Pressan - 14.02.1991, Blaðsíða 10

Pressan - 14.02.1991, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 14.. FEBRÚAR 1991 „Dylgjur og vanefndir," segir Margrét Pála Ólafsdóttir. Hún og allar fóstrur leikskólans Garðavalla hafa sagt upp og sömuleiðis dagvistarfulltrúi Hafnarfjarðar. Forstöðukona leikskólans Garðavalla í Hafnarfirði og dagvistunarfulltrúi bæjarins hafa sagt upp störfum eftir hatrammar deilur við ráðamenn bæjarins. Um leið sögðu upp níu fóstrur og ófaglærður starfsmaður. Þær saka bæjaryfirvöld um vanefndir, dylgjur og tortryggni. Embættismenn bæjarins segja að launakostnaður leik- skólans sé óeðlilega hár og þá einkum yfirvinnukostnað- ur forstöðukonunnar, sem skrifi sig fyrir hátt í tvö hundr- uð yfirvinnustundum á mánuði. Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR gerðu starfsmannastjóri og fjármálastjóri bæjarins aivarlegar athugasemdir um áramótin við rekstrarkostnað leikskólans. Svo fór, að þegar yfirvinna vegna janúar skyldi greiðast þann 10. febrúar var hún einhliða skorin niður. 183 ÞÚSUND FYRIR 10 DAGA VINNU Samkvæmt heimildum PRIiSS- UNNAR hefur forstöðukonan, Margrél Púla Ólafsdóttir, 30 tíma á mánuði í fasta yfirvinnu. í desember var önnur yfirvinna skráð um 100 tímar, en aðeins 17 vinnudagar voru í mánuðinum og forstöðukonan þar af veik í 7 daga. Þetta jafngildir því að hún hafi unnið 13 yfirvinnutíma á dag. Þessi yfirvinna var greidd út 1. febrúar, þrátt fyrir athugasemdir. í janúar voru yfirvinnutímar síðan um 165, þar af 20 vegna kvikmynd- unar erlendra aðila á starfsemi heimilisins. Grunnlaun forstöðu- manns, miðað við 9 ára starfsaldur, eru um 78 þúsund krónur á mánuði og yfirvinnutaxtinn þá um 810 krón- ur á tímann. Miðað við þessar tölur var Margrét Pála með um 183 þús- und krónur fyrir 10 unna daga í des- ember og um 211 þúsund fyrir janú- ar. Það hneykslaði ráðamenn i Hafnar- firði að Margrét Pála valdi Bleikt og blátt, tímarit um kynlíf, sem vett- vang skrifa um tilraunastarfið á Garðavöllum. Einnig urðu deilur vegna kröfu fjármálastjóra bæjarins um að fá í hendur kvittanir vegna styrkja menntamálaráðuneytis sem runnið hafa í gegnum bæjarsjóð til leikskól- ans. GREIN OG MYNDIR í BLEIKU OG BLÁU HNEYKSLUÐU Garðavellir hafa tvisvar fengið styrki úr þróunarsjóði leikskóla, samtáls 1 milljón króna. Starfsfólk Garðavalla mun ekki líta á það sem hlutverk fjármálastjórans að hafa afskipti af því hvernig styrkjum þessum er varið. Svandís Skúladótt- ir í menntamálaráðuneytinu sagði að ekkert væri minnst á eftirlitshlut- verk í þessu sambandi, en rekstur leikskólans væri á ábyrgð sveitarfé- lagsins. Þá fór verulega fyrir brjóstið á ýmsum ráðamönnum bæjarins að Margrét Pála ritaði grein í Bleikt og blátt, tímarit um kynlíf, þar sem birtust myndir af börnum á Garða- völlum, þar af ein af nöktum stúlku- börnum. Þykir hún hafa valið sér þar vafasaman vettvang fyrir skrif- in. Ráðamenn Hafnarfjarðar neita því að deilan snúist um hið svo- nefnda ,,kjörnunar-módel“, sem meðal annars byggir á því að að- skilja kynin stóran hluta dagsins. Vegna fjöida athugasemda, meðal annars frá fóstrum, bókaði Jafnrétt- isráð 1989 að slík aðgreining gæti reynst varhugaverð. BÆJARRITARI SEGIR ÁGREININGINN EKKI FAGLEGAN Haukur Helgason, formaður fé- lagsmálaráðs Hafnarfjarðar, sagði að engin efnisleg rök væru fyrir uppsögnunum. „Við féllumst á að þessi tilraun yrði gerð og forstöðu- maðurinn hefur haft frjálsar hendur við uppbyggingu þessa módels. Hins vegar hafa komið fram athuga- semdir varðandi kostnaðinn og það er alfarið í höndum starfsmanna- stjórans." Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, bæjarritari og starfsmannastjóri, sagði deiluna ekki snúast um fag- legu hliðina. „Aftur á móti er deilt um vinnutilhögun almennt, um yfir- vinnugreiðslur og á hvern hátt for- stöðumaður hagar sinni vinnu. Þar snýst málið um að jafnt skuli yfir alla ganga, enda ekki hægt að gera und- antekningu fyrir eitt heimili hvað þetta varðar.“ Pórelfur Jónsdóttir, dagvistunar- fulltrúi bæjarins, kvaðst í samtali við PRESSUNA hafa sagt upp vegna uppsagnar Margrétar Pálu. „Ég sé fram á að með uppsögn hennar muni þetta starf hrynja að grunni. Þetta er stærra mál en svo að ég vilji horfa upp á það.“ MARGRÉT PÁLA: AÐDRÓTTANIR OG SMÁSJÁRSTARFSEMI „Auðvitað kostar það peninga aö geta stundað faglegt starf eins og fram fer á Garðavöllum, en ég full- yrði að kostnaðurinn hefur ekki far- ið fram úr því sem gerist hjá öðrum leikskólum Hafnarfjarðar. Þarna býr starfsfólkið við sömu launataxta og annars staðar og þarna fer fram mikið og gott starf, sem ef til vill kallar á eitthvað meiri vinnu en gengur og gerist. En tekist hefur að ná toppgæðum í starfi með sam- svarandi tilkostnaði," segir Þórelfur. Margrét Pála sagði uppsögn sína vera viðurkenningu á þeirri ein- földu staðreynd að þegar vinnufrið- ur fáist ekki sé ekkert annað hægt að gera en að fara. „Orð og samn- ingar hafa ekki haldið, en í staðinn komið undarlegar aðdróttanir og smásjárstarfsemi. En ég er bundin trúnaði og vil ekki ræða einstök mál, sem orðin eru fleiri en ég hirði um að telja upp.“ Um mikinn fjölda yfirvinnu- stunda hjá henni sagði Margrét Pála að tölurnar væru í fyrsta lagi alls ekki réttar og allar tölur sem hún hefði heyrt nefndar um fjármál leik- skólans yfirhöfuð teknar úr sam- hengi. „Ég lýsi yfir undrun minni ef ábyrgir menn eru að nefna þessar tölur. Það er verið að reyna að gera fjárhag leikskólans vafasaman. Ég hef heyrt talað um að ég sé með 300 þúsund krónur á mánuði — og ger- ast nú fóstrur dýrar! Það sér hver heilvita maður sem þekkir fóstru- laun að svo er ekki. Laun koma þessu máli annars á engan hátt við. En það er auðvelt fyrir hvern sem er að búa til tölur og taka þær úr sam- hengi, í stað þess að skoða það sem raunverulega er málið; þreyta á van- efndum og dylgjum." HLUTI YFIRVINN UNNAR DULBÚINN BÍLASTYRKUR? Margrét Pála vildi ekki ræða launamál sín nánar, en samkvæmt öðrum heimildum PRESSUNNAR er hluti skýringarinnar á fjölda yfir- vinnustunda hennar sá, að inn í þeim tölum sé fólginn umsaminn bílastyrkur, en Margrét er búsett í Reykjavík. Vegna samninga hafi hins vegar verið talið óheppilegt að flokka þennan launalið sem bíla- styrk. Þetta hafi verið umsamið frá byrjun og gert í ljósi þess hversu erf- itt var að fá fóstru til starfa. Þá er einnig á það að líta, að forstöðumað- ur þarf að starfa á deild þegar undir- mannað er og er sú vinna greidd sem yfirvinna. Friðrik Þór Guðmundsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.