Pressan - 25.07.1991, Síða 15
PRCSSAN - FERDABLAÐ
15
Mývatnssvæðið
Eínstök
fegurð
MÝVATN er óumdeilanlega ein
af perlum landsins, og þangað
flykkjast ferðamenn sumar hvert.
Að jafnaði er sumarblíðan hvergi
meiri en einmitt á Norðausturlandi
og kannski allra mest við Mývatn.
Hér leikur náttúran sannarlega á als
oddi. Það sem af er sumri hafa sunn-
lendingar að vísu fengið besta veðr-
ið. en ekki kæmi á óvart að ágúst
yrði Mývetningum hagstæður mán-
uður.
Mývetningar eru engir nýgræð-
ingar í að taka á móti gestum.
Sá „iðnaður“ hefur verið stundað-
ur um áratugi í Reykjahlfð, og Hótel
Reynihlíð var á tímabili stærst hót-
ela á Norðurlandi.
En þama er ekkert að vanbúnaði
fyrir ferðafólk í gistimálum, og
margir munu freista þess að tjalda,
ef veður er gott. Annars er hægt að
fá heimagistingu eða svefnpoka-
pláss. Og á staðnum er góð sundlaug
sem ferðamenn munu ugglaust nýta
sér vel.
Gróðurfar, fuglalíf og stórbrotin
verk jarðelda fyrri tíma og vatnið
sjálft með því mikla dýralffí sem þar
er. Allt styður þetta að því að gera
Mývatn ógleymanlegan ferða-
mannastað.
Á Mývatni er í raun svo margt að
skoða að þar má dvelja dögum sam-
an og stöðugt má skoða eitthvað nýtt
og spennandi.
Ferðaskrifstofur á staðnum bjóða
ferðir á alla áhugaverða staði með
góðri leiðsögn. Einnig er boðið upp
á lengri ferðir, t.d. í Herðubreiðar-
lindir og að Öskju.
Meðal staða við Mývatn sem
menn ættu að skoða vel eru Dimmu-
borgir, einskonar höggmyndagarður
sjálfrar náttúrunnar, þær urðu til í
gosi fyrir 2000 árum. Amarbæli er
sérkennilegur gervigígur, sömuleið-
is Lúdent (eina íslenska orðið sem
rímar á móti stúdent), en Lúdent er
hringlaga gígskál austur af vatninu.
Eldhraun rann 1729 í miklum um-
brotum á svæðinu og færðu á kaf
þijá bæi.
Sauðahellir er steinsnar frá Reykja-
hlíðarhverfinu, skoðunarverður
staður. Og Höfði er afar sérkenni-
legur hrauntangi, þar sem Héðinn
heitinn Valdimarsson fyrrum forseti
ASI og forstjóri Olíuverslunar ís-
lands reisti sér sumarbústað, en
gróður f því landi er með því mikil-
fenglegasta sem sjá má hér á landi,
að hluta til verk fyrri íbúa. Höfði er
eigu sveitarfélagsins og er almenn-
ingsgarður, ef frá er talinn sumarbú-
staðurinn og lóð tilheyrandi honum.
Við Mývatn er talsverð byggð og
þar er iðnaður, m.a. hin fræga kísilg-
úrverksmiðja sem vinnur efni úr
þörungagróðri sem er á botni vatnis-
ins. Unnið efnið er flutt til margra
landa f 50 kílóa sekkjum, og er það
notað
til að sía ýmsa vökva, þar á meðal
margar frægar bjórtegundir.
Skammt frá fríývatni er Kröflu-
virkjun sú fræga, og án efa munu
ferðalangar skoða stöðvarhúsið að
utan.
GOÐAFOSS
ÁSBYRGI
ALDEYJARFOSS
DETTIFOSS
Veríö velkomin á félagssvæði okkar, sem
býöur upp á marga fegurstu staði landsins
Við bjóðum þjónustu okkar á HÚSAVÍK í:
K.Þ. Matbæ (matvöruverslun)
K.Þ. Miðbæ (fatnaður - ferðavörur - íþróttavörur o.fl.)
K.Þ. Smiðjunni (vélavarahlutir - byggingavörur - verkfæri o.fl.)
Söluskálanum Naustagili (matur - drykkur o.fl. o.fl.)
í útibúum að: Fosshól við Goðafoss - Laugum, Reykjadal -
Reykjahlíð við Mývatn - Ásbyrgi og Kópaskeri, sem öll
veita ferðamönnum margvíslega þjónustu.
ESSO þjónusta.
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA