Pressan - 30.05.1991, Page 25

Pressan - 30.05.1991, Page 25
25 LISTAPÓSTURINN Ljóð 12 íslenskra skálda gefin út á dönsku Út er komin hjá Fiskers For- lag í Kaupmannahöfn bókin Ung Islandsk Lyrik/Ljóð ungraskálda. Bókin inniheld- ur ljóð 12 íslenskra skálda bæði í danskri þýðingu Guð- rúnar S. Jakobsdóttur og á ís- lensku. í bókinni eiga ljóð þau: Sigfús Bjartmarsson. Kristín Ómarsdóttir. Sjón, Gyrðir Elíasson, Bragi Ólafs- son, Elísabet Jökulsdóttir, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Anton Helgi Jónsson, Linda Vilhjálmsdóttir, Magnús Gezzon, Margrét Lóa og ísak Harðarson. Það er Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður sem myndskreytir bókina. ✓ Islensk samtímalist sýnd í virtu galleríi í Köln ,Djass, popp, diskó, allt er þetta i uppáhaldi hjá mér," segir Ellen Kristjánsdóttir. Sýning á íslenskri samtima- lisl verdur opnud í Kölnischer Kunstverein í Köln þann 7. júlí. Sýningin er hluti stœrra verkefnis á vegum 70 virtra sýningarsala þar sem œtlun- in er ad sýna samtímalist frá átján Evrópulöndum. Pad þykir mikill lieidur fyrir Is- lendinga ad hinn virti sýning- arsalur Kölnischer Kunstve- rein skuli hafa vaiid íslenska myndlist en sá stadur hefur á undanförnum árum verid í fararbroddi þýskra sýningar- sala. Undanfarin ár hefur borgin Köln einnig verið í forystu- hlutverki og um leið mið- punktur samtímalistar í Evr- ópu. Val listamanna á sýning- una var í höndum dr. Mari- anne Stockenbrand forstöðu- manns Kölnischer Kunstve- rein en hún nýtur mikillar virðingar fyrir ferskar og at- hyglisverðar sýningar. Á sýn- inguna völdust verk eftir Finnboga Pétursson. Tuma Magnússon. Rögnu Róberts- dóttur. Önnu Guðjónsdóttur. Hrein Friðfinnsson. Ingólf Arnarson og Kristján Guð- mundsson. Hingað til hefur verið erfitt fyrir íslenska myndlistar- menn að komast inn með sýningar á mikilvæga sýning- arstaði í Þýskalandi og gæti sýningin því haft afgerandi áhrif á kvnningu íslenskrar myndlistar í Þýskalandi og er um leið hvetjandi fyrir ís- lenskt myndlistarlíf þar sem frumkvæðið kemur alfarið frá Þjóðverjum sjálfum. Það er Listasafn íslands sem ann- aðist undirbúninginn af ís- lands hálfu. Djasshátíðin skapar vissa vorstemmningu ..Mér finnst áhuginn fyrir djassi vera mjög mikill en blödin heföu mátt kom meira til móts viö okkur í kynning- arstarfi fyrir og um hátíðar- dagana," sagöi Ellen Krist- j ■nsdóttir söngkona ísamtali viö Listapóstinn en djasshá- tíöin RúRek er nú í fullum gangi og hófust herlegheitin á Hótel Borg síöastliöinn sunnudag. Þá léku meöal annars Ellen Kristjánsdóttir og Flokkur mannsins hennar vid góöar undirtektir. ..Djasshátíðin skapar vissa vorstemmningu og mér þótti mjög skemmtilegt að koma fram með tveimur ólíkum hljómsveitum á opnuninni á sunnudaginn." En líturöu fyrst og fremst á þig sem djasssöngkonu? ,,Nei, ég hef mjög fjöl- breytilegan tónlistarsmekk, djass, popp, diskó, allt er þetta í uppáhaldi hjá mér. Það sem ég fæ út úr söngnum veltur fyrst og fremst á hljóðfæra- leikurunum og lagavalinu." Hvaö er framundan hjá þér í sumar? ..Við ætlum að reyna að spila eitthvað áfram í sumar þ.e. ég og Flokkur mannsins míns. Það stendur einnig til að fara út og spila í septem- ber undir nafninu Point Blank sem er nafn á sólóplötu Friðriks Karlssonar. Við mun- um þá kynna efni plötunnar. Síðan ætla ég ásamt Flokki mannsins míns í hljóðver og taka upp efni. Mezzoforte starfar síðan áfram öfugt við það sem margir virðast halda og þeir eru að fara að gefa út — segir Ellen Kristjánsdóttir í spjalli um tónlistina og sjálfa sig plötu." Er söngkonustarfiö fullt starf? ,,Já, sem dæmi um það þá á ég dóttur sem er sex mán- aða en ég byrjaði að syngja aftur þegar hún var tveggja vikna. Það er alltaf eitthvað að gerast. Mig langar mest til að taka mér frí núna fljótlega og sinna þessum þremur dætrum mínum." Nú varstu búsett ásamt Mezzoforte í London. Lagö- iröu sönginn alveg á hilluna þarm tíma? ,,Já við fórum allar eigin- konur hljómsveitarmeðlim- anna út með þeim. Það var bara si svona ákveðið einn dag og daginn eftir var pakk- að niður í tösku. Við konurn- ar bjuggum í mjög rólegu út- hverfi en eiginmennirnir voru ævinlega einhverstaðar annarstaðar á þeytingi. Mér leiddist í London og kunni ekki þá að meta þessi róleg- heit en horfi með söknuði til þessa tíma núna. Ég var búin að vera í mikilli lægð og var ekki tilbúin til að fara að syngja. Fyrir utan að ég söng með hljómsveit sem ég komst í tæri við gegnum aug- lýsingu en það var ömurleg og hallærisleg reynsla sem ég vil helst gleyma. Ef ég hefði verið lengur þarna úti er hugsanlegt að ég hefði sótt um í tónlistarskóla." Hvarflaöi aldrei þér aö leggja stund á klassískt söng- nám? ,,Ég var í söngnámi hjá kín- verskum prófessor við há- skóla í San Francisco er ég bjó þar hjá systur minni og svo hef ég aðeins verið við- loðandi það hérna heima líka. Ég skal viðurkenna að þegar ég heyri fallega sópr- anrödd verð ég mjög hrifin. Ég hlusta einfaldlega mjög lít- ið á klassíska tónlist þó að hún geti höfðað mjög mikið til mín. Tæknin er hinsvegar svo gerólík og mér finnst all- ur þessi hljóðstyrkur oft ónauðsynlegur af því að það er búið að finna upp míkra- fóninn," segir Ellen og glottir. Finnst þér gróska í dœgur- tónlist hérna heima? ,,Nei, mér finnst öllu heldur mjög dauft yfir öllu og lítið spennandi að gerast. Eg hef kannski ekki verið nægilega dugleg að sækja tónleika. Ég hef að vísu sótt tónleika með Sykurmolunum og mér finnst þau alveg æðisleg. Svo er KK með honum bróður mínum alveg frábær hljómsveit," seg- ir Ellen stolt. Nú eruö þiö systkinin bæöi viölodandi tónlist. Er þetta í genunum eöa uppeldinu? ,,Ég hef aldrei hugsað það þannig. Mamma hlustaði mikið á tónlist og svo kannski blundaði þetta í okkur." Mig rámar í viötal viö þig í Helgarpóstinum fyrir nokkr- um árum. Þá komstu fram meö svört sólgleraugu og sagöist vera baráttuglaöur kommúnisti? ,,Ha," segir Ellen eyðilögð á svipinn. „Ég mundi kannski ekki kalla mig kommúnista en ég útiloka ekki að ég hafi látið það flakka svona i hita augnabliksins. En ég get sagt þér það að ég er algerlega á móti þessari ríkisstjórn. Hún er algerlega óþolandi þessi tilhneiging að þurfa alltaf að skera niður hjá þeim sem eiga minnst. Síðan finnst mér húsnæðismálin fyrir neðan allar hellur. Það kemur mér alltaf undarlega fyrir sjónir að ekki sé hægt að gera ráð fyrir því að fólk geti leigt á sanngjörnu verði. Svo finnst mér illa búið að börnum í þessu þjóðfélagi og þar koma skólamálin fyrst upp í hug- ann. Ég mundi vilja gera það að tillögu minni að Ráðhúsið verði flutt í Austurbæjarskól- ann og börnin í Austurbæjar- skólanum í nýja ráðhúsið. Þeir sem hafa kynnt sér eitt- hvað viðhald á Austurbæjar- skóla ættu að skilja hvað ég á við.“ Nú var útflutningur dœgur- tónlistar eitt af áhugamálum fyrrverandi menntamálaráð- herra? „Ef fólk hefur góða tónlist fram að færa og vill koma henni á framfæri í útlöndum þá ætti það að ganga af eigin rammleik. Annars er þetta spilltur heimur og enginn leið að sjá það algerlega fyrir. Það er bara verst hvað það er mik- ið af tónlistarsorpi í gangi. Tónlist sem skýst upp á stjörnuhimininn í dag en er gleymd á morgun." Eitthvaö aö lokum Ellen? „Já, ég vil frið í heiminum. Þau börn sem hafa upplifað skelfingar stríðs ættu ekki að þurfa að upplifa annað eins aftur." Fjórar heimsfrægar þungarokksveitir á útitónleikum í Kaplakrika í Hafnarfirdi Stœrstu rokktónleikar sem haldnir hafa veriö hérlendis veröa í Kaplakrika þann 16'. Iti.júní. Þar munu koma fram fjórar erlendar hljómsveitir og tvœr íslenskar. Þungarokkhljómsveitirnar sem koma fram eru Poison, Slaughter, Quireboys. Hljóm- sveitin GCD eru Bubbi Mort- hens og Rúnar Júlíusson, þeir íélagarnir hafa nýlega tekið upp plötu saman og munu fara í hringferð kringum landiö í sumar og leika efni hennar fyrir fólkið á lands- byggðinni. Hljómsveitin Risa- eðlan mun einnig skemmta áhorfendum með sínum sér- stæða söng, fyndni og hljóð- færaslætti. Tónleikarnir sem eru liður í dagskrá Listahátíð- ar í Hafnarfirði eru að sjálf- sögðu undir beru lofti, hefjast á hádegi og standa fram á rauða nótt.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.