Pressan - 30.05.1991, Síða 30
Tilboð Hagvirkis verður meira
freistandi eftir því sem tann-
læknar þráast meira við, segir
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra.
Hagvirki
undirbydur
tannlækna og
tannrettmga-
sertrædmga
— sjáum fram á verkefna
skort í sumar fyrir mörg
af okkar bestu tækjum,
segir Jóhann Gunnar
Bergþórsson forstjóri
Heilsuhæliö
í Hveragerði
„Mér leið eins og
jarðarberjasultu“
— segir Þráinn
Sigurðsson, sem
gleymdist í viku
í leirbaði á
Heilsuhælinu í
Hveragerði á meðan
forstjórinn og
læknarnirdeildu
Ég gat mig hvergi hreyft og
undir lokin vissi ég ekki hvað
var ég og hvað var leirinn,
segir Þráinn sem segist
enn fá martraðir.
Nú geta auðkýfingar gist á
Óla Þ. Guðbjartssonar-svitunni
á Seraton-hótelinu í Helsinki.
Aðalsvítan I
Seraton-hðtelinu í
Helsinki skird 1
höfuðið a Óla P.
— ólýsanleg vonbrigði að
heyra að Óli Þ. sé ekki
lengur ráðherra, segir Hal-
vo Kikkanen hótelstjóri
22. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
Nýjar upplýsingar í Hafskipsmálinu
Hafskip varð
ekki gjaldþrota
— er nú í blómlegum rekstri í Karabtska hafinu
Ólafur Ragnar Grímsson var hætt kominn við utför Gandhis.
Olafur Ragnar Grímsson
Kastaði sér á
bálköst Gandhis
Hafskip lifirl Hafskip lifir! var hrópað í Hæstarétti i gær þegar i
Ijós kom að fyrirtækið er nú í góðum rekstri í Karabíska hafinu.
Nýja Delhí, 29. maí
Litlu mátti muna að ís-
lenski þingmaðurinn, Ól-
afur Ragnar Grímsson,
stórslasaðist er hann
gerði tilraun til þess að
kasta sér á bálköst Rajivs
Gandhi er útför hans fór
fram síðastliðinn laugar-
dag.
Samkvæmt fréttaskeytum
frá Indlandi mun íslenski
þingmaðurinn hafa gefið þá
skýringu á athæfi sínu að
hann væri fákunnandi um
indverskar útfarir. Hann
sagðist þó hafa séð fræðslu-
mynd í sjónvarpi um Indland
og þar hefði meðal annars
verið fjallað um að það tíðk-
aðist að fólk kastaði sér á
bálkesti og væri það virðinj*-
arvottur við hinn látna. Is-
lenski þingmaðurinn mun
hafa misskilið myndina eitt-
hvað því þetta er einungis
bundið við ekkjur hinna
látnu og er orðið afar fátítt í
seinni tíð.
Kongress-flokkurinn sýndi
íslenska þingmanninum
þakklæti sitt með því að
sæma hann heiðursmerki
flokksins og ekkja Rajivs
Gandhi, Sonja, tók í hönd
þingmannsins og þakkaði
honum tryggð við bónda
sinn.
Reykjavík, 30 maí
-------— ---------------------
„Eg er hræddur um að
það verði ekkert réttar-
hald úr þessu. Það væri
álíka gáfulegt og halda
áfram að rétta í morðmáli
eftir að líkið væri komið
fram fullfrískt og sprelllif-
andi,“ sagði Páll Arnór
Pálsson, sérstakur ríkis-
saksóknari í Hafskipsmál-.
inu, eftir að verjendur
hinna ákærðu höfðu leitt
fram sannanir um að Haf-
skip varð ekki gjaldþrota
heldur er það nú í blóm-
legum rekstri í Karabíska
hafinu.
,,Það er fyrrum forsvars-
mönnum Hafskipsálíka mikil
ráðgáta hvernig fyrirtækið
komst til Karabíska hafsins
og öðrum," sagði Björgólfur
Guðmundsson, fyrrverandi
forstjóri Hafskips.
„Auðvitað leikur okkur for-
vitni á að vita hið sanna í mál-
inu en ég dag gleðjumst við
fyrst og fremst yfir að sak-
sóknari hefur dregið kærurn-
ar til baka,“ bætti hann við.
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR er helst
hallast aö því að óprúttnir
bisnessmenn frá Mið-Amer-
íku hafi náð undir sig fyrir-
tækinu og flutt með það úr
landi. Þeir hafi síðan hulið
slóð sína það vel að menn hér
heima hafi talið fyrirtækið
gjaldþrota.
Sea World-safnid
Neitar að taka niður vaxmyndina af Halldóri
Reykjavik, 29. maí
„Auðvitað er þetta
móðgun við tslensk stjórn-
völd,“ sagði Þorsteinn
Pálsson í samtali við GULU
PRESSUNA í gær en
stjórnendur Sea World-
skemmtigarðsins í Flórída
hafa neitað að fara að til-
mælum sjávarútvegsráðu-
neytisins um að taka niður
vaxmynd af Halldóri Ás-
grímssyni, sem er í hvala-
deild safnsins, og setja
mynd af Þorsteini í stað-
inn.
,,l svari safnsins stendur
eitthvað um að bandarískúr
almenningur hafi vanist
myndinni af Halldóri og
kannist auk þess við hann af
áróðursbæklingum Green-
peace-samtakanna. Það sé
hins vegar ekki hægt að ætl-
ast til að almenningur viti
hver Þorsteinn er eöa átti sig
á erindi hans í hvaladeildina,"
sagði Árni Kolbeinsson, ráöu-
neytisstjóri i sjávarútvegs-
ráöuneytinu, aðspurður um
ástæður þess að beiöni ís-
lenskra stjórnvalda var hafn-
að. Hann sagði að auk þess
hefði þess verið getið að Þor-
steinn væri ekki sérlega
myndrænn maöur.
„Viö munum senda banda-
rískum stjörnvöldum mót-
mæli þar sem við teljum
þetta frekleg afskipti af ís-
lenskum innanríkismálum."
sagöi Þorsteinn Pálsson.
Ríkisstjórnin leitar aö fóllnum
einræðisherra með vaxtarlag
Jóhönnu Sigurðardóttur.
Islenska ríkisstjórnin
Kaupir mikið af
styttum af
föllnum
einræðisherrum
Reykjavík, 30. maí________
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR hefur
íslenska ríkisstjórnin
keypt mikið magn af stytt-
um af Lenín og Stalín af
Sovétmönnum, styttur af
Hoxa í Albaníu og nokkrar
sty ttur af Mengistu fyrrum
Eþíópíuforseta.
Engar upplýsingar hafa
fengist um það til hvers ríkis-
stjórnin ætlar að nota þessar
styttur en heimildir GULU
PRESSUNNAR segja að ráð-
herrarnir muni ætla að skipta
um hausa á þeim og setja af-
steypur af sínum eigin í stað-
inn. í þessu felst nokkur
sparnaður. Vaxtarlag Stalíns
var ekki ósvipað og til dæmis
vöxtur Davíðs Oddssonar og
Sighvatar Björgvinssonar.
Lenín var í svipuðum holdum
og Jón Sigurðsson, Eiður
Guðnason og Ólafur G. Ein-
arsson og Mengistu var jafn
grannur og þeir Friðrik Sop-
husson og Jón Baldvin
Hannibalsson.
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR mun nú
vera leitað logandi ljósi að
einhverjum föllnum einræð-
isherra með vaxtarlag Jó-
hönnu Sigurðardóttur.
Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 • sími 688944