Pressan - 13.01.1994, Blaðsíða 20
E' is og greint hefur verið frá hef-
r Viktor Sveinsson, eigandi
áglýsingastofannar Máttarins
og dýrðarinnar, tekið við rekstri
Hótels Búða á Snæfellsnesi. Reynd-
ar ekki bara hann, því félagi hans,
Ingvar Þórðarson, núverandi
markaðsstjóri Regnbogans, ædar að
snúa sér að þessu sama verkefni.
Hafa þeir þegar gert samning um
kaup á yfir helmingi eignarinnar. í
kjölfarið markaðsstjórastaða hjá
Regnboganum því Ingvar lætur af
því starfi von bráðar. Eins og gefur
að skilja er Hótel Búðir lokað að
mestu yfir vetrarmánuðina, en þó
jnun einhver breyting að verða þar
á og var fýrsti vísirinn að því nú um
áramótin þegar fjörutíu manns
eyddu áramótunum þar. Hótelið
verður þó lokað ffam að páskum
þar sem verið er að endurbæta og
breyta staðnum, en áfram verða
Súkkat-félagar að störfum í eldhús-
inu. Meðal nýjunga á Búðum í
sumar verða hestaleiga og hvala-
skoðunarferðir, auk þess sem hótel-
ið verður í meira mæli tengt sögu-
legri arfleifð okkar í ýmsum mynd-
Ta
J;
"anúarmánuður hefur til þessa
verið einhver daufasti mánuð-
urinn í hljómsveitabransanum,
éíida hafa flestar hljómsveitirn-
arfengið yfirdrifið nóg af spila-
mennsku í desember. Þeir sem
starfa að rekstri skemmtistaða segja
deyfðina þó aldrei meiri en í ár,
nánast vonlaust sé að ná einhverj-
um af stærri hljómsveitunum til
þess að spila á veitingastöðum. Ef til
vill má rekja þetta að nokkru leyti
til þess að um áramótín lögðu bæði
Todmobile og Stjórnin upp laup-
ana, SSSól spilar ekki mikið um
þessar mundir, Jet Black Joe ekki
Jieldur og Nýdanskir eru á þessum
árstíma hvað iðnastír við að
skemmta menntaskólakrökkunum,
svo fátt eitt sé nefnt...
eikhúsið Frú Emilía er nú að
hefja undirbúning á uppfærslu
itsins Macbeth eftir Shake-
speare. Æfingar hefjast í byrjun
febrúar og það eru þremenningarn-
ir Guðjón Petersen (Gíó), Gretar
Reynisson og Hafliði Amgrímsson
sem standa að baki sýningunni.
Þeir hafa vakið athygli fyrir ferskar
ippfærslur á leikritum Shakespear-
es og er þetta fjórða sameiginlega
verkefni þeirra eftir hann. Hin eru
Othello og Draumur á Jónsmessu-
nótt með Nemendaleikhúsinu og
Rómeó og Jtílía í Þjóðleikhúsinu.
Þeir sem mynda leikhópinn eru:
Ami Pétur Guðjónsson, Edda
Heiðrún Backman, Kjartan Bjarg-
mundsson, Þór Tulinius, Helga
Braga Jónsdóttir, Ása Hlín Svav-
arsdóttir, Jóna Guðrún Jónsdóttir
og Þröstur Guðbjartsson. Enn er
ekki búið að skipa í öfl hlutverk,
einhverjir leikaranna leika tvö hlut-
verk eða fleiri og einhverjar persón-
ur verða felldar út, en um tuttugu
persónur koma fyrir í Macbeth. Það
eru ekki nema nokkur ár síðan Al-
ýðuleikhúsið sýndi Macbeth í leik-
stjórn Ingu Bjamason, en sú sýn-
ing gekk ekkert allt of vel. Frú Emil-
ía er um þessar mundir að setja upp
myndlistarsýningu á verkum Gret-
ars, en þar getur að líta mundir sem
hann hefúr unnið á forsíður tíma-
ritsins Bjarts ogfrú Emilíu. í haust
fyrirhugar leikhúsið síðan að setja
upp Kirsuberjagarðinn eftir Tsjek-
hof. Af þessu má sjá að Gíó og fé-
lagar eru ekki feimnir við að takast
á við risa leikbókmenntanna...
Enn a ný brýtur
Pizzakofinn
verðmúrinn og býður nú
lægra verð en áður hefur þekkst
16" pizza með fjórum áleggstegundum kostar nú aðeins
's.
.
ókeypis
heimsending!
Pizzakofinn leitast við að bjóða viðskiptavinum sínum
ávallt hagstæðasta pizzuverðið.
Gæðunum gleymum við aldrei - sama hvað það kostar!
Tílboð fyrir barnaafmæii
Fimm 16" pizzur með tveimur
áleggstegundum, frönskum kartöflum og
kokkteilsósu á aðeins kr. 3.490,-
Langholtsvegi 89 og Engihjalla 8
símar 68 77 77 & 44 0 88