Pressan - 11.03.1993, Side 29

Pressan - 11.03.1993, Side 29
N B A-ÆÐ I Fimmtudagurinn 11. mars 1993 PBESSAN 29 Munu Chicaao Bulls verja trtilinn annað áríð í röð Eda snýr Jordan sér alfarið að golfinu? Iþróttafélög borga skattlögð... Lítið hefur frést af skattrannsókn þeirri sem skatt- rannsóknastjóri gerði hjá EHERTB. nokkrum íþróttafélögum, þar SCHRAM á meðal Breiðabliki, Val, Hefurhvatt Gróttu og Gerplu. Sýnist íþróttafélögin kunnugum sem skattyfirvöld f// aQ sinna ætli ekkert að gera í málunum skattalegum og bókhaldsleg óreiða fyrri skyldum. ára verði látin óátalin. Þess í stað virðist sem þegjandi samkomulag hafi náðst um að frá og með árinu 1992 verði íþróttafélögin að haga bókhaldi sínu á þá leið sem skatturinn æskir og hér eftir greiði þau skatta eins og önnur lyrirtæki. Þessar væntan- legu skattgreiðslur íþróttafélaganna eru þyrnir í augum margra forsvarsmanna íþróttahreyfing- arinnar og spyrja þeir sig hvernig hreyfingin eigi að geta staðið undir skattgreiðslunum þeg- ar hún stendur vart undir eigin rekstri. Þá hefúr einnig heyrst að aðilar innan íþróttahreyfingai»l innar sætti sig ekki við að hreyfingunni verði gert að greiða skatt á meðan stjórnmálaflokk- arnir og ýmis líknarsamtök séu laus við slíkt. Nú þegar liðið er á seinni helming keppnistímabilsins í NBA-deildinni eru allir körfu- knattleiksspekingar á fullu að reyna að ráða í úrslitin. Spum- ingin er: Verja Chicago Bulls tit- ilinn eða eru nýir kóngar á leið- inni? Margir þykjast greina ákveð- in þreytumerki á Chicago-lið- inu, sem er augljóslega eldd eins ffískt og tvö síðustu ár, en liðið stefnir að því að hirða titilinn þriðja árið í röð. Besti körfu- knattleiksmaður heims, Mi- chael Jordan, hefur sýnt flest merki þrejtu og meira að segja játað það sjálfur að hann sé ekki eins spenntur fyrir keppninni og áður. Næstbesti leilunaður- inn í besta liðinu, Scottie Pip- pen, hefur átt við ökklameiðsli að stríða, miðherjinn Bill Cart- wright var settur á sjúkralist- ann fyrir stuttu vegna þrálátra bakmeiðsla og liðið þurfti að taka Mark Acres inn á meðan. Þótt Cartwright hafi lengi verið farþegi í liðinu jafhast hinn 210 sm langi Acres tæpast á við hann, enda vanari að leika framherja en miðherja. Þá á bakvörðurinn John Paxson við meiðsli að stríða. Þegar við bætist að fram- kvæmdastjórinn, Jerry Krause, hefur ekki sinnt end- urnýjunarskyldunni vegna DOMINIQUE WlLKINS Endurkoma hans er eitt af því ánægjulegasta í deild- inni, en hann er þar næst- stigahæstur. ákefðar sinnar við að elta króa- tíska undramanninn Toni Kukoc (208 sm) út um alla Evr- ópu er ekki nema von að menn hafi áhyggjur í Chicago. En þetta segir ekki alla sög- una. Chicago er með þriðja besta árangur í deildinni og það sem meira er; liðið virðist enn vinna þá leiki sem það virkilega þarf að vinna. Menn benda á að þótt liðið hafi sýnt ákveðin þreytumerki — sérstaklega meðal lykilmanna (tekið skal fram að Jordan hefur leikið kappleik nánast annan hvern dag síðasta árið) — þá eflist það þegar titill er í sjónmáli. Chic- ago-liðið hefur sýnt styrk sinn í því að vinna mjög erfiða úti- leiki, eins og í Kingdom-höll- inni í Seattle fýrir frarnan 37.000 brjálaða heimamenn, og verða þannig fyrst liða til að bijóta Se- attle heima. Þeir hafa unnið öll þau lið sem þeir hugsanlega koma til með að kljást við í úr- slitakeppninni á útivelli. Það er staðreynd sem vegur þungt í veðbönkum; menn þykjast sjá að keppnisskapið er enn fyrir hendi. Hvert er næstbesta liðið? En hvaða lið koma til greina? Að sjálfsögðu Phoenix Suns með Sir (!) Charles Barkley á útopnu, en hann og Patrick Ew- ing eru taldir keppa um titillinn „dýrmætasti leikmaðurinn“ (Most Valuable Player) í ár. Lið Ewings, New York Knicks, hef- ur leikið mjög vel og er það ekki síst þakkað honum og þjálfar- anum, Pat Riley, sem að sjálf- sögðu keppir um útnefningu sem besti þjálfarinn. Það eru nú tuttugu ár síðan Knicks vann titilinn síðast og menn eru fam- ir að skrifa lærðar greinar um hvað Ewing leggur á sig til að ná titlinum. Annar miðherji sem einnig berst hetjulega fyrir lið sitt er David Robinson úr San An- tonio Spurs. Þessi 216 sm hái miðherji hefur leikið ffábærlega það sem af er vetri og reyndar tekið að nokkru við ábyrgð á liðinu með hinum nýja þjálfara, John Lucas, sem er nýkominn úr fikniefhaendurhæfingu. Patrick Ewing ogAlonzoMourning Eru báðir úr Georgetown- háskólanum, sem frægur er fyrir að framleiða góða miðherja. Þá hafa Cleveland Cavaliers verið í mikilli sveiflu, enda með hæfileikaríkan leikmannahóp; Brad Daugerty 213 sm mið- vörð, Mark Price 182 sm bak- vörð (vann 3 stiga keppnina í Stjörnu-leiknum og fékk 1,3 milljónir króna fyrir), Craig Ehlo, Larry Nance 208 sm framherja, Hot Rod Williams, Terrel Brandon, Danny Ferry og Gerald Willcins. Það eina sem Cleveland vantar er súperstjarna, einhver sem gæti tekið af skarið, en þeir hafa reynst dálítið brothættir við andspyrnu. Margir veðja einnig á Charlotte Homets með Imry Johnson, 201 sm framherja sem var valinn nýliði ársins í fýrra, og Alonzo Mourning, 208 sm miðherja, sem bestu menn. Nú og ekki má gleyma liðum eins og Seattle Superson- ics og New York Nets, en Nets státar af feikilega öflugri þrenn- ingu þar sem eru Kenny And- erson, Derrick Coleman og Króatinn Drazen Petrovic. Útlendingarnir fram I sviðsljosið Já, Petrovic. Hann og þýski framherjinn Dedef Schrempf (208 sm) hafa fært mönnum heim sanninn um að útlending- ar eru einhvers megnugir í deildinni. (Nígeríumaðurinn Hakeem Olajuwon (213 sm) hefur einhverra hluta vegna aldrei verið talinn til útlend- inga.) Schrempf var valinn í stjörnuleikinn — gott ef ekki fyrstur útlendinga — og flestir voru sammála um að Petrovic ætti fullt erindi þangað. Hingað til hafa flestir gert sér grein fýrir að Petrovic er ekki í NBA-deild- inni vegna varnarhæfileika sinna og á tímabili settu and- stæðingarnir upp kerfi til að nýta sér þennan veikleika. Það er eiginlega ekki fýrr en á þessu tímabili sem Petrovic hefur fengið að leika eitthvað að ráði vegna þessa galla — kannski vegna þess að nú fýrst hefur hann gert eitthvað til að bæta varnarleik sinn með góðum árangri. Um sóknarhæfileika hans efast enginn, enda kapp- inn meðal stigahæstu leik- manna deildarinnar með með- altal í kringum 24 stig í leik. Auk þess er hittni hans úr 3 stiga skotum viðbrugðið. Af byssuburði, fíkni- efnaneyslu og nýjum liðum Það er ljóst að NBA-körfu- boltinn er heimur út af fýrir sig þar sem ýmislegt gerist sem varla skýrist af íþróttinni. Þar má nefna atvikið með vandræðamanninn Denis Rodman hjá Detroit Pistons, sem hefur verið í fúrðulegri geð- sveiflu í allan vetur. Rodman, sem tekur um tuttugu fráköst í leik og er kallaður frákastavél- mennið (robo rebounder), lék lítið með liðinu ffaman af vetri, enda gengi Pistons hörmulegt á meðan. Ljóst var að Rodman átti við erfiðleika að etja og hat- aði nánast eigið lið. Chuck Daly, fyrverandi þjálfari hans og núverandi þjálfari Nets, var sá eini sem gat talað við Rod- man, sem er auðvitað dálítið vandræðalegt þar sem hann þjálfaði annað lið. Síðan tók steininn úr þegar Rodman mætti með hlaðna byssu á æf- ingu hjá Pistons. Þetta varð til að beina athyglmni að geðheilsu leikmanna, sem margir hverjir eiga í augljósum erfiðleikum með að átta sig, og hefur verið ákveðið að fá hjálp fýrir Rod- Blóðtaka hjá KA.. , KA hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku þar sem sjö af þeim sem voru í sextáh manna hópnum síðastliðið sumar eru ýmist hættir eða farnir frá félaginu. Það eru þeir Ormarr örlygs- son, bróðir Þorvaldar hjá Nott- ingham Forest, Gunnar Gísla- son, sem leikur í Svíþjóð, Ámi Þór Freysteinsson, sem skipti yfir í Stjömuna, Pavel Vandas, sem er farinn heim til Tékkó- slóvakíu, Gunnar Már Más- son, sem hefúr skipt yfir í Leift- ur á Ólafsfirði, og Páll Gíslason og Öm Viðar Amarson, sem koma báðir til með að leika með hinu Akureyrarliðinu, Þór. Þá er óvíst með Árna Her- Qrmarr Orlygsson Hefurlagt skóna á hill- una. ARNIÞÓR Freysteins- S0N: Skiptiyfirí Stjörnuna. mannsson, en hann er í námi í Þýskalandi og kemur lfklega ekki heim fyrr en í júnílok. Sama má segja um fyrirliðann frá í fyrra, Bjarna Jónsson. Hann er í úrsmiðanámi í Sviss og kemur ekki heim fyrr en í byrjun júlí. Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir að KA leiki fýrstu leiki sína í annarri deild án níu leikmanna sem léku með liðinu á sama tíma árið áður. Einu góðu fréttirnar eru að einn leikmaður hafi gengið í raðir KA, Pétur Þorsteinn Óskars- son. Nafnið er kunnuglegt en hann mun helst hafa getið sér gott orð sem formaður Stúd- entaráðs Háskóla íslands. NBA-æði meðal barna Seinni hluti NBA-ferils Péturs Guömundssonar Pétur Guðmundsson hefur fluttinn um tvær milljónir NBA-körfuboltamynda. Pétur Guðmundsson körfuboltamaður hefúr gert það gott með að flytja inn ýmiss konar NBA- körfuboltadót frá Bandaríkjunum. Það gerir hann í samvhmu við Erling Pétursson, kaupmann í versluninni Tindastóli á Sauðárkróki. Það má því segja að NBA-ferli Péturs sé enn ekki lokið. „Það eru margir í þessum innflutningi og von- laust að ná einkaumboði á NBA-vörunum,“ segir Pétur. „Áhugi á NBA hefúr aukist gífurlega og þetta varð eins og sprengja síðasta haust, sérstaklega í myndunum. Þessi mikli áhugi er fýrst og fremst hjá börnunum, svona á bilinu 8 upp í 15 ára. Þó má geta þess að margir sem hafa fengið æði fýrir NBA- myndunum hafa engan sérstákan áhuga á íslenska körfúboltanum og sumir hverjir ekki einu sinni áhuga á körfubolta almennt.“ Er það rétt að 300þúsund körfuboltamyndir hafi aðeins dugað í tíu daga? „Já, í mesta lagi. Það var þá búið að bíða eftir myndum í talsverðan tíma svo að þær runnu út.“ Það erþá hœgt að segja, með hliðsjón af þessari miklu myndasölu, aðþú standir núá há tindi NBA-ferils þíns tekjulega séð? „Þótt ég hafi nú aldrei haft neitt út úr NBA- deildinni þá er ekkert hægt að bera þetta saman við það.“ Að lokum. Er einhver mynd afkörfubolta- stjömufágœtari eða verðmœtari en aðrar? „Já, nýliðamyndin af Shaquille O’Neal í seríu 2 er þeirra verðmætust. Það eiga hana þó nokkrir hér á landi. Ogþað eru örugglega til einhverjir sem eiga allar 520 myndirnar úr báðum ser- íunum sem nú eru í gangi.“ MichaelJordan Hefur leikið kappleik annan hvern dag síðasta árið og hef- ur nú meiri áhuga á golfi. man. Þá vakti ekki síður athygli þegar elsti maður deildarinnar, miðherjinn Robert Parish hjá Boston Celtics, var tekinn með unglingaefnið maríjúana í fór- um sínum. Hinn 39 ára Parish játaði strax og fékk skilorðs- bundinn dóm, enda um fyrsta brot að ræða. En þrátt fyrir smávægileg áföll er deildin á fullu. Nú er rætt um að fjölga frekar í henni og þykir líklegast að næsta lið komi frá Toronto í Kanada og yrði þar með fyrsta lið utan Bandaríkjanna til að leika í NBA. Með þessu yrðu 28 lið í deildinni en síðan 1988 hefur fjölgað um fjögur. Charlotte og Miami komu inn árið 1988 og Minnesota og Or- lando árið eftir. Þetta er auðvit- að enn eitt dæmið um útþenslu- stefnu NBA-boltans, sem rakar inn peningum.______________ Siguröur MárJónsson UM HELGINA FIMMTU DAGU R 1 1 1 . MARS HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í HANDBOLTA ísland - Ungverjaland kl. 17.00. Bein útsending. KARFA - úrvalsdeild Breiðablik- Haukar kl. 20.00. Lítilspenna fyrirsjá- anlegíþessumleikþarsem « Haukar eru öruggir i úrslit en Blikar þegar fallnir. Grindavík - Valur kl. 20.00. Úrslitaleikur. Hvorugt liðið má tapa ætli það sér að kom- astí úrslitakeppnina. Grind- vikingar sigurstranglegri þar sem þeireru á heimavelli. Bú- ast má við troðfullu húsi og stemmningu eftirþví. Tindastóll - Keflavík kl. 20.00. Tindastólsmenn eru i harðri fallbaráttu ásamt KR-ingum. Þ.e. annað hvort liðið þarfað leika við næst- efsta lið fyrstu deildar um réttinn til að keppa íúrvals- deild. Keflvíkingar eru þó " mun sigurstranglegri. Snæfell - Skallagrímur kl. 20.00. Skallagrímurverð- ur að sigra ætli liðið sér að komast i úrslitakeppnina. V R3 LAUGAR DAG U R1 1 3. MARS HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í HANDBOLTA ísland - Bandaríkin kl. 13.00. Bein útsending. KEILA Úrslit íslandsmótsins i keilu íkarla- og kvennaflokki fara fram i Keilulandi Garða bækl. 16.00. BADMINTON Meistaramót Reykjavíkur fer fram í TBR- húsinu. SUNNUDAGUR1 14. MARS l KARFA - úrvalsdeild Valur - Skallagrímur kl. 20.00. Einn afúrslitaleikj- unum um hvort liðið kemst í úrslitakeppnina. Keflavík - Haukar kl. 20.00. Formsatriði að Ijúka þessum leik þar sem bæði liðin eru komin áfram. Njarðvík - Breiðablik kl. 20.00. Leikursem ekki skiptir neinu máli. Joe Wright, Bandaríkjamaðurinn snjalli í liði Breiðabliks, er hins vegar kominn í keppni stigahæstu manna þrátt fyrir að hann sé tiltölulega nýkominn hingað*■ til lands. KR - Snæfell kl. 20.00. KR-ingar hafa verið á mikilli siglingu undanfarið og koma örugglega til með að velgja Snæfellingum undir uggum.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.