Pressan - 19.05.1994, Blaðsíða 6

Pressan - 19.05.1994, Blaðsíða 6
Ævintýradrengurinn og útlagastúlkan Fólk úti á landi er engin fífl Hljómsveitirnar Bong og Bubbleflies hafa verið að boða sitt dansvæna fagnaðarerindi að undanförnu á miklum tónleika- rúnti sem ber yfirskriftina „Grúvi sé lof og dýrð“. Eyþór Arn- alds, annar hluti Bong-flokksins, segir hér lesendmn PRESS- UNNAR allt um túrinn og fleira til. JÓI í ÆUINTÝRA- LEIT (OG FRAM- HALD í TVEIMUR BÓKUM) HÖF.: ÖRN KLÓI ÚTG.: IÐUNN REYKJAVÍK CA. 1955 myndunaraflið gerir manninn ósigrandi. Allir kannast við það úr barnæsku og kannski langt fram eftir aldri hvernig leita má hugsvölunar í flugi hugans gegn hverjum þeim niðurlægingum sem hversdagslífið býr okkur; á skólalóðinni ertu hrekktur og hrjáður af þeim sem meira mega sín, en í dagdraumunum fá þeir makleg málagjöld þegar þú, sterk- ur, frægur og jafnvel grár fyrir járnum, þeytir þeirn í allar áttir. Einhversstaðar í höíðinu raðar lé- legasti auli íþróttaæfinganna inn glæsimörkum fyrir landsliðið og uppsker fagnaðarstunur þúsund- anna í stúkunni, og mesti hallæris- gæi ballanna vefur fegurðardísun- um um fingur sér í erótískum fantasíum. Úrþví mannskepnunni er gert að rogast með sjálfsmynd, sem hefúr oft ekki raunverulegar forsendur til annars en að vera bæði hrörleg og lítilsigld, má kannski segja að ímyndunarafl- ið sé sá varnarmekan- ismi sem gerir mönn- um kleift að afbera líf- ið; það er nokkurskon- ar ónæmiskerfi sálar- innar gegn fánýti tilver- unnar. Það er verðugt unt- hugsunarefni að velta íýrir sér hve stór hluti af bókmenntum ver- aldarinnar er sprottinn beinlínis úr þessari þörf ntanna til að fljúga á vængjum hugans frá eigin tilgangsleysi. Allir þeir höfundar, kreppt- ir, hæddir og mæddir, sem hafa smíðað sér alter ego í formi sögu- persóna sem vinna ótrúlegustu afrek. Ein- hversstaðar las ég hug- leiðingu eftir Thor Vil- hjálmsson unt afar óspennandi mann af norsku bergi, höfund klámfenginna bóka þarsem hann „skrifaði sig upp í rúm“ hjá helstu glæsidömum ver- aldar. Thor notaði yfir þetta þýska hugtakið „ersatzlitteratur“, sem mætti kannski þýða sem uppbótarbókmenntir, og er haft yfir allskyns gervimennsku. En kannski leynast svipaðar hvatir að baki fleiri sagnaritunar þótt ekki sé það alltaf jafri augljóst, og hljóta þá að hvarfla að manni spurningar um hvað þeim að- krepptu og heiminum gleymdu eyjarskeggjum hér langt úti í hafi gekk til að búa til sögur um landa sína sem fóru með vopnum og dýrum skáldskap víða um lönd og nutu allsstaðar frægra sigra og skáldalauna. Islenskur höfundur bóka fýrir stálpaða unglinga kallaði sig „Örn Klóa“ og var dáður og vinsæll á sjötta og sjöunda áratugnum og hefúr laundrjúg áhrif enn, og varla held ég að hægt sé að finna aug- ljósari eða skemmtilegri dæmi um fantasíur þarsem menn bæta sér upp gráan hversdagsveruleikann en bækurnar sem hann skrifaði. Jói í ævintýraleit er fyrsta bókin í flokknum um Jóa Jóns, sem er nokkurskonr sambræðingur af öll- um bardagahetjum heimsins; Tarsan, Súperman, Hróa hetti, nema Jói er unglingur í litlu ís- lensku sjávarþorpi, frumskógur hans er gömul fiskimjölsverk- smiðja, óvinirnir hópur óknytta- stráka, samherjarnir flokkur ungra kvenskáta, vígvellirnir fjaran, beituskúrarnir og sleðabrekka kauptúnsins. Að öðru leyti vantar ekkert af skyldugum innanstokks- munum spennusagna, því að á þessu sögusviði og með áður- nefndu persónugalleríi gerast blóð- ugar stórorrustur, þarna takast manngæskan og hetjuskapurinn á við sadisma og grimmilega fólsku. Jói er ýmist sautján ára eða fimmtán (síðum bókarinnar ber ekki alveg saman um það). Hann er að uppruna hjartveikur væskill sem kvelst undan kvalalosta eldri bróður sem var „taugaveiklaður, skapbráður og hið mesta fól“, og lætur innræti sitt bitna á litla bróð- ur og gengur hvað eftir annað af honum hálfdauðum. Uns Jói rís upp, fer að kynna sér „heilbrigðis- og aflkerfi Charles Atlas“ og verður gersamlega ósigrandi, leikur sér hlæjandi og með bros á vör að því að sigra stórar sveitir blóðþyrstra fúlmenna, og gerist verndari allra sem minna mega sín. „Eðlilegur roði, djúpur, reglubundinn andar- dráttur og hvelfdur brjóstkassi; allt bar þetta vitni þess að maðurinn var ósnortinn af neyzlu eiturefna, er svo rnargur ungur og gamall hafði fallið fyrir. Og óþvingaðar, fjaðurmagnaðar hreyfingar hans, sem voru í senn liprar og stæltar, voru ólíklegar ffá „stæl gæ“, sem stundar sjoppurnar og þá dans- leiki, er réttilega voru nefndir „skröll unga fólksins“. Jói Jóns, en þetta var einmitt hann, var hús- bóndi tilfinninga og gerða, en hinir eru þrælar Bakkusar, eða annarra miskunnarlausra eiturkonunga, sem festa rótum í hjörtum æsku- mannanna, er skortir sjálfstæði í hugsunum og gerðum til þess að forðast það víti, sem fyrr eða síðar steypir þeim í glötun.“ Andstæðingar Jóa eru óknytta- strákar einsog áður sagði, undir forystu Runka og Hnúa, sem eru alveg ótrúlegir fantar og níðingar; persónulýsingar þeirra hefðu sómt sér á hvaða fjöldamorðingja sem mannkynssagan kann frá að greina; þeir eiga þá eina hugsjón að gera líf annarra þorpsbarna að botnlausri kvöl, og tækist það ef Jói sæi ekki ævinlega við þeim. Og það er ekkert dregið úr því að Jói er í bráðri lífs- hættu þarsem hann sveiflar sér í köðlum í ryðgaðri beinamjöls- verksmiðjunni undan sveitum organdi glæpa- hyskisins. Jói á einn bandamann, eða öllu heldur skjólstæðing, sem Pétur heitir, og svo er að sjálfsögðu stúlka í spilinu, útíagadrottn- ingin Kiddý Munda (sem reyndar er systir bófaforingjans Hnúa). Svona er kvenhetjan kynnt til sögunnar: „Útlagadrottningin! mælti Pétur með inni- legri aðdáun í röddinni. „Nafngiftina hefúr Kiddý Munda hlotið vegna röskleika síns og áræðis, og eins og nafn- giftin gefur til kynna, hefur engin skátastúlka, sem vitað er um, farið í jafnmargar útilegur sem hún. Og auk þess hefúr JCiddý áunnið sér — hylli og virðingu allra vegna sérlega góðrar kunnáttu í „hjálp í við- lögum“, en þar hefur kunnátta hennar orðið mörgurn til bjargar.“ Það þarf varla að taka fram að þau ná saman á endanum: „Ævintýradrengurinn laut niður að útlaga- stúlkunni, er brosti til hans gegnum tárin og augu hennar lýstu ósegjanlega mikilli hamingju, er varir þeirra mættust í heitum, innilegum kossi...“ Öllum þeim skáldum er skortir hugmyndaflug ættu þessar bækur að vera skyldulesning, og ennþá hafa þær áhrif á íslenskar bók- menntir, því að fýrir fáeinum ár- um gaf Smekkleysa út bókina Mið- nætursólborgin eftir ungan höf- und, Jón Gnarr að nafni, þarsem Jói, Kiddý, Hnúi, Runki og co. eru endurvakin í hroðalegri heims- endaveröld með blóði, eiturlyfjum og sadisma. Og það sem rneira er, höfundurinn Örn Klói mun enn vera á meðal vor og við bestu heilsu að því er mínar heimildir greina; hann kvað heita Kristján Jónsson í borgaralegu lífi, og ef væri ég litterert hneigður blaða- maður myndi ég að sjálfsögðu steðja á hans fund með við- talsgræjurnar. ruð þið með þessari yfirferð að gefa landsbyggðarfólíánu valkost við gleðipoppið? „Já, það var löngu kominn tími til þess. Þetta er líka tækifæri fýrir Bong og Bubbleflies að kynnast þjóðinni sinni. Við tökum með okkur góða menn, þá plötusnúða Þossa og Grétar. Þetta er hin sanna byggðastefúa!“ Þegar viðtalið fer fram hefur hópurinn troðið upp einu sinni, á Isafirði. MH og Akranes voru á þriðjudag og miðvikudag, Akur- eyri verður tekin með trompi um þessa helgi og lokagrúvið verður á Vopnafirði á sunnudagskvöld. Hvernig gekk grúvið í ísfirðinga? „ísafjörður er erfiður staður og dýrt að fara þangað með jafhstóran pakka og okkar. Þetta gekk allt upp eins og kraftaverk, enda byrjaði ballið á miðnætti og stóð til þrjú aðfaranótt uppstigningardagsins. Við fengum 200 manns, sem er mjög gott. Það hafa stórar hljóm- sveitir farið flatt á ísafirði. Ég nefni engin nöfn, en popphljómsveit með stóru P-i fékk ekki nema fjörutíu manns föstudagskvöldið áður. Það er því engin spurning að fólk úti á landi er engin fifl. Ég veit ekki hvort það var út af tónlistinni eða einhverju öðru en fólkið var í fljúgandi fíling — mikil gleði í gangi. Hámarkið var þegar við tók- um „Do you remember?“ í tíu mínútna útgáfu. Fyrstu fjórar voru bara eitt hljómborð og söngur, en allir sungu með, meira að segja hörðustu rokkararnir kunnu lagið — það var fagurt.“ Túrinn endar á Vopnafirði. Verður það síðasta sýning sam- starfsins? „Ja, þessi túr endar að minnsta kosti þá. Við mununt kasta mæð- inni, líta yfir farinn veg og sjá svo til. Þetta hefur allt gerst mjög hratt. Við vorum að vonast til að stjórn- völd fengju okkur til að spila á Þingvöllum 17. júní, en það hefur enginn hringt ennþá. Við tökum annars bara einn dag í einu eins og sannir alkóhólistar.“ Já, er mikið drukkið? „Þetta er mjög gott vatn,“ segir Eyþór og bendir á glasið. „Vökva- neysla mannsins er algjört grund- vallaratriði svo hann haldi lífi. Þótt maðurinn lifi illa án tónlistar lifir hann alls ekki án drykkjar. Það er því rétt: Við drekkum.“ Er þessi túr eitthvað frábrugðinn öllutn Todmobile-túrunum sem þú hefurfarið? „Þessi pakki er mun fjölbreytt- ari. Við lögum okkur að aðstæð- um. Við reynum að skapa klúbba- stemmningu — þetta er ekki bara „nú kemur hljómsveitin og nú er pása“ — heldur er stöðug stemmning allt kvöldið. Við förum inn í lög hver hjá öðrum — það er hálfgerð fjölskyldustemmning í gangi. Þetta er fjölskylduhátíð.“ Lendir þú ekki í þeirri aðstöðu að vera pabbinn í þessari fiölskyldu þegar Bubbleflies-strákarnir eru jafnkolvitlausir partímenn og raun ber vitni? „Ég reyni að láta Guð forða mér frá því. Það er stórhættulegt að breytast í einhverja barnapíu, „pabbarnir“ lenda alltaf illa í því. Við erum með gott starfslið: Rót- arinn sér í hvaða átt menn æða og það hefur enginn misst af flugvél ennþá.“ Bong tekur eitin dag í einu, eins og þú segir. Eruð þið samt ekki að pœla í stórri plötu á árinu? „Ekki beinlínis, en það verður líklegast niðurstaðan. Fyrsta hugs- unin er að gera tónlist en ekki að gera plötu, svipað og fýrsta hugs- unin með að halda tónleika er ekki sú að redda „sponsurum" heldur að spila góða tónlist. Við ætlum að halda áfram að gera tónlist og sjá hvernig viðtökur hún fær, hér og á öðrum eyjum, Vestmannaeyjum, Grímsey, Bretlandseyjum...“ Voruð þið ekki einmitt að ota ykkar tota þar nýlega? „Ja, við vorum aðallega úti til að hlusta á tónlist. Við fengum góðar viðtökur og mjög góðan leiðsögu- mann á næturlífið. Við hittum fullt af góðu fólki. Aðalmálið er að ná sambandi við sjálfan sig áður en rnaður fer í að redda samböndum við einhveija aðra. Það samband var eflt til muna og við hlustuðum á Bong með útgefendum og tón- listarfólki, sem gaf okkur lærdóms- ríka gagnrýni. Varstu búinn að heyra af litlu plötunni sem er að koma út með okkur?“ Ha, nei! „ZYX er að gefa út „Do you remember?" í Þýskalandi og CNR í Benelux-löndunum og Skandinav- íu — fimrn mix af því lagi.“ Og á svo ekki að Jylgja útgáfunni eftir með látum? „Besta leiðin til að fýlgja eftir góðu lagi er auðvitað bara að gera fleiri góð lög. Mér finnst persónu- lega miklu merkilegra að spila á Vopnafirði en að vera gefinn út í Þýskalandi. Það hafa svo margir gefið út plötur í Þýskalandi en ör- fáir hafa farið með stóra hluti til Vopnafjarðar.“ Gunnar H. „Jói rís upp,fer að kynna sér „heilbrigðis- og aflkerfi Charl- es Atlas “ og verður gersam- lega ósigrandi... “ 6B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 19. MAÍ 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.