Pressan - 09.12.1993, Síða 5

Pressan - 09.12.1993, Síða 5
Fimmtudagurinn 9. desember 1993 BÓKA- O G PLÖTUBLAÐ Er Ijóðið bjargvættur mannsins eða hans síðasti vitnisburður? Hylling skáldsins Ljóðlínudans heitir verk- ið, það sjöunda í röð ljóða- bóka sem Sigurður Pálsson skáld hefur sent frá sér á átj- án ára ferli. Hann bætir hér enn einni skrautfjöðrinni í hatt sem rúmar auk ljóða- bókanna leikrit, óperutexta, fjölda þýðinga á erlendum stórskáldum og stöku per- sónuleg viðtöl fýrir glansrit- in. í þessari viku var síðasta verk Sigurðar, Ljóð námu völd, tilnefnt af íslands hálfu til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs 1994. Um nýjustu Ijóðabók þína, Ljóðlínudans; hvert er yrkis- efnið að þessu sinni? „Kannski felst byrjunin á einhvern hátt á skýringu í nafninu. Það er einhver jafnvægiskúnst milli vonar og ótta, milli úti og inni, sem má hugsanlega sjá út úr henni. Stöðugur og tiltölu- lega hættulegur jafnvægis- leikur eins og línudans er. Þetta er hylling, fallegt orð sem þeir kalla „hommage“ á frönsku, hylling til dansins, til ljóðlistarinnar og til list- arinnar almennt, sem ein- hvers konar fýrirbæris sem fer langleiðina með að bjarga mannfólkinu yfir ógnardjúpið. Sem er ein- hver vitnisburður um feg- urðina á þeim hroðalegu tímum sem við lifum núna og höfum alltaf lifað. Þetta er ekkert nýtt að mannkyn- ið er í vandræðum með sjálft sig, eins og blasir við í fréttum á hverju kvöldi.“ Talandi um vandrœði sem blasa við. Því hefur verið spáð svo lengi að Ijóðið sé að dauða komið að það er kannski rétt að snúa spurn- ingunni við og spyrja: hvað er það sem heldur lífi í Ijóð- inu? „Ég var að lesa merkilegt greinasafn um daginn eftir mexíkóska nóbelskáldið Octavio Paz, sem að mínu mati er besta núlifandi ljóð- skáldið. Þar er hann að tala um það að ljóðlistin hefur aldrei á nokkrum stað né tíma verið fjöldalist. Samt sem áður hefur ljóðlistin alltaf komið sterkust út á endanum. Frá ýmsum eldri tímaskeiðum er allt gleymt og horfíð nema í rauninni örfá ljóð. En þetta er samt brenn- andi spurning, því aðstæð- urnar eru kannski gjör- breyttar þótt mönnum finnist það reyndar um alla tíma. Þessi gífurlega fjöl- miðlun, vídeóið og sjón- varpið sem fyrirbæri er stórhættulegt vegna þess að það er svo stéttaskiptandi. Menn eru farnir að hafa áhyggjur af því að það hefur orðið til eins konar sjón- varpsstétt, verr menntaðar stéttir og lágstéttir sem eru ekki læsar lengur. Síðan fá menn stétt sem kann að lesa en á milli þessara tveggja er sívaxandi djúp. Það er að sjálfsögðu stórhættulegt fyr- ir öll samfélög þegar þegn- arnir skipast í fýlkingar sem hafa ekki lengur möguleika á að skilja hver aðra með öllum þeim vandræðum, ofbeldi og klikkun sem slíkt býður upp á. Ég vona að ljóðinu takist að kasta út ljóðlínu yfir þetta djúp.“ En er það ekki orðið of seint? Er lesendahópurinn ekki nær eingöngu takmark- aður við þessa menntuðu eða bókvitru stétt? „Mjög víða, en sá hópur sem les ljóð er hlutfallslega miklu, miklu stærri hér en víða annars staðar. Við höf- um hingað til ekki haft svona rosalega skýra stétta- skiptingu, sem betur fer. Hingað til hefur ljóðlistin á íslandi haft miklu meiri dreifingu og notið meiri áhuga þrátt fyrir allt. Þetta veldur því að það hefur ver- ið hópur hæfileikaríks ungs fólks sem hefur leitað yfir í ljóðlistina. Hér á landi höf- um við sem betur fer breið- fylkingu upprennandi kyn- slóðar.“ Mönnum hefur einmitt orðið tíðrœtt um að það sé mikill uppgangur hjá yngri kynslóðum. „Það eru ótvíræðir hæfi- leikar þar. Ég er kannski kominn af kynslóð sem er milli vita. Þannig er ég sem betur fer ekki lengur upp- rennandi en ekki heldur orðinn fjörgamall. Mér finnst það vera mikill styrk- ur íslenskri ljóðlist um þess- ar mundir að það er skap- andi og hæfileikaríkt ungt fólk sem virkilega leitar inn á þetta svið. Annars er Ijóðið að mörgu leyti mjög nútíma- legt verk vegna þess að fýrir nútímamenn, sem hafa ekki tíma til neins, eru þetta stutt og afmörkuð verk.“ Þú hefur tekist á við flest ritform að skáldsögunni slepptri. Er einhver ástœða fyrir því? „Það hefur nú bara yfir- leitt endað með því að ég þjappa saman. í stað þess að skrifa smásögu skrifa ég eitt ljóð þar sem er eitthvert grundvallaratriði sem ég dreg saman.“ Ein spurning að lokum. Þú minntist á þann fjölda miðla sem fólk hefur úr að velja í dag. Manni finnst eðli Ijóðs- ins vera svolítið á skjön við þessa hraðvirku miðla, þar sem Ijóðið er í eðli sínu eintal höfundar við lesanda. Er ekki hálffúlt að þurfa að bœta einhverju við bók eins og þessa eða gefa viðtal um hana? „Ég harka það alveg af mér, þótt höfundar afvega- leiði oft lesendur með sín- um vangaveltum. Ég reyni að stilla þeim mjög í hóf því það er komið að lesandan- um. Ég er búinn að setja punkt og ætti náttúrlega alls ekki að opna kjaftinn neitt Skapari sköpunar SIGURÐUR PÁLSSON UÓÐLÍNUDANS FORLAGIÐ ★★★ Sigurður Pálsson er formfast skáld. Ljóð hans eru bundin hans eigin persónulega bragarhætti sem mótar ytri einkenni kveðskaparins engu síður en rímorð, ljóðstafir og reglu- bundin hrynjandi gera í verkum annarra skálda frá öndverðu og fram á þennan dag. í hógværu sendibréfi til lesandans aftan á nýjustu bók sinni segir Sigurður manninn reyna að „hugsa eins og sá sem skapar þegar hann yrkir ljóð“, hugsa eins og Guð. Að mínu viti stefnir höfundarverk ljóðskáldsins Sigurðar Pálssonar að sköp- un sem er „guðlegri“ en flestra annarra íslenskra skálda, að því leyti að hún byggir á heildstæðu kerfi. Undirritaður stenst ekki þá freistingu að líkja Ijóðum Sigurðar við manneskjurnar sem einstaklinga, hverra til- vera öðlast skýrasta merk- ingu í samhengi við aðrar manneskjur, samfélag sitt og sögu. Sigurður yrkir vitanlega í títtnefndu frjálsu formi. En ljóðstafir Sigurðar eru sér- hvert ljóð hans, rímorðin eru hver einstakur kafli bók- anna og saman mynda þær reglubundna hrynjandi út- gáfuferilsins allt frá 1975. Líkt og segir í texta forlags aftan á Ljóð vega gerð: „Yrk- isefhin eru fjölbreytt og skír- „Sigurður slœr dimm- an hljóm íþessari bók ogþað er nokkur ný- lunda hvað hann er allsráðandi. Að því leytinu er rödd bókar- innar heilsteypt og má telja henni til tekna eða lasts, allt eftir smekk. “ skotanir margvíslegar. Við sjáum að bernskuslóðir, höfuðborg og heimsborg eru enn á sínum stað og sömuleiðis hugsun Sigurðar um tíma og rými og ferðalag í margs konar skilningi." — Þessi texti gæti prýtt kápur allra bóka skáldsins og í sjálfu sér bókarkápur marg- falt fleiri höfunda þessarar aldar, svo almennt sem inn- takið er, ef ekki kæmi til þetta litla „enn á sínum stað“. Það er margt enn á sínum stað í heildarverki Sigurðar. Fyrstir verða auð- vitað á veginum titlar bók- anna, hingað til formfastar tvær þrenningar þriggja orða nafna, frumlag-um- sögn-andlag á yfirborðinu en líka margræður leikur að samsetningu orðanna LJÓÐ VEGA SALT LJÓÐ VEGA MENN LJÓÐ VEGA GERÐ LJÓÐ NÁMU LAND LJÓÐ NÁMU MENN LJÓÐ NÁMU VÖLD LJÓÐLÍNUDANS Innan hverrar bókar ræð- ur formið einnig uppröðun að vissu marki þar sem skiptast á ljóðaflokkar, stundum með númeruðum ljóðum eða ákveðnu sam- eiginlegu uppleggi: Ljóð- námuland I-IX, Nocturnes handa sólkerfinu, mánaða- ljóð. Einnig má ganga að ákveðnum yrkisefnum vís- um í hverri bók: bernsku- slóðir, Reykjavík, Frakkland. Nú er vert að stoppa að- eins og girða fyrir þann hugsanlega misskilning að verið sé að gefa í skyn að Sigurður Pálsson sé klisju- skáld. Langtífrá. Fyrrnefnd formeinkenni eru hins vegar athygli verð í ljósi tilvitnaðr- ar umsagnar gagnrýnanda á kápubro'ti Ljóð vega gerð: „Ég minnist þess ekki að breytileiki mannlegs lífs, sem góðborgari nefnir ör- yggisleysi og óttast meiren Grýlu, hafi fyrr verið ákallaður svo sönnum rórrli sem ímynd hamingjunnar.“ Munu flestir les- endur Sigurðar líka kannast við grundvöll slíkra yrðinga í ljóðum hans: „Ólmir villikettir spurn- inganna/reynast betur við ljóð- vegagerð/en þæg- ar skepiiur/kok- hraustrar vissu“ (Ljóðvegagerð III), „Burtu nú héðan strax og langt!/Frá síbylju háskalausrar málamyndabar- áttu/Frá síbylju óumbreyti- leikans pempíuglaða/Frá sí- bylju öryggislæstu sann- leikskommóðunnar" (Á hringvegi ljóðsins I), „Úti er háspennusólskin/lífshættan sem betur fer/ekki liðin hjá“ (Júníljóð). Sigurður er vissulega skáld margbreytileikans, frelsisins og lífsháskans, boðberi þess að brjóta hlekki dauðrar vanafestu hversdagsleikans. En um leið velur hann verkum sín- um form sem er að sínu leyti jafnháttbundið og fer- skeytlan og hlýtur það að bjóða upp á margvíslega túlkun. Svo maður grípi til myndmáls þá leiðir hug- myndin um skáldið sem skapandi guð hugann að einhverskonar vetrarbraut, þar sem frelsi og óreiða ríkja innan plánetanna, grunn- meir um verkið. En það má ekki gleyma því að það eru verkin sem skipta máli, ekki höfundurinn; hvorki hvern- ig hann lítur út né hvað hrekkur upp úr honum um eigið verk.“ Þorsteinn Högni Gunnarsson Bækur Siguröar Pálssonar Ljóö vega salt 1975 Vakti verðskuldaða athygli á sínum tima sem öflugt byrj- andaverk. Markar skýr höfund- areinkenni nýstárlegs mynd- máls og fundvísi á snjalla orða- leiki auk alþjóðleikans. Sárafáir veikir hlekkir. Ljóð vega menn 1980 ★★ Áberandi fátækari að hug- myndum en fyrri bókin. Sumt i Ijóðafiokkunum ekki laust við þvingaða tilgerð. Ljóð vega gerð 1982 ★★ Torræð Ijóð og alvörugefin eru hér nimfrek úr hófi. Ljóð skálds sem situr á sínu skýi, með hug- ann við allt annað en lesendur. Ljóð námu land 1985 ★ Grunnt og kæruleysislega ort. Má ekki á milli sjá hvort sumt í þessari bók eru skapandi orða- leikir eða hreinlega orðhenglar. Ljóð námu menn 1988 ★★★ Sigurður finnur hér aftur mælskuna, dansinn, leikinn og nýstárleikann í tungumálinu. Upphaf þessarar bókar býr yfir þvi sem svo sárlega skorti í bókinni á undan. Ljóð námu völd 1990 ★★★★ Þótt sumt sé hér býsna sjálf- hverft er þetta án efa skemmti- legasta bók skáldsins. Fullkom- in blanda gáska, alvöru, ein- lægni, draums og raunveru. Eða ástar, harms, fögnuðar og trúar. eininga einstakra ljóða, en sólkerfin binda jafnframt í annarskonar lögmál. Per- sónulega er ég þó hrifnari af þessari líkingu, sem ég held að standist þónokkra skoð- un: ljóð, ljóðaflokkur, ljóða- bók, heildarverk, skáld = einstaklingur, fjölskylda, samfélag, heimur, guð. I þeim skilningi er frelsisboð- unin ekki heróp byltingar, frelsið er ekki algert, það er háð skýrum leikreglum. Hlekkirnir eru á innri hugs- un og skynjun einstaklings- ins fremur en að samfélagið undiroki einstaklinginn. Vissulega þarf engar slíkar skilgreiningar til að njóta ljóðlistar Sigurðar, en hug- myndin um einhverslags heildarhugsun að baki verk- unum er það augljós, ásamt því að sterk tengsl eru. milli einstakra ljóða og sjá má þróun yrkisefnanna frá bók til bókar, að hún er nánast óumflýjanleg auk þess að geta verið gífurlega merk- ingarvíkkandi. Nýjasta ljóðabók Sigurð- ar, Ljóðlínudans, sver sig vissulega í ættina. I fyrsta hlutanum, samnefndum bókinni, eru dregnar hlið- stæður lífs og Ijóðs, dans eft- ir strengdri línu yfir hyldýpi tortímingar. Sköpun, líf og dauði eru nátengd og eilífur fögnuður er yfirskyggður feigðinni: Ljóðlínudans III Sveittur sáðmaður hugar að veðri Það eru þúsund plógför PRESSAN B5 SIGURÐUR PÁLSSON. „Það eru verkin sem skipta máli, ekki höfundurinn; hvorki hvernig hann lítur út né hvað hrekkur upp úr honum um eigið verk.“ á yfirborði jarðar Þúsund kjölrákir á sjónum Þúsund nýteknar grafir á yfirborði jarðar Sljór steðjinn tekur lengi við höggum þegar Ijáimir eru dengdir Á bókarkápu segir skáldið: „Mér finnst þetta femt: ástin, harmurinn, fögnuðurinn og trúin yfirleitt saman í blöndu í ljóðaskálinni." Það er ekki laust við að harmurinn, eða kannski sambland söknuðar og hryggðar, sé sá ofan- greindra þátta sem sterkast er ofinn í heild bókarinnar. Sjálf- ur dansinn er alls ekki galsa- fenginn, heldur barátta við óttann og nauðsynlegur til að falla ekki af línunni: „[...] Dönsum meðan tvö almanök mætast/Þvi dansinn er hreyf- ing og sífelld leit/að nýju jaín- vægi/Meðan öllu er að ljúka/meðan allt er að byrja [...]“ (Nýársljóð VII). I þess- um síðasta kafla bókarinnar, Nýársljóð, er líkt og stað- næmst sé á línunni og hik verði á dansinum. Aldamótin vekja blendnar tilfinningar og íjærst er fögnuðurinn. Þau kveikja miklu ffemur söknuð til æskunnar og ugg vegna ná- lægðar dauðans. Miðborgin, sem í fýrri bókum Sigurðar er yfirleitt borg næturlífsins, vorsins eða Ijómandi sumar- daga, er hér borg haustsins og fallandi laufskrúðs sem boðar komu vetrarins sem leggur dauðagrímu yfir borgina. Sigurður slær dimman hljóm í þessari bók og það er nokkur nýlunda hvað hann er allsráðandi. Að því leytinu er rödd bókarinnar heilsteypt og má telja henni til tekna eða lasts, allt eftir smekk. Jafn- framt er ekki gott að segja hvort röddin tjáir æðruleysi, uppgjöf eða sátt. Kannski allt í senn. Að minnsta kosti þykist ég sjá ákveðið uppgjör við títt- nefnd hefðbundin yrkisefni Sigurðar, svolitið eins og sett- ur sé punktur aftan við mörg þeirra og niðurstaða fengin: Nýársljóð II Háspennan lífshœttan lífið ágœt þrenning Það vantar alltafgóða þrí- eind Þrír losa okkur undan einum og tveimur einn tveir einn tveir tveir sem vilja alltaf búa til einan sem leitar að öðrum setn ...ogsvoframvegis En þrír í einum Þríeind! Þrenning! Hvílík uppfinning! En ef til vill markar Ljóð- línudans ekki þau endalok sem maður fær á tilfinning- una við lesturinn, heldur þvert á móti nýtt upphaf. Ég ætla að laumast til að bíða spenntur eftir næstu bók Sig- urðar Pálssonar. Ólafur Haraldsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.