Pressan - 16.05.1991, Side 21
21
LISTAPÓSTURINN
✓
Eg dvaldi í öðrum menningarheimi
segir Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfundur, kyrfilega staðsett í Breiðholtinu
„Ég breytti, bœtti og endur-
skodadi fyrri útgáfursagdi
Ingibjörg Haraldsdóttir rit-
höfundur í samtali við Lista-
póstinn. Nýlega kom út safn-
bók með áður útkomnum
Ijóðabókum Ingibjargar í
endurskoðaðri útgáfu en auk
þess geymir bókin nokkur ný
Ijóð og allmikinn bálk af
Ijóðaþýðingum, aðallega úr
spœnsku, en Ingibjörg er auk
þess að vera Ijóðskáld einn af
mikilvirkustu þýðendum
okkar. Hún er þessa dagana
að þýða seinna bindið afstór-
virki Dostojevskíjs, Karam-
asov brœðurna. En skyldi
það ekki vera einmanalegt
starfað vera þýðandi og Ijóð-
skáld?
„Jú að vissu leyti,“ segir
Ingibjörg. ,,En það er bara
svo skemmtilegt starf. Ég hef
vinnuaðstöðu hérna í kjallar-
anum og dvelst þar langtím-
um ein með tölvunni."
ÞAÐ HAFA VERIÐ LJÓÐIN
SEM KOMA TIL MÍN
Nú hefur liðiö langur tími á
milli bóka þinna en þú hefur
verið þeim mun ötulli við
þýðingarstarfið. Hefur þig
aldrei langað til að helga þig
meira skáldskapnum?
„Þýðingarnar eru mitt lifi-
brauð en mig hefur vissulega
langað til að skrifa meira
sjálf. Ég veit ekki hvað það
verður en hingað til hafa það
verið ljóðin sem koma til
mín. Ég er kannski ekki meiri
sagnamaður í mér en það.
Það er öðruvísi að fást við
þýðingar en að skrifa sjálf, en
það er þó ekki minna vanda-
samt og galdurinn er sá að
gera ekki minni kröfur til
sjálfrar sín.“
HÉLT AÐ LYGIN
VÆRI ANNARS STAÐAR
Eitt Ijóðanna í bókinni fjall-
ar um Moskvuár Ingibjargar.
Úr myndabók hugans —
Moskva
Svo ung
Svo fávís
og dansaði náttlangt
um strœtin
Hélt að lygin
vœri annars staðar
(brot)
Við lesturinn kemur manni
óneitanlega í hug einhvers-
konar uppgjör þitt við þenn-
an tíma:
„Já, þetta ljóð er satt að
segja eina ljóðið sem ég hef
ort um árin mín í Moskvu.
Þegar ég dvaldi þar orti ég
mjög lítið hverju sem það er
nú um að kenna. Ég hafði
sáralítið verið í útlöndum
þegar ég kom til Moskvu og
sá heimur sem blasti við mér ■
þar var svo nýr að ég þagn-
aði. Það örvaði mig ekki að
fara að yrkja á þessum tíma,
ég fékk kannski það sem kall-
að er menningarsjokk. Ég
orti þetta ljóð þegar ég fór til
Moskvu aftur og reyndar
Kúbu líka eftir allan þennan
tíma. Þetta ljóð og önnur í
sama dúr eru kannski öllu
heldur tilraun til uppgjörs en
því uppgjöri er langt í frá að
vera lokið.“
Veröld sem var
Á rauðu torgi
ídögun
Veröld sem var
og við áttum saman
(brot)
Oraði þig fyrir þeim at-
burðum sem eiga sér stað í
Sovétríkjunum í dag?
„Það var allt öðruvísi and-
rúmsloft. Við komum í þíð-
unni þegar Krútsjeff tíman-
um var að ljúka og það var
ekki fyrr en seinna að allt
varð jafn þungt í vöfum og
staðnað. Við áttum ekki
þessa draumsýn á þessum ár-
um sem kynslóðir vinstri
manna á undan okkur höfðu
átt. Þegar nýjabrumið fór af
hlutunum var margt sem
kom spánskt fyrir sjónir og
það varð ljóst að mörgu þurfti
að breyta og færa til betri
vegar en mig óraði ekki fyrir
því ástandi sem er í dag. Það
var margt jákvætt sem bar
fyrir augu á þessum tíma og
það var ótrúleg lífsreynsla
fyrir fólk úr smáþorpi eins og
Reykjavík að koma inn í stór-
borg með annan eins sæg af
leikhúsum, söfnum og sýn-
ingum."
ÉG HEF ALDREI
TILHEYRT NEINUM HÓPI
Ingibjörg lauk námi í kvik-
myndaleikstjórn frá Moskvu
árið 1969. Árið 1970 flutti
hún síðan með þáverandi
kúbönskum eiginmanni sín-
um til Kúbu og var búsett þar
í sex ár. Líkt og svo margir
námsmenn í austantjalds-
löndunum átti hún rœtur í
vinstri hreyfingunni hérna
heima. A þessum tíma voru
miklar hrceringar í Evrópu og
innrásin í Tékkóslóvakíu
markaði þáttaskil í sögu
vinstrihreyfingarinnar. Voru
námsmenn í Sovétríkjunum
ekki svolítið á skjön við jafn-
aldra sína hérna heima?
Kannski fulltrúar fyrir annan
tíma?
„Jú vissulega. Við lentum
þarna einhvernveginn á milli.
Ég tilheyrði ekki heldur þess-
ari frægu SÍA kynslóð sem
átti í uppgjöri við Stalínstím-
ann. Það var allt liðið fyrir
mína Moskvutíð. Munurinn
er kannski fólginn í því að
sextíu og átta kynslóðin hef-
ur alltaf litið á sig sem sam-
Inga Elín sýnir í Gallerí List
,,Ég legg mikla áherslu á
samspil notagildis og list-
rœnnar fegurðar," segir Inga
Elín sem opnaði sýningu í
Gallerí List á laugardaginn.
Sýninguna, sem er önnur
einkasýning hennar, nefnir
hún Ljósbrot. Ljósið gegnir
mikilvœgu hlutverki í verk-
unum, enda er um að rœða
lampaskúlptúra, loftljós og
glermyndir í glugga, Verkin á
sýningunni eru ný en þó má
sjá skýr tengsl við fyrri verk
listakonunnar, einkum ímeð-
ferð sígildra forma og sam-
spili fegurðar og notagildis.
Inga Elín stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskólan-
um og síðar í Skolen for
brugskunst í Kaupmanna-
höfn. Þaðan lauk hún námi
úr keramík- og glerlistadeild
árið 1988. ,,Ég hef mikið unn-
ið við hönnun en möguleik-
arnir eru mjög litlir fyrir
hönnuði hér heima nema að
koma því sjálfur í fram-
leiðslu." Árið 1987 vann Inga
að hönnun ýmissa glermuna
fyrir Hadeland glerverk-
smiðjuna í Noregi. „Ég var
valin úr hópi nemenda í skól-
anum til að vinna fyrir Hade-
land en möguleikar fyrir
hönnuði eru ólíkt meiri er-
lendis." Árið 1988 hlaut Inga
Elín Kunsthandværkerprisen
í Kaupmannahöfn. Hún hefur
nú vinnustofu í gömlu verk-
smiðjuhúsunum á Álafossi og
rekur þar jafnframt lítið gall-
erí.
stæða heild en ég hef aldrei
tilheyrt neinum einum hópi
umfram annan. Ég dvaldi
þarna í allt öðrum menning-
arheimi en jafnaldrar mínir á
þessum tíma þó ég læsi auð-
vitað blöð og fengi fréttir að
heiman. Ég bætti síðan gráu
ofan á svart með því að flytj-
ast til Kúbu að námi loknu.
Þegar innrásin í Tékkóslóvak-
íu var gerð 68 var ég uppi í
fjöllum á Kúhu ásamt manni
mínum sem var að gera
heimildamynd. Ég var því
með hugann bundinn við allt
aðra hluti."
NÁMSVALIÐ VAR
ÚT í BLÁINN
Nú hefur þú aldrei unnið
viö kvikmyndaleikstjórn.
Voru það ekki vonbrigði eftir
svona langt nám á þoí sviði?
„Námið sem slíkt nýttist
mér aldrei beint enda var
námsvalið á þessum tíma al-
gerlega út í bláinn. Þegar ég
held út til náms árið 63 var
ekki einu sinni komið sjón-
varp hérna heima. Þetta var
því ekki það sem í dag væri
kallað praktiskt nám. Á
Kúbuárum mínum vann ég
við aðstoðarleikstjórn í leik-
húsi í Havana. Og svo hef ég
skrifað um kvikmyndir í
Þjóðviljann hérna heima."
Einn svona útúrdúr. Ég sá
að eitt Ijóðið í bókinni fjallar
um Breiðholtið.
Breiðholt (brot)
Einhver önnur en ég
gæti átt þessa úthverfu
daga
svipgrátt sumarið
reykvískt regnið
og vonina þunga til flugs
meðan rólurnar ískra
Ertu farin að gera Breið-
holtið upp líka?
„Það getur vel verið. Ljóðið
er svona úthverfablús en ég
er samt kyrfilega staðsett hér
enn sem komið er.“
Rúrek
djasshátíö
í lok maí
Tilgangurinn er ad
kynna sem flestar
tegundir
djasstónlistar
Mikil djassveisla verður á
vegum Ríkisútvarpsins,
djassdeildar FÍH og Reykja-
víkurborgar dagana 26. maí
til 2. júlí. Hátíðin er samnor-
rœn og styrkt af Nordjazz. Á
hátíðinni verður lögð áhersla
á að kynna sem flestar teg-
undir djasstónlistar og verða
þáttakendur frá öllum Norð-
urlöndum.
Erlendir þátttakendur
verða alls fimmtán og má þar
m.a. nefna Karin Krog eina
virtustu djasssöngkonu Norð-
urlanda. I för með Krog verð-
ur píanóleikarinn Per Husby.
New Jungle Trio er frá Dan-
mörku og er eins konar útibú
stærri frumskógarsveitar þar-
lendrar. Forsprakki sveitar-
innar Pierre Dörge ætlar að
æfa upp samnorræna 14
manna sveit og leiða hana í
gegnum nokkur verka sinna
á lokatónleikum Rúrek í
Borgarleikhúsinu 2. júlí. Kar-
in Krog mun einnig koma
fram með samnorrænu sveit-
inni á lokatónleikunum og þá
undir stjórn Pers Husby. Aðrir
útlendingar sem leika með Is-
lendingunum á hátíðinni eru
danski tenórsaxófónleikar-
inn Bent Jædig sem hefur um
áratugaskeið verið einn
fremsti saxófónleikari Dana,
sænski trompetleikarinn Ulf
Adaker og finnski sving-klar-
inettleikarinn Pentti Lasanen
sem kemur við þriðja mann.
Þá er ótalin eina fullskipaða
hljómsveitin sem kemur í
heimsókn en það er færeyska
„Fusion" hljómsveitin
Plúmm en hún hefur undan-
farið verið fulltrúi Færeyinga
víða um Norðurlönd. Alls
verða á dagskrá Rúrek ríflega
fimmtíu uppákomur víðsveg-
ar um bæinn utandyra sem
innan. Öll kvöld verður boðið
upp á lifandi tónlist og eru
það veitingahúsin Tveir vinir,
Púlsinn, Djúpið og Kringlu-
kráin sem verða með djass-
músík hátíðardagana. Auk
þessa verða tónleikar á Hótel
Borg flesta dagana.