Pressan - 11.03.1993, Síða 9
FR ETT I R
Fimmtudagurinn 7 7. mars 1993
PRESSAN
Víglundur Þorsteinsson og aðrir eigendur Kringlunnar4-6 hamast við að ná
samningum við lánardrottna
BANKAR 06 SJÚDIR AD
YFIRIAKA BORGARKRINGLUNA
Talsverðar líkur eru á
að lánardrottnar Borgar-
kringlunnar hf., þar sem
BM Vallá er stærst eig-
enda, láti senn sverfa til
stáls og leysi til sín fast-
eignina Kringluna 4 til 6.
Bæði Borgarkringlan og
BM Vallá eiga í miklum
erfiðleikum ,um þessar
mundir og hafa ekki getað
staðið í skilum við lánar-
drottna og verktaka. Við-
ræður við Islandsbanka og
fleiri stóra lánardrottna
hafa gengið treglega og
hefur fasteignin verið í
uppboðsmeðferð að kröfu
Kaupþings og BYKO. Að-
standendur Borgarkringl-
unnar, einkum Víglundur
Þorsteinsson, forstjóri og
stjórnarformaður BM Vall-
ár, leitast á hinn bóginn við
að knýja fram ýmsar ráðstaf-
anir sem kynnu að breyta
þessu og segir Víglundur að
samningar við lánardrottna
á þeirra eigin skil-
málum séu á
lokastigi og á
hann von á
j á k v æ ð r i
niðurstöðu
innan fá-
Borgarkringlan.
18 þúsund fermetra
verslunar- og skrifstofu-
húsnæði, sem kostað
hefur rúma 2 milljarða
aðreisa.
Veðhafarnir í „Litlu-Kringlu"
Veðbækur vegna Kringlunnar 4-6 eru útkrotaðar og torskildar,
en þó er nokkurn veginn Ijóst hverjir hafa öruggt veð, hverjir
eru beggja blands og hverjir eiga á hættu að glata kröfum með
öllu. Meðfylgjandi eru upprunalegar tölur reiknaðar til núvirðis,
en vegna vanskila má ætla að eftirstöðvar séu talsvert hærri.
Hinir hólpnu á fyrsta veðrétti
- Kaupþing, 44 millj.
- Líf.sj. málm- og skipasmiða, 27 millj.
- Líf.sj. rafiðnaðarmanna, 17,5 millj.
- Líf.sj. Dagsbrúnarog Framsóknar, 10 millj.
„Pahkinn“ á öðrum veðrétti
- Iðnlánasjóður, 158 millj.
- Iðnþróunarsjóður, 153 millj.
- fslandsbanki, 148 millj.
- Landsbanki, 148 millj.
- VBM Fjárfestingarfélagsins, 56 millj.
- Búnaðarbankinn, 24 millj.
- Verslunarlánasjóður, 22 millj.
- ísafoldarprentsmiðja, 5,5 millj.
- Líf.sj. Hlífar, 4 millj.
Úti í kuldanum
- Blikk og stál, 30 millj.
- Ríkissjóður, 18 millj.
- (slandsbanki/Verslunarlánasjóður, 12 millj.
- Egill Árnason hf., 5,5 millj.
- BYKO, 13 millj., fjárnám
- Gjaldheimtan, 3 millj., lögtak o.fl.
vikna.
Allar helstu lána-
stofnanir saman í
„pakka"
Nokkur titringur er ríkjandi
innan íslandsbanka vegna mál-
efna þessara fyrirtækja og
munu forráðamenn bankans
samkvæmt heimildum blaðsins
eiga óhægt um vik að beita sér í
málinu. Víglundur er einn af
mestu áhrifamönnum við-
skiptalífsins á íslandi og hefur
meðal annars setið í stjórn
Verðbréfamarkaðar íslands-
banka, var á sínum tíma stjórn-
armaður í Iðnaðarbanka og hef-
ur gegnt formennsku í stjórn
Félags íslenskra iðnrekenda. Á
hinn bóginn sér bankinn ff am á
að tapa hugsanlega stórum fjár-
hæðum ef ekki verður tíman-
lega gripið í taumana.
I febrúar 1991 náðist sam-
komulag um lán og skuldbreyt-
ingar við þölmarga lánardrottna
vegna byggingar Borgarkringl-
unnar, aðila sem eru einu nafni
kallaðir „pakkinn“. Hann sam-
anstendur af níu aðilum. Iðn-
þróunarsjóður lánaði 140 millj-
ónir og Iðnlánasjóður sömu
upphæð. íslandsbanki lánaði
131 milljón og Landsbanki
sömu upphæð. Verðbréfamark-
aður Fjárfestingarfélagsins lán-
aði 51 milljón, Búnaðarbankinn
22 milljónir og Verslunarlána-
sjóður 20 milljónir. Auk þess er
ísafoldarprentsmiðja skráð fyrir
5 milljónum og Lífeyrissjóður
Hlífar fýrir 3,5 milljónum.
Rúmlega milljarður
á fyrsta og öðrum
veðrétti
Alls eru þetta 643,5 milljónir,
en um 700 milljónir að núvirði.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR hefur hins vegar lítið
sem ekkert verið greitt af þess-
um lánum og þegar vextir og
dráttarvextir bætast ofan á er
um nærri 900 milljónir að ræða.
Þessi lán „pakkans“ eru á
öðrum veðrétti og ná veðin yfir
flesta eignarhluta húsanna.
Nokkrum mánuðum eftir lána-
samningana í febrúar 1991
bættust síðan 12 milljónir við
hjá Islandsbanka, Iðnlánasjóði
og Iðnþróunarsjóði.
Á fyrsta veðrétti hvíla hins
vegar veð vegna lána frá Kaup-
þingi, Lífeyrissjóði Dagsbrúnar
og Framsóknar, Lífeyrissjóði
Málm- og skipasmiða og Lífeyr-
issjóði rafiðnaðarmanna, alls
um 90 milljónir. Kaupþing er
skráð fyrir 40 milljónum, en
þegar nauðungaruppboð var
auglýst um síðustu áramót var
upphæðin komin í 55,4 milljón-
ir. Ekkert hafði verið greitt af
því láni og var þó ekki komið að
afborgunum, heldur um vanskil
á vaxtagreiðslum að ræða. Bú-
ast má við að skuldin við þessa
fjóra aðila sé nú á bilinu 120 til
130 milljónir. Víglundur neitar
því að uppboðsmeðferð sé í
gangi, beiðni um slíkt hafi verið
afturkölluð.
Bió
SKL
ið g
híu
uta-
*—' (N CT)
OO OO OO
On C\ Qs
skuldir með
bréfum
Fari svo að „pakkinn“ ákveði
að leysa fasteignirnar til sín þarf
hann eftir sem áður að greiða
þessum fjórum aðilum 120 til
130 milljónir og eignast með því
hina veðsettu eignarhluta. Um
leið væru fasteignirnar komnar
í eigu þeirra aðila sem eiga veð á
öðrum veðrétti, en þeir sem eru
neðar í veðröðinni væru búnir
að tapa sínu. Hinir nýju eigend-
ur mundu um leið stofna með
sér nýtt hlutafélag, eignarhalds-
félag um rekstur og frekari upp-
byggingu fasteignanna. Um-
ræddar fasteignir eru alls tæp-
lega 18 þúsund
fermetrar og
byggingarkostn-
aður liðlega 2
milljarðar.
Á þriðja veð-
rétti og neðar eru
meðal annars veð
vegna um 30
milljóna króna
skuldar við Blikk
og stál, um 25
milljóna króna
skulda við ís-
landsbanka og
Verslunarlána-
sjóð, yfir 5 millj-
óna króna skuld-
ar við Egil Árna-
son hf„ um 20 milljóna króna
skuldar við Ríkissjóð og auk
þess má nefna lögtak vegna 3
milljóna króna lögtaks Gjald-
heimtunnar í Reykjavík og 13
milljóna króna fjárnáms BYKO.
Borgarkringlan hf. og aðrir
eigendur fasteignanna hafa
þrýst á ofangreinda lánar-
drottna um skuldbreytingar,
meðal annars að breyta 17 ára
lánum í 25 ár. Þeir hafa komist
nokkuð áleiðis að semja við
verktaka, efnissala og aðra
„minni spámenn", sem einkum
hafa samþykkt að taka hlutabréf
í Borgarkringlunni upp í skuldir
eða breyta þeim í langtímalán.
Með því að breyta skuldum í
hlutabréf hefur tekist að auka
hlutafé Borgarkringlunnar úr
334 milljónum í 440 milljónir.
Yfirvöldum gert við-
vart um að bruna-
kerfi sé í ólestri
Heimildir blaðsins herma og
að verktaki nokkur hafi fengið
tugmilljónainneign sína greidda
með viðbyggingarrétti, sem eftir
er að ljúka, en uppi hafa verið
áætlanir um að bæta tveimur
hæðum ofan á norðurturninn.
Ekki eru allir „smærri“ kröfu-
hafar hrifnir af því að fá hluta-
bréf í hendur sem greiðslu. Iðn-
aðarmaður nokkur sagði í sam-
tair við PRESSUNA að Víg-
lundur hefði boðið sér hlutabréf
i Borgarkringlunni og talið það
hinn vænlegasta kost. Iðnaðar-
Velta BMVallár 1981-1991
^imilljonamkróríaaö 'húvirði
O^O^O^O^QsOsOsOs
VÍGLUNDUR Þ0RSTEINSS0N.
„Hvað Borgarkringluna varðar er búið að ganga frá nán-
ast öllum lausaskuldum, meðal annars í formi hlutafjár-
aukningar, þannig að hlutafé hefur aukist úr 334 í 440
milljónir."
maðurinn sagðist samþykkja
þetta ef hann mætti þá fara með
þessi vænlegu hlutabréf upp í
BM Vallá og greiða fyrir steypu
með þeim. Þá hafi kveðið við
annan tón hjá Víglundi.
Þá hefur blaðið fregnað að
pípulagningameistari sá sem
setti upp brunavarnakerfi, svo-
nefnt „sprinkler“-kerfi, í fast-
eigninni fái ekki greidda 6 til 7
milljóna króna skuld sína og að
hún sé nú í löginnheimtu. Um-
ræddur meistari er löngu hætt-
ur og genginn frá ókláruðu
verki og hefur meðal annars rit-
að Eldvarnaeftirlitinu og emb-
ætti Byggingarfulltrúa bréf þar
sem hann bendir á að bruna-
varnir fasteignanna séu í ólestri,
engin lokaúttekt hafi farið ffam
og hann geti ekki tekið á sig
ábyrgð vegna þessa. Víglundur
Þorsteinsson segir að verið sé að
vinna í lokaúttektinni.
40 prósenta sam-
drattur BM Vallár á
fjórum árum
Annað sem staðfestir erfið-
leikana er sú staðreynd að ný-
lega átti að loka fyrir hita og raf-
magn í fasteigninni, en lög-
fræðiskrifstofurnar í turninum
sáu sig knúðar til að greiða
þann reikning, um 300 þúsund
krónur. Samkvæmt heimildum
biaðsins hyggjast sömu aðilar
og jafnvel fleiri segja sig úr hús-
félagi Borgarkringlunnar og
stofna sérstakt húsfélag.
Málefni Borgarkringlunnar
tengjast óhjákvæmilega stöðu
BM Vallár. Staða fyrirtækisins
mun vera mjög erfið um þessar
mundir og kemur þá fleira til en
Borgarkringlan. Spilar þar inn í
almennur samdráttur í efna-
hagslffinu og þá einkum í bygg-
ingarframkvæmdum. Fyrirtæk-
ið varð á sínum tíma fyrir tals-
verðum skakkaföllum vegna
byggingar Hótels Arkar og Holi-
day Inn og varð í raun að taka
Borgarkringluna til sín upp í
steypuskuldir, þ.e. kaupa hluti
ísafoldarprentsmiðju, Nýja
kökuhússins, Gunnars Guð-
tnundssonar og Jónasar Sveins-
sonar. Þegar velta BM Vallár
náði hámarki var hún um 1.430
milljónir króna að núvirði, árið
1987. Næstu fjögur árin minnk-
aði hún og var um 840 milljónir
að núvirði 1991 — hafði þá
dregist saman um rúm 40 pró-
sent.
Eitt af því sem hefur flækst
fyrir fýrirtækinu er að fá greidd-
ar útistandandi kröfur og mun
það hafa tekið fjölmargar íbúðir
upp í. Einn viðmælandi blaðs-
ins taldi að fýrirtækið hefði á ör-
fáum árum tekið nálægt 100
íbúðir og fasteignir upp í skuld-
ir. Fyrirtækið hefur í einhverj-
um tilfellum getað notað íbúðir
þessar til að grynnka á skuld-
um, meðal annars hefur komið
fram að Sementsverksmiðja rík-
isins hafi samþykkt að taka
íbúðir upp í skuldir BM Vallár.
Víglundur: Á fljót-
lega von á jákvæðri
niðurstöðu
Víglundur Þorsteinsson,
stjórnarformaður Borgarkringl-
unnar og BM Vallár, sagði í
samtali við PRESSUNA að
hann hefði heyrt margar sög-
urnar um slæma stöðu þessara
fýrirtækja og kippti sér ekki upp
við þær. „Hvað Borgarkringl-
una varðar er búið að ganga frá
nánast öllum lausaskuldum,
meðal annars í formi hlutafjár-
aukningar, þannig að hlutafé
hefur aukist úr 334 í 440 millj-
ónir. Fjárhagsleg endurskipu-
lagning hefur átt sér stað, sem
er meðal skilmála stærri lánar-
drottna fyrir skuldbreytingum
og lengingu lána. Ég á von á að
samningaviðræðum þar að lút-
andi ljúki á næstu vikum með
jákvæðri niðurstöðu.“
Víglundur sagði að þrátt fyrir
erfiðleika hefði tekist að reka
BM Vallá taplaust á nýliðnu ári
og að hann væri ánægður með
þann árangur miðað við erfið-
leikana sem ríkt hefðu í bygg-
ingariðnaðinum. Hann staðfesti
að fýrirtækið hefði tekið talsvert
af fasteignum upp í skuldir við-
skiptavina.
„Ég skal ekki segja hvað þetta
hafa verið margar íbúðir og aðr-
ar fasteignir á undanförnum ár-
urn, en mér telst til að þetta séi
eignir upp á um 150 milljónir
Fríðrík Þór Guðmundssor.