Pressan - 09.12.1993, Blaðsíða 6

Pressan - 09.12.1993, Blaðsíða 6
BÓKA- O G PLÖTU BLAÐ B6 PRESSAN Fimmtudagurinn 9. desember 1993 Plötur Harðar Torfasonar HÖRÐUR TORFASON SYNGUR EIGIN LÖG ★ ★★★ 1970 i kjðlfar mikillar þjóðlaga- vakningar kemur ungur trúbador með fyrstu ís- lensku trúbadorplötuna. Platan vakti mikla athygli —■ sérstaklega „Ég leitaði blárra blóma“ og „Þú ert sjálfur Guðjón" — enda frá- bært byrjandaverk. ÁN ÞÍN ★ ★ 1971 Dauft bergmál af fyrri plöt- unni, langt í frá jafnlitrík og fersk. DÆGRADVÖL ★ ★ 1976 Hörður enn á órafmögnuð- um nótum. Söngur Harðar á köflum kraftmikill en und- irleikurinn linur. TABU ★ ★★★ 1984 Loks kveður við nýjan tón. Rafmagnað popp og rokk þar sem Kamarorghestar fara með aukahlutverk. Tímamótaplata þar sem yrkisefnin eru dimm stræti stórborgarinnar og hinn lukti heimur hommans. HUGFLÆÐI ★ ★★ 1987 Órafmagnað þjóðlagapopp. Plötunni var vel tekið og innihélt klassísk lög eins og „Litli fugl", „Rafmagn" og „Lfnudansarinn“. LAVMÆLT 1988 Tekin upp og gefin út í Danmörku. Vandfundin á Islandi en innihélt efni af „Hugflæði" í danskri útgáfu. RAUÐI ÞRÁÐURINN ★ ★★ 1989 Tvöföld plata með tónleik- um af Hótel Borg. Gömul lög að megninu til, en nokk- ur ný í lifandi tónleikaútgáf- um. Rafmögnuðum hljóð- færum bætt við eftir á. Smekkleg útkoma. KVEÐJA ★★★ 1991 Rólegt vörumerki trúba- dorsins ( bland við fla- mengófléttuð lög og hreint popp. Hörður einn eða með undirleikurum. Snotur plata. „Því miður er fluttur í götuna okkar kornungt kynvillingsgrey" TRÚBADÚRFÍBUÐ Hörður Torfason er trúbador ís- lands númer eitt. Bubbi og Megas geta vart gert tilkall, þeir hafa daðrað ofmikið við hljómsveitar- stússið. „Gull“ er tíunda plata Harðar og busl- ar um í jóla- plötuflóðinu. 2 Það hefur ekki farið framhjá neinum að um plötuútgáfu ríkir lítill friður. Hörður Torfason er með elstu sjálf- stæðu útgefendunum. Fyrsta plata Harðar kom út árið 1970 en frá 1975 hefur Hörður gefið allt sitt út sjálfur. Afhverju? „Ég er ekki poppari og er ekkert í því að sleikja fólk upp. Ég hef markmið sem falla ekki alltaf í góðan jarð- veg. Ég tekst á við fordóma í umhverfinu og það er að róa gegn straumnum. Og þegar menn standa í slíku verða þeir seint vinsælir. Ef þú ætlar að verða vinsæll verð- urðu að fórna ýmsu. Þú þarft að þægjast umhverf- inu. En ég er ekkert að reyna að kaupa mér vinsældir, ég hef ákveðna hluti að segja fólki í kringum mig. Ég tek upp merki lítilmagnans .. Eins ogAlbert? „Já, þú segir það. Nema það að ég er litli maðurinn. Ég Nudd áHORÐUR TORFASON GULL OFAR/JAPIS ★★ Hörður Torfason er sá trúbador ís- m lenskur sem fastast hefur haldið sig við trúbadorhefðina. Á nokkr- um plötum hefur hann að vísu notast við hóp aðstoð- armanna, en hann er fræg- astur fyrir einveruna, gítar- inn, barkann og einstaka sinnum munnhörpuna, augliti til auglitis við hlust- andann. Níunda platan, „Gull“, er einföld plata. Yfirbyggingin er ekki önnur en sú að Þórður Högnason spilar á bassa í nokkrum lögum. Platan var tekin upp og hljóðblönduð á tveimur dögum síðsumars. Á jafn- einfaldri plötu hefur flytj- andinn ekkert til að skýla sér með, hann stendur berstrípaður með textana og lögin, sem er eins gott að séu í lagi eigi einhver að hafa nennu til að njóta verksins. Úr þessu horaða formi nær Hörður mikilli breidd og þónokkrum krafti, en því verður ekki neitað að mörg laganna eru alltof lík. „Var þetta lag ekki áðan?“ spyr maður sjálfan sig stundum þegar Hörður byrjar á nýju lagi. Hörður „Hörður hefur oft ver- ið kraftmeiri, ákveðn- ari og umfram alltfjöl- breyttari. Þeir sem kæra sig kollótta um yfirbyggingu ogvilja hafa trúbadorinn ómengaðan fá hins- vegar úr nógu að moða. “ hefur eflaust viljað hafa þetta allt svona einfalt, en það má auðveldlega sjá fyrir sér sum lög eflast og dafna við örlitla hleðslu og flókn- ari útsetningu. Það er óhætt að segja að hér sé Hörður á „rólegu nótunum“. Lögin eru flest lin og angurvær og maður sekkur í plötuna líkt og í nuddpott. Ekki borgar sig að vera syfjaður fyrir, því oftast er rödd Harðar það ómþýð og værukær og gít- arplokkið það mjúkt að maður þarf að hafa sig allan við til að leka ekki út af. „Gull“ er því gott og heilsu- samlegt tónlistarnudd, af- slappandi og bráðnauðsyn- legt. Lögin eru flest af sauða- húsi þjóðlagapoppsins en textarnir og leið Harðar til að túlka þá skapa þá litlu fjölbreytni sem platan hefur upp á að bjóða. Textar Harðar rísa vissulega hátt að vanda en sumir standa upp úr. „Karl R. Emban“ er sterkur ádeilu- og háðs- söngur um hina íslensku karlrembu sem fær útrás við að berja á útlendingum og „kynvillingsgreyjum“. Hörður vælir textann leik- rænt en túlkar rödd „al- valdsins herra“ með dimmu jafnaðargeði; „Gefðu þeim blóm, já, gefðu þeim blóm- vönd og rúsínupoka með hnetum.“ Hér er komið enn eitt sígilt lag frá Herði, lag sem sker sig mikið úr öðru efni á plötunni og á örugg- lega eftir að lifa lengi. „Fjörulag“ og „Dýr“ eru léttar og leikandi vísur og fullboðlegar í „Stundinni okkar“ og „Strákar“ og „Myrkrið“ er kraftmikill skáldskapur. Þótt margt gott megi segi um Gullið hans Harðar er það þó ekki með betri plöt- um hans. Hörður hefur oft verið kraftmeiri, ákveðnari og umfram allt fjölbreyttari. Þeir sem kæra sig kollótta um yfirbyggingu og vilja hafa trúbadorinn ómengað- an fá hinsvegar úr nógu að moða Gunnar Hjálmarsson legg allt út frá eigin tilfinning- um.“ Eru menn þá að selja sig 'sem gefa út hjá öðrum? „Það liggur í hlutarins eðli. Þess vegna fór ég út í það að verða sjálfstæður útgefandi. Fyrstu tvær plöturnar gaf Svavar Gests út og þær gerði ég án þess að hafa lagt það niður fyrir mér hvað ég ætlaði að gera í framtíðinni. Þessar plötur gerði ég sem leikari og leikstjóri. Síðan fór ég að sjá að trúbadorinn er hluti af leikhúsinu og sagði upp í Þjóðleikhúsinu vegna þess að ég vildi ekki stöðugt vera að gera það sem mér er sagt — hafði ýmislegt að segja sjálfur. Ég vildi gera plötu í samræmi við þetta, plötu með textum sem vörðuðu það sem mér lá á hjarta en þá sagði Svavar nei. Það þótti ekki söluvænt. Þá var ég náttúrulega búinn að lýsa því yfir að ég væri hommi og var með ýmis mál- efni í gangi svo sem gegn dópi og fleira, en menn hristu bara hausinn, enda var þetta ekki til hér á landi þá. Ég var búinn að sjá það út að ég átti mér til- gang (sem er nú meira en margur getur sagt), en það sem ég hafði að segja féll ekki beint í sölukramið.“ Allt sem ekki fellur að mynstrinu er ekki geðfellt útgef- endum? „Þú getur auðvitað búið til einhverjar jarmútgáfur sem ekki stuða neinn en ganga upp í útvarpi. Nú og á hinn bóginn þá höfum við mörg dæmi þess að hér eru poppar- ar að taka upp á sína arma ýmis málefni sem þeir hafa engar forsendur fyrir að skilja hvað þá að þeir hafi unnið að framgangi þeirra. Þeir standa í þessum tilbúnu baráttumál- um til að kaupa sér samúð og selja meira. Ári seinna eru þeir búnir að taka upp annað mál- efni, jafhvel snúa við blaðinu sísona. Það heitir að vera tækifærissinnar og þeir eru ófáir í þessum bransa. Ég get staðið við það sem ég er að segja. Það er ekki endilega þar með sagt að þú þurfir að hafa lifað allt sem þú ert að segja, sem manneskja hefurðu til að bera ákveðinn skilning.“ Nýja platan heitir Gull. Er það paródíutitill? „Það má kallast svo, en hann er ekki sprottinn út frá þeirri hugsun. Ég hanna alltaf ' umslögin mín sjálfur og var búinn að sjá fyrir mér gyllta stafi og datt í hug að láta plöt- una heita til samræmis við það. Hún átti ekki að bera þetta nafn upphaflega. En þarna er paródía. Ég hef aldrei selt nema fyrir kostnaði, þó að ég hafi verið margútnefndur með plötu ársins. Orðið gull þýðir að minnsta kosti tvennt; leikföng og svo út á við að það sé kominn tími til að ég fái mína gullplötu. Ekki svo að skilja að ég geri ráð fyrir slíkri sölu, en það má leika sér að hlutunum og senda boðin sitt á hvað.“ Þú ert líkast til eirii íslend- ingurinn sem getur með sanrti kallað sig trúbador, hvert er eðli trtíbadorsins? „Grunneðlið hlýtur að vera heiðarleiki gagnvart sjálfum § sér og umhverfinu þó að hann sé sár. Ef maður er heið- arlegur þá gengur þetta upp' þóttþað sé ekki endilega væn- legt tíl vinsælda. Maður verð- ur að kafa inn í sjálfan sig og skoða tilfinningar sínar á heiðarlegan hátt og miðla þeim út. Trúbadorinn er mið- ilL“ En er trúbadorinn ekki hálf- gertffl? „Éyrirgefðu?“ Ja, ég meina hið shakespe- arska fífl sem má sjá sem rödd mótsagnakennds sannleika? „Jú, jú, hæfileikinn til að fá fólk til að hlæja að sannleik- anum og finna jafnframt broddinn er sameiginlegur fíflinu og trúbadornum. Trúbadorinn er ekki háður neinu og má ekki vera það. Hann má til dæmis ekki vera háður vinsældalista. Þá er hann dottinn ofan í gröfina, þá er hann hættur að segja frá hlutunum og farinn að þókn- ast. Það má hann aldrei gera.“ En er þá ekki það versta sem getur komið fyrir trúbadorinn að öðlast vinsceldir? Eða er eitt- hvað til sem heitir að vera of vinsæll? „Ég þekki það náttúrulega ekki, ég hef aldrei verið vin- sæll. Ég get því ekki talað um það frá fyrstu hendi. En þama liggur þversögnin. Maður er að reyna að lifa af þessu og það gengur upp og niður. En kannski verður reistur minn- isvarði þegar ég er dauður. Lífið er náttúrulega ein eilíf mótsögn. Eins og ég sé þetta þá starfræki ég sjálfan mig sem leikhús.“ Textarnir eru kjarninn í því sem þú gerir. „Já, hvert lag er sungin smásaga og textinn snýst gjarnan um afstöðu ólíkra einstaklinga.“ En er það ekki hœttulegt, nú er lýðurinn gjarn á að rugla saman sögumanni og höfundi eins og til dæmis Megasfékk að reyna viðsíðustu plötu sína? „Megas og ég eigum það sameiginlegt að fólk á til að heimfæra það sem við segjum upp á okkur sem einstaklinga. Ég er að reyna að gera fólki skiljanlég viðhorf annarra líka. Ég áskil mér þann rétt sem manneskja og listamaður að geta sett mig i spor ann- arra. Um leið og ég er að fást við fördóma er ég ekki síst að slást við eigin fordóma. Svo fer ég upp á svið og syng. En ég ætla mér ekki þá dul að stíga fram og þykjast for- dómalaus. En oft klessir fólk þessu á mig, hann er svona og svona og svona og svona ... en þessu vitum við af og tök- um eins og hverju öðru hundsbiti.“ Jakob Bjarnar Grétarsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.