Pressan - 14.02.1991, Side 7

Pressan - 14.02.1991, Side 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14.. FEBRÚAR 1991 7 Jón G. Ingvason, sem var yfirlyfjafrædingur á Landa- kots- og St. Jósefsspítala, lét Landakotsspítala kaupa ótrúlegt magn af áfengi og alkóhóli. Kaupin voru svo furðuleg að stjórnendur sjúkrahúsanna hafa ekki treyst sér til að skýra tilgang kaupanna. Við rannsókn sem gerð var á rekstri lyfjabúra þessara sömu sjúkrahúsa kom fram að starfsmaður þeirra sagðist endurvinna lyf. Það er ógerlegt að mati sérfræðinga og að auki stórhættulegt. voru keyptir 70 lítrar af alkóhóli og spíritusi fyrir Landakotsspítala. Stjórnendur spítalanna tveggja gátu ekki skýrt þessi miklu kaup á áfengi og alkóhóli í þágu sjúkrahús- anna, nema að hluta. ískýrslu Ríkis- endurskoðunar segir að verulegan hluta þessa sé hægt að nota til ann- arra þarfa en í þágu sjúkrahúsanna. Á fimmtán mánuðum voru keypt- ir 123 lítrar fyrir rannsóknastofu Landakotsspítala. Ríkissaksóknari hefur til meðferð- ar mál vegna meintra svika Jóns G. Ingvasonar fyrrum yfirlyfjafræð- ings á Landakotsspítala og St. Jós- efsspítala í Hafnarfirði. Við rann- sóknir á málinu hefur ýmislegt komið fram sem ekki hefur áður birst í fjölmiðlum. Jón G. Ingvason er nú starfsmaður fyrirtækja sem Werner Rassmussen, lyfsali í Ing- ólfsapóteki og stjórnarformaður nokkurra fyrirtækja, veitir forstöðu. ÁFENGISKAUPIN ÓÚTSKÝRANLEGU Á árinu 1989 voru keyptir 1.586 lítrar af alkóhóli og spíritusi fyrir Landakotsspítala auk áfengis. Keyptar voru 192 flöskur af sherrýi, 136 lítrar af rauðvíni og hvítvíni, 12 flöskur af freyðivíni og 12 flöskur af koníaki. Verðmæti alls þessa var um 750 þúsund krónur. Á árunum 1989 og þrjá fyrstu mánuði ársins 1990 voru keyptir 558 lítrar af alkóhóli og spíritusi fyr- ir St. Jósefsspítala fyrir 440 þúsund krónur. Jón E. Ingvason lyfjafræð- ingur var ábyrgðarmaður lyfjabúra beggja spítalanna. I janúar, febrúar og mars 1990 TVÍTUG í STÓRVIÐSKIPTUM Dóttir Jóns G. Ingvasonar, Gud- rún sem er rúmlega tvítug, átti mikil viðskipti með lyf og fleira við Med- ico hf. sem er innflutningsfyrirtæki á lyfjum. Framkvæmdastjóri Med- ico er Einar Ólafsson lyfjafræðing- ur. Vafi leikur á hvort viðskipti Landakotsspítala við Medico, sam- tals að fjárhæð 1200 þúsund á tólf mánaða tímabili, hafi í raun farið fram. Á svipuðum tíma er vafi á hvort viðskipti við Medico í nafni St. Jósefsspítala hafi farið fram. Þau viðskipti voru fyrir rúmar fjögur hundruð þúsund krónur. Guðrún Jónsdóttir og Medico áttu mikil viðskipti á fimmtán mánaða tímabili. Guðrún seldi fyrirtækinu lyf og fleira fyrir rúmar 1600 þúsund krónur. Þá voru Lyfjaverslun ríkisins seld sjúkraáhöld í nafni Guðrúnar á sama tíma. Jón G. Ingvason hefur borið því við að hann hafi rekið innflutnings- verslun á lyfjum og sótthreinsivör- um. Þá hefur hann sagst framleiða áhöld fyrir spítala. Jón sagði rekst- urinn vera á nafni dóttur sinnar. Ekkert bókhald er til fyrir þetta fjöl- skyldufyrirtæki. ENDURVANN LEIFAR AF LYFJAFLÖSKUM Samkvæmt skýringum Jóns G. Ingvasonar, vegna sölu á lyfjum sem Pharmaco hefur einkaumboð fyrir, þá endurvann hann leifar af lyfja- flöskum sem hann hirti á Landa- kotsspítala. Sérfræðingar hafa sagt að slík endurvinnsla sé ekki tækni- lega möguleg og að auki vítavert að reyna slíkt vegna hættu sem skapast af blöndun. Við rannsókn á þessu sérstaka máli kom meðal annars fram að Jón G. Ingvason hafði falsað lyfseðla. Læknar voru kallaðir fyrir og þeim sýndir lyfseðlar sem voru gefnar út á þeirra nöfn. Læknarnir könnuðust ekki við útgáfu lyfseðlanna og því virðist sem þeir hafi verið falsaðir. Samkvæmt lyfjalögum er sjúkra- húsum óheimilt að stunda lánavið- skipti með lyf. Eigi að síður voru slík viðskipti viðhöfð milli Landakots- spítala og St. Jósefsspítala. SAMSKIPTI JÓNS VIÐ VESTURBÆJAR- OG INGÓLFSAPÓTEK Jón G. Ingvason verslaði við tvö apótek samkvæmt því sem kom fram í rannsókn Ríkisendurskoðun- ar. Apótekin voru Vesturbæjar- apótek og Ingólfsapótek. Ríkisend- Léttvín á Landakoti JÓN G. INGVASON, fyrrum yfirlyfjafræðingur á Landakots- og St. Jósefsspítala, lót Landa- kotsspitala kaupa talsvert magn af sherrýi, hvitvini, rauð- vini, koniakiog kamapavini. Við rannsókn sem gerð var á við- skiptum Jóns kom margt fram. Meðal annars bar hann þvi við að hann hafi endurunnið lyf sem er ógerlegt að mati sér- fræðinga og auk þess stór- hættulegt. Þá notaði Jón nafn ungrar dóttur sinnar í mjög vafasömum viðskiptum við lyfjafyrirtækið Medico. urskoðun metur málið þannig að fram þurfi að fara frekari rannsókn á viðskiptum Jóns við apótekin tvö. Lyfsali í Vesturbæjarapóteki er Kristjún Guömundsson og í Ingólfs- apóteki er Werner Rasmussen lyf- saji. í skýrslunni segir orðrétt: „Við- skipti við Vesturbæjarapótek með framangreindum hætti hafa verið umfangsmikil á undanförnum árum og síðustu mánuði hafa viðskipti við lngólfsapótek farið vaxandi á sama hátt.“ Og áfram: „Verulegur grunur er á að lyf sem talin eru skila sér frá lyfjabúðunum komi ekki að fullu til baka. Nauðsynlegt er að rannsókn fari fram á Vesturbæjarapóteki og Ingólfsapóteki á ferli viðskiptanna." GJÖFIN SKILAÐI SÉR EKKI Erlent lyfjafyrirtæki sendi Landa- kotsspítala 162 flöskur af lyfinu Lipofundin að gjöf. Gjöfin var vegna góðra viðskipta spítalans. Lyfja- verslun ríkisins er umboðsmaður fyrir lyfið. Jón G. Ingvason veitti gjöfinni móttöku en skilaði henni ekki til spítalans. Grunur leikur á að Medico hafi verið notað til að selja lyfið fyrir Jón. Einar Ólafsson, framkvæmda- stjóri Medico, hefur borið að hann hafi keypt vörur af Guðrúnu Jóns- dóttur og að Jón lyfjafræðingur hafi séð um að dreifa vörunum og að hann, það er Einar, hafi séð lítið af vörunum. Vegna allra viðskipta Jóns og Guðrúnar við Medico mæl- ist Ríkisendurskoðun til þess að bókhald Medico verði rannsakað. Sigurjón M. Egilsson

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.