Pressan - 11.03.1993, Blaðsíða 8

Pressan - 11.03.1993, Blaðsíða 8
S KILA BOÐ 8 PRESSAN Fimmtudagurinn 11. mars 1993 Verðlaunagetraun PRESSUNNAR ■Ríkisforstjórinn var Heimir Steinsson Happy Grensásvegí 7, símar 688311 og 33311 hour“ 1 kpd Tá > Imilli kl. 231 Góð þátttaka var í verðlaunagetraun PRESSUNNAR, Hver er ríkisforstjórinn?, sem birtistí blaðinu fyrirhálfum mánuði. Öll innsendsvör voru rétt. Það var Heimir Steinsson útvarpsstjóri sem sendi starfs- mönnum sínum bréfið sem PRESSAN birti. Dregið var úr þessum svörum og kom upp nafn Baldurs Sigurðssonar, Goðheimum 22, Reykjavík. Baldur hefur nú verið gerður að áskrifanda PRESSUNNAR og fær blaðið sent heim i eitt ár, sér að kostnaðarlausu, að launum fyrir glöggskyggnina. Svörin við aukaspurningunum voru marg- vísleg. Spurt var: 1. Hvað er forstjórinn að fara? 2. Hvað þýðir„Þversögnin er kvalafull. En jafnframt er hún svo ávirk, að hún leiðir fram lífán enda."? 3. Hvað á að gera við ríkisforstjóra sem kemst að þessari niðurstöðu um fyrirtæki sitt: „Lausnina finnum við aldrei. Stefnan er og verður óráðin."? Besta heildarlausn við þessum spurningum kom frá Elíasi Ólafssyni, Urriðakvísl25, Reykjavík. Svör hans voru eftirfarandi: 1. Maðurinn er annaðhvort á leiðinni á Bessastaði eða Klepp. 2. Menn líta upp til þess sem þeir skilja ekki. Útvarpsstjóri vill að menn líti upp til sín og þess vegna setur hann saman bull sem eng- inn skilur. 3. Bjóða honum formannssæti í Alþýðu- flokknum. Elías fær send bókaverðlaun að launum. Heimir Steinsson ÚTVARPSSTJÓRI Allir sem sendu svar við verðlaunagetraun PRESS- UNNAR þekktu ríkisforstjór- ann afstíl orðsendingar- innar sem hann sendi starfsmönnum sínum. Fast lagt að Hallvarði að áfrýja Mógilsár- deilunni... Nýlegur dómur Héraðs- '£j J dóms Reykjavíkur í máli ' skógfræðinganna tveggja á Rannsóknarstöðinni á Mógilsá, þeirra Úlfs Óskarssonar og Þor- bergs Hjalta Jónssonar, hefur vakið athygli í rannsóknaheimin- um. Sem kunnugt er gaf ríkissak- sóknari, Hallvarður Einvarðs- son, út ákæru á hendur þeim fyrir að hafa fjarlægt rannsóknargögn frá Mógilsá sem landbúnaðar- ráðuneytið taldi opinbera eign. Niðurstöðu dómsins má túlka á þann veg að vald þess sem gerir rannsóknina sé mikið út ffá höf- undarlögum. Þetta hefur vakið óhug meðal ýmissa aðila sem kaupa þjónustu rannsóknaraðila og hefur meðal annars heyrst sú samlík- ing að þetta sé líkt og fiskifræðingar Haffannsóknastofnunar ættu niðurstöður af togararallinu og öðrum fiskrannsóknum. Mun nú i vera lagt fast að Hallvarði að áfrýja dómnum til Hæstaréttar, meðal annars til að fá skýra niðurstöðu í það hverjir eigi rannsóknargögn. Á meðan liggja nokkurra ára rannsóknarniðurstöður frá Mógilsá, meðal annars úr birkifrærannsóknum, á skrifstofúnni hjá Hallvarði, ,en þangað inn skiluðu skógfræðingarnir niðurstöðunum eftir að óvissa kom upp um eignarhald þeirra. Harðar ásakanir á hendur Greenpeace... Nýverið hélt Magnús Guðmundsson kvikmyndagerðar- ltm0j maður blaðamannafund þar sem hann kynnti nýjustu r'+S mynd sína, Reclaiming Paradise, sem útleggst f leit að par- adís. Myndin er afar hörð gagnrýni á starfsemi margra umhverfis- og náttúruverndarhreyfinga, sem Magnús telur að séu hrein fjár- gróðafyrirtæki. Greenpeace fær sérstaka meðhöndlun í þessari nýju mynd og eru meðal annars viðtöl við fyrrum háttsetta meðlimi hreyfingarinnar sem nú hafa umhverfst í trúnni, þar sem þeir lýsa vafasömum innviðum hreyfingarinnar. Þá kemur það einnig ffam í myndinni að nokkur umhverfisverndarsam- tök eru farin að selja hugmyndina um sjáv- arspendýr sem kynverur og sýnir myndin dæmi um slíkt. Ekki er enn búið að ákveða frumsýningardag hér á landi, en Sjónvarpið hefur þegar pantað kynninga- reintak af myndinni og því má búast við að íslendingar fái að berja hana augum íýrr en síðar. U SP8R8R EITT fl MRNURIMEÐ ÞVÍflfl GERDST Hvbps vegna PRESSUNNI? ÞÚLESTPRESSUNAMEÐMORGUNKAFFINU • Þú færð blaðið í bítið á fimmtudagsmorgni, nærð að lesa það áður en þú ferð í vinnuna og ert manna best inni í málum í morgunkaffinu. ÚKEYPIS SMÁAUGLÝSINGAR • Þú færð birtar smáauglýsingar í PRESSUNNI þér að kostnaðarlausu. Þú þarft aðeins að hringja auglýsinguna inn í síma 64 30 80. PRESSAN RYÐUR ÞÉRIMAT • Nöfn tveggja áskrifenda eru dregin út mánaðarlega og þeim boðið í mat á völdu veitingahúsi ásamt maka. HAPPDRÆTTIÁSKRIFENDA • Nöfn áskrifenda eru sett í pott og dregið úr honum 1. júní og 1. desember. Glæsilegir vinningar eru í boði og verða þeir kynntir síðar. VERÐLAUN FYRIR FRÉTTAHAUKA • Þeir áskrifendur sem hafa bestu ábendingarnar um fréttir verða verðlaunaðir. Áskrifendur • Hringið til okkar og látið okkur vita hvernig við getum bætt þjónustuna. Við hlustum — og hlýðum. wm700 kr. á mánuði efgreitt er með EURO/VISA/SAMKORT en 750 kr. Iringið í síma 64 30 80 eða sendið símbréf64 31 90

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.