir og Páll
stjórna honum...
Við bjóðum öllum landsmönnum möguleika á lágum fargjöldum í
sumar til Kaupmannahafnar og Luxemborgar. Um er að ræða
ákveðnar brottfarir á tímabilinu 1. maí - 30. september sem öðrum
voru ætlaðar. Ofangreindar ferðir verða til sölu til 8. apríl á
söluskrifstofum Flugleiða og ferðaskrifstofum. Lágmarksdvöl er
7 dagar, hámarksdvöl 21 dagar.
Leigja þarf bíl eða sumarhús samhliða.
w
W&jr'"
Tökum undir hvatningarorð forystumanna verkalýðs-
hreyfingarinnar og veljum íslenskt áætlunarflug!
Allar nánari upplýsingar á söluskrifstofum okkar, í Lækjargötu 2,
Hótel Esju og Kringlunni, hjá umboðsmönnum
og ferðaskrifstofum.
* Fargjöld eru háð samþykki stjórnvalda.
FLUGLEIDIR