Pressan - 23.11.1989, Blaðsíða 13

Pressan - 23.11.1989, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 23. nóv. 1989 13 Arásin á Alþingishúsii Brot úr viðtalsbólc um Guðmund J. Guðmundsson verkalýðsfforingja Þegar flokksböndin héldu Guðmundur var virkur fé- lagi í Æskulýðshreyfingunni og Sósíalistaflokknum frá unglingsárum. Þegar Alþingi samþykkti inngöngu íslands í Atlantshafsbandalagið 30. mars 1949 kom til harðvít- ugra átaka á Austurvelli. Frá þeim segir í kaflanum „Ung- kommúnisti í Æskulýðsfylk- ingunni“. Það var aldrei samþykkt að gera áhlaup á Alþingishúsið. Ég man að einhver hópur í Æskulýðsfylking- unni var byrjaður að undirbúa það undir forystu mikils hershöfðingja, Halldórs Stefánssonar. Halldór vildi hafa nokkra 25 manna flokka — ég átti að vera í slíkum flokki við Nýja bíó — og síðan áttu þessar storm- sveitir einfaldlega að taka Alþingis- húsið á sitt vald. Þá kom maður úr miðstjórn Sósíalistaflokksins og harðbannaði þetta með öllu. Lína flokksins var alls ekki sú að taka Al- þingishúsið heldur að sýna harðvít- uga andstöðu fólksins gegn inn- göngunni í NATÓ. Það er mér mjög til efs að sú innganga hefði verið samþykkt ef hún hefði verið borin undir þjóðaratkvæði þá eins og við vildum. Svo rann upp þessi mikli dagur og stjórnmálaflokkarnir hvöttu fólk til að koma á Austurvöll — andstæð- ingar NATÓ til að sýna andstöðu, hinir til að sýna stuðning. Dagsbrún og Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík boðuðu til útifundar við Miðbæjarskólann klukkutíma áður en þingfundur átti að hefjast. Úti- fundurinn var stuttur og snarpur — en geysifjölmennur. Líklega voru 10—15 þúsund manns í miðbænum þegar dró að fundi í þinginu. Það var því morgunljóst að þarna var veruleg hætta á átökum. Lögreglan og ríkisstjórnin bjuggu sig undir þau átök með því að safna saman nokkur hundruð Heimdell- ingum — fáeinir kratar og fram- sóknarmenn slæddust þar með. Mikið var þarna af yfirstéttardrengj- um og piltar úr Verzlunarskólanum voru fjölmennir að vanda. Þessari sveit var raðað framan við Alþingis- húsið. Margir þessara stráka voru andskoti röskir og skemmtilegir — þeir voru bara í Heimdalli. Það var líka kallað á lögregluna úr Keflavík, af Keflavíkurflugvelli, úr Hafnar- firði og fleiri stöðum. Þessir menn voru með svarta hjálma og langar trékylfur, sumir að auki með gas- byssur. Þetta var hreint og klárt her- útboð. Auðvitað kom til mjög harðra sviptinga. Upphaf þeirra var ekki merkilegt, smávægilegar ýfingar. Lögreglan vildi meina fólki að kom- ast yfir götuna og svo smájókst þetta. Það var hlaupið út til Silla & Valda og keypt nokkur kíló af eggj- um sem voru svo látin dynja á „pabbadrengjunum" undir veggjun- um. Ákveðnir menn voru miðaðir út. Ég vil þó ekki gera lítið úr öllum þeim, sem stóðu undir veggjum Al- þingishússins, þar var margur mæt- ur maðurinn. Egg voru uppseld í miðbænum þennan dag. Austurvöllur var rifinn upp og garðar í miðbænum einnig, torfunum skipt í mátulega búta og þessu hent að húsinu. Leikurinn fór að harðna þegar steinn og steinn fór að fljúga. Þetta var ekkert skipulagt. Þetta var engin miðstjórnarákvörðun í Sósíalistaflokknum. En ríkisstjórnin hafði gert örlagavillu. Hún boðaði með dreifibréfi og auglýsingum í út- varpi að kommúnistar ætluðu að ráðast á Alþingishúsið og hvatti „friðsama borgara" til að mæta á Austurvelli og hindra árás þessa. Það þýddi auðvitað aö allir sem vettlingi gátu valdið stormuðu niður í bæ — þó ekki væri til annars en að horfa á hasarinn. Við héldum því vitanlega fram að þetta væru allt andstæðingar Atlantshafsbanda- lagsins. Það var sko aldeilis ekki. Þetta fólk, þessir „friðsömu borgar- ar“, var auðvitað um allan Austur- völl og það skiptist vitanlega með og á móti aðildinni. Hópur úr Sósíalistaflokknum var þarna með bil og gjallarhorn og í það talaði Stefán heitinn Ögmunds- son prentari, sá óttalausi hugsjóna- maður, og skýrði jafnharðan frá hvað væri að gerast inn í þinghúsinu og hvernig umræðum miðaði. í jeppanum var líka Stefán Magnús- son, faðir Ásmundar Stefánssonar. Hernaðarlega séð var lögreglan nokkuð sein að taka þennan bíl úr umferð. Grjóthríðin var orðin nokkuð þétt og eggjakastið og annað eins magn af mold og grasi hefur aldrei síðar verið í kringum Alþingishúsið. Þá hófu hvítliðarnir úthlaup sitt úr hús- inu með hjálma og kylfur á lofti. í þeim hópi voru margir starfsmenn Reykjavíkurborgar, flokksstjórar, karlar úr bæjarvinnunni og aðrir slíkir — en í herþjálfun voru þeir ekki þrátt fyrir að þeir hefðu hlotið einhverja leiðsögn hjá lögreglunni fyrir þessa orrustu. Margur missti bæði kylfuna og hjálminn. Það var sýnt hvernig leikurinn færi. í kaflanum „Þegar ég sveik forsetaættina" segir Guð- mundur J. Guðmundsson frá forsetakosningunum 1952. Hér er brot úr þeim kafla og segir frá innanbúðarátökum í Sósíalistaflokknum skömmu fyrir kosningarnar: Yngra fólk hefur ekki hugmynd um hvað gekk á í þessum forseta- kosningum. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur voru í ríkisstjórn og máttu líða miklar þjáningar áður en þeim tókst að koma sér saman um forsetaefni, séra Bjarna Jónsson dómkirkjuprest í Reykjavík. For- ustumenn Alþýðuflokksins og ýms- ir fleiri góðborgarar buðu fram Ás- geir Ásgeirsson og margir urðu til að styðja hann. Ásgeir hafði farið úr Framsóknarflokknum og forustu- menn Framsóknar voru haldnir brennandi hatri á honum síðan. Kosningabaráttan var hörð, illvíg og mannskæð — sér í lagi fyrir það að Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði. Ég veit ekki hvort hann hefur borið sitt barr eftir það. Gunnar Thorodd- sen, sem þá var borgarstjóri í Reykjavík — einn glæsilegasti ræðu- maður sem þetta land hefur alið og geysilega áhrifamikill — var tengda- sonur Ásgeirs. Hann lýsti vitaskuld yfir stuðningi við tengdaföður sinn. Á þessum árum héldu flokks- bönd, menn hlýddu flokksforust- unni. Og þegar þekktir menn hristu handjárnin, þá var eitthvað á seyði. Sósíalistaflokkurinn var hinsveg- ar alldularfullur í sinni afstöðu. Allir helstu forystumenn flokksins voru á móti Ásgeiri en vildu ekki gera það opinskátt eða að flokkslínu; það hefði virkað hæpið því þeir gátu eig- inlega ekki heldur stutt frambjóð- anda ríkisstjórnarinnar. Ég man eftir fulltrúaráðsfundi í flokknum, sem var nokkuð söguleg- ur. Á þessum tíma var kalda stríðið í algleymingi, pólitíkin grimm og vægðarlaus og Stalín gamli ennþá lifandi austur í Kreml. Forystumenn- irnir héldu ræður á fundinum og allt var það á sama veg: Ásgeir Ásgeirs- son átti að hafa verið þátttakandi í hverskonar landsölu, afsali lands- réttinda, leynisamningum við Ameríkanana og svo framvegis. Það fór ekki á milli mála hvert stefndi með þennan fund. Einn forustumaður í flokknum var þó yfirlýstur stuðningsmaður Ásgeirs Ásgeirssonar. Hann var í nokkurri ónáð hjá forystumönnum flokksins vegna afstöðu sinnar til slita Nýsköpunarstjórnarinnar 1946 og fleiri mála í framhaldi af því. Hann galt þess á endanum með pólitísku lífi sínu að hafa stutt Ás- geir. Þessi maður var Áki Jakobsson sem hafði verið ráðherra flokksins milli 1944 og ’46. Ég vil ekki halda því fram að Áki hafi haft rétt fyrir sér um alla hluti en margir voru ákaflega ósann- gjarnir i hans garð. Á þessum fulltrúaráðsfundi stóð Áki upp og það er ekki hægt að lýsa þvi hvaða kjark þurfti til þess því þótt mjög margt gott fólk hafi verið í flokknum á þessum tíma þá var þetta miklu frekar trúarsamkoma en pólitískur fundur. Áki sagðist ekki skilja að flokkur, sem kallaði sig verkalýðsflokk, ætlaði að fara að styðja hatramman íhaldsmann, frambjóðanda ríkisstjórnar, sem væri eins og Þjóðviljinn væri búinn að lýsa. Þennan mann ætti engu að síður að styðja gegn tiltölulega frjálslyndum stjórnmálamanni eins og Ásgeiri Ásgeirssyni. Áki varaði flokkinn við að hlaupa út í það fen að verða verkfæri fyrir ríkisstjórn- ina. Það varð þvílíkt upphlaup á fund- inum að það var rétt eins og kirkju- leg athöfn hefði verið svívirt, ein- hver hefði staðið upp í miðri messu og mótmælt kristindómi. Á þessum tíma var Tító heitinn Júgóslavíuforseti í banni hjá Sovét- rikjunum og var jafnvel búist við að Sovétríkin gerðu innrás í Júgóslav- iu. Það var bara styrkleiki\>g snilli- gáfa Títós sem kom í veg fyrir það. Að vera títóisti þýddi eiginlega að vera svikari hjá hörðum sósíalist- um. Af stjórnkænsku sinni afstýrði Einar Olgeirsson því að Sósíalista- flokkurinn tæki formlega afstöðu gegn Tító. Hann afstýrði því líka að flokkurinn tæki afstöðu gegn Trotskí. Tító var alltaf að senda okk- ur í Æskulýðsfylkingunni boð um að koma í vegavinnu til sín. Kaup- laust en fæði og húsnæði átti að vera til staðar og við áttum að fá tækifæri til að kynnast starfsháttum í sveitinni hjá honum. Einn dyggur flokksmaður, sem vann á skrifstof- unni á Þórsgötu 1, lagði það jafnan í vana sinn ef hann sá bréf frá Tító, að gera þau upptæk. Ég lét þau oft Framhald á bls. 14. Brot úr nokkrum köflum bókar Ómars Valdi- marssonar um Guðmund J. Guðmundsson, kallað- an „Jaka“. Væntanleg er á markað á næstunni hressileg við- talsbók um GUÐMUND J. GUÐMUNDSSON, verka- lýðsforingja og baráttumann. Bókaforlagið VAKA- HELGAFELL gefur bókina út, en hún heitir JAKINN — í BLÍÐU OG STRÍÐU. Sá sem unnið hefur bókina með Guðmundi er ÓMAR VALDIMARSSON blaða- maður. Um fáa íslenska menn hefur staðið meiri styrr síðustu áratugi en Guðmund Joð, enda hefur hann staðið í fylkingarbrjósti íslenskrar verkalýðs- hreyfingar allt frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Þá hefur hann einnig verið málsvari hennar inni á Alþingi sem þingmaður Aiþýðubandalagsins. Pressan hefur fengið leyfi til að birta brot úr nokkrum köflum bókarinnar og er þetta hið fyrsta af innihaldi bókarinnar sem kemur fyrir almenn- ingssjónir.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.