Pressan - 24.06.1993, Page 8
FRETTI R
8 PRBSSAN
Fimmtudagurinn 24. júní 1993
Nýjar upplýsingar um innihald úrgangs frá stálbræðslunni í Hafnarfirði
Stærsta PCB-mengunarslys landsins?
Sú endalausa
bibstaöa, sem
rekstur íslensku
stálverksmibj-
unnar í Hafnar-
firði er í, hefur
hættulegar auka-
verkanir. Mengun
frá athafnasvæb-
inu er mikil og
augljós, auk
þess sem margt
bendir til ab
þarna blundi
tímasprengja
sem gæti leitt til
stærsta PCB-
mengunarslyss á
landinu.
Undanfarið hafa birst fféttir
af því á Stöð 2 að hættulegt ryk
sé geymt við verksmiðjuna en
áður hafði verið bent á það
hér í PRESSUNNI. Það var
eitt af fyrstu embættisverkum
núverandi umhverfisráðherra,
össurar Skarphéðinssonar,
að mæta á staðinn og lýsti
hann yfir hneykslun sinni.
Hefur hann óskað eftir skýrslu
frá Hollustuvernd ríkisins
sem, samkvæmt upplýsingum
úr umhverfisráðuneytinu,
hann fær væntanlega í hend-
urnar nú um helgina.
Það sem um er að ræða í
þessu tilviki er geymsla á um
hundrað tonnum af ryki á
opnu svæði, en rykið inni-
heldur þungmálma eins og
blý, sink, arsenik og kadm-
íum. Er augljóst að það hefúr
blandast rigningarvatni og
runnið út í jarðveginn. Fróð-
legt er að sjá ummæli Sveins
Magnússonar, starfsmanns
Furu, sem nú rekur brota-
járnsvinnslu á svæðinu. 1 DV
segir hann að nú sé verið
„.. .að leita upplýsinga erlend-
is ffá um hvemig eigi að koma
efni af þessu tagi fyrir með
varanlegum hætti“. Þetta
kemur ankannalega út þegar
horft er til þess að nú em tæp-
lega tvö ár síðan verksmiðjan
fékk starfsleyfi, þar sem auð-
vitað var tekið á þessum mál-
um. Þess má geta að ekki hafa
fengist ákveðin svör um effir
hvaða starfsleyfi verksmiðjan
vinnur í dag, en líklega er það
þó samkvæmt þessu gamla
leyfi.
í raun er ekki hægt að líta á
ástandið við verksmiðjuna nú
öðruvísi en í samhengi við
hvemig til hennar var stofnað
á sínum tíma. Eins og áður
hefúr verið rakið hér í PRESS-
UNNI virðist aldrei hafa verið
ædunin að standa að eðlileg-
um rekstri í verksmiðjunni.
Þess vegna var allur kostnaður
vegna mengunarvarna talinn
tapaður peningur. Blaðið hef-
ur staðfestar upplýsingar um
að mengunarbúnaður, sem
átti að setja upp, hafi aldrei
komið til landsins.
Starfsleyfiö undimtaö
af Eiöi en aldrei faríö
eftir því
Þann 12. ágúst árið 1991
undirritaði Eiður Guðnason,
þáverandi umhverfisráðherra,
starfsleyfi fýrir íslenska stálfé-
lagið hf. Starfsleyfið var upp á
fimm síður og laut að mót-
töku, geymslu og vinnslu
brotamálma á Markhellu 4 í
Hafnarfirði.
Er skemmst frá því að segja
að þá níu mánuði sem verk-
smiðjan var starfrækt var nán-
ast aldrei farið eftir því sem í
starfsleyfinu stóð. Að sögn
Geoffs Crowley, framleiðslu-
stjóra verksmiðjunnar, vissi
hann ekki fyrr en nýlega um
ákvæði í starfsleyfinu eins og
að taka ryksýni tvisvar á dag,
sem að sjálfsögðu var aldrei
gert! Einnig átti að halda ná-
kvæmar dagbækur um allar
aukaafúrðir og úrgang sem til
félli á svæðinu. Ekki er vitað til
þess að það hafi verið gert.
Þetta starfsleyfi hefur því
reynst marklaust plagg og mat
Crowley það svo að 44 ákvæði
þess (af 46) hefðu verið brotin
frá upphafi.
Hugsanlegt að um
eitt tonn af PCB hafi
runniö niöur
Enn annað og alvarlegra
gæti hafa gerst þarna. Nýlegar
rannsóknir hafa sýnt að gera
verður ráð fyrir ákveðnu
magni af efúinu PCB í brota-
járnsúrgangi. Þetta kemur
meðal annars fram í skýrslu
frá Evrópubandalaginu frá í
júní í fyrra, sem Qallar um
brotajárnsframleiðslu. Úr-
gangur frá unnu brotajámi er
um 30 prósent af því sem fer í
tætara. Þetta er alþjóðlega við-
urkennt meðaltal.
Samkvæmt skýrslunni má
ætla að í þessum tætaraúr-
gangi sé frá 190 milligrömm-
um af PCB í kílói af úrgangi
upp í 590 milligrömm á kg.
Þessi úrgangur er því skil-
greindur sem hættulegur í
flestum Evrópubandalags-
löndum.
Enginn veit almennilega
hvað mikill tætaraúrgangur er
við svæðið, en skotið hefur
verið á að hann sé á mílli
4.000 og 5.000 tonn, sem
skellt hafi verið út í hraunið
eins og kemur ffarn á kortinu.
Ef það er rétt þá gæti í honum
verið um eitt tonn af PCB og
þá er miðað við lágmarkið.
Auðvitað er um að ræða
ágiskanir, en þetta hefúr verið
borið undir nokkra aðila sem
þekkja til málsins og telja þeir
þetta ekki ólíklega tölu. Birgir
Þórðarson, fyrrverandi starfs-
maður Hollustuverndar og
núverandi starfsmaður hjá
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands,
taldi þó að hlutfall iðnaðarúr-
gangs erlendis væri hærra,
sem gæti haft einhver áhrif í
þá veru að PCB væri minna
hér.
En ef þetta er rétt þá væri
um að ræða eitt stærsta tilvik
PCB-losunar hér á landi.
Undanfarin ár hefur verið í
gangi athugun á meintri PCB-
mengun frá athafnasvæði
Hringrásar við Sundahöfn, en
eftir því sem komist verður
næst var þar í mesta lagi um
að ræða einhver hundruð
kílóaafPCB.
Þess má reyndar geta að í
starfsleyfi verksmiðjunnar var
gert ráð fýrir að gengið yrði úr
skugga um að allir rafspennar,
þéttar og rofar sem verksmiðj-
an móttekur innihéldu ekki
PCB, en þá var ekki horft til
PCB-smitunar í úrgangi. Rétt
er að benda á að óvíst er að
PCB hafi lekið niður í grunn-
vatn sem tekið er til neyslu og
ef svo væri myndi útþynning
þess líklega vera mikil.
Svíarnir héldu því
fram aö efnaúrgangur
væri heppileg uppfyll-
ing undir groöuri
Eins og áður segir er lausn
mengunarmála í samræmi við
annað varðandi þessa verk-
smiðju. Þess má geta að í um-
sókn Björns Halleniusar,
stjórnarformanns Ipasco sem
átti ÍS, um starfsleyfi kemur
margt einkennilegt í ljós.
Hann segir þar meðal annars,
og er þá að tala um úrgang frá
tætara: „Þetta efni er oft notað
til uppfýllingar og eftir að það
hefur verið þakið með jarð-
vegi reynist það mjög næring-
arríkt land með trjám og
gróðri.“ Alfred A. Nijkerk,
forseti sambands brotajárns-
framleiðenda í Hollandi, fjall-
aði um þetta sem sérfræðing-
ur og gerði sérstaka athuga-
semd við þessa staðhæfingu
Halleniusar um leið og hann
benti á hversu fáránleg full-
yrðingin væri. Hann sagði að
um væri að ræða efni sem tal-
ið væri til efnaúrgangs (chem-
ical waste) í flestum Evrópu-
bandalagslöndum. Ekki er
ljóst hvað varð um þessa
skýrslu Nijkerks né hver bað
um hana; hana dagaði ein-
faldlega uppi í umræðunni
þar til hún fannst í gögnum
þrotabúsins.
í fýrrasumar fóru fram
bréfaskipti milli starfsmanna
Hollustuverndar og Heil-
brigðiseftirlits Hafnarfjarðar
og bústjóra. Þar gerðu starfs-
mennirnir athugasemdir við
fjölmörg atriði. Upplýsingar
um þetta voru sendar í um-
hverfisráðuneytið, sem virðist
síðan ekkert hafa gert með
þær í um það bil ár.________
Sigurður Már Jónsson
Sorp er verkefni
ekki vandamál! Meö samstarfi og
samnýtingu
þekkingar og reynslu
náum viö árangri
S©RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Stærsta samstarfsverkefni sveitarfélaga á islandi
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fær skýrslu frá Hollustuvernd um málið um
næstu helgi.
Hvað gerir PCB?
PCB-efni (poiychlorinate biphenyls) hafa veriö notuö um árabil vegna eiginleika
þeirra, svo sem hitastigsstöðugleika, Iftilla tæringaráhrifa og góöra smureiginleika.
Þau eru mikið notuö til einangrunar og kælingar.
PCB er til dæmís notað sem kæli- og einangrunarvökvi í rafþétta og spennubreyta; í
varmaskipti; í oiíur fyrir vökvadælur og sem mýki- og ieysiefni í málningu, lím, plast
og fleira. Sökum eiginleika sinna tíl aö festast við slétta fleti, t.d. gler og málm, eru
ýmis PCB-efni notuð sem tæringarvörn.
En framangreindir eiginleikar útskýra einnig hættuna við PCB. Niðurbrot efnanna af
vöidum baktería eða annarra lífvera er mjög hægfara. Sökum þess er viðstaða þeirra
í umhverfinu (svo sem í jarðvegí, vatni og sjó) mjög löng og þau eyðast seint. Þá get-
ur PCB fundist sem mengun í sjó. PCB leysist upp í fitu en ekki vatni. Það þýðir að
efnin geta safnast fyrir og geymst í fituvefjum ýmissa lífvera og þar með í fæðukeöj-
unni.
Mörg dæmi eru um að PCB-efni hafi valdið miklu heilsutjóni. Þekkt er svokölluö
„Yusho-veiki“, þar sem húðin dökknar, varir og nasir verða brúnar og fram koma út-
brot og kláði, taugaverkir, sjón- og heyrnartruflanír ásamt almennri vanlíðan. Talið
var aö þarna hefði aðeins þurft hálft gramm af efninu til aö valda varanlegu heilsu-
tjóni. Þá er PCB talið krabbameinsvaldandi.