Pressan - 16.05.1991, Blaðsíða 24
24
FIMMTUDAGUR PRESSAN 16. MAÍ 1991
Er ástin
besta
ástsðan
faraí
vinnuna?
Ástarsamband á vinnustað getur kostað þig meira en rifna skyrtu.
Bölvun og sæla þess að sofa hjá
vinnufélaganum. Hvernig það getur
endað með skelfingu eða endalausri
hjónabandssælu. Og hvernig það er
að hrífast af og giftast vinnufélaganum
og komast síðan að því að þú vinnur
ekki bara með ,manninum þínum
heldur hjákonunni hans líka.
m "z wm mm mm . i
Helgi Biörasson og Vil-
borg Holldórsdóttir; loik-
listargydjan kynnti þau.
Fyrsti dagurinn í vinnunni er
alltaf sá besti, þó ekki sé nema
fyrir þá einu ástæöu, að þér
gefst tækifæri til að mæla út
alla nýju vinnufélagana af hinu
kyninu. Það getur verið mun
skemmtilegra að spá í strákana
í vinnunni en á barnum, þó ekki
sé nema vegna þess, að þeir
drafa ekki í eyrun á þér og slefa
á hálsinn á þér. Þú getur líka
verið viss um að þið eigið eftir
aö kynnast nánar. Spurning er
bara hversu mikið nánar.
Það er eiginlega alveg ótrú-
legt, á þessum síðustu og verstu
tímum sem við lifum á, þar sem
fólk er tengdara vinnunni en fé-
lögum sínum, að reynt skuli að
aðskilja þetta tvennt; vinnu og
ástarsambönd. Fyrirtæki sem
leggja bann við samböndum
milli starfsfólks síns gera ekkert
annað en ýta undir allskyns
leynimakk og pukur, sem
kannski væri betra að vera án á
vinnustað. En það er auðvitað
þar sem ástarsambandið þrífst.
Það vita allir, hvort sem þeir
vilja kannast við það eða ekki,
að daður blómstrar á vinnustöð-
um. Oft er það ekkert annað en
saklaust krydd og lífgar upp á
gráan hversdagsleikann. Gerir
það auðveldara að vakna á
morgnana og vinnuna skemmti-
legri.
LOSTINN EYKST EF
AÐDRAGANDINN ER LANGUR
Þar sem fæst ástarsambönd
enda jafn ánægjulega og þau
byrjuðu getur verið vissara að
halda kynnum sem byrja á
vinnustað sem lengst á þessu
fyrsta daðurstigi. Leyfa því að
þróast á vikum og mánuðum,
áður en fyrsta skrefið er stigið.
Þú fylgist með honum á hverj-
um degi, dregur allar samræður
á langinn af minnsta tilefni og
reynir, svo lítið beri á, að komast
að sem mestu um hans kvenna-
mál. Þegar kynnin hafa náð að
þróast í dálítinn tíma geturðu
farið að stinga upp á því að þið
farið saman út í hádeginu eða
fáið ykkur í glas eitthvert kvöld-
ið, þegar þið hafið bæði verið að
vinna frameftir. Þessi daglegu
samskipti auka löngun ykkar
beggja jafnt og þétt, þar til þú
ákveður að stíga skrefið til fulls.
Vertu viss, að það er óhætt.
Lostinn sem leysist úr læðingi
eftir þennan daðursfulla og
langa aðdraganda er þess virði
að beðið sé eftir honum. Fyrsta
stefnumótið með vinnufélaga er
ekkert venjulegt fyrsta stefnu-
mót. Þið eruð bæði orðin jafn
óþolinmóð að bíða. Og biðin er
eins og langur forleikur, hún ger-
ir ekki annað en æsa upp löng-
unina.
Er hægt að ímynda sér nokk-
uð eins frábært og að vinna á
sama stað og elskhuginn? Sjá
hann á hverjum degi. Allan dag-
inn. Vita alltaf af honum ein-
hvers staðar nálægum. Eða
hvað? Ekki þegar samband ykkar
er orðið á allra vitorði og þú tek-
ur skyndilega eftir því að bros
hans er orðið að geiflu. Ekki
bætir úr skák að áður velþegnar
ábendingar hans um ýmislegt
hvað varðar vinnuna eru farnar
að fara ískyggilega í taugarnar á
þér og minna meira á óþolandi
afskiptasemi.
ÁSTFANGNIR VINNUFÉLAGAR
Það er miklu algengara en
margir kannski ætla að hjón
kynnist á vinnustað. Satt að
segja þá eru ansi miklar líkur á
því að þú hittir tilvonandi maka
þinn í vinnunni. Ef þú hefur ekki
þegar fundið hann í menntó eða
á fyrstu árunum í háskólanum.
Samkvæmt einhverri bandarískri
könnun er næst algengast að
makar kynnist þar og ætti ekki
að koma á óvart þegar haft er í
huga að flestir eyða mestum
tíma sínum í vinnunni. Og ef það
er ekki beinlínis á vinnustað sem
fólk kynnist, þá er það gjarnan í
gegnum vinnuna.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
myndast með fólki kynni er end-
að hefðu í hjónabandi.
EINKALÍFIÐ í VINNUNNI
Þegar kynni fólks á vinnustað
enda með hjónabandi vaknar sú
spurning hvernig vinnufélagarnir
taka því. Hvort ekki sé fylgst
með þróun sambandsins í smáu
og stóru og hvort það sé ekki
óþægiiegt.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
segist ekki hafa velt því mikið
fyrir sér, hvað vinnufélagarnir
voru að hugsa, þegar ástin
blossaði skyndilega upp milli
hans og Elínar Sveinsdóttur. Því
þó þau hafi verið búin að vinna
lengi saman á Stöðinni og hún
búin að handfjatla andlitið á
honum ótal sinnum í förðunar-
stólnum segist hann ekki hafa
tekið sérstaklega eftir henni fyrr
en hún byrjaði á fréttadeildinni,
fyrst sem skrifta og síðan út-
sendingarstjóri frétta. „Hvað
vinnufélaganir voru að hugsa
skipti mig engu máli," segir hann
og bætir því við að þetta hafi
verið broslega þægilegt gagn-
ýart þeim.
AFHJÚPANDIÁSTARBLOSSAR
Sigrún Edda Björnsdóttir leik-
kona kynntist sambýlismanni
sínum Axel Hallkeli Jóhannes-
syni, betur þekktur sem Langi
Seli, í leikhúsinu, þar sem hann
málar leiktjöld og býr til leik-
muni, en hún, að sjálfsögðu, leik-
ur. Þau hittust fyrst þegar bæði
voru að vinna við sýninguna
Síldin er komin í Skemmunni og
vinna nú bæði í Borgarleikhús-
inu.
fréttamaður kynntist sinni konu,
Elínu Sveinsdóttur, förðunar-
dömu og nú útsendingarstjóra, í
vinnunni á Stöð 2. Katrín Bald-
ursdóttir útvarpsmaður og Eirík-
ur Jónsson fréttamaður kynnt-
ust á Dagblaðinu-Vísi og Hjálm-
ar Jónsson blaðamaður kynntist
eiginkonu sinni Ingu Klemens-
dóttur setjara á Morgunblaðinu.
Þetta eru fáein dæmi úr fjöl-
miðlaheiminum, en fjölmiðla-
menn eru ekki eina stéttin sem
giftist vinnufélögunum. Þórður
S. Óskarsson, starfsmannastjóri
hjá Eimskip, sagði að það væru
nokkur dæmi um að þar hefðu
Sigmundur Emir Rúnars-
son og Elin Sveinsdóttir
höfðu unnið saman lengi
óður en ústin blossaði
skyndiloga upp; i frétt-
unum.
Margrét öraélfsdóttir og
Pér Eldon; sameinuð i
Sy kumtolun um.
Sigrún segist ekki hafa verið
að velta mikið fyrir sér hvað
vinnufélagarnir voru að hugsa
þegar sambandið var að byrja
að þróast, þó þau hafi haldið því
leyndu í fyrstu. „Við lögðum okk-
ur fram um að halda því leyndu,
til að byrja með. Fannst það eðli-
legt, því ef upp úr hefði slitnað
hefðum við samt haldið áfram
að vinna á sama staðnum. En
það var auðvitað ekki hægt
lengi. Ekki þegar ástarblossarnir
fóru að skína úr augunum."
Það hefur ekki verið óþægi-
legt að stofna til sambands á
vinnustað?
„Nei. Þetta var spennandi,
eins og alltaf þegar maður verð-
ur ástfanginn."
Þó nokkuð virðist vera um að
fólk stofni til sambanda í leik-
hús- og listaheiminum, en það
má líka telja víst að manni finn-
ist það bara, af því það fólk er
meira í fjölmiðlum en margar
aðrar stéttir. Sigurður Hróarsson
tilvonandi leikhússtjóri Borgar-
leikhússins og Lára Stefánsdótt-
ir dansari kynntust í gegnum
leikhúsið, Margrét Örnólfsdóttir
og Þór Eldon drógu sig saman í
Sykurmolunum og annað hljóm-
sveitarpar er Andrea Gylfadóttir
og Þorvaldur Þorvaldsson í
Todmobile.
PÓLITÍSK ÁST____________________
Rómantíkin blómstrar á flest-
um stöðum atvinnulífsins, ef
ekki öllum. Meira að segja á Al-
þingi og það milli stríðandi fylk-