Pressan - 16.05.1991, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 16. ^ ’991
ANDRI ÖRN CLAUSEN
leikari hefur ekkert sést
á sviðinu í vetur, enda
maðurinn helgað krafta
sína öðru en leiklistar-
gyðjunni. Hann settist á
skólabekk í Háskóla ís-
lands í haust og lét auk
þess gamlan draum um
að stofna hljómsveit
rætast. Andri Örn er
söngvari hljómsveitar,
sem heitir því kvalafulla
nafni FRÍÐA SÁRSAUKI.
Hún kom fram í fyrsta
sinn opinberlega fyrr í
mánuðinum, á Furstan-
um.
Með Andra Erni í Fríðu
sársauka er FRIÐRIK
STURLUSON bassaleikari
í SÁLINNI HANS JÓNS
MÍNS. Friðrik hefur ekki
aðeins haldið framhjá
Sálinni með Fríðu, þar
sem hann kemur á fram-
færi lagasmíðum sínum
er ekki henta Sálinni.
Nýverið gaf hann út
plötu með lögum við
Ijóð og vísur Dala-
mannsins Björns Guð-
mundssonar. En sá ku
vera vinsælt vísnaskáld
þar um slóðir. Friðrik er
sjálfur Dalamaður, fædd-
ur og uppalinn í Búðar-
dal.
Andri Örn og Helgi
Björnsson eru ekki einu
leikararnir sem digga
sönginn. VALDIMAR FLYG-
ENRING hefur líka stofn-
að hljómsveit og heitir
SÚ sveit HENDES VER-
DEN. Hún tróð upp í
fyrsta sinn sem upphit-
unarband fyrir Sykur-
molana í Lídó fyrir
skömmu og ef marka má
viðtökurnar hefur töff-
araímynd Valdimars far-
ið fyrir lítið það kvöld.
Halldór, léstu Þor-
stein hafa sel-
skinnsjakkann?
„Nei, þad geröi ég nú ekki,
enda fremur ólíklegt aö
hann hafi passaö honum."
Síðustu vikurnar i starfi sjávarút-
vegsráðherra gekk Halldór
Ásgrímsson ijakka úrselskinni i op-
inberri eigu, en hringormanefnd lét
sauma jakkann fyrir ráðherra.
Fáljóö
og bréf frá
leyndum
aödáendum
Nanna Ósk Jónsdóttir og
Helena María Jónsdóttir
eru ekki systur, en bestu
uinkonur ogganga
gjarnan undir nafninu
einingin. Enda sjaldan
ad önnur birtist án þess
adhinsé langt undan.
Nanna og Helena
eru uel þekktar af
þeim sem stunda
skemmtistaöinn
Casablanca, þar sem
þœrdansa uppi á
boxum um helgar,
gestum til yndisauka og
skemmtunar. Boxdansara
uilja þœr þó ekki kalla^
sig, þar sem nafnid
ueldur ofl misskilningi
og er ruglad saman
uid íþrótt meö sama
nafni.
Nanna og Helena
hafa dansað á boxum í
Casablanca í allan vetur,
en hugmyndina að því að
hafa stelpur uppi a
sérstökum pöllum
til að dansa þar fyrir
gesti fékk Diddi,
skemmtanastjóri stað-
arins, á Ibiza. Stelpurnar
eru þó ekki eins
léttklæddar og þar
tíðkast, heldur í
legum buxum
Þær eru heldur engar
gógó stelpur. „Við
vorum kallaðar gógó
stelpur í Mannlífi, en
það er allt annað,"
þær. „Gógó stelpur, eins
og þær tíðkuðust á
sjöunda áratugnum
alltaf í bikini og kunnu
ekki að dansa. En við
erum dansarar." Og víst er,
að þær hafa báðar gengið í
hina ýmsustu dansskóla í
bænum og lært þar bæði
samkvæmisdansa,
djassballet, ballett og jafnvel
verið í fimleikum í gegnum
árin, en í Casa dansa þær
fönk.
En hvernig taka gestirnir
þessum dansandi stelpum?
Verða þær ekki fyrir ágangi
frá hinu kyninu? Þær neita
því ekki. „Við höfum meðal
GRÚFÍ GÆJAR
A GÖTUNA
Sumarið er komið ef það
skyldi hafa farið framhjá ein-
hverjum. Nú segjum við auð-
vitað burt með treflana og
frakkana því grúfi gæjar
verða allsráðandi
á götunum i sumar. Sem
betur fer lifum við á þannig
tímum að allt er leyfilegt.
Það er þess vegna
best að vera svolítið
röff og töff í sumar.
Slagorðið er: Fríkaður og
frjáls á viðreisnartimum
og burt með upp-
ana, hippana og nippana.
Gefum hagvextinum,
húsbréfunum
og hallærinu frí og
bíö, niður í bæ eða
jafnvel út i Viðey. Ef einhver
getur lesið skilaboð um
tískuklæðnað sumarsins úr
þessu þá verði honum að
góðu.
Fjárfestingarráðgjafinn
og fisksalinn Pétur
Á daginn ráðleggurhann ein-
staklingum hvernig þeir geti
fjármagnað bilakaup sín og fyr-
irtækjum varðandi tækjakaup,
hjá fjármögnunarfélaginu Fé-
fangi. Á kvöldin snarar hann sér
úr jakkafötunum og afgreiðir
fisk og franskará samnefndum
matsölustað í Austurstræti.
Maðurinn heitir Pétur Gunnars-
son og er menntaður viðskipta-
fræðingur frá University of
North-Carolina í Bandarikjun-
um.
Fisk og franskar á hann með
Sigurjóni Þórðarsyni kokki, sem
sér um allan daglega rekstur
staðarins. „Ég sé um allt sem
viðkemur bókhaldi og annarri
pappírsvinnu, en vinn líka
stundum á staðnum,"
segir hann og bætir við
að það geti verið gagnlegt
í vinnunni hjá Féfangiað
hafa sjálfurrekið fyrirtæki og
vita hvernig það er. Á Fiski
og frönskum fást auðvit-
fiskur og franskar og á mat-
seðlinum má meðal annars
finna ekta „fish and chips", eins
og Bretarnir elska, með steikt-
um kartöflubátum úr ferskum
kartöflum. Allt að sjálfsögðu
steikt í fituminni og kólestról-
lausri olíu. Það þýðir víst lítið
annað á þessum síðustu og
verstu tímum.
„Við erum líka með nokkrar
tegundir af hádegissalötum,
handa öllum litlu sætu skrif-
stofustelpunum, sem eru að
passa upp á linurnar," segir Pét-
ur, sem hefur hingað til stílað
mikið upp á viðskipti við svangt
starfsfólk úr nálægum fyrir-
tækjum í miðbænum. Og ætlar
svo að tæla til sín túrista isum-
annars verið beðnar um að
sýna í piparsveinapartýum,
sem við viljum alls ekki gera,“
segja Nanna og Helena og
þegar gengið er á þær kann-
ast þær við að hafa fengið
send ljóð og bréf frá leyndum
aðdáendum.
Fyrir utan að dansa í Casa
hafa stelpurnar verið við
nám í vetur, Helena í Flens-
Dorg og Nanna í Versló. En nú
er skólinn búinn og sumarfrí-
ið byrjað. Hvað ætlið þið að
gera í sumar, stelpur? „Eg
verð að vinna í matsalnum í
Straumsvík," segir Helena.
„Og ég er að vinna í sjoppu
og verð það áfram,“ segir
Nanna. Hvað annað bíður
þeirra vinkvenna í sumar
halda örlagadísirnar leyndu
þar til þar að kemur.
LÍTILRÆÐI
af Ása
Talið er að menn og hestar
séu jafnan undan feðrum
sínum og mæðrum.
Hinsvegar er oft pukrað
svo við getnaðinn að enginn
er til frásagnar um faðerni,
varla einusinni móðirin sem
í hita leiksins á það til að
gleyma baéði stað og stund
þegar hún er fyljuð.
Þetta á sérstaklega við um
merar sem við getnað ná því
aldrei að horfast í augu við
barnsföður sinn.
Málið horfir öðruvísi við
konum sem hafa það fram-
yfir hófaljónið að vera sjálfar
til frásagnar um faðerni
barna sinna en geta með því
að merkja við í almanakinu
getið sér til um hverjir hafi
gert þeim barn og hvenær.
Þegar íslendingar hafa
verið að sýsla við það að
auka kyn sitt hefur skyld-
leikaræktun þótt óæskileg.
Samlíf systkina, mæðgina
og feðgina hefur á íslandi
löngum verið kallað „sifja-
spell“ og þótt hin versta fúl-
mennska.
Líflátssök var það hér
áður, samkvæmt Stóradómi,
að ganga í eina sæng með
mágkonu sinni, en síðar
fengu mágar og mágkonur
aukið frelsi til ásta til að
sporna við fólksfækkun í
landinu.
Hinsvegar eru sifjaspell
lögð til grundvallar í kynbót-
um á hrossum og þykir æski-
legt að feður og mæður njóti
ásta með sonum og dætrum,
systrum og bræðrum.
Þetta er kallað skyldleika-
ræktun og lokatakmarkið að
hross verði undan sjálfum
sér og ættbókarfærð sem
slík.
En þetta gúdderar móðir
náttúra ekki og þessvegna
hendir það að frjósemi mik-
ið skyldleikaræktaðra grað-
hesta minnkar við aukinn
skyldleika foreldranna, eða
einsog sagt er á fagmáli:
— Fyljunarprósentan
lækkar.
Við þessu sjá svo merarn-
ar og ná sér í annan gradda
í næsta stóði og eignast fol-
ald sem síðan er eignað
þeim ættbókarfærða.
Þetta er semsagt í stórum
dráttum svona nokkurnveg-
inn einsog á venjulegu ís-
lensku heimili.
íslendingar hafa alla tíð
haft það í hendi sér hvernig
niðjatöl og ættarskrár þeirra
sjálfra og hrossanna þeirra
líta út, enda hefur lengi ver-
ið litið á íslenskar ættartölur
sem notalegan brandara,
sérstaklega hvað faðerni
áhrærir og þegar þarfasti
þjónninn á í hlut.
En nú er komið babb í bát-
inn því svíar hafa ekki sama
skopskyn og íslendingar.
Þeir vilja semsagt að kyn-
bótahross sem þeir kaupa,
séu undan feðrum sínum.
Eða einsog farið er að segja
í hrossaræktinni: „Bæði á
blaði og í hlaði."
Nú hefur hinsvegar komið
í ljós að einn glæsilegasti
kynbótahestur á íslandi,
Hrafn 802 frá Holtsmúla er
ekki alltaf faðir sona sinna
og að tveir graðhestar, Ási
1122 frá Brimnesi og Valur
1008 frá Bræðratungu sem
honum voru eignaðir eru
bastarðar og hafa þessvegna
fyrirgert fyljunarleyfinu sem
auðvitað er dýrmætasti rétt-
ur hvers manns og hests.
Það er ekki ofsögum sagt
af svíum.
Alltaf eru þeir með ein-
hvern tittlingaskít.
Hinsvegar er nú leitt að
því getum að Ási sé ættaður
frá Kolkuósi og þessvegna
eigi bæði að hækka hann í
verði og láta hann fá fyljun-
arleyfið aftur, en taka það i
staðinn af Hrafni frá Holts-
múla sem hvorki kvað vera
pabbi Ása né undan Snæ-
faxa pabba sínum heldur
Blakki frá Sauðadalsá.
■'w
Flosi Ólafsson