Pressan - 16.05.1991, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 16. MAÍ 1991
Sjálfseignarstofnun Gísla Sigurbjörnssonar, Elli- og
hjúkrunarheimilið Grund, er eigandi óskráðs sjóðar,
Styrktarsjóðs líknar- og mannúðarmála, sem er meðal
allra stærstu einstakra eigenda Eimskipafélags íslands.
Markaðsvirði hlutabréfa sjóðsins í skipafélaginu er um
53 milljónir króna. Engar úthlutanir fara fram úr sjóði
þessum og hann lýtur engu opinberu eftirliti. Þá er óljóst
með öllu hversu miklar upphæðir eru ávaxtaðar af sjóðn-
um, en þó þykir ljóst að um tugmilljóna sjóð er að ræða.
Tvær sjálfseignarstofnanir, sem Gísli veitir forstöðu,
Grund og Dvalarheimilið Ás í Hveragerði, eiga samtals
83 fasteignir og lönd í umdæmi Hveragerðis. Fasteigna-
mat þessara eigna er um 240 milljónir króna að núvirði.
Þessar tvær stofnanir Gísla eiga 8,2% allra íbúða í Hvera-
gerði, en njóta umtalsverðra skattfríðinda af hálfu hins
opinbera. Grund á síðan hús elliheimilisins við Hring-
braut í Reykjavík og alls 13 íbúðir í næsta nágrenni heim-
ilisins. Heildarmat fasteigna Grundar í Reykjavík er um
250 milljónir króna að núvirði.
blaðsins má þó dæma að sjóður
Gísla á Grund hafi keypt hlutabréf
fyrir 200 þúsund krónur að nafn-
virði, umfram útgáfu jöfnunarbréfa.
TUGMILLJÓNA SJÓÐUR
Að sögn Gísla er sjóðurinn alfarið
í eigu Grundar og tilgangur hans að
vera nokkurs konar varasjóður ef
illa fer í rekstri stofnunarinnar.
„Það eiga engar úthlutanir sér
stað úr sjóðnum, hann er bara til fyr-
ir sjálfan sig og ekkert lánað. Tekjur
sjóðsins eru arður og vextir. Þetta er
ekkert merkilegur sjóður og ekkert
óeðlilegt við hann.“
Eimskipafélagið greiðir 10 pró-
sent arð á þessu ári. Fyrir útgáfu
jöfnunarbréfa var hlutafé Eimskipa-
félagsins 929,7 milljónir og arður-
inn því um 93 milíjónir. Styrktar-
sjóður líknar- og mannúðarmála á
0,92 prósent í Eimskipafélaginu.
Sjóðurinn fær því á þessu ári arð
upp á um 860 þúsund krónur. Miðað
við að sjóðurinn hefur verið til um
árabil og hann ávaxtaður á hag-
kvæman hátt, en engu útdeilt, má
gera ráð fyrir að sjóðurinn eigi inn-
eignir upp á tugi milljóna króna,
auk hlutabréfanna.
Gísli vildi ekkert tjá sig um inni-
stæður sjóðsins og kvaðst ekki
muna hvenær hann var stofnaður.
Dóttir Gísla, Guðrún, vildi heldur
ekkert segja um málefni Grundar og
Áss. ,,Eg tala ekki við blaðamenn,"
sagði Guðrún.
250 MILLJÓN KRÓNA
FASTEIGNIR GRUNDAR
Lauslega áætlað er Styrktarsjóður
líknar- og mannúðarmála dæmi upp
á um 100 milljónir króna. En Gísli á
Grund safnar ekki bara í sjóði, held-
ur safnar hann fasteignum í ná-
grenni elli- og hjúkrunarheimilisins
Tvö heimili Gísla á
Grund, hvoru tveggja
eignir sjálfseignar-
stofnana hans, Tún-
gata 20 í Reykjavík og
Hverahlíð 4 í Hvera-
gerði. Túngötuhúsið er
metið á 203 milljónir
króna og Hverahlíðar-
húsið, alls 311 fermetr-
ar, á 11 milljónir.
Elliheimilið Grund við Hringbraut,
dvalarstaður tæplega 300 öldunga.
Vegna langlegusjúklinga eingöngu
fékk Grund 211 milljónir króna í dag-
gjöld á síðasta ári og þykir ekki mikið
miðað við umfang, borið saman við
aðrar slíkar stofnanir. Fasteignamat
sjálfs elliheimilisins er 167 milljónir
króna.
Styrktarsjóður líknar- og mannúð-
armála er ekki til sem staðfestur
sjóður í sjóðaskrá ríkisins og lýtur
ekki opinberu eftirliti. Fjármál
sjóðsins eru því einkamál Gísla og
annarra aðstandenda Grundar.
Sjóðurinn er 14. stærsti einstaki
hluthafinn í Eimskipafélaginu. Nú
er nafnvirði bréfa sjóðsins i Eimskip
9,4 milljónir. Sölugengi bréfa Eim-
skips er um 5,67 og er markaðsvirði
bréfa sjóðsins því um 53,3 milljónir
króna.
Það er athyglisvert varðandi
þennan hlut sjóðsins í Eimskip að á
síðasta ári fór fram hlutafjárútboð
upp á 86 milljónir króna og sam-
þykkt var að stærstu hluthafarnir
myndu falla frá forkaupsrétti sínum.
Af yfirliti viðskiptasíðu Morgun-
Mynd: Jim Smart.
HVBIER GÍSLIÁ GRIIND?
Gísli Sigurbjörnsson er fæddur
29. október 1907 og er því 83 ára
gamall. Faðir hans var Sigurbjörn
A. Gíslason prestur og móðir Guð-
rún Lárusdóttir alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins og rithöfund-
ur, sem drukknaði með sviplegum
hætti í Tungufljóti árið 1938. Gísli
kvæntist Helgu Björnsdóttur
Magnúsar stórkaupsmanns í
Reykjavík Arnórssonar og konu
hans Ólafar Ólafsdóttur.
Gísli hefur rekið Grund og Ás
um áratuga skeið, en ávallt farið
einförum í starfi sínu og hefur á
sér blæ þjóðsagnapersónu. Fortíð
hans þykir með dularfyllsta móti.
Hann var frímerkjakaupmaður
um nokkurt skeið og sagður eiga
eða hafa átt mjög verðmætt frí-
merkjasafn. Þessi iðja reyndist
arðsöm, Gísli komst í góð efni og
fór á hverju ári til Þýskalands, þar
sem hann aflaði sér víðtækra við-
skiptasambanda.
Árið 1933 stofnaði Gísli ásamt
nokkrum öðrum einstaklingum
Þjóðernishreyfingu íslendinga,
flokk íslenskra nasista. Hann var í
upphafi óumdeildur leiðtogi
þeirra, af andstæðingunum kall-
aður Gitler. Síðar var honum ýtt til
hliðar eftir miklar deilur meðal
þjóðernissinna.
Það var Sigurbjörn í Ási, faðir
Gísla, sem stofnaði Grund, en Gísli
hefur stjórnað Grund frá 1934 og
dvalarheimilinu Ási frá 1952.
Hann hefur frá upphafi stjórnað
mestu sjálfur, en næstráðendur á
Grund hafa verið dætur hans Gud-
rún og Helga Gísladœtur. Þá er
dóttursonur Gísla staðgengill for-
stjórans í Ási.
við Hringbraut 50. Fasteignamat
heimilisins (10 matshlutar) og lóðar
er alls 167 milljónir. Grund er síðan
skráð fyrir 13 íbúöum í nágrenni
heimilisins.
Umræddar eignir eru Blómvalla-
gata 12 (Minni Grund), fasteignamat
15,4 milljónir, Túngata20,20,8 millj-
ónir, Hofsvallagata 18, 2,8 milljónir,
Hofsvallagata 22, 2,8 milljónir, Brá-
vallagata 30 (lóð), 2,7 milljónir, Brá-
vallagata 40 (fjórar íbúðir), 15,9
milljónir, Brávallagata 42 (tvær
íbúðir), 5,4 milljónir, Brávallagata
44, 2,6 milljónir og Brávallagata 50
(tvær íbúðir), 6,3 milljónir.
Samtals hljóðaði fasteignamat
íbúða, lóða og bílskúra Grundar á
þessu takmarkaða svæði upp á 242
milljónir króna þann 1. desember
síðastliðinn. Að núvirði samsvarar
þetta um 250 milljónum króna.
Eru þá ótaldar aðrar eignir Grund-
ar, svo sem Líknarsjóður íslands,
hvers bankainnistæður eru 3 millj-
ónir króna, og tvær bifreiðar, Buick
Stillark 1985 og Mitshubishi Lancer
1988.
FASTEIGNAMAT í
HVERAGERÐI ER
232 MILLJÓNIR
Elli- og hjúkrunarheimilin Grund
og Ás, sjálfseignarstofnanir Gísla
Sigurbjörnssonar, eiga síðan sam-
tals 83 fasteignir í umdæmi Hvera-
gerðis. Auk viðkomandi lóða þess-
ara fasteigna eiga Ás og Grund
óbyggðar lóðir og jarðhitaland í um-
dæminu upp á 67.500 fermetra.
Þessar óbyggðu lóðir og fermetra-
tala fasteignanna hljóða samtals
upp á 78.100 fermetra og eru þá
ótaldar lóðirnar við húseignirnar
sjálfar.
I fasteignaskrá er fasteignamat
byggt á markaðsvirði í samræmi við
kaupsamninga, að sögn Fasteigna-
mats ríkisins. Fasteignamat mann-
virkja Grundar og Áss í Hveragerði
(fasteign ásamt lóð) var 1. desember
sl. 222,5 milljónir króna. Fasteigna-
mat óbyggðra lóða/landa stofnan-
anna í umdæmi Hveragerðis er 10,1
milljón til viðbótar. Að núvirði er
fasteignamat þessara eigna í Hvera-
gerði um 240 milljónir króna.
GRUND/ÁS EIGA 12. HVERT
HÚSf HVERAGERÐI
Af fasteignum Grundar/Áss í
Hveragerði eru 48 tbúðir. Heildar-
fjöldi íbúða í Hveragerði er 587 og
eru þetta því 8,2 prósent allra íbúða
eða tólfta hvert hús. Auk þess má
nefna 12 gróðurhús, 3 matstaði, 5
verslunar-, skrifstofu- og iðnaðar-
hús, þvottahús, heilsugæslu,
geymslur og skúra og verkstæði.
Obyggðu lóðirnar eru sumarbú-
staðaland, 1.300 fm, tvær iðnaðar-
og athafnalóðir, samtals 15.770 fm,
íbúðarhúsalóð, 5.421 fm og jarðhita-
land, 45.000 fm (4,5 hektarar).
Fasteignir Grundar og Áss í
Hveragerði eru í Brattahlíð 9, 11, 13,
14, 15, 16, 17, 18, 20 og 22, Kletta-
Frumskógar í Hveragerði. Stofnanir
Gísla eru skráðar eigendur fasteigna
númer 1,4,5,6,7,8,9,10,12,13,14 og
16.
Bláskógar í Hveragerði. Stofnanir
Gisla eru skráðar eigendur fasteigna
númer 5,11,13,15 og 17.
hlíð 14, 16 og 18, Bláskógum 5, 11,
13, 15 og 17, Austurmörk 2, Frum-
skógum 1,4, 5, 6, 7,8, 9, 10, 12, 13,
14 og 16, Heiðmörk 23, 30, 32, 34 og
36, Þelamörk 2 og 26, Varmahlíð 6
og Hverahlíð 8,15,17,19,21 og 23.
Hinar 48 íbúðir Áss og Grundar
eru af öllum stærðum og gerðum.
Forstjóri Áss hefur til umráða 311
fermetra hús við Hverahlíð, hvers
fasteignamat er um 11 milljónir. Þá
má nefna 334 fermetra íbúð í
Varmahlíð 6 upp á 9 milljónir króna.
Meðalstærð íbúða Grundar og Áss
er 90,5 fermetrar.
HVERAGERÐISBÆR GREIP
í TAUMANA 1978
Árið 1978 samþykkti Hveragerði
Brattahlið í Hveragerði. Stofnanir
Gísla eru skráðar eigendur fasteigna
númer 9,11,13,14,15,16,17,18,20 og
22.