Pressan - 23.11.1989, Side 11

Pressan - 23.11.1989, Side 11
Fimmtudagur 23. nóv. 1989 ISLAND ísland! farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir! Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best? Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama lýsir sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld. Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart. Pá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit. Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti; ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt. Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Oxará rennur ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð. Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði. Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll. Pá riðu hetjur um héröð og skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim. Það er svo bágt að standa’ í stað, og mönnunum munar annaðhvurt aftur á bak ellegar nokkuð á leið. Hvað er þá orðið okkart starf í sex hundruð sumur? Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart. En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut. Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga blánar af berjum hvurt ár, börnum og hröfnum að leik. Ó, þér unglingafjöld og íslands fullorðnu synir! Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá! Jónas Hallgrímsson 11 Ritverk Jónasar HaUgríiussonar. heildarútsáfa. ^vart d ítvítu

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.