Pressan


Pressan - 30.05.1991, Qupperneq 8

Pressan - 30.05.1991, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. MAl' 1991 Fjárfestingarfélag íslands heyr nú harða baráttu við erfiða drauga úr fortíðinni. Ýmis áföll undanfarinna ára flækjast fyrir félaginu og ber þar hæst 117 milljóna króna tap á árinu 1989, að núvirði, vegna afskrifta hlutabréfa og viðskiptabréfa í Vogalaxi. Á síðasta ári voru 15 millj- ónir til viðbótar afskrifaðar vegna Vogalax. Nýverið féll síðan undirréttardómur þess efnis að félag- inu bæri að standa við sjálfskuldarábyrgð frá 1987 vegna lána Framkvæmdasjóðs til Vogalax. Að óbreyttu þýðir dómur þessi að félagið þurfi að greiða sjóðnum um 23 milljónir króna. Félagið hefur áfrýjað dómnum en ef mál- ið tapast í hæstarétti hefur félagið tapað alls að núvirði um 155 milljónum króna á Vogalaxi. Arsreikningar Fjárfestingarfé- lagsins 1985 til 1990 tala sínu máli um reynsluna af |)áttt()ku í áhættu- verkefnum. 1985 var tap ársins um 34 milljónir að núvirði. Fyrirtækið afskrifaði áhættufé og kröfur upp á um 25 milljónir króna vegna stofn- unar fyrirtækisins Vogunar hf. Þar fóru í vaskinn tilraunir til að endur- reisa trésmiðjuna Víði. Næstu tvö ár komu út með óverulegum hagnaöi en hagnaður af reglulegri starfsemi 1988 varð um 24 milljónir. 65 MILUÓNA TAP Á 6 ÁRUM Með því að sjálfur reksturinn 1989 skilaði núlli og að hátt í 120 milljónir króna að núvirði í hlutabréfum og viöskiptabréfum í Vogalaxi voru af- skrifaðar kom árið út með tapi sem nam yfir 50 prósent af veltu fyrir- tækisins. Um leið lækkaði eigið fé fyrirtækisins að núvirði úr 274 í 148 milljónir eða um 126 milljónir króna. I lok ársins 1989 hætti Gunnar Helgi Hálfdánarson hjá fyrirtækinu og við starfi hans tók Fridrik Jó- hannsson. Á árinu 1990 vænkaðist hagur fyrirtækisins talsvert sam- kvæmt ársreikningi. Skammtíma- skuldir drógust saman, verðbréfa- sala jókst og launaútgjöld stóðu í stað. Fjármagnstekjur voru vel um- fram fjármagnsgjöld og loks juku eigendur fyrirtækisins hlutafé þess um 60 milljónir króna. Þó þurfti að afskrifa enn 13 milljónir króna vegna Vogalax og í heild yfir 15 milljónir króna. Á móti kom að fyr- irtækið seldi eignir fyrir samtals 15 milljónir og á endanum kom árið út með um 34 milljón króna hagnaði. Þegar þessi sex ár eru reiknuö saman hefur orðið alls um 75 millj- ón króna hagnaður af reglulegri starfsemi. En vegna afskrifaðra áhættufjármuna og viðskiptakrafna er raunveruleg útkoma hins vegar um 65 milljóna króna tap. 23 MILLJÓNA REIKNINGUR FRÁ FRAMKVÆMDASJÓÐI Aftarlega í ársreikningi Fjárfest- ingarfélagsins fyrir síðasta ár var að finna stuttan kafla um ábyrgðir: ,,Á árinu 1987 samþykkti stjórn Fjárfestingarfélags fslands að félag- ið gengi í sjálfskuldarábyrgð vegna lánafyrirgreiðslu Framkvæmda- sjóðs til Vogalax hf. í árslok 1990 nam fyrirgreiðslan 19,8 milljónum króna. Framkvæmdasjóður hefur höfðað mál gegn félaginu fyrir bæj- arþingi Reykjavíkur til greiðslu skuldarinnar. Lögmenn og stjórn Fjárfestingarfélags íslands telja að ábyrgðin sé úr gildi fallin, þar sem umrædd ábyrgðaryfirlýsing hafi verið bundin ákveðnum lausnarskil- yrðum og að hún félli niður þegar framkvæmdum við fiskeldisstöð Vogalax hf. lyki og nýtt mat um veð- hæfni eigna Vogalax hf. lægi fyrir." Dómur féll nýverið í máli þessu Framkvæmdasjóði í vil. Samkvæmt dómnum skal félagið greiða Fram- kvæmdasjóði um 23 milljónir króna. Við slíkt una núverandi stjórnendur ekki og hafa áfrýjað málinu. Mál Framkvæmdasjóðs gegn fé- laginu ber með sér að þótt félagið hafi verið langstærsti eigandi Voga- lax hafi ríkt sambandsleysi milli stjórnenda fyrirtækjanna, þótt fé- lagið ætti tvo menn í stjórn Vogalax, Hörð Jónsson og GunnarJ. Friðriks- son. VÉLRITUÐ EN ÓUNDIRRITUÐ VIÐBÓT Af texta ábyrgðaryfirlýsingarinn- ar frá 30. júní 1987 má ráða að ábyrgðin hafi átt að falla úr gildi þegar framkvæmdum við stöðina lyki þá um haustið og nýtt mat um fullnægjandi veðhæfni lægi fyrir. En málin þróuðust á óvæntan hátt sam- kvæmt dómnum. í september 1987 gaf stjórn Voga- lax út nýtt skuldabréf til Fram- kvæmdasjóðs og undirrituðu skjalið stjórnarmenn Vogalax og Gunnar MEÐ VEÐ í TÍVÓLÍINU Tívóliið i Hverageröi. Fjárfestingarfélagið keypti bréf af Sigurði Kárasyni og rukkar Ólaf Ragnarsson nú um 40 til 45 milljónir króna. Máliö situr fast fyrir dómstólum. / fimm ár liefur Fjárfestingurfé- higið leitast við að rukka Olaf Ragnarsson lögfneðing, eiganda tívólísins í Hveragerði um afhorg- anir og vexti af skuldabréfum. sem upphaflega voru í liöndum fyrri eiganda tívólísins. Siguröar Kárasonar. Tilraunir til samninga hafu mistekist. Krafa í þrotalni rekstraraðila típölísins, Skemmti- garðsins hf, er vonlaus þar sem fyrirtœkið er eignulaust. Krafa um nauðungarsölu á fasteign tívólís- ins, sem er í persónulegri eigu Ol- afs, hefur setið föst fyrir dómstól- um í nokkur ár. Fjárfestingarfé- lagið leitast í máli þessu við að innheimta 40 til 45 miUjónir króna. 1985 voru gefin út 13 skuldabréf á 1 milljón hvert þar sem Sigurður er skuldareigandi en fyrirtæki hans Skemmtigarðurinn sf. greið- andi. Bréf þessi voru með veði í tækjum og lóð tívólísins. Bréfin keypti Fárfestingarfélagiö síöan af Siguröi. Siguröurseldi Olafi Ragn- arssyni lögfræðingi tívólíið, en af einhverjum ástæðum mun Úlafur hafa komið af fjöllum þegar bréf þessi komu uþpá yfirboröiö. Hann liafði hins vegar ráðist í að byggja hús yfir lóðina og til að geta opnaö nýjan skemmtigarö í fasteigninni sá hann sig knúinn til að taka á sig skuldbindingar vegna bréfanna. Dæmið gekk ekki upp hjá Olafi og í júlí 1988 var fyrirtæki hans, Skemmtigarðurinn hf., tekiö til gjaldþrotaskipta. Kröfur í búið eru alls að núvirði um 220 milljónir. Námu kröfur Fjárfestingarfélags- ins 28,5 milljónum eða um 42 milljónum að núvirði. Auk gjaldþrots krafðist félagið þess áður að fasteignin á lóðinni yrði seld á nauðungaruppboði. Þaö flækir málið að Jóðin og fast- eignin eru skráð á Ólaf persónu- lega. Engu aö síður mun hafa ver- ið gert einhvers konar samkomu- lag sem fól í sér að veðin áður- nefndu færðust yfir á fasteign Ol- afs. Annað og síðara nauðungar- uppboð á eignumOlafs átti að fara fram í ágúst 1988. en vegna mót- mæla Ólafs var ákveðið að reka sérstakt uppboðsréttarmál. í mál- inu benti Olafur m.a. á að fasteign- in geti ekki falliö undir uppboðs- andlagið, því þegar skuldabréfin komu til voru engar fyrirætlanir uppi um að byggjaá lóðinni og síst af öllu aö byggt yrði yfir hana alla. Og að kaup Fjárfestingarfélagsins á umræddum bréfum séu refsi- verð, þar sem meöþeim hafi verið brotin okurlög frá 1960. Dómari í uppboðsrétti á Selfossi. Þorgeir Ingi Njálsson. úrskurðaði í september 1988 gegn Ólafi og þar með að uppboðið skyldi fara fram. Ólafur áfrýjaði niðurstöðu upp- boðsréttarins til hæstaréttar. Þar hefur málið ekki verið tekið fyrir. Fasteignin er metin á alls 83 millj- ónir en krafa félagsins er 40—45 milljónir króna. í bókhaldi þess er krafan hins vegar bókfærð á 18 milljónir að sögn forstjóra félags- ins.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.