Pressan - 14.02.1991, Síða 20

Pressan - 14.02.1991, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR PRESSAN 14.. FEBRÚAR 1991 'JíljjlU’ tölcitðltttf Jijóöoöiyir Afleysingakokkur á ís- lenskum vertíöarbáti var eitt sinn aö ganga frá pönt- unarlista, eða kostlista. Maöurinn var ekki vel gef- inn. Skipsfélagar hans báöu hann um að panta reykt rauðmagalæri. Hann skrifaði samviskusamlega á listann: „Reigt römaalari". Með listann fór hann síðar upp í brú til skipstjórans. Sá háttur var á að skipstjórinn kallaði pöntunina með að- stoð loftskeytastöðvar. „Hvað er þetta," sagði skipstjórinn og benti á list- ann þar sem kokkurinn hafði skrifað rauðmagalær- in. „Þetta eru rauðmaga- læri. Strákarnir vildu endi- lega að ég pantaði þau." „Nú hefur þú látið félag- ana plata þig," sagði skip- stjórinn. „Rauðmagalærin fást aðeins í sláturtíðinni," sagði skipstjórinn. „Mig grunaði að þeir væru að plata mig. Ég þakka þér kærlega fyrir," sagði kokkurinn við skip- stjórann og gekk niður. (Úr einfeldningssögum)) Ljósmyndari sem starf- aöi á dagblaði í Reykjavík var auðtrúa og auk þess þekkti hann lítið til í sögu þjóðarinnar. Vinnufélagar Ijósmyndarans höfðu oft orðið undrandi á þekking- arskorti mannsins. Eitt sinn var afráðið að leggja fyrir hann gildru. Einri vinnufélaganna bað Ijósmyndarann að gera sér greiða. Hann sagði að allar myndir sem til væru á safni blaðsins af Hallgrími Pét- urssyni væru það gamlar aö nauðsynlegt væri að fá nýja mynd. Ljósmyndaran- um þótti sjálfsagt að verða við þvi að taka nýja mynd af þessum Hallgrími. „Hvar næ ég í þennan Hallgrím/'spurði Ijósmynd- arinn. „Hann er í Hallgríms- kirkju. Þú veist hvar hún er, er það ekki?" Ljósmyndarinn hélt það nú og með það fór hann. Ákafur ók hann að Hall- grímskirkju og gekk gal- vaskur inn. Eftir stutta leit fann hann starfsmann kirkj- unnar og bar óhikandi upp erindið. Þegar Ijósmyndarinn kom aftur á vinnustað sinn var hann skömmustulegur og vildi ekki ræða þetta ein- staka verkefni en að sjálf- sögðu var hann ekki með nýja mynd af Hallgrími Pét- urssyni. (Úr einfeldningssögum) Qlafur Jón Ásgeirsson útvarpsstióri Alfa Ólafur Jón: í Biblíunni boðar Guð að hann veki upp eyð- andi storm gegn Babýlon og íbúum Kaldeu, þar sem írak nú er. Að mikið safn þjóða muni safnast þar saman á móti Babýlon og að örvar þeirra verði eins og giftusöm hetja. Aðgerðir bandamanna heita einmitt „Desert storm"... Þaö œrir sjálfsagt óstödug- an ad halda því fram aö Adam og Eva hafi átt heima einmitt þar sem Saddam Hússein rœöur ríkjum, enda dólgurinn sá afsumum talinn djöfullinn sjálfur í manns- mynd! En þetta er samt blá- köld staöreynd samkvœmt Biblíunni. Þetta kom a.m.k. fram í umræðuþætti útvarpsstöðv- arinnar Alfa nýverið. Við inntum útvarpsstjórann, Ólaf Jón Asgeirsson, nánar eftir þessu. „Biblían segir að á því svæði sem nú heitir írak, við fljótið Efrat, hafi Paradís ver- ið. Það er iíka merkilegt í því sambandi að olía verður til úr plöntuleifum og mikil olía bendir til að þarna hafi mikill skógur verið. Nú, á þessu landsvæði átti heimkynni sín Abraham, forfaðir ísraeis- manna. Þá var á svæði íraks fyrsta heimsborgin, Babýlon, sem Guð fordæmdi forðum. Hússein varði miklum fjár- munum í að grafa upp forn- leifar og endurreisa borgina, en menn vilja trúa því að Babýlon verði aidrei endur- reist vegna bölvunar Guðs.“ — Segöu okkur, hlustar einhver á Alfa, nema Guö sjálfur og nokkrir haröir bók- stafstrúarmenn? „Auðvitað! Við vitum ekki hver hlustunin er nákvæm- lega, en hún er örugglega talsverð hjá fólkinu sem er í þessum trúarsamfélögum á höfuðborgarsvæðinu. En miðað við hinar stöðvarnar telst hún kannski ekki ýkja mikil." — Hvernig í ósköpunum fariö þiö aö þvt aö fjármagna stööina? „Með framlögum gjafa- hóps, sem telur nokkur hundruð manns og fer vax- andi. Sum fyrirtæki eru mjög hjálpleg og gefa nokkur þús- und á mánuði. Eiríkur Sigur- björnsson rak Alfa fyrst, en því miður fór stöðin á haus- inn. Kristileg fjölmiðlun keypti hana og fyrsta útsend- ing núverandi stöðvar var 7. nóvember á síðasta ári.“ — Hvaö varst þú sjálfur aö gera áöur en þú tókst aö þér Alfa? „Ég er stúdent, en tók mér reyndar frí til að setjast á skólabekk í guðfræðiskóla í Dallas, Texas. Fyrir utan nám- ið tók ég þátt í mótmælum fyrir utan fóstureyðingar- stöðvar, við bárum kröfu- spjöld og reyndum að tala um fyrir þeim konum sem æti- uðu sér að eyða fóstri. Þetta er mikið mál fyrir vestan og mótmælendur oft fjarlægðir af lögreglunni. En ég varð að hætta í þessum skóla vegna veikinda í fjölskyldunni." — Hefur þú stundaö eitt- hvaö sem ekki er nátengt trúnni? „Ég stundaði mikið vaxtar- rækt og æfði af miklum krafti. Þegar ég loks ætlaði að keppa varð ég fyrir meiðslum og má reyndar segja að ég hafi eyðilagt á mér axlirnar á þessu. Nú fer mestur tíminn hjá mér í stöð- ina og starfið hjá Veginum, en þess utan er ég kvæntur og eyði sjálfsagt allt of mikl- um tíma í imbakassann." — Hver er munurinn á þér og Markúsi hjá RÚV? „Ég titlast ekki útvarps- stjóri, heldur fjármálastjóri. En fyrst og fremst er starf mitt hér 90 prósent hugsjón, mitt lífsins mál. En sjálfsagt hefur Markús áhuga fyrir sínu starfi." SJÚKDÓMAR OG FÓLK Gláka Katrín frænka mín lenti í árekstri um daginn. Hún er liðlega sjötug ekkja eftir Árna K„ landsþekktan hag- leiksmann vestan af fjörð- um. Eftir andlát hans býr hún ein í alltof stórri íbúð fullri af minningum á Melun- um. Það var mikil gæfa að ég hafðij bílpróf þegar hann Árni minn dó, segir hún stundum. Bílinn sinn notar hún mikið til að taka þátt í alls konar starfsemi fyrir aldraða og heimsækja börn og barnabörn á víð og dreif um borgina. Sum eiga sér jafnvel húsnæði í óbyggðum Breiðholtshverfis og Arbæj- ar en önnur í menningar- kjarnanum kringum gamla miðbæinn svo að fjarlægð- irnar eru talsverðar. Ég kom til hennar í heimsókn einn laugardag skömmu eftir áreksturinn. Hún var með plástur á enninu og kvartaði undan verkjum og eymslum í öxlum og hálsi. Bíllinn er stórskemmdur, sagði hún með trega í röddinni. Hvað gerðist eiginlega? spurði ég og virti fyrir mér stórt safn Katrínar af jóladiskum frá Bing og Grendahl sem hékk upp um alla veggi. Ég var að keyra inn á Hring- brautina, sagði hún. Þá var eins og bíli birtist allt í einu frá vinstri. Ég hafði alls ekki séð hann og hann skall á mér af miklum krafti. Það var mikil mildi að ekki fór verr. Mér hefur fundist ég sjá eitthvað illa síðustu mánuði svo að ég pantaði mér strax tíma hjá augnlækni og fór til hans í fyrradag. Hann sagði að ég væri með gláku, sem hefði haft þessi áhrif á sjón- ina. ALGENGUR SJÚKDÓMUR Gláka er algengur augn- sjúkdómur og hefur til skamms tíma verið aðalor- sök alvarlegrar sjónskerð- ingar og blindu hér á landi. Orðið gláka er notað um sjúklegt ástand í auga þar sem skemmd verður á taugaþráðum í sjóntaug og sjónhimnu vegna hækkaðs þrýstings í auganu. Algeng- ust er hægfara gláka sem fæstir verða varir við. Gláka byrjar yfirleitt á því að þrengja sjónsviðið sem var ástæða þess að Katrín sá ekki bílinn á Hringbrautinni. Gláka stafar af óeðlilega há- um þrýstingi augnvökvans inni í auganu. Sá vökvi myndast í sífellu en augað hreinsar sig sjálft af honum. í gláku stíflast frárennslis- leiðirnar svo að augað myndar meiri vökva en það losar sig við. Þrýstingurinn sem byggist upp ýtir á æðar sem næra sjóntaugina og sjónhimnuna. Við það skemmast taugaþræðir og sjónin daprast sem því nem- ur. Ef glákan fær að halda áfram án þess að neitt sé að gert minnkar sjónskerpan og sjónsviðið skerðist æ meira og getur endað með blindu. Gláka er því ákaflega lúmskur sjúkdómur og í byrjun finnur sjúklingurinn fyrir litlum breytingum. Oft- ast eru engir verkir en stöku sinnum sjá menn regnboga- liti kringum ljós. Stundum veikjast bæði augun sam- tímis en stundum ekki. Áður fyrr var ekki óalgengt að hitta sjúklinga sem höfðu ekki hugmynd um að þeir voru alblindir á öðru auganu og leituðu ekki læknis fyrr en hitt var farið að skemm- ast. Stöku sinnum er þó þró- unin hraðari og sjúklingur- inn fær brátt kast með verkj- um og minnkaðri sjón. Or- sök þessarar þrýsingshækk- unar er óþekkt. MEÐFERÐ Þegar gláka er meðhöndl- uð er reynt að minnka þrýst- inginn í auganu annað hvort með lyfjum eða skurðað- gerð. Álgengast er að nota augndropa sem bornir eru í augun nokkrum sinnum á dag eða töflur. Þau lyf sem mest eru notuð eru þrenns konar. „Parasýmpatóm- ímetísk lyf“ (Isopto-Carp- ine og Timpilo augndropar) sem auka frárennsli á aug- anu. „Karbóanhýdrasa- blokkarar" í töfluformi (Diamox), draga úr fram- leiðslu augnvökvans og „beta adrenergir blokk- arar“ (Blocadren, Opti- mol og Betopic augndrop- ar) gera slíkt hið sama og minnka þannig þrýstinginn. Stundum duga lyfin ekki til og þarf þá að grípa til skurð- aðgerðar til að opna augn- vökvanum leið og létta á auganu. FYRIRBYGGJANDI AÐGERÐIR Best er þó að reyna að koma í veg fyrir að gláka myndist með því að mæla augnþrýstinginn reglulega hjá öllum sem komnir eru yfir fertugt. Augnþrýstimæl- ir er einfalt tæki sem settur er ofan á augað í staðdeyf- ingu og fæst þá úr því skorið hvort einhver þrýstings- hækkun sé fyrir hendi. Á þann hátt er hægt að upp- götva glákuna í tíma áður en hún fer að skemma út frá sér. Augnlæknirinn hennar Kat- rínar sagði að sjónin þyrfti ekki að skemmast meira en hún væri komin með eitt- hvað skerta sjón. Hún fékk dropa og töflur og átti auk þess að koma reglulega til eftirlits. Nokkru síðar sá ég hana aka út úr stæði í Póst- hússtræti. Bannaði augn- læknirinn þér ekki að keyra? spurði ég. Ég spurði hann ekki að því, sagði Katrín. Þá er engum um að kenna. Hún flautaði einu sinni, gaf síðan stefnumerki vestur Austur- stræti og hvarf mér sjónum inn í hríðarmuggu febrúar- mánaðar.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.