Pressan - 19.05.1994, Blaðsíða 2

Pressan - 19.05.1994, Blaðsíða 2
Eins og allir vita kemur Björk „okkar“ og heldur tón- leika í Laugardalshöll 19. júní ásamt hljómsveit sinni. Forsala aðgöngumiða hófst á þriðjudaginn og sendi Smekkleysa 3.000 miða í plötubúðir. í lok dagsins höíðu bor- ist pantanir upp á 1.500 miða til viðbótar þannig að það er deginum ljósara að miðar munu klárast löngu íyrir konsert- inn. í kringum 5.000 miðar verða seldir á tónleikana, 1.200 í sæti og 3.800 í stæði, en miðaverð er það sama, kr. 1.800. Mikill áhugi er á tónleikunum og mun Smekkleysa hafa fengið áttatíu fyrirspurnir erlendis ífá á þriðjudaginn. Mikill Björk í Spitting Image æsingur hefur gripið um sig á tölvunetinu „Blue Eyed Pop“, en það er alþjóðlegt tölvunet þar sem að- dáendur Bjarkar skiptast á slúðri og upplýsingum. Annar hver einstaklingur sem er í áskrift að netinu ætlar að koma til Islands að sjá goðið á heima- velli. Björk hefur nú hlotnast enn einn heiðurinn. Það er ekki nóg með að Sigmund hafi teilcn- að hana heldur hafa nú bresku spaugar- arnir hjá Spitting Image gert af henni dúkku. Síðasdiðið sunnudagskvöld kom dúkkan fram í fyrsta skipti og leiddi ímyndaða hljóm- sveit, „The Butt- oms“, ígrínatriði... Nokkrar konur munu eiga sér þann draum að setja á stofn útvarpsstöð. I þeim hópi eru meðal annarra Valgerður Matthíasdóttir, sem lengi var orð- uð við útvarpsstjórastöðu á Aðal- stöðinni áður en Sjónvarpið krækti í hana til að stjórna I sannleika sagt ásamt Ingólfi Margeirssyni. Aðrar konur sem sagðar eru tengjast þessu eru Inger Anna Aifcman, sem lengst af sá um þáttagerð á Að- alstöðinni en síðar á Bylgjunni, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Katrín Snæhólm Baldursdóttir, sem sagði starfi sínu lausu á Aðal- stöðinni fyrir skemmstu af óánægjuástæðum, og fleiri. Ekkert hefur verið ákveðið enn, en þó mun líklegt að þessi hugmynd komi til framkvæmda, enda mun áhugi margra víst verulegur. Eftir því sem PRESSAN kemst næst er vinnuheiti stöðvarinnar „Hjarta- stöðin“. Það kemur ekki á óvart, enda hafa allar þessar áðurnefndu konur verið orðaðar við nýöld- ina... Dani finnur fyrirsætur á börum Undanfarna daga hefur Dani nokkur að nafni Poulsen sést á rölti bara á milli í borginni. Hann var þó ekki eingöngu í þeim erindagjörðum að drepa tímann, eins og svo margir, heldur var hann á höttunum effir fögrum íslenskum kvenpeningi. Ástæðan er sú að danskt fyrirtæki, sem selur fatnað m.a. til allra Norður- landanna — vestur-Norðurlandanna einnig, Hollands og Austurríkis, hyggst nýta sér íslenskar ungmeyjar og fáeina ungsveina sem fýrirsætur fyrir katalóg sem fýrirtækið gefut' út fýrir vetrartískuna. En ekki aðeins verða fyrirsæturn- ar íslenskar heldur umhverfið einnig, því ráðgert er að taka myndirnar á íslandi í sumar. Fyrirtæki þetta selur föt í verslunina Elfur hér á landi og mun línan sem þeir æda að kynna næst eiga að heita Cha cha cha. Til stóð að vinsa úr fjöldanum í gærkvöldi með aðstoð dansks stílista sem kom til landsins á vegum fýrirtækisins í gær. Að sögn Po- ulsens mun leitin hafa gengið vel enda fannst honum, eins og svo mörgum öðrum údendingum, íslensku stúlkurn- ar afar fallegar. Fyrir valinu urðu tíu til fimmtán fýrirsætur á aldrinum 16 til 22 ára. Ekki pikkaði þó Poulsen fýrir- sæturnar allar beint upp af börum bæjarins heldur hafði hann einnig samband við tvær stærstu módelumboðsskrif- stofur hér á landi. Aðspurður um á hvaða bar hann hefði komist yfir flestar stúlkurnar sagði hann á Kaffibarnum, en þar hefði hann hangið flestöll kvöld og skemmt sér vel... Olíklegasti popparinn Tónlistarferill Arna Sigfússonar Borgarstjórinn í Reykjavík á að baki þó nokkurn tónlist- arferil. Hann er lúnkinn á kassagítarinn og hefur samið fjöld- ann allan af lögum og textum þótt aðeins fjögur hafi heyrst opinber- lega. Þegar hann var aðeins átján ára kom fýrsfa lag hans út. Þetta var lagið „Heimaey" og var lagið eitt af fjórum sem komu út á plötu til styrktar uppbyggingu Vestmanna- eyja eftir eldgosið 1973. Lagið er í flutningi „Brynjólfsbúðar“, sem var kassagítars-þjóðlagadúett skipaður Árna og Ómari Sigurbergssyni inn- anhússarkitekt. Um undirleik í lag- inu sáu Arnþór Helgason, Sigurður Árnason og Sigurður Þórarinsson. Aðrir flytjendur á plötunni, sem hét „Eyjaliðið", voru Árni Johnsen, Ási í Bæ og bræðurnir Gísli og Arn- þór Helgasynir. Þegar Árni gekk í MH árið eftir varð hann snemma virkur félagi í kór skólans. Hann hefur haldið tryggð við kórinn og treður stund- um upp með gömlum félögum. Næsta opinbera lag Árna var þjóðhátíðarlagið „Ágústnótt“, sem hljómsveitir Þjóðhátíðarinnar fluttu í Vestmannaeyjum 1978. Ekki fer miklum sögum af poppar- anum Árna á meðan nýbylgjan og gleðipoppið tröllriðu íslensku tón- listarlífi, og það var ekki fýrr en fýr- ir bæjarstjórnarkosningarnar 1990 að næsta lag Árna kom á markað- inn, „Skattalagið“. SUS-arar nýttu sér óvinsældir ríkisstjórnarinnar, gáfu lagið út á lítilli beygluplötu (flexi) og sendu til ungra kjósenda í Reykjavík. Lagið var sungið af Sig- ríði Beinteinsdóttur, Pálma Gunn- arssyni, Agli Ólafssyni og Jóhönnu Linnet. Eins og sjá má af ofantöldu virð- Árni Johnsen, alþingismaður og frændi „Mér finnst þetta mjög fallegt lag. Árni semur yfirleitt afar mel- ódísk og angurvær lög og hann er líka skemmtilegur textahöfundur.“ Árni Matthíasson, poppfræð- ingur Morgunblaðsins „Það er ljóst að ffamtíð Árna Sig- fússonar liggur ffekar í pólitík en poppinu. Hann og Árni Johnsen eru auðheyrilega sprottnir úr sama vermireitnum í Vestmannaeyjum, en Johnsen á arnarkló." Andrea Jónsdóttir, dagskrár- gerðarmaður á Rás 2 „Manni dettur náttúrlega í hug Reykjavíkur-lagið hans Davíðs, nema hvað Árni gengur skrefinu lengra og semur lagið líka. Kannski er hann heppinn að Egill vildi ekki syngja lagið — eða svo segir kjaffa- sagan — þá væri samlíkingin of mikil. Þetta lag er náttúrlega voða fallegt og Pálmi gerir þetta vel, þótt lagið sé hvorki það besta né versta sem hann hefur gert. Þetta er svona týpískt íslenskt og fallega væmið dægurlag.“ Skúli Helgason, ritstjóri R-listablaðsins „Vorið í Reykjavík" „Ég hef ekkert vit á poppmúsík - en ég hef það á tilfinningunni að meistari Árni Johnsen hefði jafnvel lyft þessu lagi í enn hærri gæða- flokk. Textinn vekur sérstaka at- hygli, einkum línan um hina and- andi ávexti." ist alltaf þurfa tilefni til að poppar- inn Árni fari á stjá. Nú er aldeilis tilefhið og því hefur Árni dreift nýju lagi á útvarpsstöðvarnar. Þetta er lagið „Borgin okkar“ sem Pálmi Gunnarsson syngur. Hvernig því mun vegna á vinsældalistunum á effir að koma í ljós, en PRESSAN fékk fjóra einstaklinga til að tjá sig um lagið. Borgin mín Lag og texti Árni Sigfússon Borgin mín kær, böðuð í sól i birtunni léttist mín lund skýin nú bera, huga minn heim i borginni ntinni við sund. (Viðlag) Stúlkan sem lofaðist mér í laut við menntaskólann lífs míns félagi er og brosir... Ég ann þér, ástkæra mær og eflist í barnanna kiið ég bið þig, borgin min kær að veita þeim gæfu og frið, gæfú og frið. Svo cr um flest, sem kært fólki er að fátt fær þvi steypt og grandað efbarniðervarið, það ávexti ber sem brátt geta gefið og andað. (Viðlag endurtekið) Svo vaka dagar, vikur og ár vegurinn gefúr og tekur minningin góð, sem græðir öll sár gleður þig, styrkir og vekur. 2B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 19. MAÍ1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.