Pressan - 30.09.1993, Blaðsíða 36
H arka er að færast af al-
vöru í hamborgarabransann.
Við heyr-
um að
M c D o n -
ald’s hyggi
á aðgerðir
g e g n
Staldrinu
við Stekkj-
arbakka
v e g n a
notkunar þess á slagorðinu
„Beint í bílinn“, sem notað hef-
ur verið sem íslenskun á „Dri-
ve-thru“. Þetta hefur Staldrið
notað í auglýsingum, en nú
segist McDonald’s hafa skráð
einkaleyíi á slagorðinu. Og það
er engin elsku mamma: lög-
maður McDonald’s hefur nú
sent Staldrinu bréf þar sem lög-
banni er hótað umsvifalaust ef
slagorðið sést áfram í auglýs-
ingum þess...
iðræður standa nú yfir á
milli aðstandenda Tímans og
forystu Alþýðubandalagsins
um hvernig sá flokkur kemur
að rekstri blaðsins. Alþýðu-
bandalagsmenn bjóða helst til
kaupanna áskrifendalista Viku-
blaðsins,
sem yrði
lagt niður
ef samning-
ar næðust,
og gamlan
áskrifenda-
lista Þjóð-
viljans heit-
ins. Samtals
eru þetta í
kringum tíu þúsund nöín, en
alls óvíst er hvernig má meta
þau að verðgildi. Það kann að
flækja samninga að innan
stjómar Mótvægis er ekki bein-
línis gott samkomulag eftir
ráðningu Þórs Jónssonar sem
ritstjóra. Til dæmis virðist
Steingrímur Hermannsson
hafa tekið ráðninguna svo
nærri sér að hann hefur ekki
^Jiaft fyrir því að mæta á síðustu
stjómarfundi...
STÓR FJÖLSKYLDU PIZZA
PEPPERONI
ANANAS OG LAUKUR
- krónu veisla fyrir a. m. k. þrjá til fjóra.
Helgartllboö þetta gildir einungis:
Fimmtudag, Föstudag, Laugardag og Sunnudag.
VJá ráðherra Alþýðuflokksins
sem ekki hefur verið tengdur
spillingarmálum hingað til,
Ossur Skarphéðinsson, stend-
ur nú líklega frammi fýrir sinni
fyrstu þol-
raun á því
sviði. Til
stendur að
ráða for-
stjóra Nátt-
úrufræði-
stofnunar
og meðal
m a r g r a
umsækj -
enda er að minnsta kosti einn
flokksbundinn krati, Birgir
Jónsson, jarðfræðingur á
Orkustofnun. Ekki er okkur
kunnugt um hvaða hæfríiskröf-
ur em gerðar til forstjórastarfs-
ins, en allt að einu verður ef-
laust vel fylgst með ákvörðun
Össurar...
□ V) o z<
s SN O N o &
DOMINO'S
PIZZA
ENGINN GETUR BETURI