Pressan - 09.12.1993, Qupperneq 10

Pressan - 09.12.1993, Qupperneq 10
i B10 PRESSAN B O K A - PLOTU BLAÐ Fimmtudagurinn 9. desember 1993 Lífi blásið í lík PALLOSKAR STUÐ SMEKKLEYSA ★★ Það tækist fáum í dag að blása lífi í diskól- íkið án þess að lykta fangar leiðir af hallæri og hálfvitalegum gerviglamúr. Páll Óskar er eiginlega eini maðurinn á landinu sem á séns í að gera þessu sjúskaða tónlistarformi skil svo mark sé á takandi. ímynd hans er „diskó og ballads“ og hefur löngum verið. Hann er með Donnu Summer og Burt Ba- charach í jöfiium hlutföllum í æðunum og ef ekki hefði komið ómenguð diskóplata frá honum hefði hann gert óspillta ballöðuplötu, og hana gerir hann eflaust næst. En nú er það diskóið og „Stuð“ er diskóplata og ekkert annað. Sem slík er hún fin, hér er nóg af skemmtilegum lögum og búmm búmm búmmi sem dregur þá sem á annað borð hafa áhuga út á dansgólfið. Samstarfsmenn Palla eru Jóhann Jóhannsson og Sigur- jón Kjartansson, sem hafa fengist við nýfönktónsmíðar í batteríinu Fönkstrasse. Þeir eiga enn nokkuð í land með að ná fúllkomnu valdi á júró- diskóinu, en þeir reyna sitt besta og ef meiri tími hefði farið í upptökur hefðu þeir komist nær markmiðinu. Það sem helst amar að hér er hve raddirnar eru háar, þær kæfa á köflum tónlistina; botninn dettur úr stuðinu og það má auðvitað ekki í diskói. öll „sándin“ eru þekkt úr diskó- flórunni; gervifiðlur, taktof- beldi með klappi, hringl í hörpu, gítargjamm með „Páll Óskar er eig- inlega eini mað- urinn á landinu sem á séns í að gera þessu sjúsk- aða tónlistarformi skil svo mark sé á takandi. “ skælifótstigi og þungi slabb- bassinn ómissandi. Mest af þessu gæti verið fimmtán ára diskó en lög eins og „Prqfess- orinn ráðleggur og „Mmm...“ nota ögn nýtísku- legri meðul. Lagasmíðarnar eru ,mis- jafnar. Platán hefst á ágætu kynningarlági sem gefúr fyrir-' heit, „TF-stuð'L og strax á eft ir kemur „Stanslaust .stuð“, gott lag með sterkri melódíu og besta lag plötunnar ásamt „MMM...“ sem er prýðileg plusspúðaballaða. Syrpan „Partídýr/Meira partí“ er göt- ótt og fulllöng og einhæf, og „Leitin að prófessornum“ gengur ekki upp þrátt fyrir ágæta hugmynd. Palli er fínn raulari, sýnir svo sem fáa snilldartakta en passar vel sem fjörkálfurinn hér. Hann kemur hins vegar á óvart sem góður textasmiður. Textahugmyndin er næfur- þunn, hér er lýst einhverju stuði sem menn eiga að sjá í hillingum. Hinu göfgandi en óljósa diskóstuði er haldið að manni eins og hríðskota- byssu; þú skalt komast í STUÐ, helvítið þitt! Þetta er nokkurn veginn sama stuðið og HAM og Funkstrasse hafa messað yfir lýðnum undan- farið — það fer óneitanlega að slá í djókið þegar maður er búinn að heyra sama brand- arann hundrað sinnum — en Palla tekst á köflum að sprauta nýju stuði í gömlu stuðlummuna. Betri er hann þó á persónulegri slóðum, á effi hæðinni á 22 í hinum við- kvæma og galopna texta „Er þetta ást?“ og sem ástfanginn strandaglópur í úthverfi eftir stuðnótt í „Sama hvar þú ert“; „Grasflöturinn vöknar - blómin signa sig / Hverfið heldur kjaftí - bara fyrir þig / Náttúran er dúndur... en samt er það nærvera þín sem fær mig til að taka heiminn." „Stuð“ er fyrsta alvöru diskóplatan sem kemur út hérlendis síðan „Ljúfa líf‘ kom út. (Og talandi um hana, hér er titillagið í veimiltítu- legri útgáfu.) Þetta er skyldu- eign fyrir þá sem hafa þeðið óþreyjufullir í öll þessi ár eftír meira íslensku diskói, en hinir hanga auðvitað bara skítsama í diskóvana kör úti í sínu stuðlausa homi. Gunnar Hjálmarsson flhugaverð heimildaskáldsaga BJORN TH. BJORNSSON FALSARINN MÁLOG MENNING ★★★ í hinni miklu heim- ildasögu, Falsaran- um, segir Björn Th. Björnsson sögu Þor- valds Þorvaldssonar og af- komenda hans. Á síðasta degi ársins 1783 var Þorvaldur, sem þá var um tvítugt, dæmdur til lífláts fýrir að hafa falsað peningaseðil. Þorvaldur var fluttur til Dan- merkur, en til lífláts kom ekki, lífstíðarþrælkun skyldi þar koma í stað. Eftir fimm ára afþlánun var Þorvaldur náð- aður. Hann kvæntist danskri konu og eignaðist með henni son. Eítír lát eiginkonu sinnar sneri Þorvaldur aftur til Is- lands, en sonur hans varð eft- ir í Danmörku, kvæntist og eignaðist syni sem komust tíl mikilla áhrifa. Frá þeim er síðan kominn stór ættbogi Schovelina. Bjöm Th. Björnsson notar skáldsöguformið til að koma sögu ættarinnar til skila, en víkur þó frá því á einstaka stað, líkt og í síðasta hluta bókarinnar þegar hann segir frá kynnum sínum af núlif- andi afkomanda Þorvalds. Bókin skiptist í nokkra hluta og valsað er á milli ffá- sagna af Þorvaldi og afkom- endum hans. Saga Þorvalds er saga af ungum manni sem „í Falsaranum sameinast góður stíll og athyglisvert efni. Þetta er sér- lega áhugaverð og vel skrifuð hók sem cetti að höfða til stórs lesendahóps. “ varð að þola harðræði og mótlæti allt sitt líf. Saga af- komenda hans er allt önnur. Mér finnst höfundi ekki tak- ast fúllkomlega að flétta þessa ólíku þræði. Verkið virkar eins og syrpa úr ólíkum átt- um og bygging þess er óneit- anlega nokkuð brotakennd. Höfundur lokar verkinu hins vegar á mjög áhrifaríkan hátt og um leið verður auðvelt að fýrirgefa brotalamir. Þama er kannski klassíska dæmið um að þótt verk hafi smíðagalla varðar sá galli ekki svo miklu þarsem kostir verksins bæta hann upp. Fjölmargar persónur koma við sögu Schovelin-ættarinn- ar. Þær eru misvel gerðar af höfúndar hálfu, en þegar best tekst til eru þær dregnar styrkum dráttum, líkt og Alff- ed Viggo Schovelin konsúll í Chile, eiginkona hans og for- eldrar hennar. Margrét, mág- kona Alfreds, er þó kannski sú eftirminnilegasta, það er ævinlega eitthvað heillandi við þessar dostójevskísku sem kasta sér að fótum mannsins sem þær elska og heita hon- um eilíffi ást. 1 hóp með eftirminnilegum persónum bókarinnar má einnig setja ættföðurinn Þor- vald, listelskan, vel gerðan dreng sem var dæmdur til að eiga óblíða ævi. Birni tekst að varpa sérstökum ljóma á síð- asta Schovelininn sem kemur við sögu í lokakaflanum, yfir- lækninn frá Sviss sem viður- kennir uppruna sinn af sannri reisn. Eins og við er að búast ffá einum fremsta stílista okkar er bókin skrifúð á sérlega fal- legu máli. I Falsaranum sam- einast góður stíll og athyglis- vert efni. Bókin er löng, en lesandinn tapar aldrei athygli eða áhuga. Það var alltaf eitt- hvað dramatískt að gerast hjá Schovelinum. Bjöm Th. Björnsson hefúr hér fært okkur stórmerkilega sögu sem er ævintýri líkust en þó sönn. Þetta er sérlega áhugaverð og vel skrifúð bók sem ætti að höfða til stórs les- endahóps. Kolbrún Bergþórsdóttir Ofullkomin músaíkmynd af Hauki Morthens JONASJONASSON TIL ERU FRÆ FRÓÐI 1993 ★ Haukur heitinn Morthens heillaði fleiri kynslóðir með söng en annar íslend- ingur hefur gert; hann var ljúflingur ffam í fingurgóma með fas heimsmanns. Á einum stað í bókinni er haff eftír Árna Elfar að með dauða Hauks hafi „lokið merkum kafla í menningar- sögu landsins“. Ef til vill finnst einhverjum að hér sé aðeins of djúpt í ár- inni tekið. En í orðum Áma felst meira en sannleikskorn. Islensk dægurtónlist tuttug- ustu aldar er vissulega kafli í menningarsögu landsins, og ferill Hauks Morthens náði yfir næstum hálfa öld. I bókarlok segir Jónas Jón- asson að „þessi skrif mín um Hauk Morthens áttu aldrei að gefa nákvæma mynd af lífi hans og starfi“. Hversvegna ekki? Líf og starf Hauks er svo sannarlega forvitnilegt bókarefúi, sérílagi „Bók Jónasar er alltílagi fyrir sinn hatt, fyrst hann cetlaði aldrei að skrifa bók sem gcefi nákvœma mynd af lífi Hauks Mort- hens ogstarfi.“ ef sú saga er sögð í samhengi við íslenska dægurtónlist og skemmtánalíf. En þessu er semsagt ekki til að dreifa í bók Jónasar. Hann segist hafa „þurft að styðjast við mola frá öðrum til að raða í dálitla mósaíkmynd af þessum væna manni“. Þeir Jónas og Haukur hitt- ust í örfá skipti vegna bókar- innar áðuren Haukur dó. I bókinni em viðtalsbútar jón- asar við Hauk og nokkra fleiri, einkum Ragnheiði Magnúsdóttur, ekkju hans. Viðtölin við Ragnheiði eru fróðleg og skemmtileg en Jónas hefði sem hægast getað leitað til langtum fleiri til þess að fá fleiri brot og brotabrot í mósaíkmyndina. Eins virðist hann sáralítið hafa lagt sig effir prentuðum heimildum. Þannig fer Jónas á hundavaði yfir sum tímabil í ævi Hauks meðan öðm, misáhugaverðu satt að segja, em gerð skil í ít- arlegu máli. Hér er kannski ffemur ver- ið að ritdæma bók sem ekki var skrifuð en þá bók sem Jónas sendir nú frá sér. En það er tæpast við því að búast að önnur og fullkomnari ævisaga Hauks Morthens líti dagsins ljós á næstunni og þessvegna eiga aðdáendur Hauks heimtingu á alvöru ævisögu. Bók Jónasar er alltílagi fýrir sinn hatt, fýrst hann ætlaði aldrei að skrifa bók sem gæfi nálcvæma mynd af lífi Hauks Morthens og starfi. Textinn er lipur einsog Jónasar er von og vísa en þessi litla bók er semsagt fremur í ætt tímarits- greina en metnaðarfúllra ævi- sagna. Og það er synd. Hrafn Jökulsson BOKMENNTA- GETRAUN Spurt en Hver er höfundurínn og úr hvaða verld er tilvitnunin. Verðlaun er nýútkomin hátíðarútgáfa af ljóðabók Tómasar Guðmundssonar, Fögru veröld, frá Álmenna bókafélaginu. 1. Hann passaði ekki lengur í þá leiki sern voru í gangi umhverfis. Elcki lengur viðeigandi að leika sér í bófahasar og bílaleik Hann var hættur að vera barn án þess að vera fúliorðinn. Eiginlega var hann ekki til. Gagnfræðaskólinn áttí að búa hann undir að gera gagn. Hann fór á hjólinu í skólasetninguna og varð sér til mínkunar, mynnkunnar, minnkunar, (skammar), allt af því hann hafði verið í sveit og var ekki búinn að fá línuna. Vér hneigjum dauðadæmd höfúð í feld í milli þess að vér kneyfúm hvert full - og faldur kemur oss í hug skáldum meðan þekjan er rofin með hægð; um síðir bindur blóðöx enda á marklítíð drykkjuraus vort Hið bezta var kvæðið flutt. 3. MALLA: Þú ættir að vinna í karlmannafataverslun. Þá mundirðu standa nakinn bakvið búð- arborðið og ég kæmi í búðina tíu sinnum á dag að kaupa skóreimar. MATTI: Áðan þegar ég var að saga hvítan, boginn hrygg fannst mér hann alltíeinu vera af gamalli konu. BEGGI: Svona, hættiði þessu rugli! (Við Möllu). BEGGI: Ert þú orðin fúll, Malla? Svör merkt "Bókmenntagetraun" sendist PRESSUNNI, Nýbýlavegi 14, 200 Kópavogur, fyrir 20. desember.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.