Pressan - 19.05.1994, Blaðsíða 18

Pressan - 19.05.1994, Blaðsíða 18
 • AMMA LÚ Aggi Slæ og Tamlasveitin að vanda á föstudagskvöld. Örn Árna blúsar fyrir matargestí. Var skikkaður til að tína upp sígar- ettustubba við hraðbrautir Bakhliðin SVEITABÖLL Við mælum með: Á sunnudag: ... göngutúrum göngutúrum og aftur göngutúrum. Hvað er sosum hægt að gera annað við þessa daga þegar allt er lokað og enginn má neitt? Nú, ef menn eru tímanlega í því má örugg- lega komast yfir handbók sem kallast „gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur" hjá upplýsinga- þjónustu ferðamannaiðnaðar- ins. ... Jagermeister, þeim undradrykk, — ef menn hafa á annað borð vaknað eitthvað slompaðir. Annars mælum við fyrst og fremst með því að að fólk leyfi sér þann munað á þessum hátíðisdegi... ... að borða eins og það lyst- ir, nú er nefnilega nokkuð langt í annan eins hátíðisdag og þennan. Fyrir utan 17. júní og frídag verslunarmanna, sem ekki teljast beinlínis neinir át- dagar, er annan eins dag ekki að finna fyrr en um jól. ... Café Óperu, sem er víst eitt fárra veitingahúsa í bænum sem eru opin þennan dag, fyrir utan auðvitað hótelin sem þurfa að sinna túristunum. Hópur leikara sem kallar sig Erlend, af þeim ástæðum að allir innan hans eiga það sameiginlegt að hafa prófgráðu að utan, hefur að undanförnu æft leikgerð af Dægurvísu eftir Jakob- ínu Sigurðardóttur, sem skáldkon- an sjálf vann að ásamt Bríeti Héð- insdóttur fyrir einum tuttugu ár- um. Leikritið verður í fyrsta sinn fyrir augum almennings í Þjóðleik- húskjallaranum mánudaginn 30. maí á vegum Listaklúbbsins, en upphaflega var það flutt sem út- varpsleikrit. „Þetta er auðvitað liður í að koma sér á ffamfæri. Það er erfitt, en við erum bjartsýn,“ segir Rann- veig Þorkelsdóttir sem lauk leiklist- arnámi fyrir síðustu jól, en hún ásamt hinum konunum í hópnum, þeim Ragnhildi Rúriksdóttur og Sigrúnu Gylfadóttur sem nokkrir ættu að kannast við úr Stuttum ffakka, lærði í Bandaríkjunum. Karlmennirnir, sem eru tveir og heita Skúli Ragnarsson og Gísli Kærnested, byggja aftur á móti á breskum leiklistargrunni. Að námi loknu hafa þau eins og fjölmargir aðrir tilheyrt fjórðu deild leikarafé- lagsins, sem má segja að sé saman- safn leikara sem ekki hafa haff fast- an samastað í leiklistinni. Uppruna samstarfsins má einmitt rekja til prufu sem hópurinn fór í til að ffeista þess að fá eitthvað að gera í Borgarleikhúsinu fýrir skemmstu, en það er bæði gömul saga og ný að leikarar menntaðir erlendis eiga erfiðara uppdráttar en kollegar þeirra sem farið hafa í gegnum Leiklistarskóla íslands. Þótt ekki sé ráðgerð nema ein sýning á Dægurvísu í kjallara Þjóð- leikhússins má vel vera að farið verði með leiksýninguna víðar. „Við ætlum að minnsta kosti að halda hópnum áffam saman og æfa upp fleiri sýningar. En hvað það verður er ekki komið á hreint.“ ■ Ekki stendur til að hafa umgjörð sýningarinnar íburðarmikla, engu að síður verður reynt etir megni að skapa þann tíðaranda sem ríkti upp úr 1960 þegar Dægurvísan gerist. „Leikritið verður að miklu leyti flutt í söguformi, en innan um munum við leika söguna. Þetta verður svolítið spennandi. Ekki síst af því við ætlum að hafa músík með, ef til vill lifandi.“ • FÉLAGSHEIMILIÐ Patreksfirði Bubbi Morthens á lokasprettinum með at- vinnuleysisblúsinn á fimmtudagskvöld. Föstudagskvöldinu eyðir hann á Króks- fjarðarnesi en lokakvöldið, laugardags- kvöld, verður hann staddur í Grundar- firði. • HÓTEL MÆLIFELL Sauðárkróki Vinir Dóra og óvinir á föstudagskvöld. • SJALLINN Akureyri Alvaran á föstu- dagskvöld. Sem fyrr Grétar og Rut Reg- inalds. • VOPNAFJÖRÐUR Aðfaranótt hvíta- sunnudags hefur heyrst að þar verði staddir Bong og Bubbleflies, öðru nafni BoB. Fjárfestið þvi i nóg af búsi. • 1929 Akureyri BoB á föstudags- og laugardagskvöld. • TÝSHEIMILIÐ Vestmannaeyjum SSSól laugardagskvöld og eftir miðnætti sunnudagskvöld. Sumir eru greinilega jafnari en aðrir. Einn skemmtilegasti trúbador landsins er hinn skræki GG Gunn. Hann gaf út plötuna „Letter ffom Lhasa“ fyrir tveimur árum í Kali- forníu, en sú plata hefur fengist hér á landi síðan í haust. GG Gunn er einnig þáttagerðarmaður á X-inu, rithöftindur og þýðandi og hefur verið að taka upp með Jet Black Joe að undanförnu. GG Gunn snýr bakhliðinni í lesendur í dag. Hvar ertu og hvað varstu að gera? „Ég er hjá móður minni og var að leita að sælgæti og ís. Áðan var ég að reyna að ná í ritstjóra Sam- útgáfunnar, sem hefur verið sex mánuði að fara yfir grein mína um kynferðislegan rétttrúnað,“ Hvað er langt síðan þú hœttir að sofa með bangsa? „Ég hætti því um sex ára aldur, eða jafhvel fyrr.“ Hvaða bók ertu að lesa þessa dag- ana? „Ég var að lesa Evu Lunu í morgun. Þetta var bók ffá bóka- safninu en ég verð að kaupa hana því hún er best í smáskömmtum.“ Finnst þér Korkí skemmtilegur? „Hver? Er það einhver teikni- myndapersóna?11 Á hvað minnir Árni Sigfússon P'g? „Hann mynnir mig á Oscar Schindler út af atvinnuátakinu. Ég var skikkaður í að tína upp sígar- ettustubba við hraðbrautir og aug- lýsi um leið forsjárhyggju Sjálf- stæðisflokksins." En Ingibjörg Sólrún? „Sofifiu ffænku úr Kardim- ommubænum.“ Á að taka Z-una upp aftur? „Já, það á að taka hana upp til skrauts og einfalda íslenskuna um leið.“ Hvað eyðirðu miklu í frimerki á tnánuði? „Mjög litlu. Kannski svona 600- kalli. Er það kannski mikið?“ Eru Radíus-brœður ennfyndttir? „Voru þeir einhvern tímann fyndnir? Mér finnst allir íslenskir gamanleikarar brjóstumkennan- legir.“ Hvort vildirðu firekar fara með Bubba eða Megasi í útilegu? „Ég myndi ekki þora með Meg- asi.“ Hefur þig dreymt furðulega drauma umfrœgtfólk? „Mig dreymdi að Karl Sighvats- son væri í heimsókn hjá Dalai Lama og allt í einu breyttist Lama í blóðugt heimskort og Karl varð al- blóðugur. Þetta dreymdi mig á Indlandi 1990 og seinna túlkaði ég drauminn þannig að Karl hefði ákveðið að leggjast til hinstu hvílu því honum þótti heimsmyndin vera orðin svó blóðug." Ertu með tattó? „Nei.“ Hvernigeru nœrbuxumarþínar á litinn? „Ég geng alltaf í svörtum nærföt- um.“ Hvaða brögðutn beitirðu á kven- mannsveiðum? „Ég beiti engum brögðum. Ég er hrekklaus, saklaus og geng hreint til verks.“ Hefurðu notað ryksugu til ein- hvers annars eti að ryksjúga? „Góð spurning. Við notuðum ryksugu þegar við tókum upp nýtt Pink Floyd-legt lag með Jet Black Joe um daginn." Hverju viltu þakka aldurþinn? „Heilsa mín stafar fyrst og fremst af linnulausri tedrykkju unglingsáranna." • BLÚSBARINN Tryggvi Hiibner og Haraldur Reynisson í eina sæng á fimmtudagskvöld. Sóldögg á föstudags- kvöld. Ef til vill opiö eftir miðnætti að- faranótt mánudags. Það væri að minnsta kosti saga til næsta bæjar og mikil framför. • CAFÉ BÓHEM, VENUS „Þetta síma- númer er lokað... þetta síma..." • CAFÉ R0MANCE lan hinn breski heldur áfram að leika undir glösum. Vignir Daða, granni maðurinn með stóru röddina, Óperu-megin. • CAFÉ R0YAL, Hafnarfirði Þú ert... á föstudagskvöld.... aðverða á laugar- dagskvöld, eða barasta venjuleg kaffi- hússtemmning með likjörsívafi. • DANSHÚSIÐ, Glæsibæ Gleðigjafarnir eða André Backmann og Ellý Vilhjálms á laugardagskvöldið. • FEITI DVERGURINN Kántrísveitin Út- lagarnir á föstudagskvöld. Ekkert mark- vert nema drykkja á laugardaginn. • FOSSINN, Garðabæ Þuríður Sig. og Vanirmennallahelgina. • FÓGETINN Hermann Arason trúbador frá fimmtudegi fram að miðnætti á laug- ardag. Djass á fimmtudagskvöld með Kidda Gumm, Ómari Einarssyni og Einari Sigurðssyni. Jón Baldursson trúbador á mánudagskvöld. • GAUKUR Á STÖNG Soul de plus á fimmtudagskvöld. Undir tunglinu tekur við á föstudagskvöld. Páll Óskar og Mill- arnir á annan í hvítasunnu. • HÓTEL ÍSLAND Ungfrú ísland, ytri fegurð á föstudagskvöld. • HÓTEL SAGA Birgir Tryggvason og Þorvaldur Halldórsson á Mímisbarnum fimmtudags-, föstudags- og laugar- dagskvöld. • HRESSÓ Lipstick Lovers halda uppi kaffihússtemmningu til miðnættis á föstudagskvöld frammi við gluggann. • RAUÐA LJÓNIÐ Sin (það er með ein- földu — hallærislegtnafn) með létta spretti á föstudagskvöld. • SÓL0N ÍSLANDUS JJ-Soul á föstu- dagskvöld. Ef til vill pianóleikur á annan í hvítasunnu. • TURNHÚSIÐ Stórhljómsveit Jar- þrúðar á fimmtudagskvöld; Lolla, Gunna Jara og þær allar. Tríó Ólafs Gauks ásamt Ónnu Mjöll á föstudagskvöld. • TVEIR VINIR Hörður Torfa gerir trúbadortilraun á fimmtudagskvöld á veitingastað. Black out á föstudags- kvöld með Jónu de Groot, einni efnileg- ustu söngkonu íslands. Slappleiki á laugardagskvöld. • ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN Hamm- ondspuni gitarsnillingsins Gumma P. á fimmtudagskvöld. Leikhúsbandið leikur það sem eftir lifir helgar. Við mælum með: Á mánudag: ... að ungviðið, frá 6 til 99 ára, noti frídaginn til að skrá sig í Streetball-keppnina sem verður í Laugardalnum 4. júní. Það ætti að minnsta kosti að vera hægt, því að- stand- endur keppninnar halda því fram að skrifstofan sé opin alla daga ff á eitt til sex, og vel að merkja; ekki er ráð nema í tíma sé tekið því færri komust að í fyrra en vildu. Úrslitakeppni milli sigurvegara mótanna, sem verða haldin víða um land, fer svo fram á Hard Rock 13. ágúst. Það er barasta nokkuð í húfi því drengir, eingöngu drengir fæddir frá árunum 1975 til ’78, eiga þess kost að leika í Evrópu- keppninni í Streetball sem fer fram í Berlín í september. ... Wagner-dögum í Reykja- vík sem hefjast í Norræna hús- inu klukkan tvö i dag. Fyrir þá sem ekki hafa enn fengið nóg af hátíðleik helgarinnar eða þá sem vilja bæta ráð sitt. ... Bíóferð fyrir þá sem enn eiga eftir að sjá Lista Schindlers, sem fer væntanlega ekki vel í sjónvarpi, og I nafni föðurins, þótt sú mynd villi mönnum sögulega sýn. Svo er Backbeat í Háskólabíói barasta nokkuð forvitnileg. LHandi Dægurvísa ERLENDUR: Ragnhildur Rúriksdótt- ir (Haraldssonar), Rannveig Þor- kelsdóttir, Skúli Ragnarsson, Sig- rún Gylfadóttir og Gísli Kærnested. Leikstjóri Dægurvísunnar er Helga Jónsdóttir. 18B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 19. MAÍ1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.