Pressan - 24.06.1993, Síða 32
32
PRESSAN
SJONVARP OG BIO
Fimmtudagurinn 24. júní 1993
SJONVARP
Sjáið:
• Pretty Woman ★★★★ á Stöð 2 í kvöld, fimmtudagskvöld.
Richard Gere og Julia Roberts. Peningar og kynlíf. Semsagt;
Þyrnirósarævintýri með eitthvað íyrir alla en dálítið þreytt ef þú
“ért búinn að sjá hana oftar en einu sinni.
• Olsenliðið á kúpunni ★★★ í Sjónvarpinu á laugardaginn.
Það mega Danir eiga að þeir hafa húmor. Olsenliðið er kannski
ekki fyrir alla, en blessuð verið ekki svona forpokuð og leiðinleg
og leyfið ykkur að brosa að hinum stórhuga glæpamanni Olsen
&Co.
• Magni mús ★★★★ í Sjónvarpinu á föstudaginn. Loksins,
loksins kominn aftur! Hver man ekki eftir þættinum þar sem
Mighty Mouse réðst gegn þvottavélahernum. Algjör sýra, en að-
eins fýidr lengra komna.
• Hringurinn ★★★ Once around á Stöð 2 á laugardaginn.
Lætur lítið yfir sér en sannar enn einu sinni að Bandaríkjamenn
kunna að búa til bíómyndir.
• Forskrift að ríkidæmi í Tísku ★★★ á Stöð 2 á miðvikudag-
inn. Það finnst öllum gaman að horfa á fina, ríka fallega fólkið.
"Varist:
• Á tónleikum með Dance with a Stranger ★ í Sjónvarpinu á
föstudaginn. Norsk hljómsveit á tónleikum í Finnlandi. Þegar
saman koma óþolandi hressir bakbokaberar og þunglyndir
Finnar er ekki von á góðu.
• Glímugengið ★ á Stöð 2 á föstudagskvöldið. Fjallar um hóp
ægifagurra kvenna sem hafa lifibrauð sitt af fjölbragðaglímu.
Ekki bönnuð börnum og því garanteruð leiðindi á ferð.
• Auðlegð og ástríður ★ í Sjónvarpinu á fimmtudögum og
sunnudögum. Áströlsk leiðindi. Engar útitökur til að hækka
ekki kostnaðinn við gerð þáttanna og maður sér næstum hljóð-
og kvikmyndatökumanninn. Munið að áhorf lýsir innra manni.
• Draiunaprinsinn ★ She’ll take Romance á Stöð 2 á sunnu-
dagskvöldið. Linda Evans úr Dynasty leikur hamingjusama, vel
gifta veðurfréttakonu. Viljiði vita meira?
• • Fiðringur, Tickle me, á Stöð 2 á föstudagskvöldið. Þessar
gömlu myndir með Elvis Presley eldast hræðilega illa. Þær voru
heldur aldrei neitt góðar í upphafi.
KVIKMYNDIR
Algjört möst
• Spillti lögregluforinginn ★★★★
Bad Lieutinant Harvey Keitel var
góður í Reservoir Dogs en gerir enn
betur í þessari. Myndin fær umsvifa-
laust bestu meðmæli. BíóborginnL
• Feilspor ★★★ Annar blær yfir of-
beldinu. Miklu raunsærri-en við eig-
um að venjast frá Hollywood og jafn-
framt mun mannlegri. Laugarásbíói.
• Sommersby ★★★ Vel gerð, vel
leikin og oft unaðslega falleg mynd
um kunnuglega sögu. Bíóborginni.
• Dagurinn langi ★★★ Groundhog
Day Brilljant handrit og Bill Murray hárréttur maður í réttri
mynd. Sætur boðskapur sleppur undan að verða væminn.
Stjörnubíói.
• Mýs og menn ★★★ O/Mice and Men Sæt útgáfa af Stein-
beck-sögunni, mestmegnis laus við væmni. John Malkovich
góður að vanda. Háskólabíói.
• Siðleysi ★★★ Datnage Jer-
emy Irons leikur af feiknakrafti
þingmann sem ríður sig út af
þingi. Helst til langar kynlífssen-
ur nema fyrir þá sem hafa byggt
upp þol. Regnboganum.
• Stuttur Frakld ★★★ Þriggja
stjörnu fyrir hlé, rennur svo að
mestu út í sandinn. Frakkinn
stutti bjargar því sem bjargað verður. Sögubíói.
1 leiðindum
• Ósiðlegt tilboð ★★ Indecent proposal Svo hæg að það er varla
að hún festist í minni. Demi Moore bjargar því sem bjargað
verður. Bíóhöllinni og Háskólabíói.
• Löggan, stúlkan og bófinn ★★ Mad dog and Glory Ágæt
saga í slappri mynd. Bill Murray og Robert De Niro eins og þeir
eiga að sér. Segir fátt af afrekum Umu Thurman. Háskólabíói.
• Lifandi ★★ Alive Átakanleg saga, en persónusköpun er engin
og mannátið eins huggulegt og kostur er. Háskólabíói.
• Tveir ýktir ★★ National Lampoon’s Loaded Weapon 1 Alveg
á mörkunum að fá stjömu. Sundboladrottningunni Kathy Ire-
land er svo fyrir að þakka að myndin er ekki algjör bömmer.
Regnboganum.
Bömmer
• Elskan ég stækkaði bamið ★ Honey I blew up the kid Leið-
inleg öfúgmæli við leiðinlega mynd. Lærðu af reynslu þeirra sem
sáu fyrri myndina og haltu þig heima. Bíóhöllinni og Sögubíói.
• Captain Ron ® Það er ekki tilviljun að þú hefúr aldrei heyrt
þessa mynd nefhda. Sögubím.
• Stál í stál ® Fortress Ekki láta blekkjast þótt Christopher
Lambert leiki aðalhlutverkið. Listamannaheiðurinn vék fyrir
gróðavoninni. Háskólabíói.
í fótspor Tinu
Turner
Það hlaut að koma að því að einhverjum
hugkvæmdist að gera kvikmynd um kyn-
þokkafyllstu rokksöngkonu allra tíma,
Tinu Turner, Myndin, sem hlotið hefur
nafnið What’s Love Got to Do With It? og
er í leikstjórn Brians Gibson, fjallar um
viðburðaríka ævi Turner; árin sextán með
fyrrum eiginmanninum Ike, sem leikinn er
af Laurence Fishburne, sorgina, gleðina,
frægðina og framann. Myndin um Turner
vakti strax mikla athygli vestanhafs, ekki
síst meðal svartra leikkvenna í Hollywood,
sem allar vildu leika rokksöngkonuna. Það
gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig að finna
þá réttu í hlutverkið, enda ekki á allra færi
að fara í fötin hennar Tinu. Sú sem hreppti
aðalhlutverkið heitir Angela Bassett og hef-
ur meðal annars leikið í myndunum Malc-
olm X og Boys ’N the Hood. Til að undir-
búa Bassett sem best fyrir hlutverkið var
Turner fengin til að æfa með henni sviðs-
framkomu og þokkafullar hreyfingar, eins
og henni einni er lagið. Turner syngur sjálf
öll lögin í myndinni, en Bassett sér um hitt
og veldur hlutverkinu að sögn ágætlega.
Hún ku taka sig sérstaklega vel út með hár-
kollurnar 35, en átti aftur á móti í stökustu
vandræðum með háu hælana, sem hún
neyddist til að ganga á út alla myndina.
Bassett tók hlutverk sitt mjög alvarlega og
æfði líkamsrækt frá morgni til kvölds, eða
þangað til leikstjórinn, Gibsons, bað hana
vinsamlega að hætta, áður en hún yrði eins
og kraftlyftingamaður í laginu.
08.00 Bamaefni. Bugs
Bunnie.
09.00 Tommi og Jenni.
10.00 Fræösluefni lyrir böm.
Dýralífsmyndir og/eöa
þættir um stæröfræöi
ogefnáftæöE
12.00 Fréttir og fréttaskýring-
ar.
13.00 MTV í bland viö íslensk
tónlistarmyndbönd.
14.00 Framhaldsþættir. Dre-.
am of Jeanie, meö
Larry Hagman o.fl.
15.00 Gilligan’s Is-
land. Gamanmynda-
flokkur um hóp af
strandaglópum á eyöi-
eyju.
17.00 Þáttur um Jón Þorláks-
son í umsjá Hannesar
Hólmsteins Gissurar-
sonar.
17.30 60 Minutes.
18.30 Islensktónlistarmynd-
bönd.
19.00 Þáttaröö um sögu
stjómmálaskörunga
20. aldar. Fyrsti þáttur.
Winston Churchill.
20.00 Fréttir a la CNN og
SKY.
21.00 Ræöupúltiö. Maðurinn
af götunni fær aö tjá
sig um fréttir, fréttamat
og dagskrá sjónvarps-
ins í 1-2 mínútur.
22.00 Kvikmyndir. Those
Magnificent Men in
Their Rying Machines,
meö Terry Thomas o.fl.
24.00 Orrustan um Bretland.
Kvikmynd meö Michael
Caine og Cristopher
Plummer.
02.00 Debbie does Dallas.
XXX
04.00 Rokk í Reykjavík. Kvik-
mynd eftir Friörik Þór
Friöriksson.
06.00 Sódóma Reykjavík.
KVIKMYNDIR
Tímamótaverk frá Hollywood
FALLING DOWN
SÖGUBlÓI
★★★★
•••••••••••••••••••••••••••
Fyrir nokkrum árum var
gerð kvikmyndin Joe, sem
lýsti viðhorfum og lífi verka-
manns í Bandaríkjunum á
áttunda áratugnum. Þetta var
hrollköld mynd og þörf
áminning róttækum mennta-
mönnum sem ástunduðu
verkalýðs- og minnihluta-
hópadekur. En kvikmyndin
Joe var ekld fýrirboði mildlla
átaka í Bandaríkjunum, því
verkafólk hefur fyrst og
ffernst áhuga á að vinna og er
seinþreytt til vandræða, séu
lífskjör á annað borð þokka-
leg, eins og þá var. Forystu-
menn verkafólksins voru
raunsæir og hófsamir og
höfðu unnið sig upp, menn á
borð við Hoffa, sem gerðu
samninga við mafíuna, því
það var einfaldlega hagkvæmt
fýrir verkafólk, sbr. ágæta
lcvikmynd nýlega. Vandræðin
byrja fyrst þegar kreppan og
upplausnin nær til mennt-
aðra miðstétta, þegar hún
nær til þeirra sem eru færir
um að veita forystu. Um
þetta fjallar saga Dostójevskís
„Hinir djöfulóðu", sagan um
Stafrogin fursta og samsæris-
menn hans. Með afnámi
þrælahaldsins í Rússlandi um
1860 missti stór hluti aðalsins
og hinnar menntuðu mið-
stéttar fýrirvinnuna og hlut-
verk sitt, fannst sér ofaukið.
Það voru þessir óþörfú menn
GUÐMUNDUR
ÓLAFSSON
sem sköpuðu hinn sovéska
kommúnisma en ekki bænd-
ur og verkafólk. Lee Iacocca,
forstjóri Chrysler, hefur sagt
eitthvað á þá leið að miðstétt-
in og starfsmennirnir í verk-
smiðjunum séu límið sem
haldi bandarísku samfélagi
saman.
Það er þetta lím Iacocca
sem kvikmyndin Falling
Down fjallar um, upplausnin
í hinni bandarísku miðstétt,
sem finnst sér ofaukið um
leið og hún lítur á sig sem
burðarás samfélagsins. Þessir
óþörfú menn í Bandaríkjun-
um munu ekki sitja aðgerðar-
lausir til lengdar. Þeir eru ekki
aðeins fljótir til vandræð-
anna, þeir munu skipuleggja
þau og magna. Þess vegna er
kvikmyndin Falling Down
fyrirboði skelfilegra tíðinda
eftir því sem hin menningar-
lega og efnahagslega kreppa
dýpkar á Vesturlöndum.
Söguþráður myndarinnar
er ekki flókinn. Bandarískur
miðstéttarmaður, karlmaður
í hvítri skyrtu með bindi,
lendir í umferðarhnút og
ákveður að yfirgefa bílinn og
halda af stað gangandi áleiðis
í afrnæli dóttur sinnar. Hann
vann áður í eldflaugaverk-
smiðju en er búinn að missa
vinnuna vegna hruns komm-
únismanns. Konan er skilin
við hann og hefur fengið
dóm upp á að hann haldi sig
fjarri þeim mæðgum vegna
hugsanlegs ofbeldis. Ekki svo
að skilja að hann hafi gerst
sekur um ofbeldi, dómarinn
taldi best að dæma hann til
afar takmarkaðra samskipta
við dótturina, honum og öðr-
um til viðvörunar. Myndin
greinir nú frá för þessa
, manns þennan viðburðaríka
dag. Hann lendir í útistöðum
við minnihlutahópa, síma-
sjálfsala, hamborgarasölustað
og nýnasista, eða eins og segir
í undirtitli myndarinnar:
hann er venjulegur maður í
stríði við daglegt líf. Hann á
sér ekki enn neina málsvara,
hann er ekki efnahagslega
hagkvæmur (not economic-
ally viable) eins og segir á ein-
um stað í myndinni. Hans er
ekki þörf og hann verður
furðu lostinn í lok myndar-
innar þegar hann spyr lög-
reglumann: Am I the bad
guy?
Allir helstu kvikmynda-
ffamleiðendur í Hollywood
höfðu hafnað handritinu að
þessari mynd. Það var Micha-
el Douglas sjálfur sem átti
frumkvæðið að gerð hennar,
því hann langaði til þess að
takast á við eitthvað merki-
legra en að vera „supporting
superstar“ fyrir þær Glenn
Close (Fatal Attraction) og
Sharon Stone (Basic Instinct).
Hann fékk vin sinn til margra
ára, Joel Schumacher, til að
Er ég vondi kallinn?
stjórna myndinni, en að öðru
leyti eru frábærir leikarar í
hverju hlutverki og myndin
afburðavel gerð í alla staði.
Ýmsir rétttrúnaðarhópar í
Bandaríkjunum hafa risið
upp á afturlappirnar í tilefni
af þessari mynd, svo sem
I.andssamband Kóreumanna
og jafnréttiskonur, en Schu-
macher hefur látið hafa eftir
sér að þeir félagar nenni eldd
að framleiða Disney-sætsúp-
ur lengur og Michael Douglas
segir í blaðaviðtölum: „Það er
ekki hægt að biðja mig um
pólitískan rétttrúnað, ég er
aðeins að skilgreina hvernig
fólkinu í landinu líður.“
Þessi kvikmynd er um
margt tímamótaverk. Hér er
á ferðinni Hollywood-mynd
sem hefur ekki að markmiði
að framleiða drauma handa
almenningi heldur að afhjúpa
raunverulega martröð. í
henni eru engar hetjur eða
skúrkar, ekkert verpmilegt
ástardrama. í henni éru ekki
dregnar upp falskar glans-
myndir, þvert á móti eru þær
riínar niður. En það sem
mest er um vert er umíjöllun-
in um hinn hættulega mið-
stéttarmann sem finnst sér
ofaukið í öllu ónytjungadekr-
inu og mættu íslenskir rithöf-
undar mikið af því læra. Það
er trú mín að þessi mynd eigi
eftir að varpa ljósi langt inn í
framtíðina, ekki ósvipað og
„Hinir djöfulóðu" á sínum
tíma.