Pressan - 16.05.1991, Síða 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 16. MAl 1991
19
allt um tlppi
Maöurinn hefur stærsta
tippi prímata, en er meö
smátt tippi miðað viö
margar aðrar dýrategundir.
Meðal-tippi á nauti er til
dæmis sex sinnum lengra
en tippi mannsins, fíllinn
hefur tíu sinnum lengra
tippi og meðal tippi á hval
er um tveir metrar.
Tippi mannsins hefur eng-
an vöðva og ekkert bein.
Þegar það harðnar og
stækkar hleypur blóð út í
þrjú hólf úr frauðkenndum
svampvef sem umlukinn
eru bandvefshimnum. Dýr
sem hafa stærri tippi en
maðurinn þurfa hins vegar
bein til að halda tippinu
uppi svo þau komi þeim inn
í leggöng kvendýrsins. Sig-
urður Hjartarson, sá þekkti
tippasafnari, hefur til dæm-
is búið til kennaraprik úr
beini úr tippi hvals.
Tippi eru misstór. Slök
tippi geta verið allt frá 5
sentimetrum uppí 18
sentimetra. í risstöðu get-
ur tippið hins vegar orðið 9
til 25 sentimetrar. Meðal-
lengd á slöku tippi er um 9
sentimetrar og á stinnu
tippi um 15 sentimetrar.
Það er ekki beint samband
á milli lengdar tippisins í
slakri stöðu og þegar það
rís. „Lítil tippi stækka
mest" eins og Eggert Þor-
leifsson kvað.
Þrátt fyrir lífseigar sögur
hafa allar læknisfræðilegar
rannsóknir sýnt fram á að
enginn kynstofn mannkyns
hefur stærri tippi en aðrir
kynstofnar.
Stærsta þekkta tippi
seinni ára er tippi klám-
myndaleikarans John
Holmes. Það var taliö um
25 til 30 sentimetrar. John
Holmes dó fyrir skömmu
úr alnæmi, sem hann hefur
eflaust smitast af við allan
hamaganginn í kringum
tippi hans.
Truman Capote hafði þá
sögu eftir Marilyn Monroe
að Errol Flynn hafi eitt sinn
spilað lagið: „You Are My
Sunshine" á píanó með
tippinu á sér. Errol Flynn var
talinn hafa eitt af þremur
stærstu tippum Hollywood
á sínum tíma. Hin tippin til-
heyrðu Charlie Chaplin og
Humprey Bogart.
Fáum sögum fer af stórum
tippum íslenskum. Þó er
lífseig saga um íslenskan
prest sem hafði svo stórt
tippi að hann gat ekki valið
sér starf sem krafðist þess
að hann gengi í buxum.
Tippi Grettis Ásmunds-
.sonar er hins vegar þekkt i
af því að hafa verið lítið
þegar stúlka nokkur gekk j
fram á hann sofandi. Þegar i
hún hló að því hvað tippið
var lítið greip Grettir hana
umsvifalaust til sín, sarð
hana og kvað vísu á með-
an.
Flestir menn óttast að þeir
hafi of lítið tippi. Stórt tippi
er tákn um mikla karl-
mennsku og menn með lítið
tippi þjást oft af kynferðis-
legu óöryggi. Flestar konur
segja hins vegar að stærð
tippisins skipti ekki miklu
máli varðandi frammistöðu
karlmannsins í bólinu. Sníp-
ur konunnar liggur á ytri
hluta skapanna, svo lítil
tippi örva hann ekki minna
en stór. Kona sem vön er
stórum tippum tekur þó eft-
ir því þegar hún hefur mök
við mann með lítið tippi.
Það er mismunandi hvað
menn þurfa mikið áreiti til
að tippið harðni og stækki.
Yngri menn þurfa til dæm-
is yfirleitt minna áreiti en
eldri. Stinning verður ekki
alltaf vegna kynferðislegs
áreitis. Erting af þröngum
gallabuxum eða titringur
frá vélknúnum ökutækjum
geta til dæmis valdið
stinningu. Það síðarnefnda
er ástæöa þess að lang-
ferðabílstjórar hafa oft það
sem Ameríkanar kalla
„diesel dick", sem líklega
mundi vera þýtt trukka-
tippi á íslensku.
Sáðfrumurnar eru aðeins
um tvö prósent af sæðis-
vökvanum. í vökvanum eru
um þrjátíu og tvö mismun-
andi efni; meðal annars
C-vítamín, B12-vítamín,
sink, brennisteinn og kal-
íum. Sáðfrumurnar líkjast
halakörtum í útliti, eru með
haus, háls og hala. Á átj-
ándu öld töldu menn sig
geta greint pínulitlar mann-
verur í sáðvökvanum og
ályktuðu að maðurinn fram-
leiddi þær en sendi þær síð-
an í fóstur inn í konuna.
Eistun, sem framleiða
sæðið, hanga í pungnum.
Ástæðan fyrir því að þau
hanga þar er að til þess að
framleiða sáðfrumur þarf
hitastigið að vera örlítið
undir líkamshita. í miklum
hita slaknar því á vöðva-
lagi sem liggur um pung-
inn og það skreppur sam-
ingu án þess að fá sáðlát.
Eftirsáðlát skreppurtippið
aftur saman. Tippi sumra
karla getur harðnað nær
strax aftur eftir sáðlát en
flest tippi þurfa um tutt-
ugu mínútna hlé.
Þó það sé fátítt, getur það
gerst að tippið dragist ekki
saman eftir sáðlát og full-
nægingu. Það er kallað reð-
urspenna. Ef ekkert er gert
við þessu í nokkra klukku-
tíma geta afleiðingar orðið
þær að frauðkenndu
svampvefirnir í tippinu
skemmast. Ráðið við reður-
spennu er að sprauta lyfi í
tippið sem fær æðarnar til
að víkka út. Þá hjaðnar
spennan. Þekktasta fórnar-
lamb reðurspennu
er sjálfsagt gríski
guðinn Príapus,
sonurekki
ómerkilegri
guða
og framkallað með því
gervistinningu. Þá eru og til
gervitippi fyrir þá sem hafa
misst sitt eigið vegna sjúk-
dóma eða slysa. Þau eru þó
frekar notuð bólfélaganum
til ánægju en þeim sem ber
þau.
Konur geta gert sór upp
fullnægingu en körlum er
það tæknilega næstum
ómögulegt. Konur geta
einnig orðið barnshafandi
án þess að hafa fengið full-
nægingu en karlar gátu
ekki, fyrir tíma sæðis-
banka og glasafrjóvgunar,
getið konu barn án þess að
hafa fengið fullnægingu. Ef
til er náttúrleg ástæða fyrir
knýjandi þörf karlmanna
fyrir að standa sig í rúminu
er þetta líklega hún.
Tippi í ýmsum myndum er
velþekkt frjósemistákn í
næstum öllum trúarbrögð-
um. í frumstæðari trúar-
brögðum birtist tippið sjálft
en í seinni tíma trúarbrögð-
um ertáknmynd þess betur
falin. Kirkjuturnum hefur
þannig verið líkt við stinnt
tippi og í anda þess var Hall-
grímskirkju líkt við „himna-
böll" í þekktu níðkvæði um
bygginguna. Þá hafa tákn-
fræðingar, og kannski ekki
síst kvenfrelsis-fræðingar,
fundið tippatákn á ólíkleg-
ustu stöðum. Franskar
brógettur, eldflaugar,
jafnt Scaud og Patriot,
varalitir, Havana-vindlar,
skýjakljúfar, Eiffel-turninn,
þýskar pulsur.
Allt eru þetta tippi að
meira eða minna
leyti.
an i kuldum. Þannig er
hitastiginu stjórnað til að
eistun séu alltaf jafn klár í
sáðfrumu-framleiðslu.
Annað eistað, vanalega
vinstra eistað, hangir neðar
en hitt í pungnum. Það
varnar því að þau rekist
saman. Eitt það versta sem
hægt er að gera manni er að
sparka í punginn á honum.
Þó flestum þyki sársaukinn
ólýsanlegur þá hafa sumir
reynt að lýsa honum: „Það
er eins og einhver sé að rífa
úr manni magann með gler-
brots-hring á hverjum
fingri," er ein tillaga. „Eins
og að rýtingur sé rekinn upp
um endaþarminn," er önnur.
Fullnæging karlmannsins
varir í um tíu sekúndur. Það
er mögulegt, þó það sé fá-
títt að karlinn hafi sáðlát
án þess að fá fullnægingu
á sama hátt og það er fátítt
en mögulegt að fá fullnæg-
Díónísusar og
Afródídu.
Príapus var með
mikla og eilífa
stinningu og
asnar, tákn
lostans, voru
færðir honum
til fórnar.
Á hverri nóttu stinnist
tippið allt að fimm sinnum
og hver stinning varir í allt
að hálfa klukkustund.
Þetta gerist einnig hjá
þeim karlmönnum sem
eiga í vandræðum með að
fá tippið til að rísa í vöku.
Til eru ýmis ráð til að glíma
við tippi sem ekki vill rísa.
Algengast er að orsakirnar
séu sálrænar en það eru til
ýmis hjálparmeðöl fyrir þá
sem annað hvort vilja ekki
leita þeirra eða hafa ekki
þolinmæði til að bíða eftir
að þær finnist. Til eru reð-
ur-spelkur og eins þekkist
að siliconi sé sprautað í
tippið og þannig framkölluð
eilíf standpína. Þá eru fram-
kvæmdar aðgerðir þar sem
vökva er komið fyrir í blöðru
í kviðarholi karlsins. Hann
getur síðan pumpað þess-
um vökva út í túbu sem
grædd hefur verið í tippið
Þrátt fyrir aö karlmaðurinn I
hafi skilið eftir sig reður-
tákn út um allar trissur er
honum meinilla við að
sýna tippið á sér. Það liðu
áratugir frá því að fyrsti
beri kvenmaðurinn sást á
hvíta tjaldinu og þar til
tippi sást þar í fyrsta sinn.
Og þó bæði íslenskar leik-
konur og þekktar Holly-
wood-leikkonur komi
reglulega fram naktar
heyrir það til undantekn-
inga að karlleikarar sýni á
sér tippið. Ef það gerist þá
er það slappt en aldrei í
fullri stinningu. Ef slíkt sæ-
ist í kvikmynd færi hún
sjálfkrafa í dreifingu með
klámmyndum.
Til þess að koma í veg fyrir
að stinnt tippi sjáist í kvik-
myndum sem fara í al-
menna dreifingu hefur verið
búin til sérstök gerð kyn-
maka fyrir hvíta tjaldið. Þau
1
fara þannig fram að karl-
maðurinn er fullklæddur
meðan á forleiknum stend-
ur. Dæmi um þetta eru sen-
ur í Sea of Love þar sem Al
Pacino er fullklæddur og
snýr bakinu í myndavélina
til öryggis á meðan Ellen
Barkin er kviknakin. Grófara
dæmi af sömu sort er ein
þekktasta B-mynd allra
tíma, Kvenholli kúrekinn,
þar sem kúrekinn lá full-
klæddur ofan á kviknöktum
konum hist og her um villta
vestrið. Hann virtist ekki
einu sinni treysta sér til að
renna niður buxnaklaufinni.
ru uppiu KUmi
fyrir í öllum
trúarbrögðum
hafa fá þeirra
búið til sérstaka
sköpunarsögu
um það.
Yoruba-
ættbálkurinn
í Nígeríu kann
þó eina. Hún er
á þálundað
þegar skaparinn
var að móta
mann og konu
úrleirfestist
lítill afskurður
við aðra
leirveruna.
Síðanhefur
karlmaðurinn
gengiðmeð tippi framan á
sér.
Tippið hefur orðið síst fyrir-
ferðarminna í trúarbrögð-
um tuttugustu aldar, eins
og Freudisma og kvenna-
bókmenntum. Það er einnig
áberandi í rokkinu sem er
líklega áhrifamest af nýju
trúarbrögðunum. í Stjörnu-
bíói má nú sjá útfærslu Oli-
vers Stone á þekkasta at-
burði ævi Jims Morrison;
þegar hann sýndi tippið á
sér á tónleikum og var
dæmdur fyrir. Þó það komi
ekki fram í myndinni segir
sagan að hann hafi boðist til
aö sýna dómurunum tippið
í réttarsalnum. En grúppu-
pían Cynthia „Plaster" Caster
hefur náð lengst í að sam-
ræma rokk og tippadýrkun.
Á sjöunda áratugnum tók
hún gifsafsteypu af stinn-
um tippum allra rokkara
sem hún komst yfir. í safni
hennar eru afsteypur af
tippum Jimis Hendrix,
Jimmys Page og fleiri.
Gunnar Smári Egilsson
safnaði saman