Pressan - 25.07.1991, Blaðsíða 2

Pressan - 25.07.1991, Blaðsíða 2
2 Fólk á ekki nógu sterk orð til að lýsa undrum Bláa Lónsins, það er heillandi, dularfullt, rómantískt og síðast og ekki síst þekkist engin leið betri til að halda niðri húðsjúkdómum sem margir þurfa að glíma við. Á sólríkum sumardögum er þetta eins og að koma á vinsælar erlendar sólarstrendur, sólbakaðir kroppar spranga á hvítum sandinum og bros- andi andlit er hvarvetna að sjá. Út í grænbláu lóninu skipta gestimir hundruðum og hafa sumir komið langa leið til að leita lækninga við meinum sínum, aðrir koma til að slappa af, sýna sig og sjá aðra og leyfa sólinni að skína á kroppinn. Þegar rökkvað er orðið er aðkoman að Bláa Lóninu ekki síðri. Ljós orkuversins lýsa upp gufu- mökkinn, sem teygir sig upp í himin- hvolfið. Þetta gerir umhverfið seið- andi og leyndardómsfullt. Menn hafa gjaman á orði að stað- hættir minni helst á umhverfi framtíð- arinnar eins og það birtist í vísinda- skáldsögum. Hermann Ragnarsson hefur rekið starfsemina við Bláa Lónið síðustu árin. Hann var áður umsvifamikill byggingaverktaki á Suðumesjunum en kaus að skipta um starfsvettvang eftir farsælan feril í byggingarstarf- seminni og takast á við ný spennandi verkefni í atvinnuvegi framtíðarinnar, ferðaþjónustu. Hermann og samstarfsmenn hans hófust þegar handa við að bæta og auka þjónustuna við Bláa Lónið og síðan hafa vinsældir lónsins sífellt verið að aukast. „Þegar við komum var húsið helmingi minna en það er t' dag. Fyrsta árið mitt héma komu 35 þúsund gestir, annað árið vom þeir komnir upp í 55 þúsund, og í fyrra komu 80 þúsund. í ár stefnir í að fjöldinn verði enn meiri og um helm- ingur gestanna eru útlendingar." ALHLIÐA HEILSUMIÐSTÖÐ Hermann hefur starfað að ferða- málum m.a. með setu í Ferðamála- samtökum Suðumesja og Ferðamála- nefnd Keflavíkur. Þá hefur hann tekið þátt í íslandskynningum erlendis, m.a. í Tókýo. ..Nú er komið að því að snúa sér al- farið að ferðamálunum", segir Her- mann og hann hefur ýmislegt á prjón- unum. ..Við emm búnir að vera með áform frá því við komum héma 1988 að byggja á svæðinu glæsilega alhliða heilsumiðstöð. í þessari miðstöð er gert ráð fyrir að meðhöndla megi margvísleg húðvandamál, þar verði líkamsræktaraðstaða. gisting og ýms- ir afþreyingarmöguleikar." En í hverju liggur sérstaða Bláa Lónsins. hvað er það sem dregur þessar þúsundir að á hverju ári? „Það er náttúrulega enginn staður í veröld- inni eins og Bláa Lónið. Það að fólk skuli geta baðað sig við hliðina á orkuveri í þessu hrikalega landslagi gerir staðinn einstakan. Svo er það að sjálfsögðu þessi einstaki lækninga- máttur sem dregur fólk hingað. Á síð- asta ári komu hópar frá útlöndum gagngert til þess að fara í Lónið og slíkum hópum fer mjög fjölgandi. svo má líka nefna að hér er opið allt árið og ekki er sfðra að koma hér yfir vetr- armánuðina." Hermann hefur unnið að undirbún- ingi heilsumiðstöðvarinnar að fullum krafti upp á síðkastið og hefur m.a. látið vinna fyrir sig ítarlega úttekt á nánasta umhverfi, hugsanlegri fjár- mögnun og öðru sem viðkemur því að slík heilsumiðstöð verði reist. Nokkur vandamál hafa komið upp því hugmyndir Hermanns falla ekki alveg að því skipuiagi sem Grindvík- ingar vilja hafa á svæðinu. Hermann segist þó sannfærður um að í því máli náist samkomulag sem allir geti unað við. TVÖFÖLDUN FF.RDA- MANNAF.IOLDANS Eins og fyrr segir eru útlendingar um helmingur þeirra gesta sem heim- sækja Bláa Lónið, en er Hermann ánægður með hvernig opinberir aðilar standa að landkynningu erlendis. „Þetta hefur verið svona þokkalegt, ég tel þó að Ferðamálaráð ætti að vera hluti af Útflutningsráði því þar eru menntaðir og þjálfaðir menn sem kunna til verka. í Ferðamálaráð er frekar verið að skipa pólitískt og ekki alltaf valið eftir hæfni. Ég held því að þetta verði betur unnið og á faglegri grunni ef allt er sett undir Útflutn- ingsráð. Svo þurfa einstaklingar og fyrirtæki að taka betur saman hönd- _______PRCSSAN - FERDABLAD_ BLÁA LÓNIÐ midpunktur Reykjanessins um í kynningu erlendis. Það er hver og einn að pukra í sínu homi. Síðan geta menn barist um við- skiptavinina þegar þeir koma hingað heim.“ Hvemig sér Hermann ísland fyrir sér sem ferðamannaland í nánustu framtíð? „Ég sé fyrir mér að á næstu tíu árum eigum við eftir að tvöfalda ferðamannafjöldann sem kemur hing- að. Við þurfum að vinna skipulega að því að taka þannig á móti þessu fólki að það sé ánægt en jafnframt að huga að vemdun landsins. Við þurfum að vemda náttúru okkar og þessa sér- stöðu að hér er landið hreint og ómengað. Fólk er búið að ferðast svo mikið að menn eru orðnir þreyttir á því að hanga á hótelum, veitingastöð- um og tilbúnu umhverfi, það vill eitt- hvað annað. Bændagistingin, ferðir upp á jökla og fleira í þeim dúr skap- ar okkur sérstöðu sem við eigum að nota okkur. Við þurfum líka að reyna að lengja ferðatímann. Hér á landi má bjóða upp á vetrarferðir sem geta ver- ið einstakar í sinni röð.“ SUÐURNES-HINN NÝI ÞINGVALLAHRINGUR? Á Suðumesjum og í næsta ná- grenni býr meira en helmingur þjóð- arinnar. Flestir ferðamenn sem koma til íslands komast ekki hjá þvf að fara um Suðumesin að einhverju leyti. Samt virðist stundum sem svo að Reykjanesið eða Suðumesin séu ekki talin með þegar nefndir eru helstu ferðamannastaðir landsins. Hvað finnst Hermanni um möguleika Reyknesinga varðandi ferðaþjónustu í framtíðinni? „Ég sé allt bjart fram- undan í þeim málum. Á síðustu ámm hafa verið byggð hótel og víða er komin upp ljómandi gistiaðstaða og veitingastaðir. Ég hef trú á því að Suðumesin verði annar Þingvalla- hringur, með Bláa Lónið sem aðal- núnier áður en langt um líður. Á svæðinu er mikið fuglalíf og náttúm- fegurðin er víða stórbrotin. Hér em fallegir vitar og hrikaleg björg og þannig mætti telja áfram. Við getum boðið upp á einn besta golfvöll lands- ins, það á að fara að byggja smábáta- höfn og þar verður bátaleiga. við bjóðum upp á hestaleigu. og hér em óendanlega mörg svæði að skoða. Fyrir þá sem vanir em miklum gróðri er þetta eins og að koma f annan heim að koma hingað.“ Hafa sveitarfélög og ferðamála- samtök á Suðumesjum tekið saman höndum um að hrinda í framkvæmd átaki til að auka ferðamannastraum um svæðið? ., Síðustu árin hafa menn unnið að ýmis konar skýrslugerðum og áætlunum, það er alltaf verið að skrifa og skipuleggja en núna fyrst er komið að einhverjum vemlegum framkvæmdum. Menn em famir að vinna að merkingum, það hafa verið útbúin tjaldstæði, og boðið er upp á svefnpokagistingu og unnið hefur verið að margskonar kynningu. Svo má nefna að nýlega var opnuð upp- lýsingarmiðstöð á flugvellinum. og nnur í Keflavík. Staðan er þannig núna að á Suðurnesjum er hægt að bjóða upp á allt sem þarf fyrir góða ferðamannastaði.1' Hermanni finnst með ólíkindum hvað menn hafa verið lokaðir og lengi að taka við sér varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu á íslandi. ..Laxeldi. refarækt og hvað þetta heitir nú allt saman í þetta hafa menn dælt óhemju fjármagni. en lítið sem ekkert kemur til ferðamála. Það skortir bæði fé og skilning en menn hafa þó verið að átta sig á því hvað mikill vaxtarbroddur er fólginn í ferðaþjónustu. Menn em famir að átta sig á því að ferðaþjón- ustan á mesta framtíð fyrir sér í nýj- um atvinnugreinum hér á landi." RÓMANTÍSKASTI STAÐUR- INN A lARDARKRINGLUNNT Fríður Jónsdóttir rúmlega tvítug blómarós úr Grindavík er ein þeirra sem notar hvert tækifæri sem gefst til þess að baða sig f Bláa Lóninu. Hún segist koma í Lónið til þess að verða sólbrún. slappa af og hitta skemmti- legt fólk. „Svo er þetta rómantískasti staður sem til erájarðkringlunni. fólk verður svo óþvingað og frjálslegt þegar það kemur hingað og maður sér að útlendingamir em heillaðir af þessum einstaka stað." Fríður segir að eftir að nýja bað- húsið opnaði sé aðstaðan orðin mjög góð en það mætti vera aðeins ódýrara að fara í Lónið og hún segist viss um að þá myndu fleiri koma.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.