Pressan - 14.02.1991, Síða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14.. FEBRÚAR 1991
23
VEGAMÓT
... fær verslunin Vega-
mót fyrir aö hafa haldið
lífi í okkur um helgar út
allan haftatímann.
BIOIN
Kokkurinn, þjófurinn, konan
hans og elskhugi hennar Há-
skólabíói kl. 5 og 10. Einu sinni
sá ég mynd eftir Ieikstjórann Pet-
er Greenaway sem hét Samning-
ur málarans og var mjög flott en
fullkomlega óskiljanleg. Þessi
mynd hans reynir að vera dálítið
dónaleg og djörf sem er auðvitað
markmið út af fyrir sig. Aðdá-
endur Greenaways hafa reyndar
getað fengið forskot á sæluna því
myndina hefur verið hægt að fá
á myndbandaleigum í Reykjavík
um eins árs skeið.
LEIKHÚSIN
ir fjórar sýningar á verkinu og er
uppselt á þær allar. Það er víst
ómögulegt að bæta við sýning-
um. Afhverju er enginn svartur
markaður í Reykjavík?
MYNDLISTIN
Dadi Guöbjörnsson er með
sýningu í Nýhöfn í Hafnarstræti.
Þar sýnir hans ýmis tilbrigði við
áður þekktan rokókkó-grafítí-stíl
sinn. Krúsídúllurnar eru helst til
færri ep áður.
Dagur Gunnarsson sýnir Ijós-
myndir frá Eystrasaltsríkjunum á
Mokka, konungi kaffihúsanna.
Myndirnar tók Dagur á ferðalagi
áhugaleikhópsins Fantasíu síð-
astliðið súmar.
Agnar Agnarsson sýnir ágætar
klippimyndir sínar á Tveimur
vinum og öðrum í fríi. Fínt fyrir
þá sem elska rokk, brennivín og
list.
KLASSIKIN!
Kammersveit Reykjavíkur
leikur verk eftir Jón Nordal í
Langholtskirkju kl. 20.00 í kvöld.
Paul Zukofsky stjómar. Einleik-
arar eru Elísabet Waage hörpu-
leikari, Bernharður Wilkinson
flautuleikari, Einar G. Svein-
björnsson fiðluleikari og Ingvar
Jónasson víóluleikari.
Leiksoppar eftir bandaríska
nýstirnið Craig Lucas er ein af
betri sýningum bæjarins. Nem-
endaleikhúsið sýnir undir stjórn
Halldórs E. Laxness, sem hefur
varla sett upp sýningu síðan
Stúdentaleikhúsið var og hét,
enda dvalið erlendis í nokkur ár.
Kannski er það ekki skrítin til-
viljun en sumir af leikurunum í
sýningunni voru einnig í Stúd-
entaleikhúsinu. Þeir hafa farið í
leiklistarskólann þegar Halldór
fór utan. Sýnt fimmtudag, föstu-
dag, laugardag og mánudag.
Nú er ljóst að þeir sem eiga eftir
að sjá Ég er meistarinn verða
að biða eftir að leikritið verði
sett upp einhverntímann seinna
þar sem aðalleikkonan er ólétt.
Samkvæmt upplýsingum frá
Borgarleikhúsinu eru aðeins eft-
Sinfóníuhljómsveitin, Hamra-
hlíðarkórinn og heill herskari
einsöngvara flytja verk eftir
Hróðmar Sigurbjörnsson, lannis
Xenakis, N’Guyen Thien Dao og
Magnus Lindberg í Háskólabíói á
Iaugardaginn kl. 14.00.
ÞUNGA GÁTAN
LÁRÉTT: 1 fjármark 6 veiki 11 hákarlsmagi 12op 13 kvenfuglum
15 krapaelgur 17 fugl 19 tifróa 20 spil 21 afturenda 23 óþokki 24
gripur 25 glatir 27 leiðbeina 28 hroki 29 stórlæti 32 tjón 36 sára-
kanna 37 reima 39 augnsjúkdómur 40 hrygningarsvæði41 vanvirðu
43 kvabb 44 storkaði 46 vesalli 48 bergmálað 49 ský 50 aldraðs 51
tréð.
LÓÐRETT: 1 heppnast 2 hret 3 farartæki 4 innyfli 5 vanir 6 óstöðug-
leiki 7 flatfiskur 8 brún 9 tarfurinn 10 skemma 14 megna 16 lérefts
19 skordýr 22 dekra 24 manns 26 fúi 27 greinar 29 karifausk 30
spildu 31 flugufregn33 Ijósastika 34 skarn 35 ábatann 37 kæks 38
teygjudýr 41 jarðeign 42 forar 45 gremju 47 rótarfiskiri.
HVERJIR ERU HVAR?
Veitingahúsið 22 á horninu á Laugavegi og Klapparstig laðar til sín
ýmiss konar menningarspírur og aðrar tegundir sem kunna illa við
sig innan um venjulegt fólk. Þar má rekast á blómann af homma- og
lesbíusamfélaginu og aðra á mörkum þess. Þar eru listaskólanemar
og aðrir lengra gengnir á þeirri grýttu braut. Þar er líka fjöldinn allur
af mönnum og konum sem fóru á menningarlegt fyllerí í Tjarnarbúð
eða á Borginni fyrir áratug eða tveimur og hafa ekki látið renna af
sér nema með hléum síðan þá. Og síðan stærsti hópur gestanna að
byrja á sínu menningarfylleríi.
En á 22 má einnig rekast á:
Gunnar Lárus Hjálmarsson ■ Bless, Viðar Eggertsson leikara,
Lindu Vilhjámsdóttur, nýútgefið skáid, og Mörd upplýsingafull-
trúa Árnason, Ómar Stefánsson máiara, Kristján Hrafnsson
skáld, Badda, Egii Ólafsson; leikara og söngvara, Bjögga og
Gunna, Dóru Wonder, Einar Örn Benediktsson (fyrir og eftir að
hann er á Nl), Daníel Magnússon myndlistarmann, Hrafn Jök-
ulsson og fleiri og fleiri.
Eins og sjá má af upptalningunni er ekki mikið um stelpur á 22. Þess
meira af strákum sem yrkja.
VISKAN
Atli Heimir Sveinsson ætlar
loksins að skýra út óperu sína,
Vikivaka, í Norræna húsinu á
föstudaginn kl. 17.00. Atli sýnir
óperuna á myndbandi, máli sínu
til stuðnings.
W
LJÓSMYND: SIGURÞÓR HALLBJÖRNSSON
Roger Carlson flytur tónlist fyr-
ir slagverk á Kjarvalsstöðum kl.
20.00 á föstudagskvöld. lannis
Xenakis, Per Nörgárd og Áskell
okkar Másson eiga verk á tón-
leikunum.
Elisabeth Chojnacha sembal-
leikari heldur tónleika í íslensku
óperunni á sunnudaginn kl.
17.00. Á efnisskránni eru verk
eftir títtnefndan Xenakis, Maur-
ice Ohana, Francois B. Mache og
Luc Ferrari.
POPPIÐ
Rotþró er hljómsveit frá Húsa-
vík, — eins og Greifarnir en af
allt öðru sauðahúsi, og verður
hún með tónleika í Kjallara keis-
arans í kvöld. Gestir verða Dr.
Gunni, Drulla og ný sveit sem ku
eiga ættir sínar að rekja til
Fræbblanna sálugu.
Risaeðlan verður með tónleika í
Lídó á laugardaginn. Hljómsveit-
in var í stúdíói til að taka upp lög
fyrir plötu sem kemur út með
haustinu. Forsmekkinn má
heyra á laugardaginn.
VEITINGAHÚSIN ■
Rauði sófinn við Hlemm er veit-
ingastaður sem er kjörinn fyrir
stefnumót. Hann er frekar
dimmur í skammdeginu og ljúf
tónlist og dálítið hlaðin innrétt-
ing býr til rómantískt andrúms-
loft. Maturinn er ágætur; svolítið
franskur, svolítið amerískur, svo-
lítið án sérkenna. Þjónustan er
stundum frábær. Á góðum degi
er Rauði sófinn því superfínn
restaurant.
NÆTURLÍFIÐ H
Samkvæmt lauslegri talningu þá
er hægt að drekka sig íullan á um
fimmtán hundruð börum í
Reykjavík en það er hins vegar
ekki hægt að dansa á nema um
sjö eða átta stöðum, ef frá eru
taldir dansstaðir fyrir fertuga og
eldri. Þeir sem eru ekki orðnir al-
veg svo gamlir verða að sætta sig
við að velja úr lidó, Casa-
bianca, Borginni eða Yfir
strikið og stöðum sem eru alveg
á mörkunum að vera fyrir eldra
fólk; Amma Lú, Leikhúskjall-
arinn, Óperukjallarinn og
Hótel Island. Kannski vill þessi
þjóð bara ekki dansa og er farin
að krækja sér i hjásofelsi á bör-
Cuvée Speciale
de
Bicentenaire
Brut
Agætis kampavín,
næstum því peninganna
virði. Kostar 2870 krónur
í vínbúðinni í Mjóddinni.
Þetta vín var sérstaklega
framleitt í tilefni 200 ára
afmælis frönsku bylting-
arinnar. Það er i fallegum
flöskum og pakkað inn í
serstakar öskjur. Kampa-
vín er ein tegund freyði-
vína og kemur frá
franska héraðinu
Champagne. Yfirleitt er
kampavín búið til úr
blöndu þriggja berjateg-
unda, Pinot Noir, Chard-
onny og Pinot Meunier.
Vinsœlustu
myndböndin
1. Miami Blues
2. Heat Wave
3. Year My Voice
Broke
4. Wild Orchid
5. Loose Cannons
6. Joe versus the
Volcano
7. Short Circuit II
8. Back to the Future III
9. Earth Girls are
Easy
10. Revenge
unum. En kannski spretta upp
dansstaðir og diskótek innan tíð-
ar þegar búið er að metta þörf
landans fyriraðstöðu fyrir elhús-
'stóla-fyllerí á öllum kránum.
ÁDUR ÚTI
NÚNAINNI
Sækadelik-munstraðar strets-
buxur, nælonsokkar, bleikt satín,
eldrautt viskós og eiturgrænt
plast, — jafnvel gúmmí. Sjöundi
áratugurinn er kominn á ný. Nú
er munurinn sá að tískuhúsin
vita hverjum klukkan glymur.
Billegt er ekki brjálæðislega
flott, eins og þá. Nú keppast
tískukóngarnir við að endurgera
munstrin sem mömmurnar
teiknuðu sjálfar á sjöunda ára-
tugnum.
ÁPUR IJNNI__________
NUNA UTIBHM
Þær sorgarfréttir hafa nú borist
að þeir karlmenn sem fyllt hafa
fataskápa sina af skyrtum með
niðurhnepptum krögum eru i
vanda. Svoleiðis kragar eru farn-
ir úr tísku. Nú er tvennt að gera.
Annars vegar að henda skyrtun-
um og fylla fataskápinn af nýj-
um. Hins vegar að setjast niður
og klippa tölurnar af. Gallinn við
seinni kostinn er sá að hnappa-
gatið mun verða eftir á kragan-
um. Það er því álika púkó og þeg-
ar mæður okkur saumuðu stykki
í skálmarnar í gamla daga og
reyndu að telja okkur trú um að
við ættum útvíðar buxur.
VID MÆLUM MEÐ
Vídeóleigunni á Klapparstíg
(Það er næstum því guðlast að
hafa sumar þessar myndir á víd-
eói. Eisenstein! Hann mundi
snúa sér við i gröfinni ef hann
væri á Iífi.)
Djöflatertunni á Hard Rock
(Ef þið ætlið ekkert að gera
það sem eftir lifir kvölds. Krefst
tveggja tíma blunds.)
Risaeðlunni í Lídó á laugar-
daginn
Undirskriftasöfnunum
(Bara um eitthvað; til dæmis
að Kokkurinn, þjófurinn, konan
hans og elskhugi hennar verði
sýnd í A-sal Háskólabíós lengur
en einn dag.)