Pressan - 13.01.1994, Qupperneq 16
Funheit ást fær útrás í
matargerð
Ast Titu og Pedros birtist í ýmsum myndum í Kryddlegnum hjörtum.
Réttur sem kallar fram óstjórnlegar ástríður
Kornhænur í
rósablaðasósu
mtöluðustu kvik-
myndir síðasta árs
eiga allar sammerkt
að fjalla um for-
boðna ást; myndir á
borð við Öld sak-
leysisins, sem Stjörnubíó sýnir um
þessar mundir, og kvikmyndir
Regnbogans Píanó og Kryddlegin
hjörtu. Sú síðarnefnda — sem
væntanlega margir eru spenntir að
sjá eftir að hún var tekin út af mexí-
kósku kvikmyndahátíðinni —
verðiir frumsýnd á allra næstu dög-
um. Nýlega sló Como Agua Para
Chocolate, eins og Kryddlegin
hjörtu heitir á frummálinu, öll sýn-
ingarmet í Bandaríkjunum í flokki
erlendra mynda. Þá kannast margir
við ástríður aðalpersónunnar, Titu,
úr samnefndri bók sem kom út fýr-
ir jólin 1992, sem kvikmyndin fylgir
svo að segja alveg eftir.
í tilefni sýningar myndarinnar
hafa kokkarnir á veitingahúsinu
Óperu verið að setja sig í stellingar
Titu, sem ekki er á hvers manns
færi. Víst er þó að það borgar sig að
hafa góða skapið uppi við á meðan
eldað er, enda skiptir ástarkryddið
svo að segja öllu við matargerðina.
Samstarf Regnbogans og Café
Óperu snýst um það að hverjum
bíómiða fylgir tilboð um sex til átta
rétta mexíkóska máltíð á 1.980
krónur á rósum skreyttum borð-
unr. Auk þess sem allir fá frítt tequ-
ila-staup fýrir matinn er á eftir boð-
ið upp á svokallað Marino-kaffi,
sem er vel áfengisstyrkt kaffi. Til-
boðið mun standa svo lengi sem
kvikmyndin gengur. Er það vel við
hæfi, enda kemur maður jafnsvang-
ur út af þessari mynd og dönsku
Óskarsverðlaunamyndinni Babettes
gæstebud, sællar minningar. Margir
12 rósir, helst rauðar (og lífrænt
ræktaðar hjá ástmeginum)
12 kastaníuhnetur
2 msk. smjör
m*-2 msk. maísenamjöl
2 dropar rósabragðefni
2 msk. anís
2 msk. hunang
2 hvítlaukar
6 kornhænur (fást í Danmörku)
eða fasanar (sem eru ófáanlegir),
kjúklingar geta komið í staðinn,
en þá mun færri
1 pithaya (ávöxtur klifurkaktus-
tegundar með sama nafni)
Frá forsýningu myndarinnar í Regnboganum, þar sem kokkarnir á Café Óperu gáfu forsmekkinn að
ástríðufullum mat. Frumsýningin verður öllu skrautlegri.
eða kjúklingur, og piprað eftir smekk. Rósablöðin
eru tínd af rósinni af varfærni og
þau síðan mulin í morteli ásamt an-
ísnum. Kastaníuhneturnar eru
brúnaðar, afhýddar, soðnar í vatni
Kornhænurnar, eða kjúklingur,
eru brúnaðar í smjöri. Það dugir
kornhænunum enda eru þær smá-
ar, en kjúklinginn verður svo að
steikja í ofni í tilsettan tíma. Saltað
Lítið, sætt og pottþétt
KAFFIBARINN
FRIKKI OG DÝRIÐ
BERGSTA0ASTRÆTI 1
SÍM111588
★★★★
Það hefur vantað eina tegund
veitingastaða í Reykjavík: staði með
litla, fljótlega rétti, alvörumat sem
þó þarf ekki að borga stórfé fýrir
eða setja á sig slifsi áður en gengið
er inn. Fyrstu tilraunirnar voru
hraðgrillstaðirnir, sem á endanum
urðu þó flestir eins og hver önnur
'“Tjóðvegabúlla og eyðilögðu melt-
inguna án þess að lækna svengdina.
Heilum flokki ofar eru til dæmis
Hard Rock Café og Grillhús Guð-
mundar, en matseðillinn á báðurn
stöðum er þungur og best nothæf-
ur til að lækna heiftarlega þynnku.
Þar á ofan bætast nýrri staðir í mið-
bænum, svo sem Sólon íslandus og
Kaffrbarinn Frikki og Dýrið.
Matseðillinn á Kaffibarnum er
einfaldur: aðalréttur (kr. 600-700),
súpa með brauði (u.þ.b. 350), vel
útilátið salat (í dýrari kantinum þó,
upp undir fimmhundruðkall) og
langlokur. Að auki er í boði osta-
fondue, sem finnst líklega ekki ann-
ars staðar í bænum en löngu var
orðið tímabært að næmi land. Allt
hefur þetta reynst PRESSUNNI úr-
valsmatur og er sérstök ástæða til
að nefna einstaklega ljúffengt av-
ókadó-salat.
Skrautfjöður kokksins er náttúr-
lega aðalrétturinn og er hann
breytilegur frá degi til dags. PRESS-
AN veit ekki hvar kokkurinn hefúr
numið list sína, en honum hefur
ekki mistekist í þau skipti sem blað-
ið hefur komið í heimsókn. Oftast
er á borðum nýr fiskur, gjarna með
suðrænum tilbrigðum. Sósur og
krydd er notað af nægri smekkvísi
til að hráefhið fær að njóta sín en
kafnar ekki. Salatið, sem fýlgir með,
er það ferskasta sem bragðlaukar
PRESSUNNAR hafa hitt lengi. ögn
síður tekst upp með aðra rétti, svo
sem chili con carne, sem var gott, en
ekki meira en það — vantaði
herslumuninn til að ná upp í fisk-
réttina.
Þjónustan á Kaffibarnum er eins
og við var að búast: mjög góð. Hún
er persónuleg án þess að verða
væmin eða yfirborðskennd og hröð
og snurðulaus án þess að vera upp-
skrúfuð og þjónaskólaleg. Þetta
voru eigendurnir Friðrik og Dýrleif
þekkt fýrir áður og þeim hefúr tek-
ist að koma því beinleið til skila til
annars starfsfólks.
Að tvennu er hægt að finna: hús-
næðið er lítið og borðum raðað svo
þétt saman að lappalangir geta lent
í erfiðleikum með að koma skönk-
unum á sér þægilega fýrir til lang-
frama. Hitt er að hætta er á að aðal-
rétturinn sé ekki til — hann ein-
faldlega klárast of snemma. Þess
vegna getur verið skynsamlegt að
hringja á undan sér. Það er þó von-
andi byrjunarvandamál á meðan
vertarnir eru að átta sig á því hversu
mörgum má búast við í mat á degi
hverjum. Ef tekst að halda uppi
þessum standard á matnum hlýtur
þeim að fara fjölgandi.
og maukaðar. Hvítlaukurinn ersax-
aður smátt og steiktur í smjörinu.
Þegar hann er orðinn glær er kast-
aníuhnetumaukinu bætt í ásamt
mulinni pithaya, hunanginu, rósa-
blöðunum og salti eftir smekk. Til
að þykkja sósuna má bæta tveimur
teskeiðum af maísenamjöli út í. Að
lokum er allt síað og aðeins tveim-
ur dropum af rósabragðefni bætt
út í, ekki meira því þá er hætt við
að rétturinn ilmi of mikið og rósa-
bragðið verði of sterkt. Þegar sós-
an er orðin vel krydduð er hún tek-
in af hitanum. Kornhænurnar, eða
kjúklingurinn ef vill, eru lagðar í
sósuna í tíu mínútur til að þær sjúgi
hana í sig. Sé þessi máltíð elduð af
ástríðu er enginn vafi á að hún get-
ur brætt hvaða hjarta sem er.
hafa haft á orði, sem þegar hafa séð
myndina, að eilítil hlýja, jafnvel
kynlíf, kæmi sér einnig vel á eftir.
Frumsýningin sjálf verður svo
þónokkurt sjónarspil, þvi þá koma
saman átta • „mexíkóskir riddarar"
frá hestamannafélaginu Gusti (þar
með talinn að öllum líkindum Balt-
asar Kormákur) sem munu ríða
Laugaveginn með kyndla og enda
för sína á Café Óperu. Rúsínan í
pylsuendanum er funheitur kven
maður sem mun ganga nakinn út
með frumsýningargestunum og
tylla sér svo (með yfirhöfn) á bak
einum hestinum.
Af hverju
eru fagrar konur
ekki brúklegar í
bólinu?
f einhverjum aðstæð-
um loðir sú ímynd við
fagrar konur að þær
séu ekki alls kostar
brúklegar þegar í bólið er komið.
Hugtakið „bara horfa en ekki snerta"
eigi hvað best við um þær. Skýringin
á þessu er sögð eiga rætur í sjúklegri
athyglisþörf sem byggð hefur verið upp smátt og smátt á grunni
eilífra ummæla fólks um fegurð þeirra. Verst eru dæmin þar sem
konurnar hafa notið óskiptrar athygli vegna fegurðarinnar frá
barnsaldri. Verst hafi þetta komið niður á kynlífinu, sem hjá þeim
sé í raun ekkert annað en framlenging á athyglisþörfinni. Kjarni
málsins er nefnilega sá að falleg kona trúir því að það sé nóg að
karlmaðurinn fái að njóta fegurðar hennar. Ábyrgðin á kynlífinu sé
því karlmannanna.
Dæmigerðar spurningar sem fagrar konur spyrja í miðjum klíð-
um eru spurningar á borð við: „Hve mikið langaði þig í mig þegar
þú sást mig fyrst?" eða „Hvaða partur líkama míns þykir þér falleg-
astur?" — jafnvel „Er ég fallegasta kona sem þú hefur séð?" Þá
spyrja þær gjarnan í hverjum ástaleik hvort karlmönnunum finnist
þær hafa bætt á sig.
Það liggur Ijóst fyrir að fallegar konur þurfa að hafa lítið fyrir
því að fá karlmenn í bólið. En launin séu einmitt í samræmi við erf-
iðið, þ.e.a.s lítilfjörlegt kynlíf. Sumir halda því fram að goðsögnin
um fögru konuna og forljóta karlmanninn eigi einmitt rætur í
þessu, en það er önnur saga.
Sérfræðingar um bólfarir segja kynlíf öðrum þræði byggjast á
jafnræði elskendanna, bæði hvað varðar væntingar og látbragð.
Þetta komi m.a. í veg fyrir að karlmaðurinn þurfi eilíflega að vera í
hlutverki húsbóndans og kvenmaðurinn í hlutverki þrælsins (nema
einhver vilji leika þann leik sjálfur).
Þetta ber þó ekki skilja sem svo að fegurðin ein skipti máli. Ef
fólk kafar örlítið dýpra sér það vitanlega að svo er ekki. Þetta staf-
ar af því að allir hinir eru svo uppteknir af fegurð viðkomandi.
M.ö.o. á kynþokki sér aðeins dýpri rætur. Maður greinir
hann ekki nema maður hlusti jafnt sem horfi...
Nautnin mín.
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
dagskrárgeröarmaöur hjá Sjón-
varpinu
er fiskur í hvaða mynd
sem er og ískalt blávatn með.
*
A eftir eitthvað súkkulaði-
kyns og nett fótsnyrting.66
16B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 13. JANÚAR 1994