Pressan - 30.05.1991, Blaðsíða 21
að er í raUn allt með kyrrum
kjörum í borgarstjórnarflokki sjálf-
stæðismanna eftir slaginn fyrir
tveimur vikum. Nú
nota fulltrúar í borg-
arstjórnarflokknum
tímann til að átta sig
á stöðunni. Það er
ljóst að Árni Sig-
fússon er með níu
örugg atkvæði og
talið er að tveir aðrir muni kjósa
hann ef til atkvæðagreiðslu kemur.
Miðað við stöðuna í dag er því ótrú-
Iegt að af því verði þar sem líklegast
er að Árni verði valinn án atkvæða-
greiðslu. En enn eru eftir nokkrar
vikur af þeim tíma sem sjálfstæðis-
menn gáfu sér og margt getur
breyst. ..
að er auðséð að Herluf Clau-
sen er orðinn þreyttur á að vera eitt
af skítugu börnunum í íslenskum
bisness. Hann hefur sett á stofn
nokkuð sem hann kallar Akademíu
Café Óperu. Samkvæmt fréttatil-
kynningu frá Herluf, sem er eigandi
Óperu, þá eiga sæti í þessari aka-
demíu þeir tiu forystumenn í ís-
lenskum viðskiptum sem hafa náð
lengst og hafa ótvírætt borið hróður
sinn og sinna fyrirtækja víða um
heim. I akademíunni eru sam-
kvæmt fréttatilkynningu Herlufs
stór hluti af landsliði íslenskra for-
stjóra: Valur Valsson bankastjóri
íslandsbanka, Friðrik Pálsson for-
stjóri SH, Jón Ásbergsson fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, Ingi-
mundur Sigfússon stjórnarfor-
maður Heklu, Helgi Jóhannsson
forstjóri Samvinnuferða, Lýður Á.
Friðjónsson framkvæmdastjóri
Vífilfells og nýorðinn forstöðumað-
ur Coca-Cola á Norðurlöndum,
Magnús Oddsson markaðsstjóri
Ferðamálaráðs, Baldvin Jónsson
markaðsstjóri Stöðvar 2, Þorgeir
Baldursson forstjóri Odda og svo
síðastur meðal jafningja, sjálfur
bankastjórinn í Bröttugötu, Herluf
Clausen .. .
largt bendir til þess að
Hreinn Loftsson lögmaður verði
aðstoðarmaður Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra,
en Hreinn komst til
metorða í gegnum
starf sitt sem aðstoð-
armaður Matthías-
ar Á. Mathiesen í
utanríkisráðuneyt-
inu. Síðustu ár hefur
Hreinn starfað sem lögmaður, með-
al annars fyrir Landsvirkjun og
Landsbankann...
EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101
*
£
£
£
£
£
£
£
£
£
3
Ótrúlegt
i
Verð kr. 39,900,-
Stgr.
Enn á ný brjótum við verðmúrinn. Og
nú með hágæða myndsendir á hreint
ótrúlega góðu verði. Sendir A4 síðu
á 20 sek., Ijósritar og m.fl. EFAX 101
er kjörið tæki fyrir smærri fyrirtæki
og heimili.
BALTI hf.
Opið laugardaga 10-16
Ármúla 1-108 Rvík-Sími (91)82555
I
k
s
>5
I
*
*
8
§
t»a
EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101 EFAX - 101
WC, HANDLAUG,
BAÐ og STURTUBOTN
á einstöku veröi.
Baðsett
ágóðuverði
Vegna hagstæðra samninga og magninnkaupa
á baösettum getum við boðið í einum pakka:
Suðurlandsbraut 20 - Sími: 91 -8 38 33
I