Pressan - 11.03.1993, Qupperneq 31
Fimmtudagurinn 11. mars 1993 10. tb. 4. árg.
GULA PRESSAN
HAFA SKAL
‘Hf 3
SEM BETUR HLJOMAR
Óvænt staða í samningamálum
opinberra starfsmanna
ALLIR A SKRIF-
STOFU BSRB
SAMÞYKKTU
VERKFALL
„Efumbjóðendur okkar vilja ekki fara í verkfall þá tök-
um við afþeim ómakið," segir Ögmundur Jónasson.
Hann segir að aðalkrafa starfsfólksins sé ekki launa-
hækkun heldur að félagar i BSRB samþykki verkfallið
sem hann bauð þeim upp á.„Dálítið skrítin staða," segir
Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefndar ríkisins.
„Efstarfsfólk verkalýðsfélags er í verkfalli vitum við ekki
við hvern við eigum að ræða."
Reykjavík, 11. mars. ______________
„Ég var að taka myndir af fræga
fólkinu í Reykjavík og smellti
mynd af þessari konu. Það var síð-
an ekki fyrr en ég fór að framkalla
filmurnar að ég áttaði mig á hvers
vegna ég hélt ég þekkti hana. Þetta
var Liberace, píanósnillingurinn
sjálfur,“ segir Magnús Ægisson,
ljósmyndari GULU PRESSUNN-
AR, sem vinnur við að taka mynd-
ir af næturlífi Reykjavíkur.
„Ég rétt spurði konuna um nafn.
Hún sagðist heita Gyða. Annað fór
okkur ekki á milli,“ segir Magnús.
GULA PRESSAN ræddi við
nokkra af gestum Ingólfscafés þetta
kvöld. Sumir sögðust óljóst muna eft-
ir konunni en aðrir báru við minnis-
leysi. Einn bar-
þjónanna mundi
þó glögglega eftir
henni.
„Mér fannst
pöntunin ein-
kennileg," segir
Kristján Sverris-
son barþjónn.
„Hún bað um
þrefaldan Sout-
hern Comfort í appelsíni og tvo græna
Salem. Það er dálítið líkt Liberace
þegar maður hugsar út í það.“
GULA PRESSAN óskar hér með
eftir að þeir, sem geta veitt einhveijar
upplýsingar um ferðir konunnar, sem
kallar sig Gyðu, láti blaðið vita. Blaðið
minnir á hversu góð landkynning það
Konan sem jósmyndari GULU PRESS-
UNNAR myndaði í Ingólfscafé. Hún
sagðist heita Gyða en það fór ekki
milli mála hver þarna var á ferð.
yrði ef Liberace íyndist á lífi í Reykja-
vík.
Reykjavík, 11. mars.________
Sérkennileg staða er nú komin
upp í samningamálum opin-
berra starfsmanna eftir að starfs-
fólk á aðalskrifstofu BSRB sam-
þykkti að fara í verkfall.
„Skilaboðin úr þessari atkvæða-
greiðslu voru skýr,“ segir Ögmund-
ur Jónasson, formaður BSRB. „Ail-
ir sem greiddu atkvæði vildu í verk-
fall og það sem fyrst.“
Að sögn ögmundar leggja starfs-
mennirnir ekki mikið upp ur kjara-
bótum þótt þeir muni að sjálfsögðu
ekki slá hendinni á móti þeim. „Það
sem við viljum númer eitt, t\’ö og
þrjú er þroskaðri umbjóðendur. Það
gengur náttúrulega ekki að við leggj-
um línurnar og greinum sóknar-
tækifæri ef almennir félagsmenn í
BSRB rústa þeim síðan með því að
kjósa vitlaust í atkvæðagreiðslum.
Við leggjum því áherslu á tvennt;
annaðhvort verði þessar atkvæða-
greiðslur lagðar niður eða fólk kýs
einfaldlega rétt.“
„Auðvitað er þetta skrítin staða,“
„Auðvitað viljum við einnig sýna
með þessu að við erum engar gung-
ur," segir Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB, sem nú er heima hjá
sér í verkfalii.
segir Þorsteinn Geirsson, formað-
ur samninganefndar ríkisins. „Úr
því að Ögmundur er í verkfalli get-
urn við ekki rætt við neinn. Málin
eru því í biðstöðu og við eyðum tím-
anum mest í að tefla.“
Lögfræðingur ávítað-
ur i héraðsdómi
Mætti í kjól
við réttarhald
Reykjavík, 11. mars.______
Baldur jörundsson héraðs-
dómslögmaður var ávítaður fyrir
héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyr-
ir að mæta í kjól í vitnaleiðslur í
forræðismáii.
„Þetta var óvart,“ segir Baldur. „Ég
var að flýta mér og tók árshátíðarkjól
konunnar í misgripum fyrir hemp-
una. Ég tók ekki eftir þessu fyrr en
dómarinn benti mér á það.“
Sérfræðingar í trúarbrögðum
kalla þetta kraftaverk
Bolunqarvík, ll.mars.
„Auðvitað vildi ég geta tekið
mark á þessu. En við í bæjar-
stjóminni höfum brennt okkur á
því að uppveðrast yfir smæstu
vonarglætum," sagði Ólafur
Kristjánsson, bæjarstjóri í Bol-
ungarvík, þegar GULA PRESSAN
sýndi honum mynd sem áhuga-
ljósmyndari tók af skýjabólstrum
fyrir ofan Bolungarvík. í þeim
má sjá ásjónu Jesú Krists og er
eins og hann sé að blessa bæinn
og hughreysta fólkið.
„í sjálfu sér er það ákveðin huggun
að málflutningur okkar skuli fá
hljómgrunn á æðstu stöðum. Við
vorum orðin hálfvondauf af því að
tala fyrir daufum eyrum ríkisstjórn-
arinnar,“ bætti Ólafur við.
Þeir sérfræðingar í trúmálum og
dulhyggju sem GULA PRESSAN
ræddi við voru á einu máli um að hér
væri kraftaverk á ferð.
„Þetta eru skýr skilaboð frá al-
mættinu," sagði Gunnar Þorsteins-
son í Krossinum. „Það stendur með
Bolvíkingum í þrengingum þeirra og
Ef myndin prentast vel má glögg-
lega sjá hvernig andlit Krists birtist í
skýjabólstrunum.
vill leiða þá út úr vandanum.“
„Ég veit ekki hvernig ég á að túlka
þetta,“ sagði Sverrir Hermanns-
son, bankastjóri Landsbankans,
þegar GULA PRESSAN bar þetta
undir hann, en Landsbankinn er
einn stærsti kröfuhafinn í þrotabú
EG. „Eftir að hafa skoðað bækur fyr-
irtækja Einars Guðfinnssonar finnst
mér þetta fullseint í rassinn gripið.
Forráðamönnum þessara fyrirtækja
hefði ekki veitt af einhvers konar
leiðsögn fyrr.“
Ný og spennandi samkeppni GULU PRESSUNNAR
Hvernig á að láta hjónabandið lukkast?
Fyrstu keppendurnir
Við höfum rifist upp á hvern dag í 40 ár
Segja hjónin Halldór og Viktoría r, sem segja pex og nöldur vera lykilinn að
langlífu hjónabandi.
Kristján
Daníelsson
segiraðfólk
úr viðskipta-
lífinu noti
helstfax-
þjónustuna.
Reykjavík, 11. mars.
„Við höfum ekki gefið hvort
öðru stundlegan frið frá því löngu
fyrir giftingu. Við slógumst í
brúðkaupsveislunni og endurtók-
um það á fjörutíu ára brúðkaups-
afmælinu,“ segja þau HaUdór
Pálsson og Viktoría Finnsdóttir,
sem hafa verið gift í fjörutíu ár —
„hamingjusamlega gift“ að eigin
sögn.
„Fólk gerir allt of mikið úr vináttu
og virðingu. Við höfum þekkt hjón
sem hafa rústað hjónabandi sínu með
endalausum tilraunum til að skilja
hvort annað og virða. Svoleiðis nokk-
uð er ekki fyrir okkur,“ segir Halldór.
Það má sjá á heimili þeirra hjóna að
Viktoría er mikill kvenskörungur.
Halldóri þykir sopinn hins vegar
góður og vill helst slappa af þegar
hann er heima fyrir. Viktoría er hins
vegar algjör bindindismanneskja.
„Við erum eins og svart og hvítt,“ seg-
ir Viktoría. „Og við eigum eins vel
saman og olía og vatn.“
En þau eru hins vegar sammála
um hver sé lykillinn að góðu
hjónabandi:
„Gott rifrildi og helst
upp á hvem dag,“ svara
þau bæði. „Við slóg-
umst þegar við vor-
um yngri en höfum
látið okkur nægja
að munnhöggvast í
seinni tíð. Það er
fullt eins gott.“
Ný þjónusta
FAXA BÆNIR
TIL GUÐS
Kópavogi, 11. mars.
Trúfélagið Frækornið hefur
auglýst nýja þjónustu; það býðst
til þess að faxa bænir fólks til
himna.
„Þetta er allt á byrjunarstigi hjá
okkur en undirtektir hafa verið góð-
ar,“ segir Kristján Daníelsson, for-
stöðumaður safnaðarins. „Það er *
einkum fólk úr viðskiptalífinu sem
hefur leitað til okkar. Það segist eiga
erfitt með að tala við guð í gegnum
hefðbundnar bænir. Það segir fax-
bænirnar raunveralegri."
UBERACE ER
f r
A LIFI!
Píanósnillingurinn sást í Ingólfscafé
um síðustu helgi, sex árum eftir að
hann var talinn hafa látist.